Morgunblaðið - 05.03.2003, Qupperneq 44
FRÉTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTHLUTUNARNEFND lista-
mannalauna hefur lokið störfum og
bárust alls 636 umsóknir um starfs-
laun listamanna, 16 fleiri en í fyrra.
Til Launasjóðs rithöfunda bárust
177 umsóknir, Launasjóðs mynd-
listarmanna 236 umsóknir, Tón-
skáldasjóðs 33 umsóknir, Listasjóðs
190 umsóknir, þar af 52 umsóknir
frá leikhópum. Auk starfslauna er
úthlutað ferðastyrkjum til lista-
manna.
Eftirtöldum listamönnum voru
veitt starfslaun:
Úr Launasjóði
rithöfunda
Til þriggja ára: Guðrún Helga-
dóttir, Gyrðir Elíasson, Hrafnhildur
H. Guðmundsdóttir og Þórarinn
Eldjárn. Í eitt ár: Einar Kárason,
Einar Már Guðmundsson, Guðjón
Friðriksson, Hallgrímur Helgason,
Ingibjörg Haraldsdóttir, Kristín
Ómarsdóttir, Ólafur Gunnarsson,
Pétur Gunnarsson, Sigfús Bjart-
marsson og Steinar Bragi Guð-
mundsson. Til sex mánaða: Ísak
Harðarson, Aðalsteinn Ásberg Sig-
urðsson, Jón Kalmann Stefánsson,
Andri Snær Magnason, Jón Karl
Helgason, Arnaldur Indriðason,
Kristín Helga Gunnarsdóttir, Atli
Magnússon, Kristín Marja Baldurs-
dóttir, Auður Jónsdóttir, Kristín
Steinsdóttir, Árni Ibsen, Mikael
Torfason, Áslaug Jónsdóttir, Ólafur
Haukur Símonarson, Birgir Sig-
urðsson, Óskar Árni Óskarsson,
Bjarni Bjarnason, Ragnheiður
Gestsdóttir, Bjarni Jónsson, Ragn-
heiður Sigurðardóttir, Böðvar Guð-
mundsson, Rúnar Helgi Vignisson,
Elísabet K. Jökulsdóttir, Sigrún
Eldjárn, Erlingur E. Halldórsson,
Sigurbjörg Þrastardóttir, Geirlaug-
ur Magnússon, Sigurður A. Magn-
ússon, Guðmundur Andri Thorsson,
Sigurjón B. Sigurðsson (SJÓN),
Guðmundur Páll Ólafsson, Stefán
Máni Sigþórsson, Guðrún Hannes-
dóttir, Vilborg Davíðsdóttir, Hjört-
ur Pálsson, Þorvaldur Þorsteinsson,
Huldar Breiðfjörð, Þórunn Valdi-
marsdóttir og Iðunn Steinsdóttir.
Ferðastyrk hlutu Hafliði Vilhelms-
son, Hallvarður Ásgeirsson og Þór
Stefánsson.
Úr Launasjóði
myndlistarmanna
Til tveggja ára: Georg Guðni
Hauksson, Hrafnkell Sigurðsson,
Valgerður Guðlaugsdóttir og Þór
Vigfússon. Til eins árs: Anna Hall-
in, Birgir Snæbjörn Birgisson, Egill
Sæbjörnsson, Finnur Arnar Arn-
arsson, Kristín Gunnlaugsdóttir og
Rúrí. Til sex mánaða: Ásmundur
Ásmundsson, Ásta Ólafsdóttir,
Birgir Andrésson, Jón Axel Björns-
son, Bjargey Ólafsdóttir, Jón Berg-
mann Kjartansson, Eggert Péturs-
son, Jóní Jónsdóttir, Einar
Garibaldi Eiríksson, Kristín Reyn-
isdóttir, Eirún Sigurðardóttir,
Kristján Guðmundsson, Erling T.V.
