Morgunblaðið - 05.03.2003, Qupperneq 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞINGFUNDUR hefst kl. 13.30 í
dag. Að loknum atkvæðagreiðslum
eru eftirfarandi mál á dagskrá:
1. Stjórnsýslulög.
2. Útlendingar .
3. Hlutafélög, einkahlutafélög,
samvinnufélög og sjálfseignar-
stofnanir.
4. Fyrirtækjaskrá.
5. Búnaðarlög.
6. Eftirlit með skipum.
7. Vinnutími sjómanna.
8. Vátryggingastarfsemi.
9. Ársreikningar.
10. Samvinnufélög.
11. Sjálfseignarstofnanir sem stunda
atvinnurekstur.
12. Einkahlutafélög.
13. Hlutafélög.
14. Samkeppnislög.
15. Opinbert eftirlit með
fjármálastarfsemi.
16. Aðgerðir gegn peningaþvætti.
17. Tóbaksvarnir.
18. Umhverfismengun af völdum
einnota umbúða (hækkun
umsýsluþóknunar).
19. Vegagerð milli Loðmundarfjarð-
ar og Seyðisfjarðar.
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra sagði í fyrirspurnartíma á Al-
þingi í fyrradag að hann myndi ekki
beita sér fyrir því að hækka atvinnu-
leysisbætur upp að lágmarkslaunum
í landinu. Hann sagði jafnframt að
hann hefði ekki greitt atkvæði með
ályktun, sem samþykkt hefði verið á
nýlegu flokksþingi framsóknar-
manna, um að hækka bæri atvinnu-
leysisbætur og stefna að því að „þær
verði ekki lægri en lægstu launataxt-
ar,“ eins og segir í ályktuninni. Kom
þetta fram í svari ráðherra við fyr-
irspurn Steingríms J. Sigfússonar,
formanns Vinstrihreyfingarinar
-græns framboðs.
„Atvinnuleysibætur voru hækkað-
ar um fimm prósent síðustliðin ára-
mót,“ sagði ráðherra og hélt áfram.
„Er skemmst frá því að segja að ég
mun ekki beita mér fyrir því að
hækka atvinnuleysisbætur upp að
lágmarkslaunum eða gera þær jafnar
lágmarkslaunum. Ég tel að það þurfi
að vera einhver hvati til að fólk taki
vinnu fremur heldur en að vera á bót-
um.“ Félagsmálaráðherra tók þó
undir með Steingrími að atvinnuleys-
isbætur væru lágar og sagði að það
væri athugandi að „lyfta þeim eitt-
hvað upp“.
Steingrímur sagði svör ráðherra
„framsóknarleg“ og lítið á þeim að
græða. Steingrímur minnti á að at-
vinnuleysisbætur væru um 77 þús-
und kr. á mánuði. „Af því er mönnum
ætlað að lifa sem missa atvinnuna –
jafnvel fólki sem hverfur úr vellaun-
uðum störfum.“ Hann sagði að kvart-
að hefði verið yfir því ítrekað á und-
anförnum mánuðum og misserum að
upphæð atvinnuleysisbóta hefði ekki
fylgt verðlagsþróun. Þess vegna
hefði verið ánægjulegt að framsókn-
armenn hefðu munað „eftir þessum
hlutum“ á nýlegu flokksþingi sínu og
ályktað að bæturnar yrðu ekki lægri
en lægstu launataxtar. „Það sem vek-
ur þó auðvitað sérstaka athygli er að
hér talar flokkur félagsmálaráðherr-
ans. Hér talar sá flokkur sem hefur
farið með félagsmálaráðuneytið í átta
ár og því haft nægan tíma til að vinda
þessum hlutum í framkvæmd ef vilji
hefði verið til staðar; ef þetta væru
meira en orðin tóm.“
Síðar í umræðu Steingríms og ráð-
herra um þessi mál tók sá síðarnefndi
fram að hann hefði ekki staðið að því
að undirbúa umrædda ályktun. „Þótt
það komi ekki þessu máli við stóð ég
ekki að þessari tillögugerð á flokks-
þingi framsóknarmanna og greiddi
henni ekki atkvæði,“ sagði ráðherra.
Myndi skrimta
Steingrímur spurði ráðherra, und-
ir lok umræðunnar, að því hvort hann
treysti sér til að fara á atvinnuleys-
isbætur og lifa af þeim. Ráðherra
svaraði spurningunni á eftirfarandi
hátt: „Ég get svarað því til að ég
myndi skrimta einhverja mánuði á
atvinnuleysisbótum, ef að og þegar
ég missi vinnuna, en ég myndi ekki
hafa löngun til þess að vera á þeim
lengi.“
Ráðherra beitir sér
ekki fyrir hækkun
atvinnuleysisbóta
Ályktun þessa
efnis samþykkt á
flokksþingi fram-
sóknarmanna
ÞINGMENN Vinstrihreyfingarinn-
ar - græns framboðs héldu uppi
harðri andstöðu á Alþingi í gær við
frumvarp Valgerðar Sverrisdóttur
iðnaðarráðherra um heimild til samn-
inga um álverksmiðju í Reyðarfirði.
