Morgunblaðið - 05.03.2003, Qupperneq 39
Ljósmynd/Áskell Þórisson
LANDBÚNAÐARVERÐLAUNIN
voru afhent við setningu Bún-
aðarþings í gær, en þau eru veitt
þeim aðilum sem á einn eða annan
máta tengjast landbúnaði og hafa
sýnt með verkum sínum áræðni og
dugnað og eru til fyrirmyndar.
Þau sem hlutu verðlaunin í ár
voru Már Sigurðsson (lengst t.v.) og
Sigríður Vilhjálmsdóttir í Hauka-
dal, Sólveig Sigurðardóttir og Jó-
hannes Kristjánsson í Höfðabrekku
og Félagsbúið á Laxamýri, en Sif
Jónsdóttir og Atli Vigfússon tóku
við verðlaunum sem fulltrúar að-
standenda búsins. Með þeim á
myndinni er Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra.
Landbúnaðarverðlaunin veitt
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 39
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn
Hótel Búða ehf.
„Vegna fréttar DV af mótmælum
Gólflagna ehf. og þriggja annarra
verktaka fyrir utan heimili stjórn-
arformanns Hótel Búða í morgun [í
gær] vill stjórn hótelsins koma eft-
irfarandi á framfæri:
Stjórnin telur með ólíkindum að
menn gangi á eftir fjármunum sín-
um með harkalegum ofbeldisað-
gerðum sem þessum og telur að
mjög ómaklega hafi verið vegið að
mannorði stjórnarformanns fyrir-
tækisins, sem hefur algerlega
hreinan skjöld. Staðreyndin er sú
að skuld hótelsins við verktakana
fjóra nemur rúmri milljón króna en
ekki 53 milljónum eins og DV
greindi frá.
Ekkert er hæft í ásökunum verk-
takanna fjögurra um undanskot
eigna. Byggingarfélag Búða hefur
frá upphafi staðið að byggingar-
framkvæmdum samkvæmt samn-
ingi við eignarhaldsfélagið Hótel
Búðir ehf. þar sem að koma fleiri
hluthafar. Fyrirkomulag þetta hef-
ur verið á frá upphafi framkvæmda
á Búðum.
Að baki Hótel Búða ehf. standa
nokkrir hluthafar sem lagt hafa
umtalsvert fé til félagsins í formi
hlutafjár. Lokaáfangi endurfjár-
mögnunar hótelsins stendur nú yfir.
Veitingastaður Hótel Búða var
opnaður síðasta sumar og var opinn
fram á haust. Uppbygging nýs hót-
els er á lokasprettinum og er opnun
þess fyrirhuguð í vor.“
Yfirlýsing
frá stjórn
Hótel
Búða ehf.
Skotveiðifélag Íslands heldur
fræðslufund í kvöld, miðvikudag-
inn 5. mars, kl. 20.30 á Ráðhús-
kaffi (Ráðhúsið í Reykjavík, geng-
ið yfir brúna). Gestur fundarins er
Ólafur K. Nielsen og fjallar hann
um rjúpnarannsóknir næstu 5 ár-
in. Allir velkomnir.
Stuðningshópur um krabba-
mein í blöðruhálskirtli verður
með rabbfund í húsi Krabba-
meinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í
Reykjavík í dag, miðvikudaginn 5.
mars kl. 17. Friðrik Skúlason
tölvunarfræðingur fjallar um
Íslendingabók. Fundurinn er
einkum ætlaður þeim sem greinst
hafa með krabbamein í blöðru-
hálskirtli og aðstandendum
þeirra.
Listaháskóli Íslands, Laug-
arnesi Sænski hljóðlistamaðurinn
Jesper Nord fjallar um eigin verk
kl. 12.30. Jesper er kennari við
Valand-listaháskólann í Gautaborg
en er hér staddur á vegum
Listaháskóla Íslands sem gesta-
kennari.
Í DAG
Fræðsluerindi Rannsóknastofn-
unar landbúnaðarins, Keldna-
holti, verður haldið á morgun,
fimmtudaginn 6. mars kl. 10, í
fundarsal á 3. hæð. Erindi halda:
Mariusz Grabda og Björn Gunn-
laugsson. Raktar verða nið-
urstöður mælinga á jarðvegi og
vexti flatargrasanna.
