Morgunblaðið - 05.03.2003, Síða 49
Friðrik Þór Friðriksson
MORGUNBLAÐIÐ birtiaf því frétt í gær aðhætt hefði verið viðgerð kvikmyndar Mar-
grétar Rúnar Guðmundsdóttur, Sól-
on Íslandus, sem hefur verið í und-
irbúningi í nær fjögur ár. Ástæðan er
fjármagnsskortur, en styrkir sem
kvikmyndin hlaut til vinnslu í Þýska-
landi féllu niður og féllu þá einnig
niður vilyrði til framleiðslu sem hlot-
ist höfðu úr Kvikmyndasjóði Íslands,
sem hljóðuðu upp á 40 milljónir ís-
lenskra króna.
Friðrik Þór Friðriksson og Ís-
lenska kvikmyndasamsteypan voru
upphaflegir framleiðendur að Sólon
Íslandus, en samstarfið hefur nú ver-
ið dregið til baka. „Það er löng sorg-
arsaga af þessari kvikmynd, því það
var búið að fjármagna hana á
ákveðnum tímapunkti. Síðan átti sér
stað misskilningur milli forstöðu-
manns kvikmyndasjóðs og leikstjór-
ans um hvenær ætti að skila inn
gögnum um staðfestingu á annarri
fjármögnun svo styrkurinn fengist
sem vilyrði hafði verið gefið fyrir
2001. Forstöðumaðurinn taldi að um
1. janúar væri að ræða, en leikstjór-
inn 1. febrúar. Þegar gögnunum var
skilað til kvikmyndasjóðs í lok janúar
var Margrét Rún komin með 90 millj-
ónir frá Þýskalandi og hún hafði vil-
yrði upp á 48 milljónir, að mig minnir,
frá kvikmyndasjóði og myndin taldist
því fjármögnuð. Vegna þess að gögn-
unum var skilað of seint, að mati for-
stöðumanns kvikmyndasjóðs, var vil-
yrðið afturkallað og Margréti Rún
varð því að sækja aftur um úr sjóðn-
um að ári. Þá var einungis gefið vil-
yrði fyrir 40 milljónum, í stað 48 áður.
Þetta þýddi að fresta þurfti fjár-
mögnuninni um ár og við það féllu út
nokkrir styrkjanna í Þýskalandi. Nú
þarf því að sækja um allt upp á nýtt.
Það eru auðvitað bara embættisglöp
að taka styrk af fólki án andmæla-
réttar. Það var aldrei spurt hvar er-
lenda fjármögnunin stæði, heldur
styrkurinn einfaldlega tekinn,“ segir
Friðrik Þór.
„Ástæðan fyrir því að myndin fer
ekki í framleiðslu er sú, að þegar vil-
yrðið um styrkinn rann út um áramót
vantaði 20 milljónir króna upp á fulla
fjármögnun. Þá lá fyrir að frekara
fjármagn var ekki að fá úr erlendum
sjóðum né voru meðframleiðendur
tilbúnir til að leggja til meira einka-
fjármagn. Við sóttum um það viðbót-
arfjármagn í nóvember 2002 í kvik-
myndasjóð og þar lagði ég áherslu á
að vilji úthlutunarnefndar árið 1999,
þegar myndin hlaut 48 milljónir
króna vilyrði, yrði virtur. Að úthlutað
yrði til framleiðslu kvikmyndarinnar
á þessu ári jafnvirði þess sem nefndin
vildi að færi í myndina á sínum tíma,
það er til viðbótar við fyrirliggjandi
40 milljóna vilyrði. Vegna þess milli-
bilsástands sem skapaðist við nið-
urlagningu kvikmyndasjóðs og stofn-
un nýrrar kvikmyndamiðstöðvar
fékk sú umsókn ekki efnislega um-
fjöllun áður en vilyrði rann út um
áramót.“
Friðrik Þór bendir einnig á að
vegna þessa millibilsástands hafi
enginn verið tiltækur hjá kvikmynda-
sjóði/miðstöð til að veita þýsku sjóð-
unum, er hugðust veita Sólon Ís-
landus styrk, þær upplýsingar um
stöðu mála á íslenskum styrkjum,
sem Þjóðverjarnir hafi í mörgum til-
fellum krafist. Hann segir sig og fyr-
irtæki sitt hafa tapað 2-3 milljónum á
undirbúningi kvikmyndarinnar, sem
það hyggst ekki lengur taka þátt í að
gera. „Það sem við köllum „over-
head“ vinnu hefur tekið um þrjú ár
og ég hef sótt marga fundi út um all-
an heim vegna þessa verkefnis. Hvað
varðar Margréti Rún, þá hefur hún
lagt líf sitt í þetta í fimm ár eða meira.
Það er þó ekki endilega töpuð vinna,
en það þarf að fara í gegn um ferlið
aftur. Ég var sjálfur með Börn nátt-
úrunnar í þessum sjóði í sex ár án
þess að fá nokkurn styrk. Núna ligg-
ur líka fyrir ný reglugerð sem er
miklu skynsamlegri og vonandi verð-
ur mun betra að standa í þessum
málum eftir að hún er komin á.“
Sólon forvitnilegur
Friðrik Þór segir reynslu sína af
kvikmyndinni Myrkrahöfðinginn,
sem mikið fjárhagslegt tap varð af,
einnig hafa orðið til þess að hann
hætti við gerð Sólon Íslandus. „Þetta
eru báðar svona períódu-myndir, sem
ég held að hafi tilhneigingu til að
verða dýrar. Myndin Myrkrahöfðing-
inn reyndist all miklu dýrari en áætl-
að var og ég held að Sólon Íslandus
hafi að sama skapi verið vanáætluð,
svo ég var ekkert æstur í gera hana
undirfjármagnaða. Af þessum 90
milljónum í Þýskalandi átti aldrei að
koma nema hluti til Íslands, þar sem
mikið var af tæknibrellum sem gera
átti erlendis. Þetta var því aldrei fýsi-
legt verkefni, þegar maður skoðar
það útfrá viðskiptalegum sjón-
armiðum, eins og gera þarf núna.
