Morgunblaðið - 05.03.2003, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 8. Enskur texti. Strangl.B.i. 16. Sýnd kl. 8 og 10..Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8 og 10.10.
Magnaðasti spennuhrollur ársins sem hefur
allstaðar slegið í gegn.
Hefur verið líkt við “The Sixth Sense”
Áður en þú deyrð, færðu að sjá
SV MBL
Radío X
KVIKMYNDIR.IS
SV MBL HK DV
SG Rás 2
Radio X
Sýnd kl. 6. Ísl.tal.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16.
Norrænir bíódadagar
hefjast á fimmtudaginn.
ÞÞ
Fréttablaðið
Tilnefnd til 4 Óskarsverðlauna
Frumsýnd á föstudaginn.
/Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
Sumir tala
um það,
aðrir fara
alla leið
Svalar stelpur. hörkuspenna og fjör.
Með hasargellunni Michelle Rodriguez
úr „The Fast and the Furious“.
Vinsælasta myndin í
Bandaríkjunum.
2 vikur á toppnum.
Stútfull af topp
tónlist og brjálæðri
spennu.
ÁLFABAKKI / KRINGLAN
KRINGLUNNI
Sýnd í Kringlunni kl. 12 og 2.
Sýnd í Kringlunni kl. 12 og 2.
Sýnd í Kringlunni kl. 12.30.
Öskudags
tilboð í
Kr. 200
FIMM KVIKMYNDIR frá fimm Norður-
landaþjóðum – Finnlandi, Svíþjóð, Noregi,
Danmörku og Færeyjum – verða sýndar í
Háskólabíói á Norrænum bíódögum, sem
haldnir eru í annað sinn dagana 6.–10.
mars. Um er að ræða myndir sem allar hafa
vakið mikla athygli, bæði heima fyrir sem
og um heim allan, margverðlaunaðar mynd-
ir sem gefa góða
innsýn í nýjustu
strauma í norrænni
kvikmyndagerð. Að
öðrum myndum
ólöstuðum ber hæst
frumsýningu á nýj-
ustu myndum Finn-
ans Akis Kaur-
ismäkis og Svíans
Lukasar Moodys-
sons, en báðir eiga sér traustan fylgishóp
hér á landi. Mynd hins fyrrnefnda heitir
Maður án fortíðar og mun opna norrænu
bíódagana annað kvöld, en á dögunum var
sú mynd einmitt tilnefnd til Óskars-
verðlauna sem besta kvikmyndin á annarri
tungu en ensku.
Norrænir bíódagar eru samstarfsverkefni
norrænna sendikennara við Háskóla Ís-
lands, Film-Undurs og Íslensku samsteyp-
unnar en styrktaraðilar eru sendiráð Dan-
merkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar og
Morgunblaðið.
Þess má geta að samhliða bíódögunum
efna þeir Jukka Sihvonen kvikmyndafræð-
ingur og Kaisa Kurikka, aðstoðarprófessor í
finnskum bókmenntum við Háskólann í
Turku, til fyrirlestraraðar um norrænar
kvikmyndir nú um helgina og á þriðjudag
og miðvikudag í næstu viku.
Myndirnar sem sýndar verðar á Norræn-
um bíódögum eru eftirfarandi:
Maður án fortíðar
(Mies vailla menneisyyttä)
Margverðlaunuð mynd ólíkindatólsins og
tregakvikmyndagerðarmannsins Akis Kaur-
ismäkis. Myndin hlaut fyrstu kvikmynda-
verðlaun Norðurlandaráðs síðastliðið haust
og dómnefnd í Cannes – þar sem myndin
var heimsfrumsýnd í maí á síðasta ári –
færði henni Grand Prix-verðlaunin, sem eru
næstæðstu verðlaunin á þessari virtu kvik-
myndahátíð, og Kati Outinen var jafnframt
valin besta leikkonan í Cannes. Myndin sóp-
aði vitaskuld til sín verðlaunum; fékk Jussi-
verðlaunin finnsku, var tilnefnd til fjölda
evrópskra kvikmyndaverðlauna, vann gagn-
rýnendaverðlaun á hátíðinni í San Sebastian
og áhorfendaverðlaunin á Norrænu kvik-
myndadögunum í Lübeck.
