Morgunblaðið - 21.05.2003, Síða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 17
...símjúkur á brauðið
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
6
2
9
0
/
S
IA
Í Yirba-heilsugæslustöðinni í Eþí-
ópíu eru starfsmenn hjálparstofnana
að reisa tjöld fyrir 150 sveltandi
börn. Foreldrar barnanna báru þau
þangað og gangan tók allt að níu
klukkustundir. Þrjú börn hafa dáið
úr vannæringu í annarri heilsu-
gæslustöð síðasta hálfa mánuðinn og
í þorpunum eru tugir barna við dauð-
ans dyr.
Starfsmenn hjálparstofnana segj-
ast nú leggja mikið kapp á að afstýra
því að matvælaskorturinn í Eþíópíu
leiði til mikilla hörmunga í líkingu
við hungursneyðina sem kostaði um
milljón Eþíópíumanna lífið árið 1984.
Hjálparstofnanirnar hafa séð um
þrettán milljónum manna, um
fimmtungi íbúa landsins, fyrir mat-
vælum og neyðin hefur hingað til
einskorðast við afmörkuð svæði.
Kornskammtarnir minnkaðir
Forsætisráðherra landsins, Meles
Zenawi, sagði hins vegar í viðtali á
föstudaginn var að milljónir
Eþíópíumanna væru nú „á heljar-
þröm“. Stofnanir Sameinuðu þjóð-
anna mæla með því að sveltandi fólk
fái 15 kílógrömm af korni á mánuði
en Zenawi sagði að minnka hefði
þurft kornskammtinn í 12,5 kíló-
grömm á mánuði vegna þess að
birgðirnar væru ekki nægar.
Hjálparstofnanirnar segja að auka
þurfi matvælahjálpina þar sem enn
fleiri Eþíópíumenn verði háðir að-
stoðinni vegna þess að búist sé við að
næsta uppskera bregðist í mörgum
héraðanna.
Starfsmenn hjálparstofnana segja
að mannfellirinn væri meiri hefðu
þær ekki varað við því fyrir ári að
hungursneyð væri yfirvofandi í Eþí-
ópíu. Um 83% af 65 milljónum íbúa
landsins lifa á sjálfsþurftarbúskap
en lítil eða engin úrkoma síðustu tvö
ár hefur víða leitt til uppskerubrests,
m.a. í nokkrum héruðum sem hafa
hingað til sloppið við hungurvofuna.
Börn með einkenni
prótín-vaneldis
Fórnarlömb þurrkanna hafa verið
færð í Yirba-heilsugæslustöðina síð-
asta hálfan mánuðinn. Mörg
barnanna eru með stirðnaða
sársaukagrettu á andlitinu, sem
bendir til prótín-vaneldis, en það
kemur meðal annars fram í því að
börnin geta ekki lengur brosað.
Nokkur barnanna eru orðin of mátt-
vana til að geta kvartað. Tilraunir
þeirra til að gráta hljóma eins og
veikur ekki eða hósti.
Eitt barnanna, Ladawe, sextán
mánaða stúlka, hvíldi í faðmi móður
sinnar meðan starfsmaður heilsu-
gæslustöðvarinnar sprautaði í hana
vítamínum og sýklalyfjum. Annað
einkenni prótín-vaneldis sást á ör-
smáum og bláleitum líkama barnsins
– útbrot vegna húðsýkingar.
Ladawe deplaði ekki einu sinni
auga þegar nálunum var stungið í
hana.
„Við getum ekki bjargað henni,“
sagði starfsmaður heilsugæslustöðv-
arinnar, Asayehegn Tekeste. „Mörg
barnanna styrkjast en sumum þeirra
er ekki hægt að bjarga.“
Prótín-vaneldi kemur einnig fram
í mjög lítilli mótstöðu gegn sýking-
um. Þar sem börnin eru mjög mátt-
farin deyja sum þeirra úr læknanleg-
um sjúkdómum, svo sem malaríu eða
lungnabólgu, og önnur vegna þess að
líffæri gefa sig.
Hungrið aldrei verið jafn mikið
Í annarri heilsugæslustöð, sem
kaþólskar nunnur reka, hafa þrjú
börn dáið síðasta hálfa mánuðinn.
„Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt,“
sagði yfirlæknir stöðvarinnar, Isabel
Arbide, sem hefur starfað í þorpinu
Bushulo, nálægt Awassa-vatni, frá
árinu 1987. „Yfirleitt fá sum
barnanna ekki nægan mat í nokkra
mánuði fyrir uppskerutímann [í
ágúst] en hungrið hefur aldrei verið
svona mikið.“
Í suðurhéruðum Eþíópíu virðist
matvælaskorturinn koma harðast
niður á börnum undir fimm ára aldri.
„Börnin fá ekki að borða fyrst,“
sagði Arbide. „Þetta snýst allt um
sjálfsbjargarviðleitni. Þegar fólk
borðar úr potti borða hinir sterkustu
fyrst og þeir lifa af.“
Bandaríkjastjórn hefur lofað 320
milljónum dala, andvirði 24 milljarða
króna, til hjálparstarfsins í Eþíópíu.
Talið er að þetta sé um þriðjungur
þeirrar fjárhæðar sem þarf til að af-
stýra mikilli hungursneyð. Hjálpar-
stofnanirnar segja að senda þurfi
300.000 tonn af matvælum í viðbót til
Eþíópíu á árinu.
„Okkur hefur tekist að halda fólki
á heljarþröminni,“ sagði eþíópíski
forsætisráðherrann á föstudag. „En
vegna þess að landsmenn eru komn-
ir á ystu þröm er viðbúið að einhverj-
ir falli, einkum börn og veikburða
fólk.“
Neyðin í Eþíópíu eykst
vegna uppskerubrests
Boricha. Los Angeles Times.
Morgunblaðið/Þorkell
Starfsmenn hjálparstofnana í Eþíópíu leggja mikið kapp á að afstýra því að
matvælaskorturinn valdi nýrri hungursneyð í landinu.
’ Mörg barnannastyrkjast en sumum
þeirra er ekki hægt
að bjarga. ‘
www.fotur.net