Þriðja og síðasta umræða um frum-
varpið hófst eftir hádegi en lauk í
gærkvöld. Þingmenn VG voru þeir
einu sem héldu framsögur. Þingmenn
annarra flokka komu þó upp í pontu í
andsvörum.
Í upphafi þingfundarins lagði þing-
flokkur VG fram breytingartillögu við
frumvarp ráðherra, en með breyting-
artillögunni er lagt til að bygging
Kárahnjúkavirkjunar og álvers í
Reyðarfirði hefjist ekki nema fram-
kvæmdirnar hafi verið samþykktar í
þjóðaratkvæðagreiðslu, sem fram fari
samhliða komandi alþingiskosning-
um. Þingmenn VG hafa í umræðunni
m.a. bent á, að bygging Kárahnjúka-
virkjunar sem sé forsenda samninga
um byggingu álversins í Reyðarfirði
muni leiða af sér gríðarleg óafturkræf
náttúruspjöll auk þess sem mengun
af álverinu yrði umtalsverð.
Stefnt er að því að fram fari loka-
atkvæðagreiðsla um frumvarpið og
breytingartillögu VG í dag, miðviku-
dag.
Morgunblaðið/Kristinn
Ögmundur Jónasson hefur mælt gegn virkjunarfrumvarpinu í þinginu.
Umræðu lýkur um álversfrumvarpið
Þingmenn VG
hafa haldið uppi
harðri andstöðu
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi á
mánudag að hann óttaðist að með
hverjum degi drægist heimurinn
nær styrjöld í Írak. Hann sagði að
stefna ríkisstjórnarinnar í Íraksmál-
inu væri sú að menn ættu að stuðla
að friðsamlegri lausn málsins. Stríð
væri ætíð „afarkostur, neyðarkost-
ur, neyðarbrauð“.
Ráðherra sagði þó að íslenska rík-
isstjórnin legði áherslu á að Íraks-
stjórn færi eftir ályktun öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna nr. 1441, en
hún kveður m.a. á um að þeir afsali
sér gereyðingarvopnum. Kom þetta
fram í svari ráðherra við fyrirspurn
Ögmundar Jónassonar, þingmanns
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs.
Ögmundur kvaðst harma að ís-
lensk stjórnvöld væru ekki gagn-
rýnni í afstöðu sinni til stríðsæsinga
og yfirgangsstefnu Bandaríkja-
stjórnar í Austurlöndum.
Óttast stríð
í Írak
ÓUPPLÝST mannshvörf hér á landi
frá árinu 1945 til ársins 2002, annarra
en þeirra sem farist hafa við störf á
sjó, eru talin vera 47. Þetta kemur
fram í skriflegu svari Sólveigar Pét-
ursdóttur dómsmálaráðherra við fyr-
irspurn Björgvins G. Sigurðssonar,
varaþingmanns Samfylkingarinnar.
Svarinu var dreift á Alþingi á
fimmtudag. Er það byggt á upplýs-
ingum sem teknar voru saman af rík-
islögreglustjóra.
47 óupplýst mannshvörf
STJÖRNUBÍÓSREITURINN
svokallaði, þar sem fyrirhugað er
að gera bílastæðakjallara, varð til-
efni umræðna og bókana á víxl í
borgarráði í gær. Sögðu sjálfstæð-
ismenn augljóst að bílastæðavandi
í miðborginni hefði ekki ráðið
kaupum Reykjavíkur á lóðinni,
sem áður var í eigu Jóns Ólafs-
sonar, þar sem skipulagsáætlanir
borgarinnar lutu að því að reisa
bílastæðahús á bak við hús Lands-
bankans á Laugavegi 77. Fulltrúar
meirihlutans bentu hins vegar á að
ekki hefði verið áhugi hjá eigend-
um Laugavegar 77 að ráðast í upp-
byggingu á lóðinni.
Samþykkt var á fundinum að
auglýsa deiliskipulag reitsins en
gert er ráð fyrir að byggja á hon-
um þriggja hæða verslunarhús
með inndreginni fjórðu hæð fyrir
íbúðir. Undir byggingunni verður
síðan bílastæðakjallari fyrir 250
bíla.
