Morgunblaðið - 21.05.2003, Síða 36

Morgunblaðið - 21.05.2003, Síða 36
MINNINGAR 36 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Svo segir í sálmi Valdimars Briem. Alli afi skildi okkur eftir með ótal margar góðar minningar. Ferðir á björtum sumardögum í Kaldársel og út á Reykjanes þegar við vorum börn eru okkur ógleymanlegar. Afi vissi hvar mátti finna ævintýralönd fyrir okkur þar sem við gátum leikið okkur allan daginn. Þegar keyrt var í gegn- um Hvalfjörðinn sagði hann okkur ótrúlegustu sögur um uppvaxtarár sín á Hvítanesi hjá Lilju móðursystur sinni. Einhvern veginn eru flestar minningarnar um afa tengdar sumri og sól og nú kveðjum við hann þegar sumarið er rétt að hefjast. Afi var kennari í húsgagnasmíði í Iðnskólanum. Stundum fengum við að fara í smíðastofuna til hans þar sem hann hefur kennt svo mörgum. Smíðastofan var heill ævintýraheim- ur og ef tími var til leyfði hann okkur að smíða eitthvað. Afi var með bestu húsgagnasmið- um og eru margir fagrir hlutir sem liggja eftir hann. Afi fylgdist alltaf vel með öllu því sem við höfum tekið okkur fyrir hendur, hvort sem það var nám eða aðrir viðburðir í lífinu sjálfu. Hann var stoltur yfir hverjum áfanga sem við náðum og ekki síst þegar við eign- uðumst börnin okkar. Afi var mjög trúaður og var öflugur félagsmaður hjá KFUM frá því hann var um 16 ára gamall. Við vitum að nú er afi kominn á góðan stað þar sem hann fær trú sína staðfesta. Við viljum þakka afa okkar fyrir þann góða tíma og minn- ingar sem við höfum átt með honum. Guð geymi þig, elsku afi. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð, Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þínar sonardætur, Hrönn og Klara. Þegar maður fréttir lát vinar er eins og skapist tómarúm innra með manni. Þannig varð mér við er ég heyrði lát vinar míns, Aðalsteins Thorarensen. Fyrstu kynni okkar eru mér afar minnisstæð, þegar við báðir vorum u.þ.b. tíu ára gamlir. Ég hafði fengið leyfi til að heimsækja bróður minn sem var í sveit hjá Kristjáni föð- urbróður mínum og Lilju konu hans. Þau bjuggu á Blönduholti í Kjós og voru fósturforeldrar Aðalsteins. Þetta var mín fyrsta ferð úr for- eldrahúsum og ég því lítill og kvíðinn, en sú tilfinning hvarf fljótt, því við- mótið var svo hlýtt og elskulegt hjá þessari fjölskyldu. Aðalsteinn tók mér strax sem félaga og fór að kynna mér þessa nýju veröld sem sveitin sannarlega var fyrir mér. Þegar við vorum báðir fluttir til Reykjavíkur sem unglingar endur- nýjaðast vinskapurinn. Við höfðum báðir uppgötvað KFUM sem góðan félagsskap. Alli gerðist félagi í Laug- arnesi en ég aftur á móti við Amt- mannsstíg. Ég var ekki búinn að vera lengi þar er Alli, sem fljótt gerðist foringi þar, bauð mér koma og taka þátt í útileikjum á svæðinu utan við litla húsið sem notast var við en á AÐALSTEINN THORARENSEN ✝ AðalsteinnKristinn Jónsson Thorarensen fæddist í Reykjavík 25. júní 1925. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut hinn 6. maí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hallgrímskirkju 12. maí. þessum árum voru margir drengir þarna samankomnir. Vináttan kom líka í ljós er lífsbaráttan var hvað hörðust. Aðalsteinn opnaði fyrir mér verk- stæðið sitt sem hann hafði stofnað með fé- lögum sínum í bílskúrn- um sínum. Þannig að ég gat smíðað kojur fyrir börnin mín og auðvitað var öll leiðsögn innifalin. Ég var oft seinna vel- kominn á þetta verk- stæði þar sem ég naut einstakrar