Morgunblaðið - 21.05.2003, Page 21

Morgunblaðið - 21.05.2003, Page 21
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 21 BÆJARSTJÓRI Bolungarvíkur og formaður fræðslumálaráðs Bolungarvíkur heimsóttu nem- endur grunnskólans fyrir stuttu og færðu þeim að gjöf heimabíó með DVD spilara til afnota í skól- anum. Daðey Einarsdóttir formaður fræðslumálaráðs sagði að með þessu vildu bæjaryfirvöld þakka nemendum skólans fyrir góðan námsárangur og einnig fyrir góð- an umgang um skólann sinn. Daðey vildi jafnframt koma því á framfæri af þessu tilefni að Bol- víkingar búa við gott og traust skólastarf þar sem nemendur og kennarar hafa metnað til að ná sem bestum árangri og hún von- aðist til þess að þessi gjöf kæmi til með að nýtast nemendum skól- ans vel bæði í leik og starfi. Þakka nem- um góðan námsárangur Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Einar Pétursson, bæjarstjóri Bolungarvíkur, afhendir Önnu G. Edvards- dóttur skólastjóra fjarstýringuna að DVD-spilaranum. Hjá honum stendur Daðey Einarsdóttir, formaður fræðslumálaráðs Bolungarvíkur. Bolungarvík BYKO opnaði verslun í eigin húsnæði á Búðareyri 29 á Reyðarfirði sl. laug- ardag. Verslunin ásamt birgða- skemmu er um 1000 m². Opnað var með pomt og pragt og þurftu þeir Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri BYKO, og Guðmundur Bjarnason, bæjar- stjóri Fjarðabyggðar, að taka sér sög í hönd til þess að saga sundur timb- urborð svo þeir kæmust inn í húsið. Á annað þúsund manns mættu á opnunarhátíðina og eru eigendur mjög ánægðir með þær móttökur sem þeir fengu og gestirnir með þá þjón- ustu sem nú komin er. Opnunartilboð voru í gangi en birgðir þraut. Verður strax bætt úr því og tilboðin munu standa til 31. maí nk. Verslunin leggur áherslu á allar al- mennar byggingarvörur, einnig ýms- ar heimilisvörur og þjónustu við byggingaraðila. Einnig eru þeir með tækjaleigu þar sem hægt verður að leigja sér 1⁄2 dag eða lengur t.d. sláttu- vélar, iðnaðarryksugur, hjólsagir, borvélar, flísasagir o.fl. Verslunin er opin kl. 8–18 virka daga og 10–14 á laugardögum, s. 470- 4200. Verslunarstjóri er Jón Grétar Margeirsson, sem lengi hefur unnið hjá BYKO, og með honum verða 3 starfsmenn. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir Starfsmennirnir fjórir: Ómar Þór Andrésson, Aðalsteinn Þorvaldsson, Jón Grétar Margeirsson verslunarstjóri, Magnús Gunnarsson og Þórey Gunn- arsdóttir sem vinnur hjá BYKO í Hafnarfirði. Yfir þúsund manns á opnunardegi Reyðarfjörður KIWANISMENN á Dalvík og í Ólafsfirði munu næstu daga ganga í hús og afhenda litla gjöf, umslag, til áminningar um að við gleymum ekki okkar hlutverki. Í umslaginu er að finna segul með áletruninni: Áhugasamir og elskulegir foreldrar eru besta vörnin gegn vímuefnum. Þetta slagorð vann til verð- launa fyrir nokkru og það á Guð- mundur Ingi Halldórsson, nem- andi í Húsabakkaskóla. Þennan segul má festa á ísskápinn til áminningar. Þá er í umslaginu handhægur vísir með leiðbeining- um um möguleg einkenni og gagnorðar upplýsingar um eitur- lyf önnur en áfengi. Við sem hér búum svo fjarri mesta þéttbýlinu höfum hvað eft- ir annað verið minnt á að þessi fjarlægð ver okkur ekki fyrir þeirri vá sem vímuefni margs konar eru. Fyrir nokkru var kunngjörð könnun sem unnin var á vegum félagsmálaráðs í Dalvík- urbyggð og í Ólafsfirði. Könnunin leiðir í ljós að í samanburði við þéttbýlið standa unglingar á svæðinu vægast sagt höllum fæti. Það er engu líkara en íbúar og þá sérstaklega foreldrar hafi lifað í þeirri trú að fjarlægðin við þétt- býlið bjargaði okkur frá þessari vá. Svo er því miður ekki. Kiwanis- menn í Ólafsfirði og á Dalvík hafa nú tekið höndum saman og hrinda af stað átaki sem vonandi verður til þess að vekja umræður og opna huga fólks fyrir því að það verður að halda vöku sinni. Við verðum alltaf að vera á varðbergi. Sameiginlegt átak í vímu- efnavörnum Dalvíkurbyggð Morgunblaðið/Guðmundur Ingi Kiwanisklúbbarnir í Ólafsfirði og Dalvíkurbyggð efna til átaks í vímu- vörnum. Á myndinni eru Jón Jóhannesson, forseti Súlna, Guðmundur Ingi Halldórsson, höfundur slagorðs, og Gísli Bjarnason, forseti Hrólfs. AÐ undanförnu hafa staðið yfir vortónleikar Tónlistarskóla Húsa- víkur og segja má að þetta sé tón- leikaröð því alls eru tónleikarnir tíu talsins. Þarna kennir ýmissa grasa, allt frá ungum byrjendum í blokkflautuleik til einsöngs- tónleika Kristjáns Þ. Halldórs- sonar til undirbúnings fyrir 8. stigs próf í einsöng. Starf Tónlist- arskóla Húsavíkur, sem tók til starfa 1961, er blómlegt, hann veitir kennslu á öll algengustu hljóðfæri og stendur opinn jafnt börnum sem fullorðnum. Ríflega 300 nemendur stunda nú nám við skólann sem er til húsa í sömu byggingu og Borgarhólsskóli. Samstarf þessara skóla er mjög náið og auk þess á Tónlistarskól- inn einnig í samstarfi við leik- skólana í bænum. Á vegum skólans eru starfandi kórar, sönghópar og samspils- hópar auk þess sem skólinn stend- ur að rekstri Lúðrasveitar Þing- eyinga í samstarfi við áhugamenn og tónlistarskóla í nágrenninu. Tíu kennarar eru starfandi við skólann í alls níu stöðugildum og skóla- stjóri er Árni Sigurbjarnarson. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Tónleikar Tónlistarskóla Húsavíkur Húsavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.