Morgunblaðið - 05.04.2003, Page 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 17
MISJAFNT er hvort stærstu vörslu-
aðilar séreignarlífeyrissparnaðar
borgi þann kostnað sem til fellur þeg-
ar einstaklingar færa sparnað sinn til
þeirra. Búnaðarbankinn hefur að
undanförnu auglýst í Morgunblaðinu
að þeir sem eigi séreignarlífeyris-
sparnað hjá öðrum vörsluaðila hafi nú
tækifæri til að færa sparnaðinn til
bankans. Hann taki á sig kostnað við
flutninginn sem viðskiptavinir þyrftu
annars að greiða.
Hafliði Kristjánsson, forstöðumað-
ur sölu- og markaðssviðs Kaupþings,
segir að fyrirtækið greiði þennan
kostnað fyrir viðskiptavini.
Gísli Jafetsson, framkvæmdastjóri
markaðssviðs sparisjóðanna, segir þá
ekki greiða viðskiptavinum fyrir að
færa viðskipti sín til þeirra. „Við lát-
um meta okkur út frá góðri þjónustu,
sem hefur til dæmis komið vel fram í
ánægjuvoginni. Við höfum frá upp-
hafi greitt hæstu vextina á verð-
tryggðum reikningum, miðað við
sambærilega lífeyrisreikninga í
bankakerfinu. Þannig höfum við í
raun greitt viðskiptavinunum fyrir.“
Ólafía Harðardóttir, sjóðsstjóri hjá
Landsbanka, segir að bankinn taki
ekki á sig kostnað við flutning við-
skiptavina til bankans. „Hins vegar
tekur Landsbankinn ekki kostnað ef
viðkomandi er í Vörðunni eða gengur
í Vörðuna með sín heildarfjármál,“
segir hún, en Varðan er heildarfjár-
málaþjónusta fyrir einstaklinga.
Kristjana Sigurðardóttir, sjóðs-
stjóri hjá Íslandsbanka, segir bank-
ann greiða þann kostnað sem til falli
þegar viðskiptavinur færi séreignar-
sparnað sinn til sjóðs í bankanum.
Sumir greiða kostnað
vegna flutnings lífeyris
TALSVERÐAR breytingar hafa
orðið á eignarhaldi stærstu hluthafa
í Eimskipafélagi Íslands að undan-
förnu.
Fjárfestingarfélagið Straumur
hefur aukið hlut sinn í félaginu úr
5,86% hinn 11. febrúar í 9,07% hinn
1. apríl sl.
Skeljungur hefur aukið hlut sinn á
sama tímabili úr 5,75% í 7,75% og
Kaupþing er nú meðal 10 stærstu,
með 3,01%.
Lífeyrissjóður verslunarmanna
hefur selt af sínum hlut en hinn 11.
febrúar átti sjóðurinn 4,03%. Lífeyr-
issjóðir Bankastræti 7 hafa einnig
minnkað hlut sinn í Eimskip á tíma-
bilinu, úr 3,16% í 1,48%.
!"#
$%&"'&()
&
1(2 $$
- 1
3 1
1
4"1
5 61
! 2. 728 1
/
9 :4"
;1
6122
/ /3 <
=
6
/
-11
(
)
+
&
*
'
#
($
((
(
(
()
(+
"%
#"!%
!"!%
"! %
" %
"!%
"%
"#%
"%
"!%
"#%
"$%
" %
"%
"%
"$%
"%
Straumur
með 9,07%
í Eimskip
Moody’s um sameiningu
BÍ og Kaupþings
Óbreytt
lánshæfis-
mat Bún-
aðarbanka
RÁÐGJAFARFYRIRTÆKIÐ
Moody’s í London segir að lánshæf-
ismat sitt á Búnaðarbankanum
haldist óbreytt um sinn á meðan
sameiningarviðræður bankans við
Kaupþing banka eru svo skammt á
veg komnar. Telur Moody’s of
snemmt að segja til um hvort láns-
hæfismat Búnaðarbankans breyt-
ist. Í fréttatilkynningu sem fyrir-
tækið birti í gær segir að líklegt sé
að matið sjálft breytist ekki þó
bankinn verði sameinaður Kaup-
þingi banka en líklegt sé að fram-
tíðarhorfur Búnaðarbankans verði
metnar sem „stöðugar“ en ekki „já-
kvæðar“ eins og nú er. Frá þessu
segir í frétt Reuters.
Þar segir að hugsanleg breyting
á mati á framtíðarhorfum Búnaðar-
bankans endurspegli þá óvissu sem
fylgi því að sameina tvo banka með
ólíka starfsemi. Búnaðarbankinn sé
fyrst og fremst viðskiptabanki en
Kaupþing banki hins vegar fjárfest-
ingarbanki með megnið af starf-
semi sinni erlendis.
Moody’s telur að bankarnir tveir
geti virkað vel saman en segir tölu-
verða áhættu þó fylgja sameiningu
svo ólíkra banka. Í Morgunpunkt-
um Kaupþings í gær er vitnað í til-
kynningu Moody’s en þar segir að
verði af sameiningu bankanna
tveggja muni „nýtt lánshæfismat
bankanna fyrst og fremst taka mið
af því hvernig stjórnendum tekst að
halda á spöðunum í sameiningar-
ferlinu; að ná fram hagræðingu og
tekjuaukningu jafnframt því að
stýra aukinni áhættu sem hugsan-
lega gæti fylgt rekstri Kaupþings
banka.“
Fermingarskartgripir
Skarthúsið, s. 562 2466, Laugavegi 12
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050