vin- áttu. Á fullorðinsárum bundust svo vin- áttuböndin fastari böndum er við fór- um að starfa saman í aðaldeild KFUM þar sem komu fram ótrúlegir hæfileikar Aðalsteins við að halda þessum hópi saman með útsjónar- semi sem einkenndist mest af kær- leika til meðbræðra. Oft þurfti Alli að ræða um efni funda, bæði fyrir og eftir. Hann þurfti að vita hvernig þetta og hitt þætti öðrum, en hugmyndir hans voru óþrjótandi. En hversvegna vildi Að- alsteinn starfa svona mikið fyrir KFUM? Hann svaraði því sjálfur ein- hvern veginn á þessa leið: „Hér þekki ég marga og met eftir verðleikum en enginn þeirra heldur mér hér, aftur á móti kynntist ég Jesú Kristi hérna og honum vil ég fylgja.“ Við hjónin þökkum fyrir að hafa mátt eiga svo kæran vin sem Aðal- steinn var. Við vottum eiginkonu hans og börnum þeirra okkar dýpstu samúð. Einar Th. Magnússon. Hann Alli Thor er látinn. Er ég leit til hans nýlega á hjartadeild LSH var hann hinn hressasti, bjartsýnn, en þó raunsær. Hann hafði lagst inn vegna hjartaáfalls, líðanin hafði skánað í bili og hjartaskurðaðgerð var fyrirhuguð. Ætlunin var að bæta ástand hjartans. En það fór á annan veg. Ég var drengur í KFUM við Amt- mannstíg þegar ég fyrst kynntist Að- alsteini. 1949 urðu kynnin nánari er ég fékk sumarvinnu í Gamla Komp- aníinu og hann leiddi mig inn í heim trjánna. Ég þekkti birki og reyni, en nú bættust við hinar fjölbreytilegustu viðartegundir. Unnið var við að spón- leggja plötur og stjórnaði Aðalsteinn verkinu. Mér var þá strax ljóst hvílíkt valmenni hann var. Frá þessum tíma hafa leiðir okkar legið saman í misrík- um mæli en síðustu ár að jafnaði viku- lega á AD fundum í KFUM. Aðalsteinn var tæplega meðalmað- ur á hæð, grannvaxinn, hæglátur, lág- mæltur. Hann var ljós yfirlitum og fínlegur. Hann var fremur alvörugef- inn en átti samt ríka kímnigáfu. Hann gekk hreint til verks, hafði ákveðnar skoðanir og fylgdi vel eftir þeim mál- um sem hann tók að sér. Hugmynda- ríkur mjög og útsjónarsamur. Allt sem hann gerði var vel gert. Hann var áreiðanlegur og heilsteyptur kristinn maður. Aðalsteinn var einn frammámanna Iðnskólans í Reykjavík til fjölda ára og kom víða við í sögu skólas. Yfir- borðsmeðferð viðar var hans sér- grein. Gömul húsgögn endurnýjuðust í höndum hans, m.a. yfir 100 ára gam- alt rósaviðarborð á heimili mínu. Hann lét félagsmál til sín taka á ýms- um sviðum, t.d. í Kennarafélagi Iðn- skólans, í sóknar-nefndum þjóðkirkj- unnar, í Éljagangi og síðast en ekki síst innan vébanda KFUM í Reykja- vík. Stundum er sagt að maður komi í manns stað, það gildir ekki um Að- alstein. Það verður mikið skarð í vina- hópnum okkar í aðaldeild KFUM. Þar starfaði Aðalsteinn af lífi og sál, boðinn og búinn til að takast á við hin ýmsu verkefni. Nýlega lögðum við á ráðin um hauststarfið og var hann með tillögur og nýjungar í gangi. Hann lét sér annt um hvern einstak- ling í hópnum, mætti mönnum með skilningi, hlýju og kærleika. Honum var annt um kirkju og kristindóm, var sannur þjóðkirkjumaður og sannur KFUM-maður. Ungur að árum hafði hann eignast trú á frelsara okkar Jesú Krist. Hann bar honum stöðugt vitni, í orðum og gjörðum. Hann vildi breiða út ríki Drottins og sýndi það í daglegu lífi, með þátttöku í kristilegu starfi svo og með stuðningi við kristniboð erlendis. Dýrmætustu lífs- gildunum vildi hann koma til skila, því sem dygði best í lífi og dauða. Síðast þegar við töluðum saman sagði hann: „Ég er algjörlega í hendi Guðs, hvort sem ég fæ að lifa eitthvað áfram eða Guð tekur mig nú til sín.