Morgunblaðið - 21.05.2003, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 21.05.2003, Qupperneq 32
MINNINGAR 32 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ V ið bjóðum upp á Cosmó, það sama og þær drekka í Sex and the City,“ sagði þjónninn, með bros á vör, og þar sem ég var í mínu fínasta pússi; háhæluðum skóm og „hæfilega“ stuttu pilsi þáði ég drykkinn að sjálfsögðu. Ekki verra að byrja kvöldið á rauð- leitum vökva í anda kvensanna í sjónvarpsþættinum vinsæla. Þetta var semsé laugardags- kvöld í Reykjavík. Planið var að kanna „markað hinna einhleypu“ og sletta ærlega úr klaufunum, ásamt góðum félögum. Fyrst yrði staldrað við á matsölustað en síðan litið inn á nærliggjandi ölstofur. Allt eftir bókinni. Eitt helsta umræðuefnið, meðan á kvöldverðinum stóð, og sennilega það mikilvægasta í okkar aug- um á þessari stundu, var að velja „heppilegan“ skemmtistað, sem stefna ætti á síðar um kvöldið. Úr nógu er að velja þegar næturlíf Reykjavík- ur er annars vegar enda skilst mér að hátt á áttunda tug skemmtistaða séu í borginni. Þetta var því flókin ákvörðun: Ættum við að fara á Næsta bar þar sem listaspírurnar hreiðra um sig, á Hverfisbarinn, sem Chelsea Clinton forsetadóttir heiðraði með nærveru sinni á dögunum, eða á Ölstofuna, þar sem blaðamennirnir og ung- pólitíkusarnir ræða þjóðþrifa- málin? Niðurstaða þessara „mik- ilvægu“ vangaveltna var hins vegar Thorvaldsensbar svo- nefndur, við Austurstræti en þar hittist „ríka og fallega fólkið“, eins og þýsk vinkona okkar orð- aði það svo pent þegar inn var komið. Það voru hennar orð. Hvort við „djammfélagarnir“ föllum inn í þann hóp skal kannski ósagt látið ... Við erum a.m.k. ekki rík en kannski svo- lítið falleg ... þ.e. að eigin mati. Já, flóra skemmtistaðanna er svo sannarlega fjölbreytt í henni Reykjavík, en gestrisnin er að sama skapi misjöfn. Það fengum við að reyna þegar reynt var við inngöngu á Thorvaldsen. Í ljós kom að fyrir framan staðinn voru tvær biðraðir! Við aðra röðina stóð „fín dama“ og hleypti þeim inn sem höfðu, að því er virtist, hlotið náð fyrir augum hennar og dyravarða staðarins. (Vald þeirra var sann- arlega mikið þetta kvöldið.) Í hinni röðinni fengu þeir hins vegar að bíða (og bíða) sem ekki nutu forréttinda. Einhver hvíslaði því að mér að önnur röðin, sem daman stóð við, væri svokölluð VIP-röð, fyr- ir „mikilvægar persónur“. Ég dró því þá eðlilegu ályktun að hin röðin væri fyrir persónur sem ekki þættu eins mikilvægar. Að sjálfsögðu fórum við í röð- ina fyrir mikilvægu persónurnar enda teljum við okkur af- skaplega mikilvæg á margan hátt en dyraverðirnir voru ekki á sama máli; þeir „hentu okkur“ í hina röðina. Þótt ólíklega megi virðast lét- um við bjóða okkur þessa „með- ferð“ enda var kvöldið í húfi. Við biðum því, nokkuð hlýðin, og innan tíðar komumst við inn, við sæmilegan leik, á troðfullan staðinn. „Einn Cosmó,“ sagði ég, orðin nokkuð sjóuð í „Beð- máli í borginni-leiknum“ og ekk- ert því til fyrirstöðu að taka nokkur spor á dansgólfinu. Það var líka nauðsynlegt að hita sig upp