Morgunblaðið - 21.05.2003, Side 27

Morgunblaðið - 21.05.2003, Side 27
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 27 ÉG vil byrja á því að óska fjár- málaráðherra og heilbrigðisráðherra til lukku með launahækkunina. Ald- eilis gaman að fá svo fína hækkun og vera þar að auki starfs- maður ríkisins. Ég er líffræðingur í Blóðbanka sem ger- ir mig að starfsmanni Landspítala – há- skólasjúkrahúss (LSH) og mitt stétt- arfélag er Félag íslenskra nátt- úrufræðinga, FÍN. Ég vinn í heilbrigðisgeiranum og þigg laun frá fjármálaráðuneytinu. Ég er að leita að stofnanasamningi af hendi LSH sem hefur ekki verið gerður við FÍN í 2(3) ár. Ástæður þess að ekki er búið að semja eru nokkuð á reiki en þær helstu sagðar að það sé ekki til fé til að setja í stofn- anasamning. Það er eilítið skrýtið að ríkið skuli samþykkja kjarasamninga þar sem stendur að stofnanasamn- ingur sé hluti þeirra. Hvað í ósköp- unum á þá að gera í þessum samningi ef stofnun eins og LSH tímir ekki að borga krónu til að framkvæma hann? Kannski má gera starfsmenn óánægða, það er sosum markmið í sjálfu sér. Það er líka mjög furðulegt vitandi að búið er að semja við félagsmenn FÍN á öðrum ríkisstofnunum, og þar fengu menn a.m.k tveggja launa- flokka hækkun. Hver borgar laun þeirra starfsmanna? Jú, það er ríkið. En það er alltaf þessi endalausi stirð- busalegi risaeðlugangur á LSH. Það er alveg ótrúlegt hvað menn leyfa sér að tefja og þrefa, í stað þess að ganga í málin, klára þau með sæmd og innan sómasamlegra tímamarka. Við ætt- um kannski að halda okkur á jörðinni og ekki gera of miklar kröfur! Forsögu þessa máls má rekja aftur til 1997 þegar gerður var kjarasamn- ingur við FÍN (1. júní ’97–31. okt. ’00). Í kjölfarið á honum var farið í samn- ingaviðræður við ríkið um röðun starfsmanna í launaflokka og annað því tengt. Ekkert viðunandi sam- komulag náðist og endaði með því að málið fór í svokallaðan „dóms- úrskurð“ og félagsmenn FÍN svína- ðir til að falla innan röðunarreglna sem þeir voru ekki samþykkir. FÍN kærði þetta til Félagsdóms 1998 en tapaði því máli. Kjarasamningurinn frá ’97 rann svo út 31. okt. ’00 og það liðu 8 mán- uðir þar til nýr kjarasamningur var gerður. Það skal enginn segja mér annað en að ríkið hafi sparað heil- mikið á þeim langa tíma sem málið var tafið því að sjálfsögðu gilti kjara- samningurinn nýi ekki aftur í tímann. En um það leyti sem gengið var til samþykktar á nýjum kjarasamningi 25. júlí 2001 (gildistími 1. júlí 2001 til 30. nóv. 2004) gengu samningamenn FÍN hart fram í því að þessi gamli dómsúrskurður og röðunarreglur á LSH yrði felldur úr gildi og sam- komulag yrði gert við Landspítala – háskólasjúkrahús sem félagsmenn væru bærilega sáttir við. Það var gert nýtt samkomulag sem gilti frá 1. júlí 2001(og að sjáflsögðu ekki aftur í tím- ann) sem er í raun endir á fram- kvæmd kjarasamnings frá ’97 (lokið 4 árum síðar!) Jæja, ekki allt búið enn. Í kjarasamningi frá 2001 er sérstakur stofnanahluti hans, og þar stendur í grein 11.1.3.3 „Aðilar stofnanasamn- ings skulu endurskoða hann innan eins árs frá staðfestingu kjarasamn- ings og síðan eigi sjaldnar en annað hvert ár …“ Nú í sumar (júlí ’03) eru brátt liðin 2 ár síðan kjarasamningur var gerður, og samkvæmt öllum réttu ætti að vera fyrir löngu búið að end- urskoða stofnanasamninginn og ganga frá honum með sátt. Ætti jafn- vel að fara að endurskoða hann í ann- að sinnið samkvæmt þessu. Forstjóri LSH kom í Blóðbankann í desember síðastliðnum og ræddi við starfsmenn. Hann sagði þá að bjartir tímar væru framundan, allir eða nær allir stofnanasamningar væru búnir eða við það að klárast. Hér fór for- stjórinn minn ekki með rétt mál. Ég sendi honum tölvupóst í tvígang, sagði frá stöðu mála og bað hann að reyna að ganga á eftir málinu og sigla því í höfn. En ekkert svar hefur bor- ist frá honum enn. Ég verð því að trúa því að tölvupóstforritið hafi verið bilað (gerist oft) og neita að trúa því að forstjóranum hafi ekki fundist taka því að svara mér. En ég veit líka að ég get búist við því að sama rík- issamningataktík verði notuð áfram af hendi ríkisins og stofnanasamning- urinn verði kláraður þegar að nýr