Myndinni Maður án fortíðar lýsir Kaur-
ismäki sem „epísku drama, kvikmynd eða,
eigum við að segja, draumi um einmana fólk
með tóma vasa undir bláhimni Drottins eða,
eigum við að segja, fuglanna“. Myndin segir
sögu manns sem kemur til Helsinki með
lest, að virðist atvinnulaus. Áður en maður
fær að kynnast honum nánar er hann bar-
inn til óbóta og skilinn eftir meðvitundar-
laus. Þegar hann raknar úr rotinu hefur
hann misst minnið og er allslaus. Lendir
hann því í slagtogi með heimilislausum, þar
sem hann nær heilsu, kemur undir sig fót-
unum og finnur lífi sínu tilgang, sem er ung
hjálpræðisherskona.
Maður án fortíðar er að sögn Kaur-
ismäkis önnur myndin í þríleik um finnsku
þjóðareinkennin. Hún er 15. mynd leikstjór-
ans en meðal kunnustu mynda hans eru
Bóhemalíf, Leníngrad-kúrekarnir og Stúlk-
an með eldspýturnar.
Lilja að eilífu (Lilja 4-ever)
Færa má sannfærandi rök fyrir því að
hinn 33 ára Lukas Moodysson sé í senn
efnilegasti og athyglisverðasti kvikmynda-
gerðarmaður Norðurlanda um þessar
mundir. Fyrstu tvær myndir hans, Árans
Åmål (Fucking Åmål) og Samanlagt (Til-
sammans), eru tvímælalaust í hópi bestu
norrænu mynda liðinna ára og ekki hefur
þessi þriðja mynd hans hlotið minni eft-
irtekt og vegtyllur. Lilja að eilífu er hans
myrkasta mynd til þessa, fjallar um brýnt
viðfangsefni úr samtímanum, þ.e. sölu á
konum sem kynlífsþrælum. Titilpersónan er
14 ára stúlka sem býr „einhvers staðar í
fyrrum Sovétríkjunum“ og hefur verið yf-
irgefin af móður sinni, sem fluttist með
manni sínum til Bandaríkjanna. Lilja er því
allslaus og að verða hungurmorða en þráast
við að bjarga sér, líkt og vinkonurnar, með
því að selja blíðu sína. Ásamt eina vini sín-
um, hinum ellefu ára Volodya, dreymir hana
um betra líf; draumur sem hún heldur að sé
að rætast þegar riddarinn kemur ríðandi í
hlað á hvítum hesti í líki Andrei, og biður
hana að koma með sér til Svíþjóðar, sem
hún og gerir. Moodysson tók myndina í
Eistlandi og Svíþjóð og þrátt fyrir að valda
mikilli úlfúð í heimalandinu varð hún ein
vinsælasta mynd síðasta árs þar í landi og
laðaði að 47 þúsund áhorfendur í 52 sýning-
arsali, sem er næstbesti árangur í Svíþjóð,
per sýningarsal. Lilja að eilífu hlaut á dög-
unum sænsku kvikmyndaverðlaunin Guld-
baggen og gagnrýnendur völdu hana bestu
myndina á hátíðinni í Stokkhólmi.
Ókei (Okay)
Danir eru – kannski ásamt Bretum –
orðnir manna færastir í að gera léttar og
ljúfsárar gamanmyndir; gamanmyndir með
alvarlegum undirtóni og dýpri meiningu.
Ókei frá 2002 er ein slík, enda er Kim Fupz
meðhöfundur, sá hinn sami og skrifaði
smellinn Hinn eina sanna (Den eneste ene).