eftir útiveruna í röðinni. Dansgólfið var þröngt. Ein- hver traðkaði á tánum og annar sletti smá rauðvíni á ljósan bol- inn. En maður lét það ekki á sig fá. Markmiðið var jú að skemmta sér. Rétt við dansgólfið stóðu karl- kynsverur, stakar eða í hópum, og virtu fyrir sér, íhugular, sveiflurnar og danssporin. (Mér skilst reyndar að þessi tegund karlmanna kallist súlukarlar. En sel það ekki dýrara en ég keypti.) Ég gafst upp á dansinum og fikraði mig í átt að barnum. Þar stóðu nokkrar konur og virtu fyrir sér karlmennina; þeir voru að mati kvennanna óvenju margir að þessu sinni, þeim til mikillar ánægju, en þó ýmist „of ungir“ eða „óendanlega gamlir“ eins og ein úr hópnum orðaði það. Margir gestir létu þó aldurinn ekki hafa áhrif á sig og svei mér þá ef nokkur pör urðu ekki til. Já, það hefur sennilega ekki farið framhjá neinum að skemmtistaðir eru ekki bara „skemmtistaðir“ í orðsins fyllstu merkingu, heldur líka „pikk- uppstaðir“ – staðir þar sem fólk reynir (og tekst væntanlega) að stofna til nýrra kynna. Um það bera nýju pörin vitni, hýrt auga frá „óendanlega göml- um manni“ og setning á borð við: „Viltu koma með mér heim?“ eftir einnar mínútu kynni. En rómantíkin er þó ekki fyr- irferðarmikil á þessum stöðum. Og stundum veltir maður því fyrir sér hvort tilviljun ein ráði því hverjir fara heim með hverj- um. Að minnsta kosti fékk ég fljótlega nóg af „Beðmáls- leiknum“ mínum og var þeirri stundu fegnust þegar mér tókst að ryðjast út í svölu sumarnótt- ina. (Sem betur fer auðveldara að komast út heldur en inn.) Á leið minni heim rakst ég á nokkrar karlkynsverur sem voru að staulast út af nektarstað við hliðina á Thorvaldsen. Þar voru sennilega á ferðinni „alvöru súlugæjar“. Þeir virtust lúnir eins og ég; kannski þreyttir á „örvæntingunni“ sem einkennir suma skemmtistaði ... Og þó. Sennilega voru þeir bara orðnir uppiskroppa með peninga til að kaupa sér athygli og „tilbúna aðdáun“ súlumeyjanna. En heim komst ég. Loksins. Og best var að skríða undir hlýja sæng og setja spólu í tæk- ið með þáttunum um Beðmálin í borginni. Þægilegra að horfa á þá en reyna að upplifa. „Kannski ég fari bara að stunda laxveiðar um helgar,“ hugsaði ég, „eða kannski ég fari bara á djammið aftur næstu helgi.“ Ég gæti verið að missa af einhverju. Næturrölt í Reykjavík „Sennilega voru þeir bara orðnir uppi- skroppa með peninga til að kaupa sér athygli og „tilbúna aðdáun“ súlumeyjanna.“ VIÐHORF Eftir Örnu Schram arna@mbl.is ✝ Fríður Sigur-jónsdóttir fædd- ist á Sandi í Aðaldal 13. janúar 1902. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 5. maí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Sigurjón Friðjónsson bóndi og skáld á Sandi, síðar á Einarstöðum og Litlulaugum í Reykjadal í Suður- Þingeyjarsýslu, f. 22. september 1867, d. 26. maí 1950, Jónssonar bónda á Sandi og Sig- urbjargar Guðmundsdóttur, fyrri konu hans, og Kristín Jóns- dóttir, f. 22. október 1867, d. 27. október 1928, Ólafssonar bónda á Rifkelsstöðum í Eyjafirði og konu hans Halldóru Ásmunds- dóttur. Meðal systkina Sigurjóns