Morgunblaðið - 05.04.2003, Síða 34
VÍKINGASÝNINGIN er
ein umfangsmesta sýn-
ing Smithsonian-
stofnunarinnar og
stærsta sýningin í Vís-
indasafni Minnesota til
þessa,en hún hefur sleg-
ið öll aðsóknarmet. Um
farandsýningu er að
ræða og var hún fyrst
sett upp í Náttúru-
minjasafni Smithsonian í
Washington í apríl árið
2000, en hefur síðan verið í
New York, Denver, Houst-
on og Los Angeles í Bandaríkj-
unum, Hull/Ottawa í Kanada, og
loks í Minneapolis/Saint Paul í
Bandaríkjunum þar sem hún verð-
ur til 18. maí.
Góð kynning á íslenskri sögu
Sýningin var sett upp í tilefni
1.000 ára afmælis landafunda nor-
rænna manna í Ameríku og voru
þjóðhöfðingjar Norðurlanda við-
staddir opnunina í Washington en
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, flutti setningarávarp
hennar í Vísindasafninu í
Minnesota.
William Fitzhugh og Elisabeth
Ward, sem er af íslenskum ættum í
móðurætt, ritstýrðu bók um sýn-
inguna og sáu um undirbúning
sýningarinnar, en meira en 300
munir eru þar til sýnis. Samráð og
samvinna var höfð við norrænu
ráðherranefndina og sérfræðinga
ýmissa safna, meðal annars þjóð-
minjasafna á Norðurlöndum,
Grænlandi, í Skotlandi og Kanada.
Þjóðminjasafn Íslands og Stofnun
Árna Magnússonar eiga merka
muni og handrit á sýningunni og
Íslendingar hafa komið að henni
með margvíslegum hætti, en á for-
síðu sýningarbókarinnar er mynd
af víkingaskipinu Íslendingi. Bók-
in er ríflega 400 litprentaðar síður
í sex köflum og samanstendur af
31 grein eftir fjölmarga fræði-
menn, þar á meðal eftir Harald
Ólafsson, Orra Vésteinsson, Helga
Þorláksson og Gísla Sigurðsson,
sem á þrjár greinar, en Hilary
Clinton ritar formála.
Sýningin er óneitanlega glæsi-
leg og vekur athygli á Norð-
urlöndunum og tengslum þeirra
við Vesturheim í sambandi við
ferðir víkinganna vestur, en hlut-
ur Íslands er áberandi og fer ekki
framhjá neinum. Það er til dæmis
lögð áhersla á að víkingar sigldu
frá Íslandi og Grænlandi til Norð-
ur-Ameríku fyrir um 1.000 árum,
löngu áður en Kólumbus var þar á
ferðinni, og því komið til skila að
víkingar voru ekki bara herskáir
menn heldur venjulegir menn,
bændur, listamenn og ævin-
týragjarnir sæfarar. Íslend-
ingasögurnar gegna hér mik-
ilvægu hlutverki og
„víkingaþorpið“ opnar augu gesta
fyrir lífi fólksins fyrr á öldum auk
þess sem „víkingaskipið“ er
greinilega vinsælt hjá yngstu kyn-
slóðinni.
Sýningin mikilvæg
Lilja Árnadóttir á Þjóðminja-
safni Íslands var með í vinnuhóp
sýningarinnar í rúm tvö ár áður en
hún var fyrst sett upp og hefur
komið að uppsetningunni á nokkr-
um stöðum. „Það sem er sérstakt
við þessa sýningu er að það eru
Ameríkumenn sem búa hana til og
hafa með sér ráðgjafahóp,“ segir
hún og bætir við að mikil vinna
hafi verið fólgin í því að koma öllu
heim og saman.
Um 1.200 sjálfboðaliðar starfa í
Vísindasafninu Science Museum of
Minnesota, þar á meðal liðlega 30
leiðsögumenn. Einn þeirra er Bob
Peterson, sem er af sænskum ætt-
um, og hann segir að Víkingasýn-
ingin hafi slegið í gegn. „Flestir
skoða sýninguna á rúmum klukku-
tíma en nýlega var hér maður af
íslenskum ættum, Bill Watson frá
Plymouth, og eftir um fimm tíma
sagðist hann því miður verða að
fara en hann kæmi aftur, því hann
ætti eftir að skoða mikið. Þessi
maður sagðist oft hafa farið til Ís-
lands en hingað ætti hann mik-
ilvægt erindi. Hann er einn fjöl-
margra gesta sem koma aftur og
aftur.“
Ekki liggja fyrir opinberar tölur
um fjölda gesta frá því sýningin
var opnuð fyrir þremur árum, en
talið er að um sex milljónir manna
hafi þegar séð hana. Bob Peterson
segir að hann hafi tekið á móti
mörgum hópum skólakrakka og
það sé gaman að fara með börnum
og unglingum í gegnum sýn-
inguna, því ungmennin séu
óhrædd við að spyrja. „Sýningin er
hluti af skólastarfinu, allt frá
barnaskóla upp í háskóla, og áhug-
inn leynir sér ekki. Hérna eru gíf-
urlega miklar upplýsingar en ég
reyni að bæta við með öðrum fróð-
leik, sem ég hef viðað að mér.“
Ferð til Íslands
Það fer vel á því að hafa Vík-
ingasýninguna í Minnesota því þar
eru rætur Norðurlanda sterkar. Í
því sambandi má nefna að meira
en 300 fyrirtæki í Minnesota eru
með orðið Viking í nafninu og þar
er þekktast fótboltaliðið Minne-
sota Vikings í Minneapolis. Frá
þessu er greint á sýningunni og
hún þannig tengd við heimamenn
og sérstaklega víkinga heima-
manna.
