Morgunblaðið - 21.05.2003, Síða 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HILMAR Björnsson, hinn reyndi
bakvörður KR-inga, leikur ekki
meira með þeim á þessu keppnis-
tímabili. Hilmar fór meiddur af
velli í fyrsta leik KR-inga í úrvals-
deildinni, gegn Þrótti, í fyrrakvöld,
eftir rúmar 20 mínútur og í gær
kom í ljós að krossband í hné er slit-
ið.
„Ég fer í speglun fljótlega en
læknarnir sögðu eftir myndatöku í
dag að þetta væri greinilegt kross-
bandsslit og það þýddi að ég væri
frá æfingum fram í febrúar á næsta
ári,“ sagði Hilmar við Morgunblað-
ið í gær.
Hilmar gekk til liðs við KR, sitt
gamla félag, í vetur eftir að hafa
leikið með FH síðustu árin. Hann er
einn reyndasti leikmaður úrvals-
deildarinnar, 34 ára og með 186
leiki í deildinni að baki. Hann segist
þó alls ekki vera hættur, þrátt fyrir
þetta áfall.
Verður að bíða enn eitt árið
„Ég hef verið heppinn á mínum
ferli og aldrei átt við nein hné-
meiðsli að stríða. Ég fékk högg á
hné snemma í leiknum en hélt
áfram og fann skömmu síðar að
eitthvað gaf sig þegar ég hreinsaði
boltann frá markinu. Ég æfði mjög
vel í allan vetur og spilaði alla leiki
á undirbúningstímabilinu og því er
biturt að lenda í þessu í fyrsta leik.
Stefnan var sú að verða loks Ís-
landsmeistari með KR en það verð-
ur bara að bíða í eitt ár til við-
bótar,“ sagði Hilmar Björnsson.
Hilmar Björnsson
með slitið krossband
AÐALSTEINN Eyjólfsson hefur
verið ráðinn þjálfari Íslandsmeist-
ara ÍBV í handknattleik kvenna og
er samningur hans til eins árs. Aðal-
steinn, sem er 26 ára gamall, þjálf-
aði lið Gróttu/KR í vetur og var þar
áður aðstoðarþjálfari hjá Stjörn-
unni. Auk þess að þjálfa meistara-
flokkinn hjá ÍBV á Aðalsteinn að
þjálfa unglingaflokk félagsins.
Unnur Sigmarsdóttir var við
stjórnvölinn hjá Eyjakonum í vetur
og undir hennar stjórn vann ÍBV
þrjá titla. Liðið varð Íslandsmeist-
ari, deildarmeistari og meistari
meistaranna og þá komust Eyjakon-
ur í bikarúrslit þar sem þær töpuðu
fyrir Haukum.
„Við ákváðum að fá þjálfara sem
gæti tekið að sér meistaraflokkinn
og unglingaflokkinn saman og þar
sem Unnur treysti sér ekki til að
bæta unglingaflokknum við var
ákveðið að semja við Aðalstein,“
sagði Þorvarður Þorvaldsson í
kvennaráði ÍBV við Morgunblaðið.
Ekki eru fyrirsjáanlegar miklar
breytingar á leikmannahópi ÍBV
fyrir næstu leiktíð. Þegar hefur ver-
ið samið við austurrísku leikmenn-
ina Birgitu Engl og Sylviu Strass
um að leika áfram með liðinu og þá
eru Alla Gokorian og Anna Yakova
með áframhaldandi samninga. Vig-
dís Sigurðardóttir markvörður og
línumaðurinn og fyrirliðinn Ingi-
björg Jónsdóttir hafa hins vegar
ákveðið að hætta og er líklegt að
skarð Vigdísar verði fyllt með
markverði sem kemur erlendis frá.
Aðalsteinn þjálfar meistaralið ÍBV
KYLFINGURINN Vijay Singh
hefur ákveðið að taka ekki
þátt í Colonial mótinu sem
hefst í Texas á fimmtudaginn.
Singh segist þreyttur eftir sig-
ur á Byron Nelson-mótinu um
helgina og þurfi frí. Singh
þvertekur fyrir það að ástæða
þess að hann dró sig úr keppni
tengist ummælum sínum um
þátttöku sænsku golfkon-
unnar Anniku Sörenstams.
„Ég var búinn að lofa eigin-
konu minni að ég myndi taka
mér frí tækist mér að ná fram
sigri á Byron Nelson-mótinu.
Það tókst og ég stend við gefið
loforð. Fyrir utan það er ég
orðinn þreyttur og þarf
hvíld,“ sagði Vijay Singh.
Singh
ekki með
í Texas
vítahittni liðsins. Dallas fékk 50 víta-
skot í leiknum og hitti úr öllum nema
einu á meðan San Antonio tók 48
vítaskot en hitti aðeins úr 31 einu
þeirra. Dirk Nowitzki var stigahæst-
ur í liði Dallas með 38 stig og næstur
honum kom Michael Finley með 26
stig. Hjá San Antonio var Tim Dunc-
an langstigahæstur með 40 stig en
hann brást bogalistin illa á lokasek-
úndum leiksins þegar hann misnot-
aði bæði vítaskot sín en þá hefði
hann getað minnkað forystu Dallas í
eitt stig.
