Morgunblaðið - 06.03.2003, Side 48
ÍÞRÓTTIR
48 FIMMTUDAGUR 6. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SIR Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Manchester Unit-
ed, hefur nú hafið taugastríð
utan vallar, til að freista þess
að slá leikmenn Arsenal út af
laginu á lokasprettinum um
meistaratitil Englands – segir
þá of örugga með sig og séu
með yfirlýsingar í blöðum.
Ferguson, sem hefur oft reynt
að slá andstæðinginn út af lag-
inu með yfirlýsingum í fjöl-
miðlum, segir að leikmenn
sem eru of sigurvissir fá það
oftast í bakið. „Við fylgjum
þeim fast á eftir og erum til-
búnir að refsa þeim.“
Thierry Henry, miðherji
Arsenal, segir að leikmenn
liðsins láti Ferguson ekki slá
sig út af laginu. „Það var
geysilega skemmtilegt að
fagna sigrum síðastliðið
keppnistímabil og við ætlum
okkur að skemmta okkur á ný
í ár.“
Terry Venables, knatt-
spyrnustjóri Leeds, hefur ekki
trú á að Manchester United
geti stöðvað Arsenal. „Arsen-
al-liðið er það sterkt að ég sé
ekki að leikmenn liðsins láti
forskot sitt af hendi á loka-
sprettinum,“ sagði Venables,
sem segir að Manchester Unit-
ed leggji örugglega meiri
áherslu á Meistaradeild Evr-
ópu, þar sem möguleikar liðs-
ins á bikar eru mestir.
Ferguson
hefur
taugastríð
DAVID Bernstein sagði í gær upp
sem stjórnarformaður enska knatt-
spyrnufélagsins Manchester City.
Uppsögnin kemur í kjölfar þess að
Chris Bird, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, sagði upp í síðustu viku.
FRANSKI miðvallarleikmaðurinn
Johan Micoud, sem leikur með Werd-
er Bremen í Þýskalandi, hefur beðist
afsökunar á því að hafa löðrungað
blaðamann Bild. Micoud segist hafa
misskilið tilburði blaðamannsins og
tekið þeim sem móðgun.
DAVID Stern, aðalmaðurinn í
NBA-deildinni bandarísku, hefur
staðfest að bandaríska liðið sem
keppir á Ólympíuleikunum í Aþenu
næsta ár muni búa í ólympíuþorpinu.
Þetta þykja nokkur tíðindi því alveg
frá leiknum í Barcelona 1992 hefur
bandaríska körfuboltalandsliðið búið
á lúxushótelum utan ólympíuþorp-
anna.
KÍNVERSKI knattspyrnumaður-
inn Qu Bo gengur að öllu óbreyttu til
liðs við enska úrvalsdeildarfélagið
Tottenham Hotspur í sumar. Qu Bo,
sem er talinn einn besti sóknarmaður
í Asíu, er aðeins 21 árs gamall en hef-
ur spilað 19 landsleiki fyrir Kína og
lék alla leiki liðsins í lokakeppni HM
síðasta sumar.
QU Bo á eftir að gangast undir
læknisrannsókn, og þá er ekki búið að
fá endanlega á hreint hvort hann fær
atvinnuleyfi í Englandi. Glenn
Hoddle, knattspyrnustjóri Totten-
ham, vildi fá hann síðasta sumar en þá
uppfyllti Kínverjinn ekki skilyrði fyr-
ir atvinnuleyfi. Nú er talið að það
gangi eftir.
CLAUDIO Ranieri, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, gaf til kynna að hann
hefði áhuga á að þjálfa enska lands-
liðið síðar meir í viðtali við tímaritið
Chelsea Village Magazine í gær.
Ranieri, sem á fjögur ár eftir af samn-
ingi sínum við Chelsea, sagði að gott
landslið væri efst á sínum óskalista
eftir að starfinu hjá Chelsea lyki.