Auk þess var myndin bæði þung og
erfið, enda fékkst ekki norrænn með-
framleiðandi vegna þess hve hand-
ritið þótti þyngslalegt. Þó að Margrét
Rún hafi reynt að setja meiri húmor í
það undir lokin tel ég að það hafi ver-
ið orðið af seint að létta það. Bæði
norræni sjóðurinn og Evrópusjóð-
urinn töldu að þetta væri listaverk,
sem ekki fengi mikla aðsókn – þetta
er engin formúlumynd. Eftir reynsl-
una við gerð á myndinni Myrkrahöfð-
inginn var maður orðinn skíthræddur
við Sólon og þó að Margrét og leik-
myndahönnuðurinn hafi verið með
margar frábærar lausnir var Hrafn
Gunnlaugsson það líka á sínum
tíma,“ segir hann.
„Þetta eru vonbrigði, af því að efn-
ið í Sólon Íslandus er mjög for-
vitnilegt. Og þetta er dapurlegt, af
því að myndin var fjármögnuð á vissu
stigi. Nú á að vera búið að laga þetta
með þessum nýju lögum og hér eftir
verður miklu meira samráð milli
Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og
kvikmyndaframleiðenda. Það er ekki
lengur til dæmis þessi eina dagsetn-
ing á ári sem allt miðast við. Hins
vegar er leiðinlegt að sjá á eftir svona
miklu fé sem kom erlendis frá í ís-
lenska mynd.“
Ný reglugerð liggur fyrir
Laufey Guðjónsdóttir, forstöðu-
maður Kvikmyndamiðstöðvar Ís-
lands, sagði það vonandi spurningu
um fáeina daga hvenær ný reglugerð
um starfsemi kvikmyndamiðstöðvar
og úthlutanir lægju fyrir, en hún er
nú til umsagnar hjá kvikmyndaráði.
„Ef allt gengur eftir verður von-
andi meiri samræða af hálfu stofn-
unarinnar við kvikmyndagerð-
armenn og verkefnum fylgt betur
eftir. Eins liggur þá fyrir að umsókn-
ir séu ekki bundnar við einn dag á ári
og verkefnin komi þá inn þegar þau
eru tilbúin, í stað þess að hespa þeim
af fyrir ákveðna úthlutunardaga, eins
og var áður þegar aðeins var úthlutað
einu sinni á ári,“ segir hún. „Ég held
að reglugerðin einfaldi einmitt svona
vandamál eins og komu upp í sam-
bandi við Sólon Íslandus, ef vel
heppnast. Hins vegar verðum við
áfram bundin af fjárhagslegu þaki og
upphæð til kvikmyndasjóðs verður sú
sama á fjárlögum þessa árs og var í
fyrra. Maður heyrir þær raddir, í
þessu máli og annars staðar, að við
séum ekki að veita nógu háa styrki til
einstakra verkefna. Það er umræða
sem þarf að taka upp og ég hef hugs-
að mér að eiga samræður við fulltrúa
kvikmyndagerðarmanna um þessi at-
riði. Auðvitað verður aldrei hægt að
veita styrki umfram fjárhagslegan
ramma.“
Gerð kvikmyndarinnar Sólon Íslandus siglir í strand
Leitt að sjá á eftir
erlendum styrkjum
Búið var að ráða Ingvar E. Sigurðs-
son til að leika Sölva Helgason sem
hér er á gamalli teikningu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laufey Guðjónsdóttir, forstöðu-
maður Kvikmyndamiðstöðvar Ís-
lands, fundaði með Félagi kvik-
myndagerðarmanna á
mánudagskvöld.
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 49
Ve r ð u r þ ú h e p p i n n
á s k r i f a n d i ?
Í tilefni frumsýningar á hinni margverðlaunuðu og rómuðu mynd The Hours sem er tilnefnd til
9 Óskarsverðlauna m.a. sem besta myndin, standa Morgunblaðið og Regnboginn fyrir netleik á mbl.is.
Leikurinn er eingöngu fyrir áskrifendur Morgunblaðsins. Taktu þátt því
200 heppnir áskrifendur fá miða fyrir tvo á myndina.
Frumsýnd 7. mars
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Prag þann
17. mars. Þú bókar 2 flugsæti, en
greiðir aðeins fyrir 1 og getur
kynnst þessari fegurstu borg Evrópu
á einstökum kjörum. Þú getur valið
um úrval góðra hótela í hjarta Prag
og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða í
Prag allan tímann.
2 fyrir 1 til
Prag
17. mars
frá kr. 19.550*
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.550*
Flugsæti til Prag, 17. mars, heim 20. mars.
Almennt verð með sköttum.
*Flug og skattar per mann m.v. að tveir
ferðist saman.
Verð kr. 3.900
Verð fyrir mann, m.v. 2 í herbergi á
Pyramida, per nótt m. morgunmat. Völ
um góð 3 og 4 stjörnu hótel.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Fegursta borg Evrópu
Munið Mastercard
ferðaávísunina