Morgunblaðið - 05.03.2003, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
STJÓRNIR SÍF og SH hafa ákveðið að
hætta viðræðum um sameiningu félag-
anna. Ástæðan er ágreiningur um mat á
virði félaganna. Þau sendu í gær frá sér
sameiginlega til-
kynningu um við-
ræðuslitin. Þar segir
svo: „Á undanförn-
um vikum hafa
samninganefndir á
vegum stjórna SH
hf. og SÍF hf. fjallað
um hugsanlegan
samruna félaganna.
Þær viðræður hafa
leitt í ljós að of mikið
ber á milli hvað varðar mat á virði þeirra til
að samkomulag náist. Samninganefndirn-
ar hafa nú skilað umboði sínu og er það
sameiginlegt álit stjórna beggja félaganna
að fullreynt sé og hefur því viðræðum ver-
ið hætt.
Friðrik Pálsson, formaður stjórnar SÍF,
segir samninganefndirnar hafa reynt að
finna út hvort sameiginleg sýn næðist á
framtíð fyrirtækjanna, en eins og fram
hafi komið í fréttatilkynningu hafi borið of
mikið á milli. Hann segir að málin hafi ver-
ið rædd og unnin á faglegan hátt og við-
ræður gengið vel, en niðurstaðan hafi orðið
sú að úr sameiningu gæti ekki orðið.
Hverjum þykir
sinn fugl fagur
Róbert Guðfinnsson, stjórnarformaður
SH, segir að því miður hafi menn ekki náð
saman enda hafi mikið borið á milli í verð-
mati hvors aðila fyrir sig á félögunum.
Hverjum finnist sinn fugl fagur og það sé
einfaldlega eðlilegt en það hafi verið leitt
að þetta skyldi ekki ganga. Viðræðurnar
hafi verið hreinskiptnar og aðilar gangi
ósárir frá borði og snúi sér áfram að
rekstri fyrirtækja sinna.
Hefði orðið af sameiningu fyrirtækj-
anna tveggja hefði þar orðið til stærsta
fyrirtæki landsins með um 120 milljarða
króna veltu og starfsemi í fjölmörgum
löndum.
Sameining
SÍF og SH
úr sögunni
Ágreiningur um
verðmat réð úrslitum
HELGI Albert Reynhardsson,
Sara Arndís Thorarensen og
Bergur Máni Skúlason á leik-
skólanum Sæborg voru í gær
full eftirvæntingar að skreyta
tunnuna sem slá á köttinn úr í
dag, öskudag. Soffía Þorsteins-
dóttir leikskólastjóri segir að
börnin hafi farið að hugsa um
búningana í ár um leið og
öskudagur var að kveldi kom-
inn í fyrra. Soffía sagði Sæ-
borg leggja áherslu á að börn-
in séu skapandi og því séu
skemmtileg furðuföt allsráð-
andi á öskudaginn.
Öskudagur á Sæborg fer
þannig fram að byrjað er á að
sækja börn inn á allar deildir
með skrúðgöngu sem skrúð-
göngudrottningin leiðir. Síðan
er haldið furðufataball þar sem
skemmtiatriði eru á boðstólum.
Þá er kötturinn víðfrægi sleg-
inn úr tunnunni og freistað
þess að ná í sælgætið góða sem
í henni er, en öskudagur er
eini dagurinn á ári sem börnin
á Sæborg fá sælgæti.
Svo er aldrei að vita nema
börnin næli gamaldags ösku-
poka hvert á annað eða
mömmu og pabba.
Á öskudegi eru fjörutíu dag-
ar til páska og tengist dag-
urinn því kristni en askan er
tákn iðrunar, segir á heimasíðu
Þjóðkirkjunnar.
Sprengidagur kallast svo
vegna þess að á þeim tímum
þegar fólk tók alvarlega fyr-
irmælin um föstu var hann síð-
asti dagurinn sem neyta mátti
kjöts, allt til páska. Heitið
bolludagur er ungt heiti og
tekur mið af síðari tíma venju.