Óhentug staðsetning
Að mati Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, var lóðin keypt allt of
háu verði en hún kostaði um 140
milljónir króna. „Við höfum einnig
bent á að lóðin var keypt á afar
undarlegum tíma, skömmu eftir
kosningar síðastliðið vor. Hins
vegar vita allir að þetta var und-
irbúið löngu fyrir þann tíma.“ Hún
bendir á bókun R-listans í júlí sl. í
því sambandi þar sem kemur fram
að málið hafi verið lengi í und-
irbúningi af hálfu borgarinnar.
Hanna Birna segir aðalatriði
málsins þó að ekki hafi verið þörf
á því að kaupa lóðina. Staðsetning
hennar, í grennd við gatnamót
Laugavegar og Snorrabrautar, sé
ekki hentug fyrir bílastæðahús
auk þess sem lengi hafi verið horft
til lóðarinnar við Laugaveg 77 í
sambandi við uppbyggingu bíla-
stæðahúss. „Nýlega hafa embætt-
ismenn upplýst í nefndum borg-
arinnar að það sé vilji eigenda
Laugavegar 77 að taka upp um-
ræður um að byggja þar bíla-
stæðahús. Mér finnst afar ein-
kennilegt, í ljósi þess að
hugsanlega getum við tekið besta
kostinum, að þá sé borgin að fara
leið sem er ekki talin hagkvæm.“
Hvað varðar yfirlýsingu fulltrúa
R-listans á borgarráðsfundi í gær
þess efnis, að þeir væru einnig til-
búnir til viðræðna við eigendur
Laugavegar 77, segir Hanna Birna
ekki þörf á tveimur bílastæðahús-
um á efri hluta Laugavegarins.
Í bókun sjálfstæðismanna kem-
ur fram að þegar lóðin var keypt
hafi deiliskipulag hennar gert ráð
fyrir 100 stæða bílakjallara og
ekki hafi legið fyrir áætlanir um
kjallara sem tæki 250 stæði. „Nú
ætla menn hins vegar að taka
þetta í annan farveg og gera þenn-
an stóra bílastæðakjallara þarna.
Við teljum að það eigi að skoða
aðrar leiðir og sjáum ekki hvers
vegna R-listinn keypti þetta á sín-
um tíma fyrir þetta háa verð. Það
var ekki gert með hagsmuni mið-
borgarinnar í huga.“
Landsbankinn vildi ekki
frekari viðræður
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarfulltrúi R-listans og formað-
ur skipulagsnefndar borgarinnar,
undirstrikar að það hafi verið
stjórn skipulagssjóðs sem átti við-
ræður við eigendur Stjörnubíós-
reitsins um kaupin á honum en í
henni sitji eingöngu embættis-
menn.
„Það er því af og frá að það hafi
verið einhver pólítísk ákvörðun
sem lá þar að baki. Þetta er klár-
lega mál stjórnsýslunnar og emb-
ættismannakerfisins og eftir að
hafa fengið umsögn fasteignasala
var það mat þeirra, sem sátu í
skipulagssjóði, að þetta verð væri í
takt við fasteignamarkaðinn og
mjög eðlilegt.“
Aðspurð segir hún ákvörðun um
kaup á lóðinni hafa komið á end-
anum til staðfestingar borgaryf-
irvalda en það hafi verið að und-
angenginni ákvarðanatöku
embættismannakerfisins.
Hún segir að búið hafi verið að
skoða alla möguleika á svæðinu
fyrir slíkan bílastæðakjallara.
„Þetta varð niðurstaðan eftir þá
skoðun og við teljum að það sé
mjög viðunandi fyrir þetta svæði
vegna þess að þarna vantar klár-
lega bílastæði. Við vorum búin að
vera í viðræðum mánuðum saman
við Landsbankann á Laugavegi 77,
sem endaði með því að Lands-
bankinn baðst formlega undan því
að halda þeim áfram.“
Þannig hafi verið ákveðið að
ráðast í kaup lóðarinnar eftir að
afsvar Landsbankans lá fyrir.
„Það er aðalatriði málsins. Við höf-
um heyrt af þessum áhuga þeirra
núna og segjum að við útilokum
ekkert í þeim efnum ef það eru
breyttar forsendur hjá bankan-
um.“
Steinunn segist þó ekki geta
metið hvort þörf sé á báðum
húsunum. „Það er fyrirhuguð
heilmikil uppbygging þarna í
næsta nágrenni þannig að það
kann vel að vera að það sé
markaður fyrir fleiri bílastæði,“
segir hún.
Kaup borgarinnar á Stjörnubíós-
reitnum gagnrýnd í borgarráði
Morgunblaðið/Jim Smart
Frá niðurrifi Stjörnubíós: Á lóðinni þar sem kvikmyndahúsið stóð er nú
fyrirhugað að reisa verslunarhús og bílastæðakjallara.
Lóðin kostaði
um 140 milljónir
Ákvörðun embættismanna segir
formaður skipulagsnefndar