Með sigrinum hefur Dallas náðheimavallarréttinum af San
Antonio en flestir körfuboltasér-
fræðingar eru á því að rimma San
Antonio og Dallas skeri úr um hvaða
lið muni sigra í NBA-deildinni, þar
sem bæði liðin eru talin mun sterkari
en New Jersey og Detroit og það
verði aðeins formsatriði fyrir sigur-
vegara Vesturdeildarinnar að ganga
frá andstæðingi sínum frá austur-
ströndinni.
Það sem lagði grunninn að sigri
Dallas gegn San Antonio var frábær
Lengi vel leit út fyrir öruggan sig-
ur heimamanna og forysta þeirra var
14 stig þegar rúmar átta mínútur
voru eftir af leiknum. Dallas tók þá
góða rispu og komst yfir 110:111
þegar 14 sekúndur voru leiksloka og
gestirnir létu þá forystu ekki af
hendi. „Það sem gerði gæfumuninn
fyrir okkur í þessum leik var að við
komust 50 sinnum á vítalínuna en
venjulega fáum við 10–11 vítaskot í
leik,“ sagði Dirk Nowitzki.
„Við töpuðum þessum leik vegna
lélegrar vítanýtingar á meðan leik-
menn Dallas virtust ekki geta mis-
notað vítaskot,“ sagði Tim Duncan.
Næsti leikur liðanna fer fram aðfara-
nótt fimmtudags og hann verður
leikinn á heimavelli San Antonio
Spurs.
AP
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki átti enn einn stórleikinn með Dallas og treður hér knettinum í körfu San
Antonio, eftir að hafa komist fram hjá Tim Duncan.
Leikmenn Dallas
sterkir á vítalínunni
DALLAS Mavericks sigraði San Antonio Spurs 110:113 á útivelli í
fyrsta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar að-
faranótt þriðjudags. Það lið sem sigrar fyrr í fjórum leikjum mun
spila við sigurvegara Austurdeildar en þar eru New Jersey Nets og
Detroit Pistons að etja kappi.
Reuters
Tim Duncan með 40 stig.
FREDI Bobic, framherji Hann-
over og þýska landsliðsins, segist
vera búinn að gera samkomulag við
Herthu Berlín um að leika með lið-
inu á næstu leiktíð. Bobic segir á
heimasíðu sinni að hann muni gera
tveggja ára samning við Berlínarlið-
ið og með möguleika á að bæta einu
ári til viðbótar.
BOBIC gekk í raðir Hannover á
síðasta ári og frammistaða hans með
liðinu varð til þess að Rudi Völler,
landsliðsþjálfari Þjóðverja, valdi
Bobic í landsliðið eftir nokkurra ára
hlé. Bobic, sem er 31 árs gamall, hef-
ur skorað 14 mörk í 27 leikjum
Hannover á leiktíðinni.
OTTMAR Hitzfeld, þjálfari
Bayern München, segir að forgangs-
verkefni sumarsins sé að ná í Miros-
lav Klose, sóknarmann Kaiserslaut-
ern. Klose sló í gegn í heimsmeist-
arakeppninni í fyrra með þýska
landsliðinu
NORÐMAÐURINN Trond Soll-
ied, þjálfari Club Brügge, hefur ver-
ið útnefndur þjálfari ársins í Belgíu
en undir hans stjórn varð liðið meist-
ari í ár. Timm Simons, miðjumaður
hjá Club Brügge, varð fyrir valinu
sem leikmaður ársins.
CHELSEA hefur gert austurríska
markverðinum Jürgen Macho hjá
Sunderland tilboð um að ganga til
liðs við félagið. Macho fékk ekki mik-
ið að spreyta sig með Sunderland á
nýafstaðinni leiktíð en þegar hann
hljóp í skarð Danans Thomasar Sør-
ensen þótti hann sýna lipur tilþrif.
JAMES Beattie, sóknarmaður
Southampton, og Harry Kewell, út-
herji Leeds, hafa báðir verið sterk-
lega orðaðir við Liverpool. Gérard
Houllier, knattspyrnustjóri Liver-
pool, hefur undanfarin ár keypt leik-
menn af meginlandinu sem hafa átt
erfitt með að spjara sig í hörkunni á
Englandi. Nú er Frakkinn sagður
vilja kaupa leikmenn sem hafa sann-
að sig í enska boltanum.
GHEORGHE Popescu, fyrrver-
andi fyrirliði rúmenska landsliðsins í
knattspyrnu, hefur ákveðið að leggja
skóna á hilluna og leikur á laugar-
daginn síðasta leik sinn á afar litrík-
um ferli. Popescu, sem leikur með
Hannover í Þýskalandi, átti eitt ár
eftir af samningi sínum. Hann sagði
að hann væri búinn að fá nóg af
knattspyrnunni eftir langan feril í
nokkrum löndum.
POPESCU er 36 ára gamall og er
af mörgum talinn einn af bestu
knattspyrnumönnum Rúmena ffram
til þessa. Hann lék sinn síðasta
landsleik þegar Rúmenar töpuðu
fyrir Dönum í undankeppni EM í
mars, 5:2. Liðin sem hann lék með á
keppnisferlinum voru Barcelona,
Tottenham, PSV, Galatasaray,
Leece og nú síðast Hannover.
FÓLK