Morgunblaðið - 05.04.2003, Page 22
22 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
STRÍÐ Í ÍRAK
„Ráðist á þá með afli trúarinnar hvenær sem þeir koma nálægt“
SADDAM HUSSEIN Í SJÓNVARPSÁVARPI TIL BAGDADBÚA
ÍRASKIR hermenn sem hafa gerzt
liðhlaupar og eru nú stríðsfangar
bandamanna hafa lýst gerræðis-
aftökum og alvarlegu ofbeldi af hálfu
yfirmanna sinna í Íraksher. Greindu
talsmenn mannréttindasamtakanna
Human Rights Watch frá þessu í
gær.
Samtökin birtu í gær búta úr við-
tölum við 26 íraska hermenn, sem
sögðust hafa kosið að gerast lið-
hlaupar þegar herdeildir þeirra hörf-
uðu frá stöðvum sínum á mörkum
sjálfstórnarsvæðis Kúrda í Norður-
Írak.
Samtökin gizkuðu á að minnst 130
íraskir liðhlaupar væru nú í haldi
Kúrda í Abril-héraði.
Einn liðhlaupanna sagði frá því að
hann hefði orðið vitni að gerræðisaf-
tökum á 10 meintum liðhlaupum.
Aðrir sögðust vita að aftökusveitir
hefðu verið myndaðar, þótt þeir
hefðu sjálfir ekki orðið vitni að slík-
um aftökum.
„Stundum vorum við svo svangir
að við átum gras sem við blönduðum
við dreitil af vatni,“ sagði 21 árs gam-
all hermaður frá Bagdad, hvers her-
flokkur hafði verið hluti af fimmtu
herdeild íraska landhersins.
„Við þvoðum okkur ekki í fjörutíu
daga. Það var oft ekkert drykkjar-
vatn að hafa og þeir (yfirmennirnir)
létu okkur fá koppa og sögðu okkur
að sækja okkur vatn með því að
safna regnvatni úr drullupollunum,“
sagði hann.
Fólskulegar refsingar
Allir liðhlauparnir sem fulltrúar
Human Rights Watch töluðu við
voru á aldursbilinu frá tvítugu til 38
ára. Þeir áætluðu að mánaðarlaun
sín sem hermenn hefðu verið um það
bil tveir Bandaríkjadalir á mánuði,
en sumir sögðust reyndar ekki hafa
fengið nein laun svo mánuðum skipti.
Í vitnisburði þeirra er líka að finna
frásagnir af fólskulegum refsingum,
þar á meðal barsmíðum og að vera
þvingaðir til að skríða langar leiðir á
grjóti, á berum hnjám eða á bakinu.
Þeim var ítrekað hótað aftöku ef þeir
skyldu voga sér að reyna að flýja af
hólmi.
Liðhlaup-
ar lýsa
grimmd
yfirmanna
New York. AFP.
ÍRASKA ríkissjónvarpið sýndi í gær
myndir af Saddam Hussein, forseta
landsins, þar sem óbreyttir borgarar
fögnuðu honum á götu úti. Bendir
það og ávarp hans, sem sjónvarpið
sendi út í gær, til þess, að hann sé á
lífi.
Á sjónvarpsmyndunum var Sadd-
am í grænum einkennisbúningi inn-
an um fagnandi fólk á aðaltorginu í
al-Mansour-íbúðarhverfinu og virt-
ust aðeins fáir lífverðir gæta hans.
Brosti hann breitt og leyfði fólki að
kyssa á hönd sér um leið og það
hrópaði, að það ætlaði að fórna blóði
sínu og sálu fyrir hann.
Bendir þetta til að Saddam sé á lífi
og einnig ávarpið, sem sent var út í
gær, en í því hvetur hann írösku
þjóðina til að berjast af alefli gegn
bandarískum hersveitum í grennd
við Bagdad. Bandarískur embættis-
maður sagði að ávarpið benti til þess
að Saddam hefði lifað af fyrstu loft-
árásina á borgina 20. mars því að
hann virtist skírskota til atburðar
sem varð eftir að stríðið hófst.
Í ávarpinu talaði Saddam um að
„hugrakkur íraskur bóndi“ hefði
skotið niður bandaríska Apache-
árásarþyrlu „með gömlu vopni“ og
heimildarmaður fréttastofunnar
AFP í Washington sagði að svo virt-
ist sem hann skírskotaði til atburðar
sem varð 24. mars.
Í ræðunni sagði Saddam Hussein
að innrásarliðið væri að nálgast
borgarmúra Bagdad. „Ráðist á þá
með afli trúarinnar hvenær sem þeir
koma nálægt ykkur og veitið mót-
spyrnu, hugrökku Bagdad-búar.
