Morgunblaðið - 05.03.2003, Side 45
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 45
Aðalfundur
Vátryggingafélags Íslands hf. árið 2003
Dagskrá fundarins, tillögur og
ársreikningur félagsins fyrir árið 2002
verður hluthöfum til sýnis í
höfuðstöðvum Vátryggingafélags Íslands
hf. að Ármúla 3 í Reykjavík, frá og með
11. mars nk. Þessi gögn verða einnig
aðgengileg á www.vis.is
Atkvæðaseðlar að fundinum verða
afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum
þeirra á fundarstað, Súlnasal, Radisson
SAS Hótel Sögu frá kl. 16:30 á fundardegi,
fimmtudaginn 20. mars nk.
Aðalfundur Vátryggingafélags Íslands hf. verður haldinn
fimmtudaginn 20. mars 2003 í Súlnasal á Hótel Sögu, Reykjavík
og hefst kl. 17:30.
Dagskrá
Vátryggingafélag Íslands, Ármúla 3, 108 Reykjavík, Þjónustuver 560 5000, www.vis.is
1. Skýrsla stjórnar félagsins fyrir liðið
starfsár.
2. Skýrsla forstjóra.
3. Endurskoðaðir reikningar ársins
2002 lagðir fram til samþykktar.
4. Tillögur stjórnar um ráðstöfun
hagnaðar.
5. Stjórnarkjör.
6. Kosning endurskoðendafirma.
7. Ákvörðun um þóknun til stjórnar.
8. Önnur mál.
Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
6
4
1
6
SÝNINGIN Æskan og
hesturinn verður haldin
um næstu helgi en þessi
sýning er að verða einn
fjölsóttasti viðburður á
sviði hestamennskunnar.
Sýningin sem að venju
verður haldin í Reiðhöll-
inni í Víðidal er nú haldin
í níunda sinn og hafa vin-
sældir hennar aukist jafnt
og þétt ár frá ári. Talið er
að fimm þúsund manns
hafi sótt sýninguna í fyrra
og urðu margir frá að
hverfa svo þröngt var orð-
ið í höllinni. Hefur því ver-
ið brugðið á það ráð að
fjölga sýningum úr tveimur í fjór-
ar.
Að sögn Elmu Cates sem er drif-
fjöður sýningarinnar verður gen-
eralprufa á miðvikudagskvöld en
fyrsta sýningin verður klukkan 13
á laugardag og er hún ætluð boðs-
gestum þar sem meðal annars
mæta fulltrúar margra styrktarað-
ila sýningarinnar. Þá verður önn-
ur sýning klukkan 17 og sömu
tímasetningar á sunnudag. Frítt er
inn á allar sýningarnar.
Að venju eru það börn, ungling-
ar og ungmenni sem bera uppi
sýninguna að svo til öllu leyti. Það
eru æskulýðsdeildir hestamanna-
félaganna á suðvesturhorninu sem
standa að sýningunni í samvinnu
við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn
í Laugardal en í ráði er frekara
samstarf þessara aðila. Munu
hestamannafélögin skiptast á í
sumar að mæta með einhver hesta-
atriði í garðinn. Þá verður öllum
sem mæta á sýninguna afhentur
frímiði í garðinn sem gildir um
aðra helgi.
Meðal sýningaratriða má nefna
að Freyja Amble margfaldur Ís-
landsmeistari í hestaíþróttum sýn-
ir fimiæfingar, þá mætir Rose-
marie Þorleifsdóttir með nemend-
ur úr Reiðskólanum í Geldinga-
holti og sýnir fimiæfingar í taum-
hring. Kristinn Hákonarson
verður með allskonar kúnstir með
hesta eins og honum er einum lag-
ið. Þá verður einnig hindrunar-
stökk, skrautreiðar ýmiskonar í
tilheyrandi búningum og söng-
konan kornunga Halldóra Bald-
vinsdóttir mun syngja fyrir við-
stadda. Daníel Ingi Smárason
mætir með hundinn sinn Tangó en
þeir slógu eftirminnilega í gegn í
fyrra og nú mætir einnig til leiks
kærasta Tangós.