“ Um það leyti sem ég unglingurinn starfaði undir handarjaðri Aðalsteins kynnt- ist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Hrönn Skagfjörð. Þau voru saman í KFUM og KFUK, eignuðust 4 börn og hafa gengið saman lífsleiðina í yfir 50 ár. Við KFUM-menn þökkum fyrir Aðalstein Thorarensen og biðjum Hrönn, börnum þeirra og vanda- mönnum blessunar Drottins. Trú, von og kærleikur, þetta þrennt varir að eilífu. Aðalsteinn bar kærleikanum vitni. Ásgeir B. Ellertsson. Aðalsteinn Thorarensen hefur ver- ið kallaður heim til hinnar himnesku dýrðar, eftir stutta en snarpa sjúk- dómslegu. Reyndar mun hann hafa kennt sér meins um nokkurn tíma, en ekki leit- að læknis fyrr en um allt þraut. Lýsir það kannski manninum bet- ur en margt annað, að hugsa lítið um sjálfan sig, en þeim mun meira um aðra. Hann hafði lifandi áhuga á vel- ferð annarra og lét sér annt um þá, bæði í orði og verki. Aðalsteinn var húsgagnasmíða- meistari að mennt og kenndi lengst- um starfsævi sinnar við Iðnskólann í Reykjavík við góðan orðstír. Hann var með afbrigðum fær hús- gagnasmiður og liggja eftir hann margir dýrgripir á því sviði. Einnig var hann snillingur í að gera við og gera upp gamla muni, svo að þeir urðu eins og nýir. Aðalsteinn var virkur félagsmaður í KFUM, sat þar í fjölda stjórna og var um árabil virkur í barna- og ung- lingastarfi félaganna. Aðaldeild KFUM naut einnig starfa hans á sérstakan hátt, sem hann rækti af kostgæfni. Í sóknar- nefndum sat hann langa tíð. KFUM félagsskapurinn var Aðal- steini kær alla tíð og eftir hann liggur mörg listasmíðin í sumarbúðunum og starfsstöðvum félaganna, svo sem innrétting á kapellunni í Vatnaskógi og hönnun og smíði kirkjumuna í Friðrikskapellu. Sönnuðust þar orðin í 2. Mós. 31. 3.-4. þar sem segir: Ég hefi fyllt hann Guðs anda, bæði vísdómi, skilningi, kunnáttu og hvers konar hagleik, til þess að upphugsa listaverk og smíða ... Aðalsteinn var gæfumaður í einka- lífi, kvæntist sæmdarkonunni Hrönn Skagfjörð og eignuðust þau fjögur börn. Eru þeim hér færðar innilegar samúðarkveðjur. Þó að handaverk Aðalsteins munu lifa með okkur um ókomin ár mun samt minningin um góðan og heil- steyptan mann gera það enn frekar. Megi Guð blessa minningu Aðal- steins Thorarensen. Ég veit um himins björtu borg í bjarma sólu hærri. Þar er ei skuggi, synd né sorg, hvert sár er grætt og fjarri. (Sigurbjörn Einarsson.) Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyr- ir Drottin vorn Jesúm Krist. (1. Kor 15,57.) Bjarni Árnason. Björn G. Eiríksson. Í dag verður jarðsunginn frá Hall- grímskirkju Aðalsteinn Thorarensen kennari og einn af máttarstólpum í KFUM. Með sárum söknuði og þakk- læti kveð ég kæran vin og minn helsta ráðgjafa í málefnum félagsins. Far- sæld félagsins var honum ætíð efst í huga. Margar morgunstundirnar sát- um við saman á skrifstofu minni og skeggræddum fram og aftur um mál- efni KFUM. Aðalsteinn var maður sem kom fram grímulaus, hreinn og beinn og eins við alla. Hann fékk í vöggugjöf þá náð að hafa ekki þörf fyrir að vilja vera fyrstur og fremstur í öllu. Hann gerði sér snemma grein fyrir því að orð og verk þurfa og eiga að fara sam- an og að þeir sem mest tala hafa oft minnst að segja. Hann vissi að enginn heldur góða predikun yfir öðrum ef hann hefur ekki haldið hana fyrst yfir sjálfum sér. Þeir sem kynntust Aðalsteini urðu þess fljótt áskynja, að þar fór