Með Guðs hjálp munið þið sigra og
þeir bíða ósigur.“
Áður en ávarpinu var sjónvarpað
höfðu bandarískir embættismenn
látið í ljósi efasemdir um að Saddam
hefði lifað af fyrstu loftárásina í
stríðinu, en hún var gerð á byggingu
í Bagdad þar sem talið var að íraski
leiðtoginn, tveir synir hans og fleiri
nánir samstarfsmenn hans hefðu
verið í fyrir rúmum hálfum mánuði.
Embættismennirnir höfðu leitt
getum að því að allar sjónvarps-
myndirnar af Saddam, sem sýndar
höfðu verið þar til í gær, hefðu verið
teknar upp á myndband áður en
stríðið hófst.
Eftir að ávarpið og myndirnar af
gönguferðinni voru sýndar sagði Ari
Fleischer, talsmaður George Bush
Bandaríkjaforseta, að ekki skipti
máli hvort þær væru ekta. „Í heild-
armyndinni skiptir það í rauninni
ekki máli því að hvort sem þetta er
hann eða ekki eru dagar stjórnarinn-
ar taldir,“ sagði Fleischer.
Roger Hardy, sérfræðingur
breska ríkisútvarpsins, BBC, um
Mið-Austurlönd, sagði að tilgangur-
inn með ávarpi Saddams hefði verið
að sýna heiminum að hann væri enn
á lífi og enn við stjórnvölinn og fá
íbúa Bagdad til að snúa bökum sam-
an vegna átakanna, sem væru í
vændum.
Saddam sagður við góða heilsu
Utanríkisráðherra Íraks, Naji
Sabri, sagði í gær í viðtali við BBC að
Saddam Hussein væri við góða
heilsu og stjórnaði enn landinu. Ráð-
herrann neitaði hins vegar að svara
því hvort hann hefði séð forsetann
nýlega. „Þú átt ekkert með að spyrja
þessara spurninga,“ sagði hann.
Þótt bandarískir embættismenn
hafi lýst vissum efasemdum um að
hinn rétti Saddam hafi verið á ferð á
myndunum frá Bagdad töldu aðrir
sem vel til þekkja að þetta hafi verið
forsetinn sjálfur en ekki tvífari.
Þannig tjáðu Írakar, sem horfðu á
útsendinguna ásamt fréttaritara
BBC í Bagdad, honum að þeir væru
sannfærðir um að þeir hefðu verið að
horfa á Saddam Hussein sjálfan.
Ekki er ljóst hversu margir Írakar
áttu þess kost að sjá útsendinguna,
en sjónvarpssendingar íraska sjón-
varpsins hafa ekki verið stöðugar.
Saddam sýndur innan
um óbreytta borgara
Flest bendir til að
hann hafi lifað af
árásina 20. mars
AP
Maður sem virðist vera Saddam Hussein Íraksforseti gengur meðal mannfjölda úti á götu í Bagdad, í upptöku sem
íraska sjónvarpið sendi út í gær. Ávarpi Saddams var einnig sjónvarpað í gær.
!
"
#$
!
! &
'()**
+, .
/
#
&
#
0
% 1 2/"31 +2/4
56142/%2
" 74 8 9 212 % 2 #:;<80
0 = 1 # + 2 / 4
2 4
>? / @
'
"
#
"A 2" " #$
21
BC D 2 -#
# DOMINIQUE de Villepin, utanrík-
isráðherra Frakklands, kallaði í gær
eftir því að sáttum yrði komið á í al-
þjóðasamfélaginu, sem hefur verið
klofið vegna Íraksstríðsins, og ítrek-
aði mikilvægi þess að Sameinuðu
þjóðirnar lékju stórt hlutverk við
enduruppbyggingu Íraks að stríði
loknu.
„Stríðið í Írak er harmleikur, en
ég tel að allt hafi verið gert til að af-
stýra því,“ sagði de Villepin, en
franska stjórnin hefur, ásamt þeirri
þýzku og rússnesku, verið í farar-
broddi í andstöðu við hernað Banda-
ríkjamanna og Breta í Írak.
Villepin lét þessi orð falla eftir við-
ræður í Róm við hinn ítalska starfs-
bróður sinn Franco Frattini, en fyrr
um daginn hittust þeir de Villepin og
starfsbræður hans frá Rússlandi og
Þýzkalandi, Ígor Ívanov og Joschka
Fischer, í París.
Utanríkisráðherrarnir þrír lýstu
m.a. áhyggjum sínum af þeirri um-
ræðu sem nú ætti sér stað á Banda-
ríkjaþingi, þar sem lagt er til að fyr-
irtæki frá Frakklandi, Þýzkalandi og
Rússlandi verði útilokuð frá því að
taka þátt í útboðum í verkefni við
enduruppbyggingu Íraks, sem
bandarísku skattfé yrði varið til.
Villepin kallar
eftir sáttum
París, Róm. AFP.
AP
Dominique de Villepin, í miðju,
ásamt þeim Joschka Fischer (t.v.)
og Ígor Ívanov í París í gær.