Morgunblaðið - 05.03.2003, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 9
Hörfatnaður
Kjólar, jakkar, pils,
blússur og vesti
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Ný sending
Úlpur og frakkar
Tilboð 4.900
Laugavegi 34, sími 551 4301
VINAFÉLAG Íslensku óperunnar
afhenti Óperunni í gær 1,2 millj-
óna króna styrk til að halda eina
aukasýningu á óperunni Macbeth,
en sýningin hefur gengið fyrir
fullu húsi allt frá frumsýningu og
löngu uppselt á allar átta sýn-
ingar hennar. Eins og fram hefur
komið er kostnaður umfram
tekjur á hverri sýningu á Mac-
beth um 1,2 milljónir króna.
Gamla bíó rúmar aðeins 470
áhorfendur, og aðgangseyririnn
hrekkur ekki fyrir sýningarkostn-
aði. Hefði Óperan getað sýnt Mac-
beth í 800 manna sal hefði hvert
sýningarkvöld staðið undir sér og
unnt hefði verið að halda sýn-
ingum áfram.
Tómas Heiðar, formaður Vina-
félagsins, sagði við afhendinguna
í gær að með framtakinu vildi
Vinafélagið einnig vekja athygli á
húsnæðisvanda Óperunnar. Hann
sagði einsýnt að þegar horft væri
til framtíðar væri Gamla bíó
ófullnægjandi starfsvettvangur
fyrir Íslensku óperuna. Kæmu þar
annars vegar til fyrrgreind efna-
hagsleg rök, en hins vegar sú
staðreynd, að svið Gamla bíós
væri svo lítið að ógjörningur væri
að setja þar upp stóran hluta óp-
erubókmenntanna. „Augu manna
beinast því mjög að Tónlistarhús-
inu sem á að reisa í miðbænum.
Við teljum að það geti orðið mjög
viðunandi niðurstaða að minni
salur Tónlistarhússins verði út-
færður þannig að hann rúmi um
800 manns, og að þar verði hægt
að efna til óperuflutnings og upp-
færslu annarra sviðsverka. Okkur
finnst einsýnt að framtíðarvett-
vangur Íslensku óperunnar eigi
að vera í Tónlistarhúsinu. Það
yrði mikið menningarslys ef Tón-
listarhúsið yrði reist án þess að
Óperan fengi þar inni.“
Bjarni Daníelsson óperustjóri
þakkaði Vinafélaginu stuðninginn
og það að vekja athygli á húsnæð-
ismálum Óperunnar og tók í
ávarpi sínu undir orð Tómasar
um nauðsyn þess að Íslenska
óperan fengi inni í Tónlistarhús-
inu. Hann benti á að samstarf við
Sinfóníuhljómsveitina væri þegar
fyrir hendi og báðum nauðsyn-
legt, þar sem sama fólk spilaði í
hljómsveitinni og í Óperunni.
„Óperan og Sinfóníuhljómsveitin
þurfa þegar að hafa samvinnu um
dagskrá sína vegna þessa, og
sambýli við Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands er því mjög æskilegt. Ég tel
brýnni þörf á því að í Tónlistar-
húsinu verði óperusalur en
kammermúsíksalur, þar sem
þeirri þörf hefur þegar verið
sinnt með þeim smærri tónlistar-
húsum sem byggð hafa verið á
síðustu árum.“
Fram kom á fundinum að kom-
ið hefur til tals að sýna Macbeth
erlendis. Óperuhúsið í Riga í
Lettlandi hefur sýnt uppfærslunni
mikinn áhuga og um síðustu helgi
var staddur hér á landi blaðamað-
ur frá Opera Now, sem hefur hug
á að kynna sýninguna fyrir há-
tíðahöldurum á Bretlandseyjum
með það fyrir augum að hún færi
þangað. „Á föstudaginn kemur
hingað umboðsmaður gagngert til
að kanna möguleikann á að selja
sýninguna öðrum óperuhúsum,“
sagði Bjarni Daníelsson. Spurður
um þá afstöðu menntamálaráðu-
neytisins að Óperan eigi ekki að
eiga skjól í Tónlistarhúsinu
kvaðst hann telja að opinber um-
ræða um málið myndi færa Óp-
eruna nær því marki að fá inni í
Tónlistarhúsinu. „Ég tel að fólkið
í landinu vilji að Íslenska óperan
verði í Tónlistarhúsinu. Samtök
tónlistarmanna hafa einnig mælt
með því, og ég trúi ekki öðru en
að stjórnmálamenn landsins hlusti
á raddir bæði almennings og tón-
listarfólks í þessum efnum.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Tómas Heiðar, formaður Vinafélags Íslensku óperunnar, afhendir Bjarna Daníelssyni óperustjóra fjárstyrkinn.
