Morgunblaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 26
LISTIR 26 FIMMTUDAGUR 6. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLENDINGAR státa sig gjarn- an af því að vera bókaþjóð og sá arfur sem felst í Íslendingasögun- um er óneitanlega órjúfanlegur hluti menningar okkar og sögu. Vinsældir Brennu-Njálssögu eru enda óumdeilanlegar og sýna sig m.a. í því að ár eftir ár hafa Njálu- námskeið Endurmenntunar- stofnunar Háskóla Íslands verið þéttsetin. Handritin sjálf, sem Njála og aðrar Íslendingasögur byggjast á, sem og lagabækur á borð við Grágás, Jónsbók og kristi- leg handrit líkt og Stjórn hafa hins vegar ekki verið þjóðinni jafnað- gengileg. Geymd í læstum hvelf- ingum Árnastofnunar eru þau sýni- leg aðeins fáum fræðimönnum, enda sýningaraðstaða stofnunarinn- ar takmörkuð svo ekki sé meira sagt. Það er því ánægjulegt til þess að vita að íslensk handrit skuli koma við sögu á tveimur sýningum sem nú standa yfir í borginni. Þjóð- menningarhúsið hýsir sýninguna Handritin, sem líkt og heitið gefur til kynna, byggist á nokkrum merk- ustu handritum okkar og þætti þeirra í sögu þjóðarinnar, á meðan sýningin Lýsir í Listasafni Reykja- víkur – Hafnarhúsi beinir athygl- inni að myndlýsingum handrita – þætti sem lengi vel hefur að mestu verið vanræktur af íslenskum fræðimönnum. Þó sýningarnar tvær taki báðar á handritaarfinum eru þær þó engu að síður mjög ólíkar. Önnur ítarleg og mikið lagt upp úr sögulegu sam- hengi á meðan að hin er hrárri og nær eingöngu sjónræn. Þáttur í sögu þjóðar Það er textinn, handritin okkar, sem eru miðpunkturinn í Þjóðmenningarhúsinu. Sú sýning er vel úr garði gerð og ljóst að mikil vinna hefur verið lögð í uppsetningu hennar. Myndmál er til að mynda ríkulega notað til að gæða sýn- inguna lífi og handritin sett í sögu- legt samhengi sem staðsetur þau betur fyrir sýningargesti í bæði tíma og rúmi. Þannig er mikilvægi íslenskra skálda við hirð Noregs- konunga rifjað upp, húslestur á ís- lenskum heimilum og hvernig frá- sagnir lifðu margar hverjar aðeins í munnlegum mælum manna í milli – minnið skipti enda gífurlegu máli í Evrópu miðalda og myndmálið, sem gjarnan þjónaði þeim tilgangi að kalla fram sögur og trúarlotningu hjá þeim ólæsu, ekki síður. Sög- urnar sem ljósprent af myndum og steinristum í Þjóðmenningarhúsinu geyma hefðu þannig vaknað til lífs í huga þeirra sem þær sáu, þó að í dag hafi dæmið snúist við og við þurfum nú að styðjast við eddu- kvæðin til að merking myndefnisins glatist okkur ekki. Mikilvægi hins ritaða orðs var einfaldlega ekki jafnstór þáttur í daglegu lífi og nú og má nefna sem dæmi að ritlist var ekki enn orðin hluti af þjálfum lög- spekinga á Alþingi Íslendinga á 12. öld. Handritin sjálf eru hins vegar miðpunktur sýningarinnar og ekki er laust við að sýningargestir fyllist lotningu við að stíga inn í hálf- rökkvuð herbergi þar sem Stjórn, Konungsbók Eddukvæða og Flat- eyjarbók, svo nokkur handritanna séu nefnd, hvíla í rammgerðum ör- yggisbúrum. Sum eru stór og fag- urlega skreytt og sýna að ekkert hefur verið til sparað við gerð þeirra. Stjórn, sem geymir safn þýðinga úr gamla testamentinu, er eitt þessara og telst til fegurstu miðalda handrita í safni Árna Magnússonar. Önnur eru látlausari, minni, jafnvel mjög smágerð líkt og Margrétarsaga. Sum voru þá gerð af vanefnum og víða hafa hlutar textans glatast í tímans rás. Sú aðferð að tvinna saman sýn- ingu á handritunum sjálfum, þeim efniviði og aðferðum sem gerð þeirra byggir á, sögunni og stækk- uðum ljósprentum af myndlýsing- um úr íslenskum, sem erlendum handritum, er góð aðferð til að gæða sýninguna lífi. Hún er þá ekki síður til þess fallin að vekja fólk til meðvitundar um þá miklu vinnu og kostnað sem gerð þessara dýrgripa fól í sér og þær áhugaverðu mynd- lýsingar sem handritin okkar geyma. Að gæðum kunna flestar þeirra að fölna í samanburði við lýs- ingar