RANIERI kvaðst ekki lengur líta á
sig sem Ítala, heldur sem Evrópubúa,
og sig langaði til að stjórna góðu
landsliði, ekki endilega því ítalska.
„Því ekki það,“ svaraði hann spurn-
ingunni um hvort það enska kæmi til
greina en sagði jafnframt að það væru
margir góðir kandídatar í þá stöðu í
Englandi.
LIVERPOOL hefur orðið fyrir mik-
illi blóðtöku. Varnarmaðurinn sterki
Stephane Henchoz verður frá keppni
í fjórar til sex vikur vegna meiðsla á
kálfa og þá er ljóst að sóknarleikmað-
urinn Emile Heskey verður úr leik í
tvær til þrjár vikur vegna meiðsla.
ROY Keane, 31 árs, fyrirliði Man-
chester United, segist vilja verða
knattspyrnustjóri liðsins eftir að
hann leggur skóna á hilluna. Hann
segist hafa góða reynslu, þar sem
hann hafi leikið undir stjórn tveggja
frábærra knattspyrnustjóra – Brians
Clough og Alex Ferguson.
FÓLK
STOKE City komst upp úr fall-
sætinu í ensku 1. deildinni í knatt-
spyrnu með 1:0-sigri á Brighton í
gærkvöld. 21.000 áhorfendur á
Britannia, heimavelli Stokes, sáu
Chris Greenacre skora sigurmarkið
sjö mínútum fyrir leikslok við mik-
inn fögnuð stuðningsmanna Stokes.
Íslendingaliðið er í fjórða neðsta
sæti deildarinnar með 31 stig,
tveimur meira en Brighton, Shef-
field Wednesday og Grimsby.
Brynjar Björn Gunnarsson og
Bjarni Guðjónsson léku báðir allan
leikinn fyrir Stoke en Pétur Hafliði
Marteinsson var ekki í leik-
mannahópnum. Brynjar var nálægt
því að skora en viðstöðulaust skot
hans af um 25 metra færi sleikti
markslána.
Ívar Ingimarsson lék allan leik-
inn fyrir Brighton sem tapað hefur
tveimur leikjum í röð og er komið í
fallsæti.
Ipswich og Wolves skildu jöfn,
1:1. Hermann Hreiðarsson tók út
fjórða og síðasta leik sinn í banni í
liði Ipswich sem er í áttunda sæti
með 48 stig en Wolves er tveimur
sætum ofar með 56 stig.
Stoke er komið
upp úr fallsæti
Franski bakvörðurinn Mikael Silv-estre var hetja United-manna en
hann stökk fram í sóknina og skallaði
knöttinn á 79. mínútu í netið eftir
aukaspyrnu Davids Beckhams.
Heimamenn voru sterkari í fyrri hálf-
leik en náðu þó ekki að skapa sér um-
talsverð færi. Eitt mark leit þó dags-
ins ljós sem Lucas Radebe skoraði í
eigið mark á 20. mínútu eftir fyrirgjöf
Beckhams. Leedsarar, sem mættu á
Old Trafford með vængbrotið lið
enda nokkrir lykilmenn frá vegna
meiðsla, jöfnuðu metin verðskuldað
um miðjan síðari hálfleik þegar Ástr-
alinn Mark Viduka skallaði í netið.
Eftir markið sótti United stíft og
sókn þeirra bar loks árangur þegar
Silvestre skoraði við mikinn fögnuð á
Old Trafford, hans þriðja mark í 180
leikjum fyrir félagið.
