Morgunblaðið - 05.04.2003, Side 63
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 63
EYJÓLFUR Sverrisson
er byrjaður á æfa á nýj-
an leik með Herthu
Berlín, en meiðsli í hásin
hafa verið að angra
hann undanfarnar vik-
ur. Eyjólfur sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að
meiðslin hefðu komið í
veg fyrir að hann gaf
kost á sér í landsliðið en
Atli Eðvaldsson lands-
liðsþjálfari fór þess á leit
við Eyjólf að fá hann til
liðs við landsliðið á nýj-
an leik fyrir leikinn á móti Skotum.
Eyjólfur er sem kunnugt er á
heimleið í sumar. Enn sem komið er
hefur hann ekki tekið ákvörðun
hvort hann leiki hér
heima í sumar en Eyjólf-
ur hefur aldrei leikið í
efstu deild, enda fór
hann ungur í atvinnu-
mennsku frá Tindastóli
á Sauðárkróki. Helst
hefur verið rætt um að
hann gangi í raðir Fylkis
en þá hefur Grindavík
einnig verið nefnt til
sögunnar en bæði þessi
lið reyndu að fá Eyjólf til
liðs við sig í fyrra áður
en hann ákvað að taka
eitt ár til viðbótar með Herthu Berl-
in.
„Fyrst af öllu þarf ég að koma
mér aftur í form. Ég hef misst mikið
úr vegna meiðslanna og er ekki í
sem bestu formi um þessar mundir.
Síðan þarf ég að gera það upp við
mig hvort ég yfirhöfuð ætli að spila
heima,“ sagði Eyjólfur. Spurður
hvort Fylkir yrði fyrir valinu hjá
honum ef ákvörðun hans verður sú
að spila í úrvalsdeildinni í sumar
sagði Eyjólfur ekkert vera ákveðið í
þeim efnum. „Ég er ansi rólegur yfir
þessu öllu saman en það kemur að
því að ég tek af skarið. Það fyrsta
sem ég þarf að ákveða er hvort ég
ætla að halda áfram að spila og síð-
an kemur í framhaldinu með hvaða
liði,“ sagði Eyjólfur sem ekki verður
í leikmannahópi Herthu Berlín á
morgun þegar liðið sækir Leverkus-
en heim.
Allt óráðið hvað Eyjólfur gerir
Eyjólfur
Sverrisson
JÓHANNES Karl Guðjónsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu, kem-
ur inn í leikmannahóp Aston Villa á
nýjan leik þegar Villa tekur á móti
meisturum Arsenal á Villa Park í
dag. Jóhannes hefur ekki verið með í
síðustu leikjum Aston Villa. Hann
tók út leikbann í leiknum við South-
ampton og meiðsli á ökkla komu í
veg fyrir að hann gæti leikið á móti
Manchester United.
GUÐNI Bergsson verður á sínum
stað í vörn Bolton þegar liðið mætir
Manchester City á hádegi í dag.
Guðni og félagar þurfa nauðsynlega
á öllum stigunum að halda enda
Bolton í bullandi fallbaráttu.
EIÐUR Smári Guðjohnsen gæti
misst af leik Chelsea á móti Sunder-
land en hann varð fyrir meiðslum á
nára í landsleiknum á móti Skotum
um síðustu helgi og hefur verið í
stöðugri meðferð síðan.
ARSENAL verður án fjögurra
fastamanna í leiknum við Aston Villa
en David Seaman, Robert Pires,
Giovanni Van Bronckhorst og Mart-
in Keown eru allir frá vegna meiðsla.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er
þó óhræddur og segist hafa öflugan
mannskap og góða leikmenn sem
geti fyllst í skörðin. Leikur Aston
Villa og Arsenal verður í beinni út-
sendingu á Stöð 2 klukkan 14 í dag.
ALEX Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, vonast til
að geta valið fyrirliðann Roy Keane
og Sebastian Veron inn í hóp sinn á
nýjan leik fyrir leikinn á móti Liver-
pool á Old Trafford í dag en þeir
hafa verið frá vegna meiðsla undan-
farnar vikur.
MICHAEL Owen er hins vegar
mjög tæpur í liði Liverpool en hann
meiddist á baki í leiknum við Tyrki á
miðvikudagskvöldið. Leikurinn á
Old Trafford hefst klukkan 11.30 og
verður í beinni útsendingu á Sýn.