Klingenberg, Margrét H. Blöndal,
Finnbogi Pétursson, Sigríður Ólafs-
dóttir, Sigrún Inga Hrólfsdóttir,
Guðrún Gunnarsdóttir, Sigtryggur
Baldvinsson, Haraldur Jónsson,
Þóra Sigurðardóttir, Helgi Þ. Frið-
jónsson, Þóra Þórisdóttir og Hlyn-
ur Hallsson. Til þriggja mánaða:
Gústav Geir Bollason og Hekla
Dögg Jónsdóttir. Ferðastyrki hlutu
Sigurður Örlygsson og Ráðhildur S.
Ingadóttir.
Úr Tónskáldasjóði
Til tveggja ára: Haukur Tóm-
asson. Til eins árs: Atli Ingólfsson,
Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson og
Jón Anton Speight. Til sex mánaða:
Elín Gunnlaugsdóttir, Gunnar
Þórðarson, Ríkharður H. Friðriks-
son og Úlfar Ingi Haraldsson. Til
fjögurra mánaða: Óliver John Kent-
ish.
Úr Listasjóði
Til tveggja ára: Kolbeinn Bjarna-
son og Sigrún Hjálmtýsdóttir. Til
eins árs: Auður Bjarnadóttir, Ár-
mann Helgason, Elín Ósk Óskars-
dóttir, Jóel Pálsson, Messíana Tóm-
asdóttir og Pétur Grétarsson. Til
sex mánaða: Árni Tryggvason,
Bryndís Halla Gylfadóttir, Daníel
Ágúst Haraldsson, Felix Bergsson,
Guðrún Margrét Ólafsdóttir, Helga
Bryndís Magnúsdóttir, Nína Mar-
grét Grímsdóttir, Skúli Sverrisson,
Steindór I. Andersen, Steinunn
Birna Ragnarsdóttir, Valerður
Tinna Gunnarsdóttir og Þórunn
María Jónsdóttir. Til þriggja mán-
aða: Margrét Kristín Blöndal og
Þorkell Þorkelsson. Ferðastyrki
hlutu Baldur Sigurgeirsson og
Bergþór Pálsson.
Starfslaun til leikhópa
Tíu leikhópar fengu starfslaun.
Til eins árs: Dansleikhús með
Ekka, Hermóður og Háðvör, Mink,
Óperustúdíó Austurlands og
Reykjavík Dansfestival. Til tíu
mánaða: Eilífur og Vesturport sirk-
us. Til átta mánaða: Skemmtihúsið
og Kómedíuleikhúsið. Til sex mán-
aða: Möguleikhúsið. Listasjóður
veitti einnig sérstök framlög til eft-
irtalinna listamanna sem fengu
listamannalaun áður fyrr og voru
60 ára eða eldri og ekki fengu
starfslaun. Styrkurinn jafngildir
starfslaunum í einn mánuð. Agnar
Þórðarson, Benedikt Gunnarsson,
Bragi Ásgeirsson, Einar G. Bald-
vinsson, Einar Bragi, Eiríkur
Smith, Elías B. Halldórsson, Gísli
J. Ástþórsson, Gísli Sigurðsson,
Guðmundur L. Friðfinnsson, Guð-
mundur Jónsson, Gunnar Dal,
Helgi Sæmundsson, Hjörleifur Sig-
urðsson, Hörður Ágústsson, Jó-
hannes Geir Jónsson, Jón Ásgeirs-
son, Kjartan Guðjónsson, Kristinn
Hallsson, Magnús Blöndal Jóhanns-
son, Ólöf Pálsdóttir, Rögnvaldur
Sigurjónsson, Sigurður Hallmars-
son, Skúli Halldórsson, Veturliði
Gunnarsson og Vilborg Dagbjarts-
dóttir.
Úthlutunarnefndir
Úthlutunarnefnd Launasjóðs rit-
höfunda var skipuð Sveini Yngva
Egilssyni, formanni, Ármanni Jak-
obssyni og Birnu Bjarnadóttur.
Úthlutunarnefnd Launasjóðs
myndlistarmanna er skipuð Sigurði
Árna Sigurðssyni, formanni, Ragn-
hildi Stefánsdóttur og Jóhanni L.
Torfasyni.
