Morgunblaðið - 05.03.2003, Qupperneq 21
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 21
AKUREYRARBÆR hefur á liðnum
árum greitt milljónir króna til nokk-
urra kvenna, vegna brota á lögum um
jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og
karla. Sum málanna hafa komið til
kasta kærunefndar jafnréttismála en
einnig hafa Héraðsdómur Norður-
lands eystra og Hæstiréttur komið
við sögu. Þegar niðurstöður þessara
mála eru skoðaðar kemur kemur í ljós
að þau eru frekar vandræðaleg fyrir
Akureyrarbæ, ekki síst þar sem bæj-
aryfirvöld hafa lagt áherslu á jafn-
réttismál og þar hefur jafnréttis-
fulltrúi starfað lengi.
Valgerður H. Bjarnadóttir, bæjar-
fulltrúi á Akureyri og framkvæmda-
stýra Jafnréttisstofu, sagði að ríkis-
valdið hefði fengið mun fleiri kærur á
sig en Akureyrarbær. Einnig hefðu
Reykjavíkurborg, Kópavogsbær,
Hafnarfjarðarbær og fleiri fengið á
sig kærur, þannig að þetta væri ekk-
ert nýtt. „Það hefur verið óvenjulega
mikið um kærur á Akureyri og Norð-
urlandi vestra. Ég hef á því eina skýr-
ingu en þær eru sjálfsagt fleiri en það
er að á báðum stöðum hefur verið
starfandi jafnréttisfulltrúi og þar af
leiðandi hefur meðvitund og hvatning
verið meiri um jafnréttismál en geng-
ur og gerist. Svo þegar ein manneskja
úr ákveðnu umhverfi eða fleiri hafa
kært, er svo auðvelt að feta í fótsporin
og þá er þetta orðið lenska,“ sagði
Valgerður.
Hólmfríður Sveinsdóttir vann mál
gegn Akureyrarbæ árið 1996 en hún
sótti um stöðu starfsmanns fram-
kvæmdanefndar fyrir reynslusveitar-
félagið Akureyri árið 1995. Hólmfríð-
ur og Þórgnýr Dýrfjörð sóttu um
stöðuna og þóttu þau jafnhæf en Þór-
gnýr var ráðinn. Hólmfríður kærði
ráðninguna til kærunefndar jafnrétt-
ismála, sem úrskurðaði að bæjar-
stjórn hefði með ráðningu karlmanns
í stöðuna, brotið gegn ákvæðum jafn-
réttislaga. Í kjölfarið sömdu bæjaryf-
irvöld við Hólmfríði um bætur. Sig-
fríður Þorsteinsdóttir var forseti
bæjarstjórnar á þessum tíma og hún
sagði þá í samtali við Morgunblaðið. „
Að mínu mati er að sumu leyti ágætt
að við fengum þessa niðurstöðu, við
höldum okkur þá kannski betur við
jafnréttisáætlun okkar í framtíðinni.“
Ragnhildur Vigfúsdóttir, fyrrver-
andi jafnréttis- og fræðslufulltrúi Ak-
ureyrarbæjar, lagði fyrir kærunefnd
jafnréttismála kæru á hendur bænum
árið 1998 á þeim forsendum að laun
hennar væru lægri en annar stjórn-
andi hjá bænum fékk. Kærunefnd úr-
skurðaði Ragnhildi í vil og í kjölfarið
fór hún fram á bætur. Hið sama gerði
forveri hennar í starfi Valgerður H.
Bjarnadóttir, sem og tveir deildar-
stjórar leikskóladeildar og deildart-
sjóri ráðgjafadeildar. Ragnhildur
fékk bætur frá Akureyrarbæ, samtals
2,4 milljónir króna, eftir að hafa unnið
mál gegn bænum fyrir dómstólum.
Vorið 2001 samþykkti bæjarráð
Akureyrar samkomulag við Valgerði
H. Bjarnadóttur, sem gegndi stöðu
jafnréttis- og fræðslufulltrúa á árun-
um 1991–1995. Í samkomulaginu
féllst bærinn á að greiða Valgerði
tvær milljónir króna í bætur, án þess
þó að í því fælist viðurkenning á
meintum lögbrotum bæjarins.
Greiðslan fól í sér fullnaðaruppgjör á
kröfu Valgerðar.
Á sama fundi samþykkti bæjarráð
að una dómi Héraðsdóms Norður-
lands eystra í máli sem Ingibjörg Ey-
fells, fyrrverandi deildarstjóri leik-
skóladeildar, höfðaði á hendur
bænum en dómur héraðsdóms féll í
lok febrúar 2001. Bærinn var dæmd-
ur til að greiða Ingibjörgu um 1,8
milljónir króna auk dráttarvaxta
vegna mismunar á launakjörum sem
og hálfa milljón króna í málskostnað,
m.a. vegna reksturs málsins fyrir
kærunefnd jafnréttismála. Ingibjörg
kærði Akureyrarbæ til kærunefndar
jafnréttismála í nóvember 1999 vegna
launamisréttis sem hún taldi sig
beitta og dæmdi kærunefnd henni í
vil.