voru Guðmundur bóndi og skáld á Sandi og Erlingur Friðjónsson kaupfélagsstjóri og alþingismað- ur á Akureyri en systur Krist- ínar voru Ásrún húsfreyja á Ein- arsstöðum í Reykjadal og Kristjana húsfreyja á Stórulaug- um í sömu sveit. Fríður var fimmta í röðinni af tíu börnum Sigurjóns og Kristínar sem upp komust. Eldri voru Arnór, f. 1. maí 1893, skólastjóri Alþýðuskól- ans á Laugum, síðar starfsmaður Hagstofu Íslands, kvæntur Helgu Kristjánsdóttur, Unnur, f. 13. júlí 1896, húsfreyja á Laugabóli í Reykjadal, gift Tryggva Sigtryggs- syni, Áskell, f. 13. mars 1898, bóndi á Laugafelli í Reykja- dal, kvæntur Dag- björtu Gísladóttur, Dagur, f. 22. apríl 1900, skólastjóri barnaskólans á Litlulaugum, en yngri Sigurbjörg, f. 19. febrúar 1904, húsfreyja á Litlu- laugum, Halldóra, f. 26. júní 1905, skóla- stjóri Húsmæðra- skólans á Laugum, Ingunn, f. 24. nóvember 1906, sem lést ung af berklum, Ásrún, f. 16. júlí 1908, hjúkrunarkona á Hvítabandinu í Reykjavík, og Bragi, f. 9. nóv- ember 1910, alþingismaður og bankaútibússtjóri. Fóstursonur Sigurjóns og Kristínar var Gísli T. Guðmundsson, f. 22. mars 1915, póstmaður í Reykjavík, kvæntur Kristínu Björnsdóttur. Öll systkinin eru nú látin. Fríður gekk í unglingaskólann á Breiðumýri 1921–22 og tók ljósmæðrapróf frá Ljósmæðra- skóla Íslands 1933. Hún var ljós- móðir í Borgarnesi 1933-36, Landspítalanum 1936–37, Glæsi- bæjarhreppi 1937–55 með búsetu á Akureyri, einnig ljósmóðir þar frá 1944–55 og loks á Sólvangi í Hafnarfirði 1955–72. Bálför Fríðar fór fram í kyrr- þey 14. maí. Nú hefur hún Fríður frænka okk- ar kvatt, rúmlega 101 árs að aldri. Þá eru þau öll fallin frá, systkinin Sigurjónsbörn frá Litlulaugum. Öll tíu voru þau sannir fulltrúar aldamótakynslóðarinnar, með mikl- ar hugsjónir um framfarir, mennt- un, menningu og trúmennsku til orðs og æðis. Fríður bar öll þessi einkenni í ríkum mæli. Frændrækni hennar var einstök og nutum við systkinabörn hennar og fjölskyldur okkar þess. Hún hafði svo lifandi áhuga á velferð unga fólksins, þá sérstaklega yngstu kynslóðinni, enda valdi hún ljósmóðurstarfið sem starfsvettvang. Þar naut hún mikils trausts og hafði miklar taugar til ljósubarnanna sinna. Hún var sannarlega ekki sú manngerð sem bar tilfinningar sínar á torg en ef einhversstaðar voru erfiðleikar í stórfjölskyldunni var hún sannköll- uð hjálparhella og boðin og búin til að leggja lið og styðja og styrkja. Hún tengdi okkur frændsystkinin líka saman, því hjá henni fengum við fréttir um helstu atburði í ætt- inni. Tryggð hennar við átthagana var einstök og alltaf reyndi hún að fylgjast með því sem var að gerast „heima“. Hennar sérstaki eiginleiki var þó sjálfstæðið. Hún lifði sjálf- stæð og sjálfráð og þoldi illa stjórn- semi annarra. Henni líkaði ekki of vel ef aðrir leituðu til hennar um greiða sem henni þótti ekki nauð- synlegur. Hún vildi sjálf dæma hvar þörfin var og þá var henni öll fyr- irgreiðsla ljúf og rausnin mikil. Þannig var hún samkvæm sjálfri sér til hinstu stundar. Hún Fríður frænka lifði farsælu og ríku lífi til