Morgunblaðið - 05.04.2003, Síða 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 57
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖG kvenna og
ungs fólks í Sjálfstæðisflokknum
hafa sett á stofn samskiptanet á
vefnum sem fengið hefur nafnið
Landsnet sjálfstæðiskvenna. Þar
geta áhugamenn um stjórnmál átt
samskipti og fengið upplýsingar.
Landsnetið er opið öllum sem
vilja vera í stjórnmálum á for-
sendum aukins jafnréttis kynjanna
og einstaklingsfrelsis, eins og segir
á kynningu á Netinu. Landsnetinu
er ætlað að vera vettvangur sjálf-
stæðiskvenna þvert á félagaskipt-
ingu Sjálfstæðisflokksins, auk
óflokksbundinna kvenna. Fyr-
irmyndin er m.a. sótt til Noregs og
Svíþjóðar þar sem samskiptanet af
þessu taki þykir hafa gefið góða
raun.
Landsnetið er, eins og heiti þess
bendir til, opið samskiptanet. Að
því geta komið bæði einstaklingar
og félagasamtök en auk þess sem
upplýsingatæknin verður nýtt til
hins ítrasta verða fundir, ráð-
stefnur, námskeið og margt fleira í
boði á vegum þess.
Landssamband sjálfstæð-
iskvenna átti frumkvæði að stofn-
un Landsnetsins, en fram-
kvæmdastjórn þess er skipuð
tveimur fulltrúum SUS og tveimur
fulltrúm LS ásamt formanni sam-
bandsins.
Vefslóðin er www.xd.is/
Landsnet, en hægt er að skrá sig á
netið á ls@xd.is.
Samskipta-
vefurinn
Landsnet
stofnaður
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Geir H. Haarde, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Helga Guðrún Jón-
asdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna, Sólveig Péturs-
dóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður
Sambands ungra sjálfstæðismanna, settu Landsnetið formlega af stað.
AUGLÝST hefur verið eftir um-
sóknum í Yrkjusjóð vegna ársins
2003. Allir grunnskólar landsins
geta sótt um trjáplöntur í sjóð-
inn, hvort sem er til gróðursetn-
ingar vor eða haust. Umsókn-
areyðublöð eru á heimasíðu
Skógræktarfélags Íslands,
www.skog.is undir tenglinum
Yrkja. Umsóknarfrestur er til 20.
apríl.
Grunnskólarnir sækja um
plöntur til sjóðsins á þar til gerð-
um eyðublöðum, sem allir skólar
fá send í byrjun árs. Sjóðurinn
hefur haft bolmagn til þess að
styrkja alla umsækjendur und-
anfarin ár, sem sótt hafa um fyr-
ir tilsettan tíma.
Gróðursetja 30–40
þúsund plöntur
Nema styrkirnir 3–6 trjá-
plöntum á hvern nemanda, þann-
ig að árleg gróðursetning hefur
verið á bilinu 30–40 þúsund trjá-
plöntur.
Umsjón sjóðsins er í höndum
Skógræktarfélags Íslands, Rán-
argötu 18. Nánari upplýsingar
fást í síma eða á netfanginu
jgp@skog.is
Yrkjusjóður auglýs-
ir eftir umsóknum
Nemendasýning Dansskóla Jóns
Péturs og Köru verður haldin á
Broadway Hótel Íslandi á morgun,
sunnudaginn 6. apríl kl. 13. Miðasala
hefst kl. 12. Þar munu nemendur í
barna- , unglinga- og fullorð-
inshópum skólans koma fram með
sýnishorn af því sem þeir hafa lært í
vetur. Meðal þeirra sem koma fram
á sýningunni eru margfaldir Ís-
landsmeistarar og núverandi Norð-
urlandameistarar í dansi, segir í
fréttatilkynningu. Frítt er fyrir 11
ára og yngri og eldri borgara en að-
gangseyrir fyrir 12 ára og eldri er
kr. 600.