LIVERPOOL hefur haft gott tak á
United í gegnum árin þrátt fyrir að
Manchester United hafi unnið fyrri
leikinn á Anfield, 2:0, þar sem Diego
Forlan skoraði bæði mörkin. Í
tveimur síðustu heimsóknum á Old
Trafford hefur Liverpool farið með
sigur af hólmi og í síðasta mánuði
hafði Liverpool betur í úrslitaleik
liðanna í deildarbikarkeppninni í
Cardiff.
NEWCASTLE sem er í baráttunni
við Arsenal og Manchester United
um meistaratitilinn á erfiðan leik
fyrir höndum á morgun en þá mætir
liðið Everton á Goodison Park. Gary
Speed og Craig Bellamy eru tæpir í
liði Newcastle sökum meiðsla en hjá
Everton er ástand manna gott.
LEIKNI frá Fáskrúðsfirði hefur
verið úrskurðaður sigur, 3:0, á KS
frá Siglufirði í deildabikar KSÍ. KS
vann leikinn, 1:0, en tefldi fram ólög-
legum leikmanni, Bjarka Má Flosa-
syni, sem einmitt skoraði eina mark
leiksins.
FÓLK
Það er leiðinlegt að þurfa að gefaeftir titlana en málið er að ég er
með gigt í öxlinni sem er búin að hrjá
mig nokkuð lengi og það var ekkert
annað að gera en að koma heim og
láta laga þetta. Meiðslin voru farin
að há mér bæði andlega og líkamlega
og ég varð að hætta á mótaröðinni,“
sagði Vernharð í samtali við Morg-
unblaðið en hann býr og æfir í Sví-
þjóð en kom heim um síðustu helgi til
að láta framkvæma aðgerðina.
Vernharð segist ekki verða lengi
frá og vonast til að geta verið kominn
aftur á ferðina eftir 2–3 vikur.
Stefnan tekin á Aþenu
„Ég stefni á að vera með á Evr-
ópumótinu sem haldið verður í
Þýskalandi í maí og ef allt gengur að
óskum er möguleiki á að ég keppi á
Norðurlandamótinu í Svíþjóð sem
haldið verður tíu dögum á undan
Evrópumótinu. Aðalmótið hjá mér
og Bjarna á þessu ári verður síðan í
október en þá fer heimsmeistara-
mótið fram í Japan. Það mót er gríð-
arlega mikilvægt en fimm efstu sæt-
in gefa sæti á Ólympíuleikana í
Aþenu og þangað er stefnt á að fara.
Það er ekki óraunhæft að stefna á
eitt af fimm efstu sætunum á HM
þar sem ég varð sjöundi í fyrra.“
Vernharð segist ekki taka áhættu
á að mæta í Austurberg og fylgjast
með Íslandsmótinu.
„Ég bara treysti sjálfum mér ekki.
Ég mætti meiddur á Íslandsmót ný-
kominn úr liðþófaaðgerð fyrir
nokkrum árum og ég gat ekki setið á
mér. Ég skellti mér í gallann sem
varð til þess að ég hálfeyðilagði
hnéð. Ég á ekki von á öðru en að
Bjarni Skúlason vinni opna flokkinn
ásamt því að hann taki sinn flokk og
ef hann gerir það ekki verð ég illa
svikinn. Hann er í fantaformi.“
Bjarni líklegur til afreka
Íslandsmótið fer að þessu sinni
fram í íþróttahúsinu Austurbergi og
verður keppt í sjö þyngdarflokkum
karla og kvenna ásamt því að keppt
verður í opnum flokki.
Flest besta júdófólk landsins verð-
ur á meðal keppenda að Vernharð
Þorleifssyni undanskildum. Keppnin
hefst klukkan 11, undanúrslit hefjast
kl. 15, síðan koma úrslitaglímur í
kjölfarið.
Þar sem Vernharð getur ekki
keppt ætti Bjarni Skúlason að sigra í
opna flokknum auk þess sem hann
kemur nær örugglega til með að
bera sigur úr býtum í -90 kg flokki
þar sem hann keppir. Bjarni hefur
undanfarna mánuði dvalið í Svíþjóð
þar sem hann hefur æft ásamt Vern-
harð og báðir hafa þeir tekið þátt í
nokkrum alþjóðlegum mótum í vet-
ur, svoköllum A-mótum. Máni And-
ersen gæti hugsanlega veitt Bjarna
keppni í -90 kg flokknum en hann er
ungur og efnilegur júdómaður.
