Morgunblaðið - 05.03.2003, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 25
Fermingar
Laugardagur 15. mars
Blaðauki um fermingar fylgir
Morgunblaðinu laugardaginn 15. mars.
Auglýsendur pantið fyrir kl. 16
þriðjudaginn 11. mars!
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
Morgunblaðsins í síma 569 1111
eða augl@mbl.is
gjafir - skreytingar - veislan föt - hár - förðun
FRESTUR til umsóknar um nám
við leiklistardeild Listaháskóla Ís-
lands er runninn út. Alls bárust um
130 umsóknir og er það fjölgun um
16% frá því í fyrra en þá fjölgaði
umsóknum um 15% frá því árinu
þar áður.
„Við höfðum orðið vör við aukinn
áhuga á þessu námi, en nú er enn
aukning frá því í fyrra og því ljóst
að áhuga á svona námi er mjög mik-
ill,“ sagði Hjálmar H. Ragnarsson,
rektor Listaháskóla Íslands, í sam-
tali við Morgunblaðið. „Ungt fólk,
sérstaklega, leitar í auknum mæli í
átt til skapandi starfa. Ég held að
þessi vaxandi aðsókn endurspegli
mjög jákvætt viðhorf, ekki bara
gagnvart leiklistinni, heldur gagn-
vart slíkum störfum almennt.“
Inntökupróf í leiklistardeildina
verða haldin á næstu vikum og á
grundvelli niðurstöðu þeirra verður
8–9 umsækjendum boðið að hefja
nám við deildina. „Við erum bundin
þeim takmörkunum að geta einung-
is sinnt litlum hópi, einfaldlega
vegna þess að þetta er dýrt nám.
Þarna verður þéttur hópur starf-
andi saman í fjögur ár og alveg ljóst
að það verður erfitt að velja úr um-
sóknum, sérstaklega á síðustu stig-
unum.“ Hjálmar segist ekki geta
bent umsækjendum á hvernig best
er að búa sig undir inntökuprófin,
en segir umsækjendur leita ýmissa
ráða til undirbúnings. „Það háir
mjög leiklistarnámi á Íslandi að það
vantar formlegt undirbúningsnám í
þessari listgrein, eins og við höfum
á flestum öðrum sviðum. Margir
sem sækja um nám við leiklistar-
deildina hafa menntun í tónlist eða
tengdum greinum, og svo leitar fólk
auðvitað til ráðgjafa og listafólks á
þessu sviði.“
Umsóknir um nám við tónlistar-
deild Listaháskóla Íslands eru enn
að berast en frestur þar um rann út
í gær. Umsóknarfrestur um mynd-
listardeild rennur út 10. mars og
um hönnunar- og arkitektúrdeild 4.
apríl. Listaháskólinn býður einnig
upp á nám til kennsluréttinda fyrir
myndlistarfólk, hönnuði og leiklist-
arfólk og þurfa umsóknir um það
nám að berast skólanum eigi síðar
en 5. maí.
Listaháskólinn starfar á grund-
velli samnings við menntamála-
ráðuneytið. Í samningnum er tiltek-
inn sá fjöldi nemendaígilda í
mismunandi greinum sem ríkið er
reiðubúið að greiða fyrir. Fjöldi
sæta í hverri deild er takmarkaður
samkvæmt því. Sérstakar dóm-
nefndir eru skipaðar í hverri grein
sem meta umsóknir á grundvelli
inntökuprófs og/eða mati á inn-
sendu efni. Nákvæmar upplýsingar
um hvernig að inntöku er staðið og
til hvers er ætlast af umsækjendum
er að finna á heimasíðu skólans
www.lhi.is.
Metaðsókn að leiklistardeild
Verður erfitt að
velja úr umsóknum
JÓN Aðalsteinn Þorgeirsson klarin-
ettuleikari og Örn Magnússon pí-
anóleikari leika á tónleikum í Saln-
um í kvöld kl. 20. „Við spilum fimm
verk, þrjú íslensk og tvær erlendar
sónötur,“ segir Örn Magnússon.
„Þetta eru allt verk frá 20. öld. Við
leikum fyrst Sónötuna eftir Poulenc,
sem er vel þekkt verk, og þá verk
eftir John Speight sem heitir …into
that good night. Titillinn er tilvitnun
í mjög frægt ljóð eftir Dylan Thom-
as, en John Speight samdi verkið
fyrir okkur og við frumfluttum það
fyrir tveimur árum. Okkur þykir
verkið gott, – og það þótti fleirum,
því það var tilnefnt til Íslensku tón-
listarverðlaunanna í fyrra.
Þriðja verkið eru Ristur Jóns
Nordals, sem eru orðnar sígildar í ís-
lenskum klarinettulitteratúr, og
menn hafa spilað mikið – frábær ljóð
án orða. Þá er komið að Sónötu eftir
Aaron Copland, sem er svolítið ný-
næmi í klarinettuheiminum. Hann
samdi verkið 1943 fyrir fiðlu og pí-
anó en hann umritaði verkið sjálfur
á áttunda áratugnum fyrir klarin-
ettu og píanó. Þetta er einföld og fal-
leg músík og það er búin að vera
skemmtileg glíma að koma henni
saman. Verkið er sérstakt – því þótt
það sé einfalt er það um leið ansi
snúið að spila og mikið virtúósitet,
sérstaklega hjá klarinettunni.
Við ljúkum tónleikunum svo á
Nóvelettu eftir Atla Heimi Sveins-
son sem ég held að hann hafi samið á
einni nóttu. Þetta er flott verk og var
á sínum tíma tileinkað Guðmundi
Emilssyni þegar hann tók við Bjart-
sýnisverðlaunum Brøstes 1987. Það
voru Sigurður I. Snorrason og Anna
Guðný Guðmundsdóttir sem frum-
fluttu það.“
Örn segir að mikið sé að gerast í
íslenskri klarinettumúsík og til
marks um það séu fjölmargir klarin-
ettutónleikar að undanförnu. „Það
er merkilegt hvað það er mikill
blómi meðal klarinettublásara um
þessar mundir. Allt frábærir menn.
Það verður líka alltaf þannig að ef
það koma upp færir hljóðfæraleik-
arar þá verður til svo skemmtilegt
samspil við tónskáldin sem fara þá
að hugsa betur um þessi hljóðfæri
og gefa sér meira frelsi til að semja
meira og skrifa snúna hluti.“
Tíu ár eru liðin frá því Jón Að-
alsteinn og Örn héldu síðast dúó-
tónleika af þessu tagi en hafa þó allt-
af spilað eitthvað saman á öðrum
vettvangi – til dæmis í tríói með Sig-
urði Halldórssyni sellóleikara. „Það
hefur verið nefnt Karlatríóið,“ segir
Örn og hlær og skýrir nafngiftina
með því að ekki séu mörg tríó starf-
andi á Íslandi án þess að kvenfólk
komi þar við sögu.
„En klarinettan er sérstaklega
heillandi hljóðfæri sem gaman er að
spila með. Hún á sér svo margar
hliðar.“
Klarinettan á sér
margar hliðar
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Örn Magnússon og Jón Aðalsteinn Þorgeirsson leika í Salnum í kvöld.