Juan Sebastian Veron haltraði
meiddur af velli í sínum 50. leik fyrir
United og Roy Keane, fyrirliði, lék
nánast á annarri löppinni síðustu
mínúturnar þar sem United hafði
notað alla sína varamenn. Keane
tognaði og er talið að hann verði frá í
allt að þrjár vikur. „Við þurftum svo
sannarlega að hafa fyrir því að knýja
fram sigurinn en ég verð að hrósa liði
Leeds fyrir góða baráttu. Ég ætlaði
að taka Silvestre útaf rétt áður en
hann skoraði. Hann var búinn að mis-
nota þrjú góð skallafæri en sem betur
fer nýtti hann það fjórða. Nú fáum við
tíu daga frí sem er kærkomið fyrir
leikmenn mína,“ sagði Alex Fergu-
son, stjóri United.
Kamerúninn Geremi gerði meist-
aravonir Newcastle líklega að engu
þegar hann skoraði eina mark leiks-
ins í sigri Middlesbrough. Geremi
skoraði með skalla á 62. mínútu og
það reyndist sigurmark leiksins.
Minnstu munaði að Oliver Bernand
tækist að jafna metin undir lokin en
skot hans fór rétt framhjá marki
Boro og þar með var fyrsti ósigur
Newcastle í tíu leikjum staðreynd og
um leið fyrsti sigur Middlesbrough á
Newcastle á Riverside.
„Ég er eðlilega vonsvikinn. Við
töpuðum dýrmætum stigum en að
sama skapi fékk Middlesbrough kær-
komin stig sem það þurfti á að halda.
Leikurinn var góður en líklega skipti
það sköpum að Boro varðist betur en
við,“ sagði sir Bobby Robson, knatt-
spyrnustjóri Newcastle, en í fyrsta
sinn í 23 leikjum tókst hans þefvísu
markahrókum ekki að finna net-
möskvana hjá andstæðingunum.
Reuters
David Beckham átti heiðurinn að báðum mörkum Manchester
United og hér fagnar hann sigurmarki Mikaels Silvestre.
Silvestre varð
United til bjargar
MANCHESTER United heldur enn í vonina um að endurheimta
enska meistaratitilinn í knattspyrnu eftir 2:1 sigur á Leeds á Old
Trafford í gær. United minnkaði þar með mun Arsenal niður í fimm
stig en Newcastle er líklega úr leik þar sem liðið varð að láta í minni
pokann fyrir Middlesbrough á Riverside, 1:0.
EIÐUR Smári Guðjohnsen,
leikmaður Chelsea og íslenska
landsliðsins í knattspyrnu, og
fleiri aðrir kunnir leikmenn
með liðum á Englandi og utan
þess, sem voru valdir til að
leika með heimsliðinu gegn
úrvalsliði Afríku í fyrrakvöld,
fengu ekki leyfi til að taka
þátt í leiknum þegar á reyndi.
Þekktustu leikmenn liðsins
voru Hakan Sükür, Jay-Jay
Okocha og Nicolas Anelka.
14.296 áhorfendur mættu á
Reebok-völlinn í Bolton og sáu
Afríkuúrvalið fagna sigri, 7:4.
Nígeríumaðurinn Kanu hjá
Arsenal, sem stóð fyrir leikn-
um, sem var til styrktar hjart-
veikum börnum í Afríku, skor-
aði tvö mörk fyrir Afríkuliðið.
Hin mörkin skoruðu Shaun
Bartlett (3) Ali Benarbia og
Ikpe Ekong. Fyrir heimsliðið
skoruðu Nicolas Anelka, Hak-
an Suker, Jason Roberts og
Akin Bulent.
Eiður
Smári var
ekki með
Víkingur meistari í 9. sinn í röð
Víkingur tryggði sér í gærkvöldi Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild
karla í borðtennis níunda árið í röð þegar liðið bar sigurorð af KR í
lokaumferðinni, 6:3. Víkingar höfðu mikla yfirburði í deildinni og
fengu fullt hús stiga, eða 20 talsins, en B-lið félagsins varð í öðru sæti
með 16 stig. Lið Íslandsmeistaranna skipuðu þeir Markús Árnason,
Bjarni Bjarnason, Sigurður Jónsson og Kristján Kristjánsson.