hárrar elli, full áhuga á umhverfi sínu og skylduliði. Arnþrúður Arnórsdóttir. Elsku Fríður mín. Nú ertu farin og ert sjálfsagt hvíldinni fegin. Þú áttir langa og góða ævi. Fyrir mér varstu alltaf eins og amma mín og mér fannst þú aldrei breytast neitt alveg frá því ég man fyrst eftir þér þegar ég var lítil. Mér er minnisstætt þegar þú bjóst á Kleppsveginum og komst svo oft í heimsókn inn í Efstasund. Þú varst alltaf svo kát og áttir auðvelt með að gera grín að sjálfri þér. Alltaf var stutt í hláturinn hjá þér. Við áttum margar góðar sam- verustundir saman, sérstaklega síð- ustu árin sem þú lifðir. Ég kom í heimsókn til þín af og til á Hrafn- istu og einnig á meðan þú bjóst á Dalbrautinni. Þú varst alltaf svo hlý og góð við mig þegar ég kom til þín. Þú sagðir starfsstúlkum á Hrafnistu að ég væri vinkona þín. Mér þótti vænt um að heyra þig segja það. Þakka þér fyrir samveruna, elsku Fríður mín. Ég veit að þér líður vel núna. Ég lagði á götu sem þykir þrengst. Mitt þol efldi reynslu styrkur. Og gullið þitt var það, sem lýsti lengst. Allra lengst inn í dauðans myrkur. (Sigurjón Friðjónsson.) Hafdís Harðardóttir. Nú hnígur sól að hafi. Eg horfi á gengið skeið. Tek föggur mínar í fatla. Fer mína leið. Þannig lauk afi minn, Sigurjón Friðjónsson, sinni síðustu ljóðabók, Heyrði ég í hamrinum, sem kom út 1944. Nú hefur Fríður, dóttir hans, tekið föggur sínar, síðust systkina sinna. Hún varð 101 árs. Fríður var alin upp í hópi tíu systkina sem voru næsta ólík hvert öðru. Þau áttu þó sameiginlega menntaþrá. Öll báru þau þingeyskri menningu um og upp úr aldamót- unum 1900 gott vitni, voru víðlesin, fylgdust vel með þjóðmálum og höfðu yndi af bókmenntum og fögr- um listum. Þau voru öll vel greind, samhaldssöm, vinnugefin og hrein- lát. Samviskusemi og aðgæsla í fjármálum var runnin þeim í merg. Fríður var meðalkona vexti, hrokkinhærð og dökk yfirlitum, augun grá, ekki smáfríð en svip- urinn hreinn og einarður. Hún var hljóðlát og lét fara lítið fyrir sér en var alveg ófeimin, a.m.k. á efri ár- um. Hún var líka ódeig að fara sína leið. Hún hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og fór í manngreinarálit. Henni fannst mest vert um þá sem henni þótti mann- tak í og hreinskiptir en hafði litla samúð með þeim er henni leist óduglegir og sérhlífnir. Samt rétti hún mörgum hjálparhönd, sem hjálpar voru þurfi, án þess að hafa mörg orð um það. Hún var jafn- aðarmanneskja og hafði áhuga á að konur tækju þátt í þjóðmálum þótt hún beitti sér ekki sjálf. Hún var þjóðernissinnuð og á móti erlendum afskiptum á Íslandi, elskaði ís- lenska náttúru og var svo annt um eigið frelsi að hún bast engum nán- um böndum nema þeim ættingjum sínum sem henni voru að skapi. Fríður leit á föður minn sem fóst- urson sinn þar sem hún var átta ár- um eldri og hafði litið til með hon- um barninu. Hún reyndist honum einnig drengur og studdi hann til náms. Hún tók á móti okkur fimm systkinunum. Móðir mín vildi enga hafa hjá sér við fæðingu nema Fríði sem hún taldi fumlausa og örugga ljósmóður. Fríður tók