Menningarslys ef
Óperan yrði ekki
í Tónlistarhúsinu
ÞJÓÐARATKVÆÐI um kvóta-
kerfið er eitt helsta baráttumál
Frjálslyndaflokksins fyrir Alþing-
iskosningarnar í vor. Á flokksþingi
sem fram fer á Hótel Sögu um
helgina verður m.a. rætt um sjáv-
arútveg, atvinnumál, velferðarmál
og skatta- og vaxtamál að sögn
Sverris Hermannssonar, formanns
flokksins. Þingið hefst á föstudag.
Sverrirsegir nauðsynlegt að Ís-
lendingar einbeiti sér í auknum
mæli að viðskiptum í stað þess að
einblína á vatnsorku og sjávar-
útveg og tekur fram að til þess að
svo megi verða sé ekki nauð-
synlegt að ganga í efnahagsbanda-
lag.
„Við verðum að létta og rjúfa
þessa vísitöluvitleysu,“ sagði
Sverrir. „Við þykjumst vera sjö-
unda ríkasta þjóðin í heimi. Það
kemst ekkert annað að hjá okkur
en fiskur í sjónum og orka í fall-
vötnum.“ Hann bendir á að Danir
hafi hvorki fiskinn né orkuna en
velmegun sé þó mikil hjá þeirri
þjóð. „Við þurfum að komast út úr
þessari sjálfheldu og fara að gera
þetta land að viðskiptalandi á báð-
ar síður og við þurfum ekki að
ganga í efnahagsbandalag til
þess,“ sagði Sverrir og bætti við
að kosning um kvótakerfið væri
eitt helsta baráttumál flokksins.
Flokksþingið hefst á föstudag
kl. 18 með setningarávarpi for-
manns. Framkvæmdastjóri flokks-
ins, Margrét Sverrisdóttir, segir
áformað að opna nýja heimasíðu
flokksins þann dag.
Á laugardag verður unnið að
málefnum og kosið í stjórn flokks-
ins. Bæði verður formannskjör og
kosið í miðstjórn flokksins. Í lokin
verður stjórnmálaályktun þingsins
samþykkt. Á sunnudeginum funda
frambjóðendur flokksins sem
skipa efstu sæti listanna. Margrét
segir ekki von á breytingu á
stefnumálum og segir málefna-
skrána í raun þá sömu og sam-
þykkt var árið 1999.
Búist er við að um 200 manns
sæki flokksþingið á föstudag.
Flokksþing Frjálslynda
flokksins um helgina
GUÐJÓN A. Krist-
jánsson, þingmaður
Frjálslynda flokksins,
gefur kost á sér til for-
mennsku í flokknum á
landsþingi Frjálslynda
flokksins um helgina,
en Sverrir Her-
mannsson, formaður
flokksins, hefur ákveð-
ið að gefa ekki kost á
sér til áframhaldandi
formennsku.
Guðjón staðfesti
þetta í samtali við
Morgunblaðið í gær en
hann tilkynnti mið-
stjórn flokksins fyrir
nokkru að hann myndi bjóða sig
fram til formanns.
Undirbúningur al-
þingiskosninganna
verður meginviðfangs-
efni landsþings Frjáls-
lynda flokksins. „Við
munum leggja fram
okkar áherslur í gróf-
um dráttum. Þótt við
séum ekki beinlínis bú-
in að vinna málin í
kosningabúning mun-
um við auðvitað lýsa
stefnumálum okkarog
áherslum og ræða við
okkar dyggasta stuðn-
ingsfólk og frambjóð-
endur á listum,“ segir
Guðjón, sem skipar
efsta sæti á framboðslista flokksins í
Norðvesturkjördæmi.
Guðjón A. Kristjánsson
Býður sig fram til formanns
TRAUST almennings á lögregl-
unni hefur aukist frá síðasta ári
úr 71% í 73%, samkvæmt því
sem kemur fram í þjóðarpúlsi
Gallup. Aðeins Háskóli Íslands
nýtur meira trausts en lögreglan
eða 85%. Frá árinu 1997 hefur
traust almennings á lögreglunni
aukist um 9%.
Spurt var um traust til Alþing-
is, Háskóla Íslands, lögreglunn-
ar, þjóðkirkjunnar, heilbrigðis-
kerfisins, dómskerfisins,
umboðsmanns Alþingis og rík-
issáttasemjara. Þær þrjár stofn-
anir sem hafa aukið traust meðal
almennings frá mars 2002 eru
Alþingi og umboðsmaður Alþing-
is um 8 prósentustig og heil-
brigðiskerfið um 7 prósentustig.
Traust almennings til lögregl-
unnar, Háskóla Íslands, þjóð-
kirkjunnar, ríkissáttasemjara og
dómskerfisins breyttist lítið frá
síðasta ári.
Samkvæmt frétt frá Gallup
bera karlar almennt meira traust
til Alþingis, umboðsmanns Al-
þingis, dóms- og heilbrigðiskerf-
isins og ríkissáttasemjara en
konur. Konur bera á hinn bóginn
meira traust til þjóðkirkjunnar
en karlar.
Traust fólks á lögreglunni eykst