Tilganginn með þessari sýningu
segir Elma vera þann að kynna
hestamennskuna sem áhugaverð-
an valkost fyrir æsku landsins því
hestamennskan sé ein
besta tómstundaiðja þar
sem fjölskyldan geti sam-
einast á jafnréttis-
grundvelli. Af þeim sök-
um sé hestamennskan
mjög öflug í forvarn-
arstarfi gegn þeim
óhugnaði sem víða sæki
að æsku landsins. Þá
stuðli hestamennskan að
heilbrigðu líferni og hest-
arnir séu viðurkenndir
sem góður kostur í þjálf-
un fatlaðra. „Þar fyrir ut-
an er almenn umgengni
við hestinn afar jákvæð
og þroskandi fyrir ein-
staklinga á öllum aldri,“ bætti
Elma af mikilli sannfæringu um
ágæti íslenska hestsins.
Þá gat Elma þess að þótt öll
vinna við sýninguna væri unnin í
sjálfboðavinnu væri talsverður
kostnaður við þessa sýningu og
væri gott dæmi um aukinn skilning
á mikilvægi hestamennskunnar
hversu vel gengi að fá styrktarað-
ila til að fjármagna þetta dæmi.
Nefndi hún sem dæmi að þrjú
ráðuneyti, heilbrigðis-, mennta-
mála- og landbúnaðarráðuneytið,
legðu fram umtalsverða fjármuni
auk þeirra fjölmörgu fyrirtækja
sem legðu mikið af mörkum.
Leiðrétting
Vegna mistaka birtist röng
grein um væntanlegar sýningar í
hestaþætti í gær eins og glöggir
lesendur hafa vafalaust gert sér
grein fyrir. Birtist grein um sýn-
inguna sem fram fór í fyrra. Er
beðist virðingar á því.
Sýningin Æskan og hesturinn í Reiðhöllinni um helgina
Sýningum fjölgað um helming
Mikið er lagt í öll atriði og umbúnað á Æskunni og hest-
inum enda hefur ávallt vel til tekist með sýningarnar.
AÐ MINNSTA kosti átta heyrnar-
lausir einstaklingar hafa sent
menntamálaráðuneytinu stjórn-
sýslukærur vegna ákvörðunar Sam-
skiptamiðstöðvar heyrnarlausra og
heyrnarskertra um synjun á túlka-
þjónustu. Menntamálaráðherra seg-
ir að allmargar kærur hafi borist en
þær séu vegna þjónustu sem ekki sé
menntamálaráðuneytisins að greiða
fyrir. Hins vegar sé eðlilegt að kær-
urnar séu sendar ráðuneytinu þar
sem Samskiptamiðstöðin heyri undir
það.
Í frétt frá Félagi heyrnarlausra
segir að fólki hafi verið synjað um
túlkaþjónustu m.a. vegna samskipta
við fasteignasala, bílasala, lögmenn,
túlkun á húsfundum og á námskeið-
um, s.s. í ökuskóla. „Í sumum tilfell-
um hafa heyrnarlausir neyðst til að
greiða túlkaþjónustu sjálfir til að
tryggja að þeir fái réttar upplýsing-
ar í t.d. fasteignaviðskiptum,“ segir í
fréttinni.
Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra segir að kærunum verði að
sjálfsögðu svarað en það geti þó tek-
ið tíma enda verði að gera það eftir
lögformlegum leiðum. „Mér sýnist
að þessar kærur fjalli að öllu leyti
um það sem kallast útseld þjónusta
Samskiptamiðstöðvar heyrnar-
lausra. Það þýðir í raun að ýmsir
leita til Samskiptamiðstöðvarinnar
til að kaupa af henni þjónustu, þar á
meðal menntamálaráðuneytið, en þá
er fyrst og fremst um túlkaþjónustu
í skólum að ræða.“ Hann segir að þar
fyrir utan sé gert ráð fyrir 24,8 millj-
ónum króna á fjárlögum sem standa
eigi undir grunnstarfsemi Sam-
skiptamiðstöðvar heyrnarlausra.
Að mati Tómasar falla þau mál,
sem kærurnar taka til, ekki undir
menntamálaráðuneytið heldur önn-
ur ráðuneyti og þá sérstaklega fé-
lagsmálaráðuneytið. Hann geti þó
ekki dæmt um það hvort umrædd
þjónusta sé þess eðlis að félagsmála-
ráðuneytinu beri að greiða fyrir
hana.