Göngugarpar ÍT-ferða ganga á
Helgafell. ÍT-ferðir hafa ákveðið að
stofna gönguklúbb, Göngugarpar
ÍT-ferða sem hittast á sunnudags-
morgnum kl. 10.30. Byrjað verður á
að ganga á Helgafellinu fyrir sunnan
Hafnarfjörð, á morgun, sunnudag-
inn 6. apríl. Næstu göngur verða:
sunnudaginn 13. apríl, gengið á
Trölladyngju, sunnudaginn 20. apríl
verður gengið á Keili og sunnudag-
inn 27. apríl verður gengið í Búr-
fellsgjá og þaðan í Valaból. Alla
þessa daga verður hist við Hafn-
arfjarðarkirkjugarð kl. 10.30.
Á MORGUN
Hádegisverðarfundur Sænsk-
íslenska verslunarráðsins föstu-
daginn 11. apríl kl. 12–13.45, á
Radisson SAS Hótel Sögu, Skála. Í
tengslum við aðalfund Sænsk-
íslenska verslunarráðsins verður
opinn fundur um evrukosningar
sem fram fara í Svíþjóð á haust-
dögum. Gestur fundarins og fram-
sögumaður verður Sören Holm-
berg, prófessor við
stjórnmálafræðideild Gautaborg-
arháskóla. Fundurinn er öllum op-
inn. Hádegisverður er í boði SÍV
fyrir félaga en kostar kr. 1.500 fyr-
ir aðra.
Ráðstefna um frumkvöðla-
menntun í framhaldsskóla verð-
ur haldin í Nýheimum á Hornafirði,
fimmtudaginn 10. apríl kl. 9.30–
17.30. Tilgangur ráðstefnunnar er
að ræða hvernig eigi að innleiða
frumkvöðlamenntun í framhalds-
skóla á Íslandi. Örn Daníel Jóns-
son, prófessor í frumkvöðlafræði
við Háskóla Íslands, setur ráðstefn-
una. Erindi halda m.a.: G. Ágúst
Pétursson, verkefnisstjóri Nýsköp-
unar 2003, Ingibjörg Zophonías-
dóttir og Sigrún Inga Sigurgeirs-
dóttir, nemendur í
Framhaldsskólanum í Austur-
Skaftafellssýslu, Eyjólfur Guð-
mundsson skólameistari o.fl. Ráð-
stefnan er haldin á vegum und-
irbúningshóps um
frumkvöðlamenntun í Framhalds-
skólanum í Austur-Skaftafellssýslu.
Námskeið í 5 ryþma dansi verður
haldinn helgina 11.–13. apríl, í
Borgarleikhúsinu. Dansinn, sem
upphaflega var þróaður af Gabr-
ielle Roth, er leið til aukins frelsis
fyrir líkama og sál. Kennari á nám-
skeiðinu er Alain Allard frá Bret-
landi, kennari á sviði hreyfingar,
sviðslistamaður og með UKCP
réttindi í sálfræðimeðferð. Miðviku-
daginn 9. apríl kennir Alain Allard
einnig opinn tíma í Danshöllinni,
Drafnarfelli 2, kl. 17.30–20. Skipu-
leggjandi námskeiðsins er Sig-
urborg Kr. Hannesdóttir og veitir
hún nánari upplýsingar á skrh@isl-
andia.is. Einnig má fá upplýsingar
um dansinn á heimasíðum www.-
ravenrecroding.com og www.-
5rhythmsuk.com.
Umsóknarfrestur um skólavist
við Háskólann í Reykjavík. Fyrri
umsóknarfrestur um nám við Há-
skólann í Reykjavík veturinn 2003–
2004 er til 15. apríl. Svarað er inn-
an þriggja vikna. Síðari umsókn-
arfresturinn er 5. júní. Skólinn
býður uppá fasta viðtalstíma fyrir
einstaklinga sem vilja fá náms-
ráðgjöf eða kynningu á skólanum
alla miðvikudaga kl. 10–11.30 og
föstudaga kl. 13–14.30 fram til 5.
júní. Til viðtals eru námsráðgjafar
skólans auk kennara og nemenda
úr hverri deild. Einnig er hægt að
hringja á skrifstofu skólans og
panta viðtal hjá námsráðgjafa.
