Morgunblaðið - 05.03.2003, Page 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 41
Í MORGUNBLAÐINU 28.2. reynir
Þórólfur Árnason að útskýra fyrír
Birni Bjarnasyni skuldasöfnun
Reykjavíkur síðastliðinn áratug.
Hvorugur þeirra á nokkurn þátt í
þessari skuldasöfnun, en þeim ber að
horfa beint á staðreyndir sem við
blasa. Í fyrsta lagi upphæð skulda,
greiðslukjör, vexti og ábyrgðir. Í
öðru lagi í hvað peningunum var
eytt.
Varðandi heildarupphæðina eru
Björn og borgarstjóri sammála,
lánakjör og ábyrgðir eru skjalfest,
þar ber þó að hafa í huga að þar sem
um erlend lán er að ræða munu af-
borganir stórhækka ef Samfylking-
unni tekst að fella gengi krónunnar
eins og hennar stefna er, segir krón-
una allt of hátt skráða og vill helst
skipta henni út fyrir evru. Evran hef-
ur á sínum líftíma fallið um u.þ.b.
20% gagnvart krónunni og ég undr-
ast hvað skoðanakannanir sýna Sam-
fylkinguna sterka, þrátt fyrir skýra
stefnu hennar og mikinn áróður fyrir
að sækja um aðild að ESB þótt það
jafngildi afsali á sjálfstæði þjóðar-
innar. Í mínum huga er þessi stefna
landráð. Björn og Þórólf þekki ég
báða að dugnaði og heiðarleika. Óli
Bieltvedt taldi Þórólf einn efnileg-
asta strák sem unnið hefði hjá Nesco
og Tal-dæmi Þórólfs þekkja flestir.
Þórólfur veit að epli og appelsínur
eru hollir ávextir, en ef magasýrur
eru í ólagi geta appelsínur valdið
vanlíðan. Það ber að forðast eins og
að sökkva sér í skuldir, sem arðvæn-
legar framkvæmdir standa ekki á
bak við. Milljarður til greiðslu á
skuldum Línu.Nets er dæmi um súra
appelsínu svo notað sé dæmi sem
borgarstjóra er tamt.
Sem áhorfanda sýnist mér að
skuldir Reykjavíkur séu komnar yfir
hættumörk. Vonandi þiggur Björn
heimboðið sem Þórólfur segist hafa
lagt fram. Stefna beggja hlýtur að
vera hagkvæmni í rekstri borgarinn-
ar og kjósendur ætlast til þess að öll-
um epla- og appelsínusamlíkingum
verði hætt, borgarstjórnendur komi
upp úr sandkassanum og taki hönd-
um saman við lausn á aðkallandi
vanda, til hamingju og heilla fyrir
Reykjavík. Megi blessun fylgja
störfum beggja.
P.S. Í blaðið ritar Salvör Nordal
athyglisverða grein um vörslu Kaup-
þings á lífeyrisfjármunum hennar
síðustu tvö ár, bæði árin er ávöxtunin
neikvæð um tæplega 20%. Þetta
hefði verið kallað að afla á gráu svæði
á dögum viðreisnar. Kaupþing sendi
svo Salvöru blátt teppi í sárabætur.
Kaupþing notast nú til þess
að nappa féi gráu
þó Salvör sýnist sæl og hress
sveipuð teppi bláu.
Samkvæmt fréttum útvarpsins
vildi hinn hálaunaði Sigurður Ein-
arsson ekkert tjá sig um málið utan
venjulegs vinnutíma.
PÁLMI JÓNSSON,
Sauðárkróki.
Fjármálasukk
Frá Pálma Jónssyni
HALLÓ, sæll þetta er Þórdís.
Ég undirrituð flutti lögheimili
mitt til Reykjavíkur 1. desember
2001 og hef ekki fengið heimilis-
lækni. Ég hringdi í Lágmúla 4 en
þar á bæ skrifa þeir ekki niður nöfn
fyrir svæðið mitt sem er 104. Þegar
ég bjó á litlum stað úti á landi var ég
miklu betur stödd hvað varðar
heilsugæsluþjónustu. Oft þarf bara
einn hlut til að gera lífið auðveldara,
þess vegna þarf ég aðstoð þína ráð-
herra. Oft er hægt að finna einfalda
lausn á málum og þá er gott að tala
um hlutina. Tel ég þetta ekki gott
ástand; hvað finnst þér herra ráð-
herra? Frá því að ég flutti suður hef
ég þurft á læknisþjónustu að halda
og hef þá stundum farið á lækna-
vaktina í Smáranum, tvisvar fengið
tíma á heilsugæslunni í Spönginni í
Grafarvogi og líka hringt út á land
til að fá skrifað upp á lyf sem ég get
ekki verið án. Oft hef ég heyrt þá yf-
irlýsingu hjá háttvirtum þingmönn-
um að við hér á Íslandi búum við
frábæra heilbrigðisþjónustu. Oft
þarf bara eitt lítið pennastrik til að
gera lífið auðveldara; þess vegna
þarf ég aðstoð þína herra ráðherra.
