Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 47 FÓLK  MOLDE sigraði sænska liðið Malmö, 1:0, á æfingamóti á La Manga í gær. Andri Sigþórsson var í byrjunarliði Molde en var skipt útaf á 65. mínútu. Ólafur Stígsson lék síðustu 12 mínúturnar en Bjarni Þorsteinsson var á vara- mannabekknum allan tímann.  ROGER Albertsen, fyrrum landsliðsmaður Noregs í knatt- spyrnu, er látinn af völdum krabbameins, aðeins 45 ára að aldri. Albertsen skoraði í frægum sigri Noregs í Englandi, 2:1, árið 1981 en hann lék m.a. með Feyenoord í Hollandi, Olympiakos í Grikklandi og Rosenborg.  JÜRGEN Röber, fyrrverandi þjálfari Herthu Berlín, var í gær ráðinn þjálfari þýska knattspyrnu- félagsins Wolfsburg. Hann tekur við starfinu af Wolfgang Wolf.  MARCELINHO, Brasilíumaður- inn sem leikur með Eyjólfi Sverr- issyni og félögum hjá Herthu Berlín var í gær sektaður um sem nemur einni og hálfri milljón króna. Ástæðan er að hann fór of oft í brasilískan næturklúbb í Berlín til að taka þátt í kjöt- kveðjuveislum þar – og dvaldi allt of lengi.  DIETER Höness, fjármálastjóri félagsins segir þetta óviðunandi framkomu, sérstaklega þar sem ekki hafi gengið of vel hjá liðinu upp á síðkastið. Hann gagnrýndi einnig frammistöðu Alex Alves, brasilísks framlínumanns liðsins, og sagði hann hafa leikið illa.  WOLFGANG Wolf hætti í gær sem þjálfari Wolfsburg í þýsku deildinni. Samningur hans var út þetta tímabil en hann kom til fé- lagsins 1998. Wolf óskaði eftir að fá að hætta núna og varð stjórn fé- lagsins við því. Við starfi hans tek- ur Jürgen Röber, sem hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Herthu Berlín fyrir ári.  WOLF er annar þjálfarinn sem hættir á síðustu fjórum dögum í þýsku deildinni. Hans Meyer hætti á laugardaginn hjá Mönchenglad- bach og Ewald Lienen tók við þjálfarastarfi þar á bæ. Knattspyrnuskóli Manchester United 9.-17. ágúst 2003 Í ár bjóða Manchester United klúbburinn á Íslandi og Úrval Útsýn upp á knattspyrnuskóla Man. Utd. Skólinn er á vegum Man. Utd eins og nafnið gefur til kynna og hefur hann aðsetur í Denstone College heimavistarskólanum. Boðið er upp á þjálfun og umsjón, sem er í einu og öllu í líkingu við það hvernig efnileg- ir knattspyrnumenn æfa hjá stórliðum eins og Man. Utd. Þá er boðið upp á ýmsa fræðslu fyrir unga knattspyrnumenn/konur sem á að hjálpa þeim að ná betri tökum á íþróttinni og reynt er að tryggja að skólinn verði krökkunum ógleymanleg skemmtun. Með það að markmiði er dagskráin brotin upp með ýmsum uppákomum: Ber þar hæst skoðunarferð um Old Trafford og heimsókn á Carrington æfingasvæði Man. Utd, þar sem vonandi verður hægt að fylgjast með æfingu aðalliðsins hjá Man. Utd sem hlaðið er skærustu stjörnum heimsins í fótbolta, mönnum eins og Beckham, Veron og Giggs svo einhverjar séu nefndir. Flug: FI 450 G 09AUG KEFLHR 0745 1145 FI 453 G 17AUG LHRKEF 2110 2310 Námskeiðið sjálft fer fram 9.-17. ágúst. Haldið er út á laugardegi og heim á sunnudegi rúmri viku síðar. Æft er tvisvar til þrisvar sinnum á dag. Verð: 104.900 kr. Innifalið: Flug, skattar, rútur til og frá flugvelli, gisting með fullu fæði, skoðunarferð um Old Trafford, heimsókn á Carrington, bolur og húfa merkt skólanum, öll kennsla og þjálfun og íslensk fararstjórn Nánari upplýsingar veitir Íþróttadeild Úrvals Útsýnar í síma 585 4100 eða á email ludvik hjá uu.is www.urvalutsyn.is SKOTLAND- ÍSLAND 28.-30. mars nk. Úrval Útsýn bíður upp á ferð í beinu leiguflugi til Glasgow á leik Skotlands og Íslands í undankeppni EM landsliða 29. mars nk. Haldið út að morgni föstudagsins 28. mars kl. 9:00 Farið heim á sunnudagskvöldi 30. mars kl. 19:00 Gisting: Holiday Inn West 4 stjörnu hóteli í miðborginni Premier Lodge 3 stjörnu hotel í miðborginni Verð á þriggja stjörnu hóteli: 43.900 kr. á mann í tvíbýli Innifalið: Flug, skattar, gisting í tvær nætur með morgunverði á þriggja stjörnu hóteli og rútur til og frá flugvelli og miði á völlinn Verð á fjögurra stjörnu hóteli: 46.900 kr. á mann í tvíbýli Innifalið: Flug, skattar, gisting í tvær nætur með morgunverði á fjögurra stjörnu hóteli og rútur til og frá hóteli og miði á völlinn. Nánari upplýsingar hjá Úrval Útsýn í Smáranum í síma 585 4100 eða á tölvupósti ludvik@uu.is BJÖRGVIN Sigurbergsson, kylfingur úr Keili, ætlar að flytja heim með fjölskyldu sína á ný eftir um árs dvöl í Englandi. Björg- vin ætlar engu að síður að keppa áfram á