Á NÆSTUNNI
Waldorfskólinn Sólstafir verður
með opinn dag í húsnæði sínu að
Hraunbergi 12 í dag, laugardaginn
5. apríl kl. 13–16. Kynning verður á
starfi og vinnu nemenda og eru allir
velkomnir. Einnig verður formleg
afhending gjafar Öddu Gerðar
Árnadóttur á vefstól til skólans sem
fer fram kl. 14. Sólstafir er einkarek-
inn grunnskóli og eru 30 nemendur í
skólanum á aldrinum 6–14 ára.
Grikklandskynning í Bókasafni
Garðabæjar verður í dag, laug-
ardaginn 5. apríl, kl. 14–15. Sigurður
A. Magnússon rithöfundur flytur
fræðlsuerindi um Grikkland og
gríska menningu og segir frá ferða-
möguleikum í landinu.
Opið hús í Hússtjórnarskólanum í
Reykjavík í dag, laugardaginn 5.
apríl kl. 13.30–16.30. Sýning verður
á handavinnu nemenda t.d. útsaum,
prjóni og vefnaði. Kaffisala þar sem
boðið er upp á kaffi, súkkulaði og
kökur. Seldar verða sultur og bakk-
elsi. Allir eru velkomnir.
Í DAG
Villur í grein um
Singapore Sling
Í blaði gærdagsins birtist á síðum
Fólks í fréttum grein um gott gengi
rokksveitarinnar Singapore Sling í
Ameríku. Tvennt misfórst í grein-
inni. Annars vegar unnu Singapore
Sling til Íslensku tónlistarverð-
launanna en ekki Edduverðlauna
fyrir myndbandið við lag sitt „List-
en“. Leikstjóri myndbandsins er
Árni Þór Jónsson. Hins vegar er
rétt að fram komi að Edda útgáfa
hf. sá um að framselja rétt á útgáfu
plötu Singapore Sling í Norður-Am-
eríku til Stinky Records. Beðist er
velvirðingar á þessum misfærslum.
Kringlan tæpir 50
þúsund fermetrar
Í frétt Morgunblaðsins í gær um
nýja stórverslunarmiðstöð sem
stefnt er að að reisa neðan Vest-
urlandsvegar var sagt að það yrði
stærsta bygging í Reykjavík og að
Kringlan væri 36 þúsund fermetrar.
Hið rétta er að öll Kringlan er nú
tæpir 50 þúsund fermetrar og leyft
að stækka hana í allt að 52.500 fer-
metra. Ráðgert er að nýja verslun-
armiðstöðin verði á milli 40 og 50
þúsund fermetrar.
Ljóðlína féll niður
Í minningargrein Þórheiðar um
Friðbjörgu Ólínu Kristjánsdóttur á
blaðsíðu 40 í Morgunblaðinu í gær,
föstudaginn 4. apríl, féll niður lína
úr erindi Har. S. Mag. og raskaði
samhenginu. Þetta átti að hljóða
svona: „Ég kveð þig, elsku systir
mín, og bið góðan Guð að taka þig í
faðm sinn og leiða þig í sitt ríki.
Allar stundir okkar hér
er mér ljúft að muna.
Fyllstu þakkir flyt ég þér
fyrir samveruna.“
Hlutaðeigendur eru beðnir afsök-
unar á mistökunum.
Mynd með grein um Mínus
Með grein um nýjustu plötu
rokksveitarinnar Mínus birtist
mynd af sveitinni á tónleikum. Láð-
ist að geta ljósmyndarans en hún er
Guðný Lára Thorarensen. Hlutað-
eigandi er beðin velvirðingar á mis-
tökunum.
LEIÐRÉTT