„Hins vegar er mér kunnugt um
að félagsmálaráðuneytið kaupir
þjónustu af Samskiptamiðstöð
heyrnarlausra,“ segir hann. „En það
er eðlilegt að þessar stjórnsýslukær-
ur séu sendar á okkur vegna þess að
stofnunin heyrir undir menntamála-
ráðuneytið,“ segir Tómas Ingi.
Heyrnarlausir
kæra synjun á
túlkaþjónustu
ÚTGJÖLD til menntamála á Ís-
landi voru 14,5% af heildarútgjöld-
um hins opinbera árið 1999. Er Ís-
land næsthæst hvað þetta varðar
ásamt Danmörku þegar 30 lönd í
Evrópu eru skoðuð en aðeins Kýp-
ur var með hærra hlutfall eða
15,6%.
Þetta kemur fram í ritinu Key
Data on Education in Europe 2002
þar sem bornar eru saman upplýs-
ingar um menntamál í 30 Evrópu-
löndum en fjallað er um útgáfu rits-
ins á heimasíðu menntamálaráðu-
neytisins.
Kemur þar fram að Ísland er í
hópi þeirra landa í Evrópu sem
hafa hvað hæst hlutfall þriggja og
fjögurra ára gamalla barna í leik-
skólum en almennt hefur fjöldi
barna í leikskólum aukist á síðustu
áratugum í Evrópu. Á Íslandi er yf-
ir 90% fjögurra ára barna í leik-
skólum og yfir 80% þriggja ára
barna. Hins vegar er fjöldi barna á
hvern starfsmann í leikskólum á Ís-
landi með því lægsta sem gerist,
eða 8.
Þá er Ísland meðal þeirra landa
sem hafa fæstar árlegar kennslu-
stundir að meðaltali á skyldunáms-
stigi eða 746, sé miðað við skólaárið
2000–2001. Hins vegar var heildar-
kennslustundafjöldi í skyldunámi
hærri á Íslandi að meðaltali þar
sem skólaskylda í mörgum Evrópu-
löndum er einungis 9 ár á meðan
hún er 10 ár hérlendis.
Fleiri í bóknámi hérlendis
Á Íslandi eru tveir þriðju hlutar
nemenda á framhaldsskólastigi í al-
mennu bóknámi sem er öfugt við
flest samanburðarlöndin þar sem
almennt eru fleiri nemendur á
framhaldsskólastigi í starfsnámi en
í almennu bóknámi.
Aðeins ríflega 55% þeirra sem
náð hafa 22 ára aldri á Íslandi hafa
útskrifast úr framhaldsskóla en
meðaltalið er tæp 79% í saman-
burðarlöndunum.
Hins vegar er hátt hlutfall Ís-
lendinga á aldrinum 30-34 ára með
háskólapróf eða tæp 33% en með-
altal samanburðarlandanna er 23%.
Ísland er meðal fimm landa þar
sem fjöldi stúdenta í háskólanámi
hefur þrefaldast á síðastliðnum 25
árum. Þá hefur fjöldi kvenna í há-
skólanámi sexfaldast á þessu tíma-
bili.
Útgjöld til
menntamála eru
há hér á landi
DÓMSMÁLARÁÐHERRA, Sól-
veig Pétursdóttir, hefur lagt fram
á Alþingi frumvarp til laga um
breytingu á mörkum Suðvestur-
kjördæmis og Reykjavíkurkjör-
dæmis suður. Í athugasemdum við
frumvarpið er skýrt frá því að fé-
lagsmálaráðuneytið hafi hinn 25.
febrúar sl. staðfest breytt mörk
milli Kópavogsbæjar og Reykjavík-
urborgar.
„Samkvæmt því breytast mörk
milli sveitarfélaganna þannig að
hluti Blesugrófar, sem er innan
marka Kópavogs, verður innan
marka Reykjavíkur,“ segir í at-
hugasemdum frumvarpsins. „Á
þessu landsvæði búa um tíu manns,
sem nú eiga kosningarétt í Suð-
vesturkjördæmi. Eftir breytingar á
mörkum sveitarfélaganna munu
íbúar svæðisins tilheyra Reykja-
víkurkjördæmi suður.“
Með frumvarpi ráðherra er lagt
til að Alþingi samþykki þessar
breytingar á mörkum Suðvestur-
kjördæmis og Reykjavíkurkjör-
dæmis suður. Breytingarnar munu
ekki öðlast gildi nema Alþingi sam-
þykki þær með 2⁄3 atkvæða.
Kjósendur færast
milli kjördæma