Það er ekki nóg með að sýningin
veki mikla athygli á Íslandi heldur
er boðið upp á sérstaka ferð til
sögueyjunnar að sýningunni lok-
inni eða 29. maí til 9. júní til að
kynnast m.a. Njáluslóðum og öðr-
um fornum söguslóðum í fylgd sér-
fræðinga. „Þetta er mjög spenn-
andi,“ segir Bob Peterson. „Ég fór
á 18 tíma námskeið um sýninguna
áður en hún var opnuð og hef lært
mikið af því að skoða gripina og
lesa um þá. Ég læri alltaf eitthvað
nýtt á hverjum degi, en á margt
ólært.“
Sýningin „Víkingar: Saga Norður-Atlantshafsins“ í Vísindasafninu í Minnesota til 18. maí
Gestir koma
aftur og aftur
Víkingasýning Smithsonian-stofnunar-
innar í Washington hefur verið sett upp
á sjö stöðum í Bandaríkjunum og Kan-
ada undanfarin þrjú ár og hefur vakið
mikla athygli en um sex milljónir manna
hafa séð hana. Steinþór Guðbjartsson
skoðaði sýninguna á síðasta viðkomu-
staðnum, Vísindasafninu í Saint Paul í
Minnesota, en hún verður þar fram í
miðjan maí og verður þá tekin niður. Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Bob Peterson sjálfboðaliði segir að Víkingasýning Smithsonian-stofnunarinnar hafi slegið í gegn.
Morgunblaðið/Steinþór
Ljósmynd/Vísindasafnið í Minnesota
steg@mbl.is
ÚR VESTURHEIMI
34 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VÍKINGASÝNINGIN í Vísinda-
safninu í St. Pauls í Minnesota hef-
ur vart farið framhjá neinum í „tví-
buraborginni“ og hafa heimamenn
bryddað upp á ýmsum menningar-
viðburðum til að vekja enn meiri at-
hygli á henni.
Með febrúarblaði tímaritsins
Minneapolis St. Paul fylgir til dæm-
is 24 síðna innskotsblað um Norð-
urlöndin, Nordic Life, sem aðalræð-
ismenn Danmerkur, Finnlands,
Íslands, Noregs og Svíþjóðar í Min-
neapolis höfðu umsjón með. Þeir
rita sameiginlegan inngang og síð-
an eru greinar um norræn málefni
en á forsíðu fimm myndir, ein frá
hverri þjóð, þar sem mynd frá Bláa
lóninu er mest áberandi.„Ég er
ánægðastur með að hafa fengið
þessa mynd frá Bláa lóninu á for-
síðu,“ segir Örn Arnar, aðalræðis-
maður Íslands í Minneapolis, og
bætir við að blaðið sé ekki aðeins
hugsað til að kynna Víkingasýn-
inguna heldur líka til að vekja at-
hygli á Norðurlöndunum en Norð-
urlandaráð hafi styrkt útgáfuna.
Eiginkona Arnar, Margrét K.
Arnar eða Maddý eins og hún er
kölluð, segir að útbreiðsla blaðsins
sé mjög mikil. „Hérna eru gefin út
tvö borgarblöð, þetta og The Twin
Cities, og flestir borgarbúar kaupa
þau í áskrift. Víkingasýningin fer
því ekki framhjá neinum hérna,“
segir hún. Í háskólanum og á Vís-
indasafninu sjálfu hafa verið ýmsir
viðburðir sem hafa tengst Víkinga-
sýningunni. Í því sambandi má
nefna að Vésteinn Ólason, prófess-
or og forstöðumaður Stofnunar
Árna Magnússonar, flutti tvo fyr-
irlestra um Íslendingasögur í
Minnesota fyrir skömmu. Annan í
miðaldafræðistofnun Minnesotahá-
skóla og hinn í Vísindasafninu í St.
Pauls. „Mikill áhugi var á fyrirlestr-
unum og komust færri að en vildu
enda Minnesota vagga norrænnar
menningar í Bandaríkjunum,“ segir
Maddý.
Ýmsir viðburðir
vegna sýningarinnar
Vésteinn Ólason og Unnur A. Jónsdóttir, eiginkona hans, voru í
Minneapolis á dögunum vegna Víkingasýningarinnar.