kjarasamningur verður frágenginn ca seinni part árs 2005 (8–10 mán. eft- ir útr. gildistíma) ef gömlu vinnuregl- urnar verða viðhafðar! Ég geri mér fulla grein fyrir því að LSH er stór vinnustaður og þar eru mörg stéttarfélög sem þarf að semja við. En ef verið er að spá í ánægju starfsmanna á vinnustað get ég full- yrt að ókláraðir samningar og lítill samningsvilji af hendi LSH er ekki einn af þeim þáttum sem auka ánægj- una. Ég ræddi við frambjóðendur Framsóknarflokks og Sjálfstæð- isflokks í Suðvesturkjördæmi fyrir kosningar um þessi mál. Og báðir voru rasandi yfir þessum vinnubrögð- um ríkisins og voru sammála um það að þessu yrði að kippa í liðinn sem fyrst. Drífið ykkur nú í að semja við mig! Nú eruð þið búnir að fá fína kaup- hækkun og hljótið að vera í góðu skapi og getið séð sóma ykkar í því að klára stofnanasamninginn. Ég er ekki að tala um launahækkun á við ákvörðun kjaradóms frá 10. maí! Hvar er stofnana- samningurinn? Eftir Ásu Hólmarsdóttur Höfundur er líffræðingur í Blóðbankanum. STUNDUM virðist sem fjár- málastofnanir vinni markvisst gegn hugmyndinni um almenn- ingshlutafélög. Svo virðist sem bankarnir hafi fundið nýja leið til að afla sér við- skipta og auka tekjur sínar. Leið- in er skuldsett yf- irtaka. Fundnir eru snjallir menn, stjórnendur eða utanaðkomandi, og þeim boðin lán til þess að kaupa aðra hluthafa út. Upphæð- irnar eru ævintýralegar, skipta milljörðum. Hér á landi eru ekki til menn sem kaupa fyrirtæki fyr- ir marga milljarða nema fleira komi til. Fyrirtækið kaupir sjálft? Venjulegur arður af hlutabréf- um stendur ekki undir þessum milljarðakaupum. Aðferðin er gamalkunnug. Eftir að fáeinir eigendur hafa keypt aðra út með aðstoð bankanna, er fyrirtækið tekið út af verðbréfamarkaði og hagnaður þess síðan greiddur út til nýju hluthafanna sem arður og notaður til þess að greiða hluta- bréfakaupin. Oft eru einnig eignir fyrirtækisins seldar og hluthafar afla sér þannig einnig fjár til þess að greiða hlutabréfin. Erlendis er þetta kallað leverage buyout eða management buyout. Stundum er þetta aðferð bankanna til þess að koma illa reknum fyrirtækjum í betri rekstur en hér virðist ut- anaðkomandi mönnum þetta vera aðferð bankanna til þess að afla sér viðskipta, auka hagnað sinn. Þannig tryggja bankarnir sér arð fyrirtækjanna í mörg ár sem vaxtagreiðslur en breyta þjóð- félagsmyndinni um leið. Almenningshlutafélög Margir hafa átt sér þá hug- mynd að þjóðfélag frjálsra manna byggðist m.a. á því að almenn- ingur ætti hlut í fyrirtækjunum, almenningshlutafélögum sem ynnu á verðbréfaþingi. Morg- unblaðið og forsætisráðherra hafa verið talsmenn þessa svo ein- hverjir séu nefndir. En markaður- inn lifir sínu eigin lífi. Í tilraun sinni til þess að hámarka hagnað sinn breyta fjármálastofnanir þessari framtíðarsýn. Stórfyr- irtæki eru færð til fámennra hópa með matadorspili. Verðbréfa- markaðurinn veikist. Snjallar til- færslur eiga sér stað undir vernd laga og löggjafa. Draumur Morg- unblaðsins og forsætisráðherra um 5% hámarks eignaraðild er gleymdur. Markaðurinn segir: Ég er drottinn guð þinn, þú skalt ekki aðra guði hafa. Stjórnmálin eru dauð segja félagsfræðing- arnir, stjórnmálaflokkarnir hvorki þora né megna að ganga gegn hagsmunum stóru fyrirtækjanna. Löggjöf á fjármálamarkaði Nýtt afl barðist fyrir því í nýaf- stöðnum kosningum að sett yrði heildarlöggjöf á fjármálamarkaði. Á því er mikil þörf, hvort sem menn ræða um lífeyrissjóði, hluta- bréfamarkaðinn, tjónasjóði trygg- ingafélaga eða sjálfseignarsjóði t.d. sparisjóða. Á hlutabréfamark- aði er að mörgu að huga, verð- setning hlutabréfa við yfirtöku, innbyrðis tengsl ráðandi fyr- irtækja í í öðrum stórfyr- irtækjum, kaup fyrirtækja hvers í öðru o.s.frv. Verkefnið er víðtækt og flókið. Enn ber að minna á fjármál stjórnmálaflokkanna. Hvernig getur það gengið í lýðræðisríki að fjármál flokkanna séu leyndarmál og enginn viti hver styrkir þá. Er- lendir menn sem ég ræði við gapa af undrun. Skuldsett yfirtaka, bankar og almennings- hlutafélög Eftir Guðmund G. Þórarinsson Höfundur er formaður Nýs afls. Alltaf á þriðjudögum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.