Og aðalleikkonan er líka hin sama í báðum
þessum myndum, Paprika Steen. Leikur
hún 37 ára gamla gifta konu sem á dóttur á
táningsaldri. Þegar faðir hennar lýsir yfir
að hann eigi þrjár vikur eftir ólifaðar tekur
hún hann inn á heimilið, en þegar karl er
enn á lífi eftir sex vikur fara að renna tvær
grímur á fjölskylduna og afdrifaríkur tími
gengur í garð sem reynir mjög á fjöl-
skylduböndin. Að sögn klipparans, leikstjór-
ans og meðhöfundarins Jespers Westerlings
Nielsens fjallar Ókei um miðaldra-kreppuna
og þá tilfinningu að hafa sóað helmingi lífs-
ins. „En svo þurfa menn að gera málamiðl-
anir og ef einhver spyr segjast þeir vera al-
veg ókei.“ Ókei sló í gegn í heimalandinu og
fékk 230 þúsund gesti.
Farvel þröstur (Bye Bye Blackbird)
Katrin Ottarsdóttir er frumkvöðull í fær-
eyskri kvikmyndagerð. Farvel þröstur frá
1999 er önnur mynd hennar en fyrsta
myndin, Atlantshafsrapsódía (Atlantic
Rhapsody – 52 myndir úr Tórshavn), var
fyrsta færeyska kvikmyndin í fullri lengd.
Farvel þröstur er vegamynd um vinkon-
urnar Rannvá og Barba. Eftir nokkurra ára
dvöl ytra snúa þær aftur til Færeyja í því
skyni að greiða úr erfiðum fjölskylduflækj-
um. Orðnar æði veraldarvanar á öllu heims-
hornaflakkinu þykir þeim heimkynnin held-
ur klén, bæði lítil og lummó, og gera því út
á að skera sig úr og ganga fram af löndum
sínum. En til þess að bjarga fjölskyldumál-
unum þurfa þær að fara norður og á leið-
inni verður á vegi þeirra alls kyns fólk sem
fær þær til að endurmeta rætur sínar.
Myndin hefur vakið verðskuldaða athygli
á Katrinu og færeyskri kvikmyndagerð og
hlaut m.a. áhorfendaverðlaun á norrænu
kvikmyndahátíðinni í Rúðuborg.
Leitartækið (Detektor)
Þessi frumraun leikstjórans efnilega Påls
Jackmans frá árinu 1999 er gamanmynd um
Daniel, nýútskrifaðan sálfræðing, sem finn-
ur stóru ástina á allsérstæðan hátt. Hann er
í strákaklúbbnum Leitartækinu, sem heitir
eftir málmleitartæki. Dag einn finna þeir
félagar nisti með áletruninni Janne og með
hjálp vinar síns sem er útvarpsmaður hafa
þeir uppi á eigandanum, sem reynist falleg,
ung og dularfull kona. Daniel er ekki fyrr
fallinn fyrir henni en hún hverfur og hann
þarf að hafa uppi á henni á ný.
Leitartækið, sem rithöfundurinn Erlend
Loe skrifaði, vakti talsverða athygli í
heimalandinu þar sem 240 þúsund manns
sáu hana. Jackman fékk Amanda-verðlaun
fyrir hana sem bestu frumraun.
Á Norrænum bíódögum í Háskólabíói sem fram fara dagana 6.–10. mars verður boðið upp á fimm
athyglisverðar myndir frá fimm löndum. Skarphéðinn Guðmundsson kynnti sér myndirnar nánar.
Nýjustu straumar
í norrænni
kvikmyndagerð
Ókei: Brakar í fjölskylduböndum við veikindi föður.
Leitartækið: Daniel tekur ekki augun af hinni dul-
arfullu Janne.
Lilja að eilífu: Sjaldséð ánægjustund í lífi Lilju og
Volodya.
Maður án fortíðar: Minnislausi maðurinn M og stóra
ástin í einkennisbúningi sínum.
Farvel þröstur: Vegvilltar vinkonur Rannvá og Barba.
Sýningar fara fram í Háskólabíói og verður sýn-
ingartími nánar auglýstur í Morgunblaðinu og á
heimasíðu Norræna hússins: www.nordice.is.
skarpi@mbl.is