Guðrún Sigurðardóttir, deildar-
stjóri ráðgjafadeildar Akureyrarbæj-
ar, stefndi bænum vegna launamis-
munar og á síðasta ári voru henni
dæmdar tæpar 4,8 milljónir króna í
bætur með dráttarvöxtum í héraðs-
dómi. Akureyrarbær áfrýjaði dómi
héraðsdóms til Hæstaréttar en málið
hefur ekki verið tekið fyrir þar. Hins
vegar samdi bærinn um bætur upp á
hálfa milljón króna við Sigríði Sítu
Pétursdóttur, fyrrverandi deildar-
stjóra leikskóladeildar, árið 2001.
Soffía Gísladóttir, félagsmálastjóri
á Húsavík, kærði Akureyrarbæ til
kærunefndar jafnréttismála á síðasta
ári og hefur nefndin nú dæmt henni í
vil. Soffía var einn umsækjenda um
stöðu deildarstjóra íþrótta- og tóm-
stundadeildar en karlmaður var ráð-
inn í stöðuna.
Ekki tekið nógu varlega
á þessum málum
Elín Antonsdóttir, jafnréttisfulltrúi
bæjarins, sagðist ekki geta verið glöð
með þá niðurstöðu sem nú liggur fyrir
í máli Soffíu og að hún væri alls ekki
jákvæð fyrir bæjarfélagið. „Þetta
sýnir og sannar að það er ekki tekið
nógu varlega á þessum málum og
ekki horft nóg til þess að við höfum
lög, sem eru sérstaklega til þess að
jafna rétt og stöðu kvenna og karla.
Þessi síðasti dómur í máli Soffíu sann-
ar að það verður að fylgja lögunum.
Bærinn hefur líka sýna jafnrétt-
isáætlun sem kveður á um ýmislegt,
m.a. varðandi ráðningar í stöður, þar
sem jafnréttissjónarmið skuli metin
til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið
sem ráða við stöðuveitingar. Þannig
að þýðir ekkert að berja hausnum við
steininn,“ sagði Elín.
Þá má geta þess að á síðasta ári
kærði Hrafnhildur Hafberg Leik-
félag Akureyrar til kærunefndar jafn-
réttismála en hún var einn umsækj-
enda um stöðu leikhússtjóra og eina
konan af tólf umsækjendum. Niður-
staða kærunefndar var á þá leið að
LA hefði brotið gegn ákvæðum laga
um jafna stöðu kvenna og karla við
ráðningu í stöðu leikhússtjóra. Hrafn-
hildur hefur farið fram á bætur frá
LA, sem m.a. jafngilda 6 mánaða
launum leikhússtjóra. Málinu hefur
verið vísað til héraðsdóms en hefur
ekki verið tekið fyrir.
Brot á jafnréttislögum hjá Akureyrarbæ
Milljónir króna
greiddar í bætur
Aðalfundur knattspyrnudeildar KA
verður haldinn í KA-heimilinu
fimmtudaginn 6. mars 2003 og hefst
kl. 20.30. Dagskrá fundarins er sam-
kvæmt lögum félagsins.
Stjórn knattspyrnudeildar hvetur
sem flesta til þess að mæta og fylgj-
ast með störfum félagsins.
Á MORGUN
SKINNAIÐNAÐUR Akureyri ehf.
skilaði um 8 milljóna króna hagnaði
á síðasta rekstrarári, sem náði yfir
síðustu fimm mánuði síðasta árs.
Velta fyrirtækisins á umræddu
tímabili var rúmar 200 milljónir
króna. Þetta kom fram á aðalfundi
félagsins í gær. Ormarr Örlygsson
framkvæmdastjóri sagði að afkom-
an væri mjög viðunandi og í sam-
ræmi við væntingar.