Ýmsir siðir í sambandi við
þessa daga, eins og að stunda
ærsl og læti á öskudaginn og
kjötkveðjuhátíðir víða í útlönd-
um, eru hins vegar í litlum
tengslum við föstuna.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Börnin bíða eftir öskudegi
Skemmtileg furðuföt í öllum regnbogans litum verða allsráðandi í dag
ALLT að fjórum bjóðendum verður
úthlutað tíðni til rekstrar þriðju
kynslóðar farsímaneta að undan-
gengnu almennu útboði, samkvæmt
frumvarpi til laga um þriðju kynslóð
farsíma sem Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra hefur lagt fram
á Alþingi. Gildistími tíðniúthlutunar
verður 15 ár og er gjald skv. frum-
varpinu 190 milljónir króna fyrir
hverja tíðniúthlutun, eins og segir í
frumvarpinu. Í athugasemdum
frumvarpsins segir að gjaldið sé þó
mun lægra en þekkist víða annars
staðar.
Í frumvarpinu er lögð til sú lág-
markskrafa að útbreiðsla farsíma-
kerfisins nái til 60% íbúa á höfuð-
borgarsvæðinu, Vesturlandi, Vest-
fjörðum, Norðurlandi vestra,
Norðurlandi eystra, Austurlandi,
Suðurlandi og Suðurnesjum. Er
þessi krafa lögð fram, að því er fram
kemur í athugasemdum með frum-
varpinu, til að ná því markmiði að
byggja upp öflugt fjarskiptakerfi um
allt land. „Miðað við framangreindar
kröfur um útbreiðslu má áætla að
heildarkostnaður við uppbyggingu
þriðju kynslóðar farsímakerfis verði
á bilinu 10 til 15 milljarðar króna,“
segir í athugasemdum frumvarps-
ins.
Þar segir einnig að ákveðið hafi
verið að fara í útboð m.a. vegna mik-
illar reynslu af þeirri aðferð hér á
landi. Ennfremur er rökstudd sú
ákvörðun að fara opna útboðsleið. Í
athugasemdunum segir m.a.: „Við
útboð stendur valið á milli almenns
útboðs og lokaðs útboðs með forvali.
Til að útboð skili tilætluðum árangri
þarf að tryggja að samkeppni ríki
meðal bjóðenda og að þeir hafi
hvatningu til að skila inn sínu besta
tilboði. Óvissa ríkir um fjölda áhuga-
samra bjóðenda og vera kann að
þeir séu færri en fjöldi farsímaleyf-
anna og gæti slíkt haft veruleg áhrif
á gæði tilboða þar sem engin þörf
væri á að yfirbjóða aðra bjóðendur.
Þar af leiðandi er opið útboð æski-
legra en lokað útboð til að tryggja að
bjóðendur viti ekki hver af öðrum og
skapa þá samkeppni sem nauðsyn-
leg er til að tryggja hámarksárang-
ur útboðsins.“ Þá segir að í útboðs-
lýsingu verði settar fram nákvæmar
kröfur um hæfi bjóðenda. Ennfrem-
ur muni koma skýrt fram í útboðs-
gögnum hvaða forsendur liggi til
grundvallar við mat á tilboðum.
Opin uppboðsleið valin fyrir þriðju kynslóð farsíma
Gjald verður 190 millj-
ónir fyrir hverja tíðni
Kostnaður við
uppbyggingu kerf-
isins áætlaður
10–15 milljarðar
ferðir. Í 7. umferð bar það helst til
tíðinda að Jóhann Hjartarson vann
Bartlomiej Macieja og er í 4. til 9.
sæti með fimm og hálfan vinning,
en Shirov hafði betur gegn Sut-
ovsky. Stefán Kristjánsson er
næstefsti Íslendingurinn í 10. til
15. sæti með fimm vinninga. Ljóst
er að mikil barátta er um efstu
sætin en keppnin hefst kl. 17 í dag.
ALEXEI Shirov, Emil Sutovsky og
Michail Gurevich eru efstir í Eddu-
mótinu í atskák með sex vinninga
hver eftir sjö umferðir og síðan
koma sex skákmenn með fimm og
hálfan vinning hver, en tvær síð-
ustu umferðirnar verða tefldar í
Borgarleikhúsinu síðdegis.
Miklar sviptingar voru í skákinni
í gær en þá voru tefldar fjórar um-
Morgunblaðið/Ómar
Skákdrottningarnar Guðlaug Þorsteinsdóttir og Regina Pokorova frá
Slóvakíu eru á meðal keppenda á Eddumótinu í Borgarleikhúsinu.
Þrír skákmenn í efsta sæti