sem finna má í handritasafni á borð við það sem British Museum á, en ekki hvað síst í ljósi hinnar stuttu myndlistarsögu okkar, eru lýsingarnar engu að síður mark- verður hluti sögu okkur sem á skilið að vera rannsakaður nánar. Kynjahvalir og ókindur Sú vinna sem sýningin Lýsir í Hafnarhúsinu byggist á er gerð gagnagrunns um myndlist í íslensk- um handritum. Tilgangurinn er að veita myndlistarfólki og fræðimönn- um aukinn aðgang að þessum lítt þekkta þætti íslenskrar listasögu og er vel að lagt hafi verið í slíka vinnu. Líkt og áður sagði er það hinn sjónræni hluti handritanna sem athyglinni er hér beint að og textinn alfarið látinn hverfa í skuggann. Stór hluti myndlýsinganna er verk Jóns bónda Bjarnasonar (1791–1861), sjálfmenntaðs manns sem lét sér fátt óviðkomandi. Líf- lega skreytt handrit Jóns taka þannig á öllu frá stéttum manna, manngerðum og kynþáttum til dýrategunda, ókinda og kynjahvala svo eitthvað sé nefnt. Myndir hans eru ekki hvað síst áhugaverðar út frá þjóðfræðilegu gildi sínu, en þau viðhorf sem þar koma fram end- urspegla í mörgu viðhorf og áhuga- mál annarra Evrópubúa. Þannig fellur ríkt ímyndunarafl Jóns við gerð fjarlægra kynþátta og dýra- tegunda vel að evrópskum ferða- sögum fyrri alda er hinar ævintýra- legustu skepnur og furðumenni voru talin byggja heilu álfurnar. Sú stéttarmynd er sýnir gyðinginn, eða júðann eins og Jón kallar hann, reyna að snúa á Dauðann með fé- greiðslum, fellur einnig að evrópsk- um fordómum þessa tíma. Myndlýs- ingar Jóns sækja enda vel flestar í evrópskar fyrirmyndir – keisari, páfi, hefðarmeyja og litskrúðugt fiðrildi eru aðeins nokkur dæmi. En auk þess bera stöður og stellingar myndefnisins víða með sér að frjótt ímyndunarafl listamannsins var ekki eina uppspretta hugmynda hans og færa fyrir vikið Ísland 19. aldar nær Evrópu í huga sýning- argesta. Það er þó auðvelt að týna sér í bráðskemmtilegum myndum Jóns sem sumar eru grófar að gerð, aðr- ar vandaðar og enn aðrar byggðar á augljósum fyrirmyndum. Sú leið að sýna myndirnar allar í margfaldri stækkun gerir sýningagestum enn fremur auðvelt um vik með að virða fyrir sér smæstu smáatriði lýsing- anna. Myndirnar verða enda enn aðgengilegri fyrir vikið og ná þær, ekki hvað síst fyrir magn mynda Jóns, að veita gestum innsýn inn í hugarheim bóndans. Þó að skortur á textaupplýsing- um komi lítið að sök er myndlýs- ingar Jóns eru skoðaðar, verður hann bagalegur í tengslum við önn- ur verk á sýningunni. Upphafsstafir úr handriti þurfa einfaldlega nánari skýringa við og myndlýsing af Mar- íu guðsmóður sem aðeins er merkt myndsíða í handriti, slítur verkið með öllu úr samhengi. Lágmarks- upplýsingaskylda felst í að veita handritaheiti og síðunúmer, sem hér er ekki gert, og efalítið hefðu ártöl og aðrar grunnupplýsingar einnig verið kærkomnar fyrir þorra sýningargesta. Sams konar skortur á upplýsing- um er einnig helsti galli Handrit- anna í Þjóðmenningarhúsinu og er erfitt að ímynda sér að jafnvönduð sýning hafi verið sett á laggirnar án sýningarskrár. Íslendingar kunna að kalla sig bókaþjóð, en það er engu að síður full ástæða til að fræða þá þjóð betur um handritin sem sú arfleifð hennar byggist á. Arfur þjóðar MYNDLIST Þjóðmenningarhús Sýningin er opin kl. 11–17 alla daga. Henni lýkur 2007. HANDRITIN Morgunblaðið/Sverrir Jóni bónda Bjarnasyni var fátt óviðkomandi, en alls konar ókindur eru meðal myndefna hans á sýningunni Lýsir í Hafnarhúsi. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús Sýningin er opin alla daga kl. 10–17. Henni lýkur 9. mars. LÝSIR – JÓN BÓNDI BJARNASON, MANNA- KYN OG MEIRI FRÆÐI Anna Sigríður Einarsdóttir Morgunblaðið/Sverrir Mörg merkustu handrita þjóðarinnar eru geymd á sýningunni Handritin í Þjóðmenningarhúsinu. „LJÚFI risinn í rökkrinu“, svo vitnað sé í gamla fyrirsögn, höfðar enn minnst allra meðlima fiðlufjöl- skyldunnar til tónskálda sem sóló- hljóðfæri, og verður sjálfsagt seint úr því bætt, enda ástæðurnar auð- skildar, ekki sízt hinar akústísku. Samt hefur einleiksverkum töluvert fjölgað í seinni tíð, einnig hér á landi eins og nýjast sást á tónleikum Há- varðs Tryggvasonar sl. mánudag. Þar hleraði undirr. reyndar í hléi að von væri á öðru eins fágæti og íslenzkum konsert fyrir tvo(!) kontrabassa og hljómsveit, svo enn má vera að vænkist hag- ur strympu. Akústískur eða „hljómbær“ vandi kontrabassans sem ein- leikshljóðfæris er skyld- ur vanda sellósins en meiri. Tónninn er of veikur og kæfist of auð- veldlega af öðrum hljóð- færum. Fyrri tíma tón- skáld mættu þeim vanda með því að fyrir- skrifa upphækkun strengja um hálf- eða heiltón til að knýja fram meiri birtu. Í raun nauðgun á eðli bassa- tónsins er ætti að vera óþörf í dag þar sem einfaldlega má rafmagna hljóðfærið upp. Svo hefur lengi tíðk- azt í djassbassaleik, það er regla frekar en undantekning í gítarkons- ertum, og vafalítið verður eins gert við óperusöngraddir framtíðar, enda hefði bel canto-söng- tæknin aldrei komið til hefðu hljóðnemar, magnarar og hátalarar verið fyrir hendi í óp- eruhúsum þegar á 18. öld. Því er svo miklu púðri eytt í þetta mál, að reynslan hefur sýnt hvað kontrabassinn er viðkvæmur í kammer- samleik – sérstaklega á móti píanói. Jafnvel mjúkhentur undirleik- ur Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur fyrir fullloknu komst ekki alltaf hjá því að taka of stóra sneið, og eiginlega fátt við því að segja í rómantísku verki eins og 2. sónötu Adolfs Miseks, trúlega með því viða- mesta sem frumsamið hefur verið fyrir kontrabassa og slaghörpu í dúr og moll. Nokkru betur tókst til um jafnvægið í undangengnu litlu „Sin- fóníunni“ undir fjórþættu kirkjusón- ötuformi sem eignuð var Pergolesi (1710–36) og upphaflega fyrir selló og fylgibassa (continuo); mun ein- faldari smíð þar sem kontrabassinn söng afar fallega í III. þætti með skýrt mótaðri ekkódýnamík beggja spilenda. Eftir hlé frumflutti Hávarður verk fyrir kontrabassa og rafhljóð eftir Úlfar Inga Haraldsson er nefndist „Secret Psalms“. Um var að ræða 131⁄2 mín. langt stykki sem bar svip- mót kyrrlátrar andlegrar íhugunar einstaklings á svífandi bakgrunn- steppi dimmradda hindurvitna og kosmískra klingihljóða með ógnvæn- legum undirtóni í ljósi aðsteðjandi heimsviðburða. Andrúmsrík helgi- stund án orða, og sem flest annað þetta kvöld leikið af öruggri natni. Hinn feneyski Domenico Dragon- etti (1763–1846) var Locatelli kontra- bassans og jukust mjög kröfur til sin- fóníuspilara um hans dag. Ein sagan segir að Beethoven hafi kallað hann til Vínar til að afsanna að bassarödd Eroicu væri óspilandi. Andante hans og Rondo fyrir kb. og píanó „sat“ ákaflega vel í flutningi þeirra félaga þó að hægrihandarlína píanósins í rondóinu væri fullsterk, og hinn litli tregasöngur Rossinis, „Une larme pour basse“, sömuleiðis. Hið nýlega meistarahljóðfæri Hávarðs (1993) kvað við þýtt og fagurlega, enda þótt ekkert bæri á hljómmiklum „bjórt- unnu“-ómi þeim sem einkennir mörg forn hljóðfæri – hvort sem það nú er kostur frekar en galli. Loks voru fjögur tilbrigði eftir Paganini um stef úr óperunni Móses efir Rossini (frums. f. fiðlu og píanó), yndislegt lítið verk og á köflum gáskafullt, þar sem lágtíðnivirtúósinn flíkaði listavel m.a. ljósvakatærum gerviflaututón- um, einu bezt varðveitta leyndarmáli kontrabassans. Var öllu dável tekið og voru hlustendur leystir út með aukalögunum Svaninum og Fílnum úr Kjötkveðjuhátíð dýranna eftir Saint-Saëns. Leyndarmál kontrabassans Úlfar Ingi Haraldsson TÓNLIST Salurinn Verk eftir Pergolesi, Misek, Rossini, Dragonetti, Paganini. Secret Psalms (frumfl.) eftir Úlfar Inga Haraldsson. Há- varður Tryggvason kontrabassi, Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanó. Mánudaginn 3. marz kl. 20. TÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.