Úthlutunarnefnd Tónskáldasjóðs
er skipuð Árna Harðarsyni, for-
manni, Karólínu Eiríksdóttur og
Bernharði St. Wilkinson.
Leiklistarráð skipa Magnús
Ragnarsson, formaður, Kristbjörg
Kjeld og Ragnheiður Tryggvadótt-
ir. Þórdís Arnljótsdóttir, varamaður
Kristbjargar Kjeld, fjallaði um veit-
ingu starfslauna til leikhópa að
þessu sinni.
Stjórn listamannalauna
Um áramótin 2000–2001 skipaði
menntamálaráðherra í Stjórn lista-
mannalauna til þriggja ára. Stjórn-
ina skipa: Guðrún Nordal, formað-
ur, samkvæmt tilnefningu
Bandalags íslenskra listamanna,
Hjálmar H. Ragnarsson, tilnefndur
af Listaháskóla Íslands, og Baldur
Símonarson, skipaður án tilnefning-
ar. Stjórn listamannalauna hefur
yfirumsjón með sjóðunum og út-
hlutar fé úr Listasjóði.
Listasjóður er almennur sjóður
en sinnir einkum öðrum listgreinum
en þeim sem falla undir sérgreindu
sjóðina þrjá sem fyrst eru taldir.
Úthlutunarnefnd listamannalauna hefur lokið úthlutun fyrir árið 2003
Dansleikhús með ekka. Úr sýningunni Ber: Karen María Jónsdóttir og Guðmundur Elías Knudsen.
636 um-
sóknir um
starfslaun
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Náttúru-
verndarsamtökum Íslands vegna
bréfs Peters Bosshards fyrir hönd
International Rivers Network:
„Kárahnjúkavirkjun er alþjóðlegt
mál. Ítalska fyrirtækið Impregilo
hefur verið ráðið til að byggja virkj-
unina og hyggst flytja hingað til
lands mannafla og tækjabúnað til
þess arna. Fjármagns til að byggja
virkjunina verður aflað á alþjóðleg-
um lánamarkaði og hún á að fram-
leiða rafmagn fyrir álver í eigu al-
þjóðafyrirtækisins Alcoa, sem mun
selja framleiðsluna á alþjóðlegum
markaði. Með þessu hafa Lands-
virkjun og ríkisstjórn Íslands hnatt-
vætt rafmagnsframleiðslu á Íslandi
og þess vegna er fullkomlega sann-
gjarnt að Náttúruverndarsamtök
Íslands og alþjóðleg umhverfis-
verndarsamtök láti málið til sín taka
með því að upplýsa alþjóðlegar lána-
stofnanir um málið.
Alcoa, Impregilo og alþjóðlegar
lánastofnanir bera ábyrgð gagnvart
alþjóðlegum aðilum hvað varðar
verkefni sem þessi fyrirtæki taka
þátt í. Þar á meðal eru hluthafar,
starfsmenn, viðskiptavinir, fjöl-
miðlar og frjáls félagasamtök. Alcoa
og margir alþjóðlegir bankar hafa
sett sér háleit viðmið og markmið
varðandi umhverfismál og samskipti
við umhverfisverndarsamtök. Þar af
leiðandi munu alþjóðlegir fjölmiðlar
og alþjóðleg umhverfisverndarsam-
tök horfa sérstaklega til þátttöku al-
þjóðafyrirtækja í verkefnum sem
hafa mikil og óafturkræf umhverfis-
áhrif. Skiptir þá engu máli hvort um
er að ræða Brasilíu, Bandaríkin eða
Ísland.
Hvers vegna beina umhverfis-
verndarsamtök athugasemdum til
lánastofnana?
Áhrif alþjóðlegra lánastofnana í
hnattvæddum heimi eru mikil og
fara vaxandi. Oftar en ekki eru það
bankar sem ákveða hvaða verkefni
eru fjármögnuð og hver ekki. Þetta
á einnig við um stórar virkjanir.