greind- ur, vandaður og úrræðagóður maður. Af sérstakri hógværð og prúð- mennsku kom hann sínum uppást- ungum á framfæri. Aldrei höfðu aðrir minnkun af tillögum eða úrlausnum Aðalsteins. Það var ekki í hans eðli að vilja hefja sig upp á kostnað annarra. Mér fannst Aðalsteinn alltaf vera vin- sælasti maðurinn í hópnum þegar KFUM menn komu saman. Vel- gengni AD deildar félagsins er ekki minnst honum að þakka. Drottinn hefur kallað Aðalstein heim. Ég þakka Guði mínum fyrir að gefa mér að eignast hann að vini og samferðamanni. KFUM og KFUK eiga honum og hans ástkæru eigin- konu, Hrönn Thorarensen, mikið að þakka. Fáir félagsmenn hafa lagt meira til starfsins, en þau sæmdar- hjón. Ég legg fjölskyldu hans í Guðs hendur, eiginkonuna, börnin, tengda- börnin og barnabörnin. Seinna þar sem enginn telur árin munum við Aðalsteinn hittast aftur og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Ef vér lifum, lifum við Drottni, og ef vér deyjum, deyjum vér Drottni. Hvort sem vér þess vegna lifum eða deyjum, þá erum vér Drottins. (Róm. 14.8.) Ómar Kristjánsson, stjórn- armaður í KFUM og KFUK. Kveðja úr Vatnaskógi Skógarmaðurinn Aðalsteinn Thor- arensen er látinn. Með honum áttum við margar góðar stundir í Vatna- skógi. Þar, eins og annars staðar í starfi KFUM, gaf hann okkur mikið. Hann miðlaði okkur með mildi og kærleika. Og ekki nóg með það, inn- réttingarnar í Kapellunni voru að mestum hluta hans verk. Þær eiga stóran þátt í því að gera Kapelluna að þeim helgidómi sem hún er í huga okkar flestra. Við þökkum Alla allt sem hann gaf okkur og biðjum fjöl- skyldu hans Guð blessunar. F.h. Skógarmanna KFUM, Ólafur Sverrisson. Það er ekki sjálfgefið að allt gangi snurðulaust þegar þrjár fjölskyldur búa í sama húsi. Þær þurfa að koma sér saman um fjölmarga hluti. Þau ár sem við hjónin bjuggum í sama húsi og Aðalsteinn og Hrönn bar aldrei skugga á. Strax frá fyrsta degi tóku þau okkur og börnum okkar af mikilli ástúð og elsku. Við nutum verkkunn- áttu og verkstjórnar Aðalsteins, hins hagleikna ráðagóða smiðs, sem kunni ráð við hverju vandamáli. Hver sem umgekkst þennan dagsfarsprúða og kurteisa mann skynjaði fljótt innri dýpt, sannfæringu og að hér fór heil- steyptur maður sem vissi hvað hann talaði um. Oft lék hæglátt bros á vörum hans og kímniglampi var í augunum. Hann var einlægur, sanntrúaður kristinn maður en flíkaði ekki trú sinni. Aðal- steinn Thorarensen var ekki maður sem vildi láta mikið á sér bera en það sópaði að honum. Blessuð sé minning góðs manns. Jónína María Kristjánsdóttir og Bogi Ágústsson. Kær vinur og mannvinur hefur kvatt um sinn. Ég minnist þess þegar drengjaskarinn mætti á samkomu í litla KFUM-húsið við Kirkjuteig sem okkur þótti stórt þá. Á móti okkur tók hópur ungra sveitarforingja undir forystu Aðalsteins Thorarensens og Björns Ólafssonar. Innan dyra litla hússins gleymdum við okkur við dýrðlegan söng og hlýddum á upp- byggilegt kristilegt efni svo sem framhaldssögu, frumsamdar sögur og margt fleira. Á hverjum fundi var færð mætingarskrá fyrir hverja sveit en hvert svæði hafði sína „kennitölu“. Við í Laugarneskamp og nágrenni vorum í sjöttu sveit. Svo mikið kapp var lagt á að mæta að fótbolti og ann- að var lagt til hliðar og hóparnir streymdu eins og sauðahjarðir úr hverfunum í litla húsið. Mætingin var gjarnan 90–100%. Ég veit að ég mæli fyrir munn allra strákanna þegar ég segi að stundirnar sem við áttum með þessum elskulegu leiðtogum