Fyrirlestrar og umræður um
umhverfismál á vegum Um-
hverfisstofnunar Háskóla Íslands,
í samstarfi við Líffræðistofnun,
umhverfis- og byggingarverk-
fræðiskor verkfræðideildar og
jarð- og landfræðistofu Raun-
vísindastofnunnar verða á morg-
un, fimmtudaginn 6. mars, kl.
16.15–18, í stofu 157 í húsi
verkfræði- og raunvísindadeildar
VRII við Hjarðarhaga. Erindi
heldur L. Donald Duke, dósent
við umhverfisfræði- og umhverf-
isstjórnunarskor Suður-Flórídahá-
skóla í Tampa í Florída-fylki í
Bandaríkjunum og Fulbright-
gistiprófessor við Umhverf-
isstofnun HÍ á vormisseri 2003.
Fyrirlestur og umræður fara fram
á ensku.
Fræðslufundur Keldna verður á
morgun, fimmtudaginn 6. mars kl.
12.20, í bókasafni Keldna, bóka-
safnið er í húsi 2, inngangur að
norðanverðu. Fyrirlesari er Sig-
urbjörg Þorsteinsdóttir líffræð-
ingur á Keldum og nefnist erindið
Sumarexem í íslenskum og er-
lendum hestakynjum.
Ný dögun, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, bjóða til samtals
um sorg í Safnaðarheimili Há-
teigskirkju á morgun, fimmtu-
dagskvöldið 6. mars kl. 20–22.
Kvöldinu lýkur með stuttri kyrrð-
arstund. Allir eru velkomnir og
aðgangur ókeypis.
Ítalskur viðskiptadagur Fundur
um viðskipti við Ítalíu verður
haldinn í fundarsalnum á 14. hæð
í Húsi verslunarinnar á morgun,
fimmtudaginn 6. mars kl. 15–17.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
og Daniele Molgora, aðstoðarfjár-
málaráðherra Ítalíu, flytja ávörp.
Fjallað verður um reynslu Íslend-
inga af viðskiptum við Ítali og
munu William Symington, Treas-
ury & Risk Management hjá Ís-
landsbanka, Tino Nardini, eigandi
og kokkur Veitingahússins Ítalíu,
Ragnar Borg hjá G. Helgasyni og
Melsted hf., Ólafur Gíslason, list-
fræðingur og fararstjóri, og Ro-
berto Velo hjá Impregilo Iceland
Branch vera með framsögur.
Sendiherra Ítalíu á Íslandi,
Andrea G. Mochi Onory di
Saluzzo, mun einnig koma með
innlegg. Fundarstjóri verður
Guðjón Rúnarsson, formaður
Ítalsk-íslenska verslunarráðsins.
Eftir framsögur gefst kostur á
umræðum og fyrirspurnum.
Fundurinn fer fram á ensku. Ekk-
ert þátttökugjald er vegna fund-
arins.
Á MORGUN
ÞÓRARINN Guðnason hefur verið skipaður í emb-
ætti forstöðumanns Kvikmyndasafns Íslands, til
fimm ára frá 28. febrúar 2003 að telja. Tólf umsóknir
bárust um embættið. Þórarinn hefur starfað hjá
Kvikmyndasafninu frá árinu 1995 og gegnt stöðu
safnstjóra frá desember 2001. Skv. 4. mgr. ákvæðis
til bráðabirgða í kvikmyndalögum nr. 137/2001 hefur
Þórarinn sem safnstjóri gegnt embætti forstöðu-
manns Kvikmyndasafns Íslands frá gildistöku lag-
anna hinn 1. janúar sl.
Nýr forstöðumaður
Kvikmyndasafns INNSIGLINGARRENNAN tilGrindavíkurhafnar hefur verið
hreinsuð og steinn sem þar var talinn
valda hættu fjarlægður.
Nýlega uppgötvaðist við úrvinnslu
úr fjölgeislamælingu sem þarna var
gerð að 30 tonna steinn væri í innsigl-
ingunni en talið er að hann hafi verið
þar í nokkur ár, eða frá því innsigl-
ingin var dýpkuð. Siglingastofnun og
Grindavíkurhöfn fengu Sjóverk í síð-
ustu viku til að fjarlægja steininn. Það
tókst á laugardag, að sögn Sverris
Vilbergssonar hafnarstjóra.
Steinninn
fjarlægður