lengi á móti börnum í heimahúsum og hlúði þar að þeim og hafði eftirlit með ljósubörnunum eftir fæðinguna. Sumum fylgdist hún með fram á elliár sín enda höfðu nokkrar konur á Akureyri skírt dætur sínar í höf- uðið á henni til að sýna henni þakk- læti. Fríður hafði mikið yndi af ung- börnum og systkinabörnum sínum var hún góð án þess að vera þeim eftirlát á nokkurn hátt eða blanda sér í uppeldi þeirra þótt hún ætti það til að siða þau. Henni var um- hugað um framgang þeirra allra þótt hún gæti ekki leynt að þau voru henni miskær. Hún skráði all- ar barnsfæðingar meðal afkomenda systkina sinna fram á efstu ár og fylgdist með uppvexti barnanna. Ég man eftir Fríði barnið. Hún bjó þá enn á Akureyri. Síðan kom hún á hverju sumri norður til að heimsækja systkini sín og ættingja. Þá dvaldist hún alltaf nokkra daga hjá foreldrum mínum og heimsótti kunningjakonur sínar og ljósubörn. Fríður hafði lært á bíl um miðjan aldur og kom alltaf akandi norður. Voru ferðir hennar oft sögulegar því að henni lét miklu síður að fást við tæki en taka á móti börnum. Barninu þótti mér Fríður heldur köld í viðmóti enda hefur henni lík- lega þótt ég ekki nógu vel siðaður. Á háskólaárum mínum í Reykjavík kom hún oft í heimsókn til foreldra minna sem þá bjuggu þar og lærði ég þá að meta sinnu hennar, orð- heppni og gamansemi. Þá var hún hætt að starfa sem ljósmóðir en leit til með dóttursonum systkina sinna. Eftir að ég settist að í Reykjavík hringdi hún oft til að leita frétta að norðan og fá skýringar á því, sem hún var að lesa í vikublaðinu Degi á Akureyri, sem hún var áskrifandi að. Alltaf var gaman að ræða við hana því að hún fylgdist vel með þrátt fyrir háan aldur og var fróð- leiksfús. Mér þótti þó kenna kulda hjá henni eftir að ég ákvað að fara í framhaldsnám í Bandaríkjunum enda held ég henni hafi verið lítið um það stórveldi gefið eins og önn- ur. Sjálfræði og frelsi mat hún öllu gæðum meira. Af okkur systkinunum og ljósu- börnum hennar mat hún Þórunni, systur mína mest, og lagði við hana mesta rækt án þess að hún bæri hana á höndum sér frekar en aðra. Á efri árum leit hún til með Braga, syni hennar, rétt eins og hún hafði litið eftir bróður sínum ungum. Það varð síðan hlutskipti Þórunnar að aðstoða hana þegar ellin hefti sjálf- stæði hennar og sjálfsbjargarvið- leitni. Fríður bjó þó fram undir tí- rætt í eigin íbúð og hefði helst viljað enda aldur sinn þar en ekki á ellihæli þar sem hún kunni ekki við sig. Hjá Þórunni fagnaði hún hundrað ára afmæli sínu í hópi systkinadætra sinna. Þess naut hún. Síðan hrakaði heilsu hennar og síðasta árið hefur henni verið ann- arsamt. Fríður var aldamótabarn. Hún andaðist í svefni inn í vor nýrrar aldar. Vonandi er hún nú komin á vit foreldra sinna sem hana langaði að hitta aftur á öðru til- verustigi. Í leiði þeirra á Einars- stöðum í Reykjadal, þar sem hún lék sér barnið, verður aska hennar grafin. Ég þakka föðursystur minni og ljósu fyrir samveruna hérna megin. Sé hún kærst kvödd. Úlfar Bragason. FRÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.