Þetta eykur ábyrgð lánastofnana
á alþjóðlegum markaði á verkefnum
sem þær fjármagna. Margir alþjóð-
legir bankar eða lánastofnanir hafa
viðurkennt þessa ábyrgð með því að
setja sér viðmið og markmið í um-
hverfismálum. Þannig hefði Al-
þjóðabankinn ekki getað veitt lán til
byggingar Fljótsdalsvirkjunar eða
Eyjabakkalóns á sínum tíma þar eð
ekki hafði farið fram mat á umhverf-
isáhrifum og Norsk Hydro treysti
sér ekki til að taka þátt í verkefninu
af sömu ástæðum. Íslensk og alþjóð-
leg náttúruverndarsamtök beittu
sér gegn þátttöku Norsk Hydro í
Fljótsdalsvirkjun og að sama skapi
er fullkomlega eðlilegt að sams kon-
ar vinnubrögðum sé beitt gegn þátt-
töku alþjóðlegra lánastofnana í
byggingu Kárahnjúkavirkjunar
enda hefur Landsvirkjun beitt
Sumitomo Mitsui Bank Corporation
fyrir sig í umræðunni hér á landi og
jafnvel matað þann banka á röngum
upplýsingum í því skyni. Alcoa hefur
ráðið almannatengslaskrifstofu til
að koma ár sinni fyrir borð í ís-
lenskri umræðu. Hvað er athuga-
vert við að Náttúruverndarsamtök
Íslands beiti sér á alþjóðavettvangi
með aðstoð alþjóðlegra umhverfis-
verndarsamtaka?
Iðnaðarráðherra
fer yfir strikið
Iðnaðarráðherra og forráðamenn
Landsvirkjunar hafa gjarnan ráðist
að frjálsum félagasamtökum og ein-
staklingum sem fyrir þau vinna.
Nöturlegt dæmi um það er sú full-
yrðing sem Morgunblaðið hefur eft-
ir iðnaðarráðherra sl. mánudag (3.
mars): „Ég trúi því ekki að virtar
lánastofnanir kynni sér ekki málin
þegar verið er að bera það á borð að
íslensk stjórnvöld séu að falsa úr-
skurði og þar fram eftir götunum.
Þetta er náttúrlega svo yfirgengi-
legt að ég trúi því ekki að virtar
lánastofnanir kynni sér ekki mál í
þaula áður en þær fara að hlusta á
svona lagað.“
Hverjir eða hvaða samtök hafa
haldið slíku fram? Iðnaðarráðherra
verður að skýra mál sitt því hvorki
Náttúruverndarsamtök Íslands né
Peter Bosshard fyrir hönd Internat-
ional Rivers Network hafa haldið
slíku fram. Iðnaðarráðherra segir í
umræddu viðtali við Morgunblaðið
óttast rangfærslur náttúruverndar-
samtaka en kemur síðan með alvar-
lega ásökun í garð slíkra samtaka
sem ekki á sér nokkurn stað.
Hin lýðræðislega umræða
Lýðræðisleg umræða getur ekki
takmarkast við umræður eða at-
kvæðagreiðslur á Alþingi. Barátta
gegn Kárahnjúkavirkjun á alþjóða-
vettvangi vegur ekki frekar að
sjálfsákvörðunarrétti Íslendinga en
sú stefna Landsvirkjunar að selja al-
þjóðlegum álfyrirtækjum orku frá
sömu virkjun á smánarprís. Gæti
stjórnvöld ekki réttra aðferða við
meðferð mála eiga borgarar þess
lands rétt á að leita til dómstóla.
Þetta gildir um úrskurð umhverfis-
ráðherra um Kárahnjúkavirkjun.
Það er langt frá því að málinu sé lok-
ið. Stefnu Atla Gíslasonar, Guð-
mundar Páls Ólafsssonar, Ólafs S.
Andréssonar og Náttúruverndar-
samtaka Íslands geta lesendur
Morgunblaðsins kynnt sér á vefsíðu
Nátturuverndarsamtaka Íslands,
http://www.natturuverndarsam-
tok.is.“
Yfirlýsing frá Náttúruverndarsamtökum Íslands vegna bréfs Peters Bosshards
Hvers vegna er
Kárahnjúkavirkjun
alþjóðlegt mál?