EuroProTour-atvinnumannamótaröðinni en sækja mótin frá Íslandi. Björgvin hefur æft í allan vetur og er tilbúinn í slaginn en fyrsta mótið hans í mótaröðinni er 8. apríl en hann sleppur við að taka þátt í forkeppninni sem fram fer 2. og 3. apríl. Hann fer hins vegar beint á lokaúrtökumótið fyrir mótaröðina. Á heimasíðu Björgvins kemur fram að ákvörðun um að flytja heim á ný hafi verið tekin að vandlega athuguðu máli og hafi niðurstaðan verið að betri kostur væri að búa hér á landi næsta keppnistímabil. Björgvin flytur heim Sigurjón Sigurðsson læknir semskoðaði Lewis talaði um það, að hann ætti að vera búinn að ná sér innan tíu daga frá aðgerðinni en það getur hins vegar verið mjög misjafnt eftir mönnum hversu lengi þeir eru að ná sér. Það má vel vera að þetta standist hjá lækninum en þar sem liðþófinn er rifinn finnst mér kannski hæpið að tíu dagar dugi til að hann fái sig góðan,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga, við Morgunblaðið en hann var þá nýbúinn að fá úrskurð um að meiðsli Lewis. Ein umferð er eftir af deild- arkeppninni en framundan er úr- slitakeppnin sem hefst í næstu viku. „Við erum að velta því fyrir okkur hvað við gerum í framhaldinu. Það getur verið að við tökum leikmann í staðinn fyrir Lewis sem gæti brúað bilið þar til hann hefur náð sér að fullu, en þar er á ferð leikmaður sem er með alla pappíra klára og getur komið með stuttum fyrirvara.“ Friðrik Ingi sagði að Helgi Jónas Guðfinnsson ætti einnig við meiðsli að stríða. Hann sagði að Helgi færi í beinarannsókn í vikunni þar sem reynt yrði að finna út hvað væri að angra hann. „Ég geri fastlega ráð fyrir því að Helgi Jónas hvíli í lokaumferðinni á fimmtudag. Það er afar óheppilegt vegna þess að leikurinn skiptir and- stæðinga okkar miklu máli. Snæfell- ingar gera orðið sárir og reiðir og vænt okkur um það að við séum að velja okkur andstæðinga í úrslita- keppnina. Ég ætla samt hins vegar rétt að vona að menn geri okkur Grindvíkingum það, að við hugsum um það heldur mætum við í leikinn til þess að vinna.“ Lewis í aðgerð – nýr leik- maður til taks BANDARÍKJAMAÐURINN Darrel Lewis, sem leikur með deild- armeisturum Grindvíkinga í körfuknattleik, gengst í dag undir að- gerð á hné en við skoðun hjá lækni í gær kom í ljós að liðþófi í hné leikmannsins var rifinn. Þetta þýðir þó ekki að Lewis sé úr leik og leiki ekki meira með Grindvíkingum á leiktíðinni. FÓLK ÞAÐ er ljóst að geysilega hörð barátta verður um miða á viðureignir Liver- pool og Celtic í 8-liða úr- slitum UEFA-bikarkeppn- innar er framundan. Viðureignin hefur verið kölluð Baráttan um Bret- landseyjar. Stuðningsmenn Liverpool fá aðeins 2.700 aðgöngumiða af 60 þús. miðum á Parkhead í Glas- gow er liðin eigast við í fyrri viðureigninni, 13. mars. Stuðningsmenn Celt- ic fá 3.000 miða á Anfield – á seinni viðureignina, 20. mars. Menn verða því að vera með allar klær úti til að fá miða á leikina. Hörð barátta um miða  HEIÐAR Helguson var ekki í leik- mannahópi Watford í leiknum á móti Preston í ensku 1. deildinni í gær. Ray Lewington, stjóri Waford, ákvað að hvíla Heiðar og hafa hann ferskan í bikarleiknum á móti Burnl- ey um næstu helgi.  HELGI Valur Daníelsson lék all- anleikinn fyrir Peterbrough sem steinlá fyrir Plymouth í ensku 2. deildinni.  EUGENE Christopher verður á ný í liði ÍR sem mætir Tindastóli í lokaumferð úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik annaðkvöld. Christ- opher hefur misst af tveimur síðustu leikjum ÍR vegna meiðsla á læri en er á góðum batavegi.  HAFÞÓR Rúnarsson, knatt- spyrnumaður úr ÍBV, hefur sent Víkingum formlega afsökunarbeiðni vegna framkomu sinnar í leik liðanna í deildabikarnum síðasta laugardag. Hafþór var þá rekinn af velli fyrir ýta harkalega við Daníel Hafliða- syni, leikmanni Víkings.  SÆVAR Pétursson, knattspyrnu- maður, er genginn til liðs við Breiða- blik á nýjan leik eftir að hafa spilað í 3. deild með Deiglunni á síðasta sumari. Sævar, sem hefur leikið 54 leiki í efstu deild með Breiðabliki, Fram og Val, skoraði 15 mörk í 3. deildinni í fyrra.  HJÁLMAR Jónsson lagði upp mark Gautaborgar sem gerði jafn- tefli, 1:1, við Bryne frá Noregi á La Manga á Spáni í gær. Hjálmar þótti með bestu mönnum sænska liðsins í leiknum.  STEFAN Schwarz leikmaður Sunderland og sænska landsliðsins ætlar að leggja knattspyrnuskóna á hilluna í vor.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.