hafi reynst okkur gott veganesti í lífinu þar sem við fengum fræðslu um vin- inn og leiðtogann Jesú Krist. Við höf- um því alltaf getað leitað til Jesú með vanda okkar á lífsleiðinni. Eftir að ég hóf kennslu við Iðnskól- ann í Reykjavík bauð Aðalsteinn mér að koma á fundi hjá eldri KFUM-fé- lögum. Þar ríkti sami andi og upp- bygging í kristinni trú og lífsgildum. Aðalsteinn lét verkin tala, hvort sem var í leik eða starfi, og taldi ekki tíma sinn sem fór til mannræktar. Hann sinnti nemendum sínum langt út fyrir greiddan launaseðil. Aðal- steinn reyndist mér einstaklega vel frá fyrstu tíð sem andlegur leiðtogi og vinur. Kæra Hrönn og fjölskylda, við Ásta vottum ykkur einlæga samúð við fráfall ykkar elskulega Aðalsteins. Guð blessi ykkur. Alfreð Harðarson. Við hófum samstarf í drengjastarfi K.F.U.M. í Laugarnesi í desember 1942. Sameiginleg trú okkar á frels- arann og félag okkar hafði þau áhrif á okkur að við þráðum að mega benda drengjum á vininn besta og leiðtog- ann Jesú Krist. Aðalsteinn bjó þá hjá uppeldisfor- eldrum sínum Lilju Jónasdóttur og Kristjáni Guðmundssyni, ásamt dætrum þeirra Katrínu og Kristínu í Laugarnesbænum er stóð á hólnum ofan við hinn forna kirkjugarð í Laug- arnesi. Hann tók að sér að stjórna og starfa með sjöttu sveit í hinni ungu deild félagsins á þessu svæði og komu strax í ljós sérstakir hæfileikar hans sem góðs starfsmanns á þessu sviði. Drengirnir fjölmenntu til hans og þótti vænt um hann sem foringja og hlýddu með athygli á sögur hans sem voru afar vinsælar og hið sama má segja um áheyrendurna er hann flutti þeim orðið úr Biblíunni. Á þessum árum stundaði Aðal- steinn nám í húsgagnasmíði sem hann lauk með sveinsprófi. Var hann afar flinkur og vandvirkur og bætti enda við menntun sína á námskeiðum og í Tækniháskólanum í Kaupmanna- höfn en þar jók hann við kunnáttu sína í sambandi við að spónleggja og að skera saman mismunandi viðar- spón. Þar lærði hann einnig að nota hitaðar vökvaþrýstar spónapressur, stór og fullkomin tæki er gátu press- að spón á hurðir og þiljur sem mikið tíðkuðust innanhúss í byggingum um árabil. Félögin okkar nutu, ásamt almenn- ingi, þessarar kunnáttu hans. Bæði í K.F.U.K. sumarbúðum í Vindáshlíð þar sem setustofan er fagurlega þilj- uð eftir Aðalstein og Hallgrímskirkj- an þar í Vindáshlíð sem Aðalsteinn klæddi fagurlega að innanverðu og endurgerði á sinn vandaða hátt, smíð- aði ný sæti í kirkjuna sem eru mun þægilegri en gömlu kirkjubekkirnir og mætti svona lengi telja. Í Vatna- skógi er bænhús sem ber meistara- handbragði Aðalsteins fagurt vitni í þiljunum og fögrum frágangi að inn- an. Enn vil ég nefna að þegar við byggðum samkomusal í Lauganess- hverfi bjó hann til þiljur til notkunar þar. Víða má sjá handbragð Aðal- steins, svo vandað og vel gert og af góðri kunnáttu. Aðalsteinn var K.F.U.M. maður af einlægni og staðfestu. Á löngu tíma- bili hin seinni ár vann hann mikið og árangursríkt starf fyrir Aðaldeild fé- lagsins sem honum tókst að reisa við upp úr lægð. Það var vissulega mikið afrek sem við erum honum þakklátir fyrir. Sjálfur er ég þakklátur fyrir að við fengum færi á að kveðjast sem góðir vinir í kærleika Krists. Sextíu ár varði samstarf okkar og bar aldrei skugga á vináttu okkar. Ég þakka Guði fyrir góðan bróður og samstarfsmann og bið ég Guð að blessa Hrönn og afkom- endur þeirra og systur Aðalsteins Katrínu og Kristínu. Bjarni Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.