Ég veit að oft er ekki auðvelt að
taka ákvarðanir þegar unnið er með
peninga þjóðarinnar. Núna hvet ég
alþingismenn dagsins í dag og þing-
menn framtíðar til að gera eitthvað í
heilsugæslumálum okkar. Við eigum
til frábæra lækna og hjúkrunarfólk
en svo virðist sem öllum sé sama um
hverfi 104.
Kæri heilbrigðisráðherra og
ágætu þingmenn; vaknið til vitundar
og sinnið þörfinni á heilsugæslu á
svæði 104. Ef ég hugsa málin dálítið
heimspekilega er ég ágætlega hepp-
in hvað varðar mína heilsu en það
eru margir sem þurfa núna strax á
þjónustu að halda. Ég borga skatt
og á því rétt á heilsugæsluþjónustu
hér í þessu landi. Ég er fullgildur
þjóðfélagsþegn. Hvað er til ráða?
Allir góðir hlutir ganga upp.
ÞÓRDÍS GUNNARSDÓTTIR,
Goðheimum 21, 104 Reykjavík.
Opið bréf til heil-
brigðisráðherra
Frá Þórdísi Gunnarsdóttur
Mikil spenna í Íslandsmóti
kvenna í sveitakeppni
Spennan var næstum óbærileg
þegar leikir tveggja efstu sveitanna
voru gerðir upp í síðustu umferð Ís-
landsmóts kvenna í sveitakeppni.
Sveit PricewaterhouseCoopers/
Ljósbrá Baldursdóttir var 9 stigum á
eftir sveitinni Fimm fræknar með
Stefaníu Sigurbjörnsdóttur í broddi
fylkingar. Ljósbrá og félagar unnu
sinn leik 21–9 en Stefanía og félagar
töpuðu 11–19 þannig að aðeins eitt
vinningsstig skildi í lokin.
Í sveit PricewaterhouseCoopers
spiluðu: Ljósbrá Baldursdóttir,
Esther Jakobsdóttir, Anna Þóra
Jónsdóttir og Jacqui McGreal.
Í Butler-útreikningi varð heiðurs-
konan Kristjana Steingrímsdóttir
efst með 1,51 impa, í 2. sæti varð
Guðrún Jóhannesdóttir með 1,39
impa og Valgerður Kristjónsdóttir
varð í 3. sæti með 1,16 impa, en þess-
ar þrjár spiluðu sem þriðja par í
sveitinni Fimm fræknar.
Lokastaðan:
Pricewaterh.Coop./Ljósbrá Baldursd. 169
Fimm fræknar/Stefanía Sigurbjörnsd. 168
Hanna/Ólöf Þorsteinsdóttir 158
Fjögur hjörtu/Halldóra Magnúsdóttir 149
Erla Sigurjónsdóttir 131
Búnaðarbankinn/Anna Ívarsdóttir 125
Smárinn/Unnur Sveinsdóttir 115
A-Hún/Sigríður Gestsdóttir 114
Norðan 4/Inga Jóna Stefánsdóttir 103
Birta/Arngunnur R. Jónsdóttir 102
Íslandsmót yngri spilara
Íslandsmeistarar yngri spilara
urðu Sigurbjörn Haraldsson, Anna
Guðlaug Nielsen, Sigurður Björg-
vinsson, Halldór Sigfússon, Aðal-
steinn J. Halldórsson og Birkir Jóns-
son. Í 2. sæti urðu Húsvíkingarnir
Hanna Dís Hannesdóttir, Hólmfríð-
ur Anna Aðalsteinsdóttir, Arnar Þór
Arnarsson og Óttar Ingi Oddsson.
Íslandsmeistarar í kvennaflokki ásamt forseta Bridssambandsins. Talið
frá vinstri: Jón Sigurbjörnsson, en hann afhenti verðlaunin í mótslok,
Ljósbrá Baldursdóttir, Esther Jakobsdóttir, Anna Þóra Jónsdóttir og
Jacqui McGreal.
Íslandsmeistarar í yngri flokki. Talið frá vinstri: Aðalsteinn J. Halldórsson,
Sigurður Björgvinsson, Sigurbjörn Haraldsson, Anna Guðlaug Nielsen og
Halldór Sigfússon en auk þeirra spilaði Birkir Jónsson í sveitinni.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni
SKIPA
ÞJÓNUSTA
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500 • www.velaland
velaland@velaland.is
d
es
ig
n.
is
2
00
3
Sími 693 0997
Opið virka daga kl. 12-18 og um helgar kl. 12-17
Skómarkaður
Varst þú búinn að kíkja á
skómarkaðinn í Sætúni 8
(við hliðina á Heimilistækjum)
Ekki missa af honum
Alltaf bætast nýjar vörur við
Ótrúleg verðlækkun