Fleiri ungir júdómenn gætu látið
að sér kveða á mótinu, þar á meðal
Snævar Jónsson sem keppir í -73 kg
flokki.
Hjá konunum er talið að baráttan
um sigurinn í opnum flokki standi
helst á milli Gígju Guðbrandsdóttur
og Önnu Soffíu Víkingsdóttur. Þær
keppa báðar í -70 kg flokki og hafa
verið að vinna hvor aðra til skiptis á
undanförnum mótum. Anna er nú-
verandi Norðurlandameistari í -70
kg flokki en hún ásamt Gígju hefur
verið að keppa á mótum erlendis í
vetur.
Vernharð
missir af
Íslands-
mótinu
JÚDÓKAPPINN Vernharð Þorleifsson getur ekki varið Íslandsmeist-
aratitla sína í júdó í Austurbergi í dag – þar sem hann er meiddur á
öxl og gekkst undir aðgerð vegna þess fyrr í vikunni.
Vernharð Þorleifsson
GRINDAVÍK fagnaði sigri í deild-
arkeppninni með 34 stigum að lokn-
um 22 umferðum og Keflvíkingar
voru með sama árangur, en Grinda-
vík hafði betur í innbyrðisvið-
ureignum liðanna.
FRIÐRIK Ingi Rúnarsson, þjálf-
ari Grindavíkur, notaði alls 16 leik-
menn í deildarkeppninni en hann
hefur notað 13 leikmenn í átta leikj-
um í úrslitakeppninni. Aðeins þrír
leikmenn hafa leikið alla 30 leiki
tímabilsins á Íslandsmótinu, Páll
Axel Vilbergsson, Jóhann Ólafsson
og Guðmundur Bragason.
SIGURÐUR Ingimundarson,
þjálfari Keflavíkur, notaði 15 leik-
menn í deildarkeppninni en hann
hefur enn ekki breytt leik-
mannahópnum í sex leikjum liðsins í
úrslitakeppninni. Líkt og hjá grann-
liðinu hafa þrír leikmenn Keflavík-
ur leikið alla leiki Íslandsmótsins til
þessa eða alls 28 leiki. Þeir eru
Sverrir Sverrisson, Gunnar Ein-
arsson og Damon S. Johnson.
KEFLAVÍK hefur fagnað Ís-
landsmeistaratitlinum fimm sinnum
frá því að liðið sigraði í fyrsta sinn
árið 1989. Liðið landaði titlinum á
ný árið 1992 og varði hásætið 1993.
Árið 1997 og 1999 varð Keflavík
meistari á ný. Keflavík lagði
Grindavík að velli í úrslitum árið
1997 eftir að hafa tapað gegn liðinu
í úrslitum árið áður.
SIGURÐUR Ingimundarson,
Guðjón Skúlason og Falur Harð-
arson voru allir í liði Keflavíkur
sem fagnaði titlinum í fyrsta sinn
árið 1989.
SIGURÐUR og Guðjón voru einn-
ig í liðinu árið 1992, 1993, en Sig-
urður var þjálfari liðsins árið 1997
er liðið vann á ný með Guðjón, Fal,
Gunnar Einarsson og Damon John-
son innanborðs. Árið 1999 var Sig-
urður einnig þjálfari og þá léku
einnig Guðjón, Falur, Damon og
Gunnar með liðinu auk þeirra
Gunnars Stefánssonar, Jóns Norð-
dals Hafsteinssonar og Magnúsar
Gunnarssonar.
GRINDVÍKINGAR hafa aðeins
einu sinni orðið Íslandsmeistarar en
það var árið 1996 er liðið hafði betur
gegn Keflvíkingum í úrslitum, 4:2,
en þá gátu úrslitaleikirnir orðið sjö
alls. Friðrik Ingi Rúnarsson var þá
þjálfari Grindvíkinga líkt og í dag.
Guðlaugur Eyjólfsson, Helgi Jónas
Guðfinnsson, Guðmundur Braga-
son og Páll Axel Vilbergsson voru í
liði Grindavíkur árið 1996.
Morgunblaðið/Golli
Darrell Lewis hefur náð sér á strik á ný með liði Grindavíkur
eftir aðgerð á hné.
BIKARPUNKTAR