Skinnaiðnaður framleiðir skinn í
flíkur og er Ítalía stærsti markaður-
inn. Ormarr sagði að heldur hefði
dregið úr áhuga á markaðnum en
hann er engu að síður bjartsýnn á
framhaldið. Hráefnisstaðan er ekki
góð og ekki er möguleiki á að fá
meira hráefni fyrr en í haust. Stað-
an er þó ekki svo slæm að til fram-
leiðsustöðvunar komi, „við sníðum
okkur stakk eftir vexti“. Ormarr
sagði að eins og staðan væri í dag
félli nóg til af gærum innanlands en
hins vegar hefði verið mikið um út-
flutning á hráefninu. „Við erum
bundnir af því hráefni sem fellur til
innanlands, þar sem miklar hömlur
eru settar á innflutning. Við fylgj-
umst því spenntir með því sem ger-
ist með haustinu.“
Nýtt hlutafélag var stofnað um
rekstur Skinnaiðnaðar í haust, eftir
gjaldþrot fyrirtækisins, en að því
standa Akureyrarbær, Landsbank-
inn, Kaldbakur og hlutafélag í eigu
starfsmanna fyrirtækisins. Við
gjaldþrot Skinnaiðnaðar haustið
2001 leysti Landsbankinn til sín
eignir þrotabúsins og í kjölfarið tók
félag á vegum bankans við rekstr-
inum, þar til nýja félagið tók rekst-
urinn yfir. Hjá fyrirtækinu starfa
um 70 manns, þar af nokkrir í
hlutastörfum.
Skinnaiðnaður Akureyri ehf.
Hagnaður í fyrra um
8 milljónir króna
HJÁLPARSVEITIN Dalbjörg í
Eyjafjarðarsveit á 20 ára afmæli í
dag, 5. mars, og af því tilefni buðu
félagsmenn sveitarinnar til afmæl-
isveislu í Bangsabúð við Steinhóla
sl. laugardag. Fjöldi fólks sótti
sveitina heim og bárust henni
margar góðar gjafir og kveðjur á
þessum tímamótum. Bjarni Krist-
jánsson, sveitarstjóri Eyjafjarð-
arsveitar, opnaði formlega nýja
heimasíðu sveitarinnar í afmæl-
isveislunni, dalbjorg.is, auk þess
sem hann tilkynnti að sveitarstjórn
hefði ákveðið að færa sveitinni 28
tommu sjónvarpstæki að gjöf.
Bjarni lét ekki þar við sitja, heldur
tilkynnti um inngöngu sína í hjálp-
arsveitina. Þá færði stjórn Lions-
klúbbsins Vitaðsgjafa hjálparsveit-
inni stóra og öfluga tölvu að gjöf.
Afmælisgestum stóð til boða að
skoða bíla, tæki og húsnæði sveit-
arinnar og þiggja kaffiveitingar,
sem Kvenfélagið Hjálpin og Bak-
aríið við brúna lögðu til.
Hjálparsveitin Dalbjörg var
stofnuð hinn 5. mars 1983, fé-
lagsmenn eru tæplega 70, þar af
eru um 40 þeirra virkir.
Hjálparsveitin Dalbjörg 20 ára
Morgunblaðið/Kristján
Bjarni Kristjánsson, sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit, opnaði nýja heimasíðu
Dalbjargar og naut við það aðstoðar Elmars Sigurgeirssonar formanns.
Sveitarstjórinn gekk
til liðs við sveitina
NÝTT setur Orkustofnunar á Ak-
ureyri var opnað formlega í húsa-
kynnum Norðurorku á Rangárvöll-
um fyrir helgina. Orkustofnun
hefur haft starfsemi á Akureyri
frá árinu 1999 en þá var sett á
laggirnar útibú frá rannsóknasviði
stofnunarinnar í samvinnu við Há-
skólann á Akureyri. Hlutverk þess
útibús er að sinna rannsóknum á
sviði orkumála og raunvísinda og
bæta þjónustu Orkustofnunar við
orkufyrirtæki á Norðurlandi.
Tveir sérfræðingar rannsókna-
sviðsins hafa starfað við útibú
stofnunarinnar og hafa þeir jafn-
framt haft kennslu- og stjórnunar-
skyldu við Háskólann á Akureyri.
Nú er Orkustofnun að auka
starfsemi sína á Akureyri í kjölfar
nýrra verkefna á sviði orkumála
landsbyggðarinnar, segir í frétta-
tilkynningu frá stofnuninni. Ráð-
inn hefur verið starfsmaður á
stjórnsýslusviði til að sinna þess-
um verkefnum. Meðal hinna nýju
verkefna er umsjón með niður-
greiðslu húshitunarkostnaðar,
verkefnastjórnun með leit að jarð-
hita á köldum svæðum, samskipti
við þá sem hafa hug á eða reka
einkarafstöðvar auk verkefna sem
tengjast nýjum hitaveitum eða
stækkun eldri veitna.
Þá var við þetta tækifæri skrifað
undir samstarfssamning milli
Vatnamælinga Orkustofnunar og
Háskólans á Akureyri um að efla
rannsóknir á sviði auðlinda- og
orkumála með áherslu á vatna- og
umhverfisrannsóknir, styðja
kennslu í þessum og skyldum
fræðum við Háskólann, auk þess
að bæta um leið þjónustu við
stofnanir, fyrirtæki og einstak-
linga á þessum sviðum.
Akureyrarsetur
Orkustofnunar opnað