Morgunblaðið - 21.05.2003, Side 45

Morgunblaðið - 21.05.2003, Side 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 45 FORRÁÐAMENN Stoke City segjast vera að bíða eftir svari frá sex leikmönnum sem öllum hefur verið boðinn nýr samningur eftir að samningar þeirra runnu út á dögunum. Leikmennirnir sem um ræðir eru Brynjar Björn Gunnarsson, James O’Connor, Clive Clarke, Pet- er Hoekstra, Brian Wilson og Marcus Hall. „Vitanlega taka leikmennirnir sinn tíma og sjá hvort eitthvað annað standi þeim til boða áður en þeir ákveða sig. Þetta er engin óskastaða þar sem við vilj- um eðlilega fá málin á hreint sem fyrst en svona er þetta bara í fótboltanum,“ segir John Rudge, yfirmað- ur knattspyrnumála hjá Stoke. Brynjar Björn sagði í samtali við Morgunblaðið á sunnudaginn að hann hefði ekki fengið neitt tilboð frá Stoke en hann hélt til Portúgals á mánudag til skoð- unar hjá portúgalska 1. deildar liðinu Braga. Stjórn- armaður Stoke sem Morgunblaðið ræddi við í gær sagði hins vegar að samningur Brynjars lægi tilbúinn að borðinu en ekki hefði verið hægt að koma honum í hendur leikmannsins áður en hann hélt til Portúgals. Bíða svars frá sex leikmönnum Stoke SVEINN Margeirsson, langhlaupari úr Skagafirði, hefur ákveðið að draga sig út úr Smáþjóðaleikliðinu sem keppir á Möltu í byrjun næsta mánaðar. Til stóð að Sveinn keppti í 3.000 m hindrunarhlaupi og 5.000 m hlaupi en þar sem aðeins líður hálftími á milli þessara hlaupa hefur Sveinn kosið að draga sig út úr hópnum og keppa þess í stað í sterku 3.000 m hindrunarhlaupi í Kaupmannahöfn á sama tíma. „Vissulega kom til greina að hlaupa eina grein á Smáþjóðaleikum, en miðað við aðstæður tók ég þá ákvörðun að sitja heima. Þar vegur þungt að Bowerman- mótið í Kaupmannahöfn er sterkt kvöld- mót þar sem má eiga von á hröðu hlaupi, á meðan Smáþjóðaleikarnir eru mót sem má meira eiga von á taktískum hlaupum. Þau eru auðvitað mikilvæg líka, en ég sækist mun meira eftir því að hlaupa hratt en að vinna hlaup þessa dagana,“ sagði Sveinn í samtali við Morgunblaðið. Guðmundur Karlsson, landsliðsþjálfari í frjálsíþróttum, sagðist hafa reynt að fá tímaseðlinum breytt þannig að hægt væri kom til móts við Svein. „Ég hafði ekki erindi sem erfiði,“ sagði Guðmundur og bætti því við að ákvörðun Sveins hefði verið tek- in í samvinnu við sig. Kallað á Guðmund Hólmar Í stað Sveins hefur Guð- mundur kallað inn í Smáþjóðaleikaliðið efni- legan spjótkastara úr Breiðabliki, Guðmund Hólmar Jónsson. Sveinn hleypur ekki á Smáþjóðaleikunum EFTIRTALDIR landsdómarar í knattspyrnu verða á ferðinni á knattspyrnuvöllunum í sumar og dæma landsdómarar A leiki í efstu deild. Landsdómarar A FIFA-dómarar Bragi Bergmann, Árroðanum Egill Már Markússon, Gróttu Gylfi Þór Orrason, Fram Kristinn Jakobsson, KR A-dómarar Erlendur Eiríksson, Fram Eyjólfur Ólafsson, Víkingi Garðar Örn Hinriksson, Þrótti R. Gísli H. Jóhannsson, Keflavík Jóhannes Valgeirsson, KA Magnús Þórisson, Keflavík Ólafur Ragnarsson, Hamri A-aðstoðardómarar FIFA-aðstoðardómarar Einar Guðmundsson, Aftureldingu Einar Sigurðsson, Breiðabliki Eyjólfur Finnsson, Fram Guðmundur H. Jónsson, Dalvík Gunnar Gylfason, Breiðabliki Pjetur Sigurðsson, Fram Sigurður Þór Þórsson, Aftureldingu A-aðstoðardómari Ingvar Guðfinnsson, Fylki Landsdómarar B B-dómarar Einar Örn Daníelsson, Víkingi Gunnar Sv. Gunnarsson, Huginn Hans Scheving, Val Kristján T. Sigurðsson, Reyni Á. Leiknir Ágústsson, ÍBV Magnús Kristinsson, FH Marínó Þorsteinsson, Reyni Á. Svanlaugur Þorsteinsson, Fram Örn Bjarnason, Stjörnunni B-aðstoðardómari Ásgrímur Á. Hinriksson, Þrótti R. Sigurður Óli Þórleifsson, Fjölni Landsdómarar C Áskell Þór Gíslason, KA Halldór Breiðfjörð, Breiðabliki Ingólfur Hjaltason, Leikni F. Ólafur Kjartansson, KR Reynir Þór Valgarðsson, KR Sverrir Pálmason, KA Sævar Jónsson, ÍA Þorvaldur Árnason, Fylki Þóroddur Hjaltalín, Þór C-aðstoðardómarar Jóhann Gunnarsson, Keflavík Oddbergur Eiríksson, Fram Dómarar sem verða á ferðinni  TÓLF þjálfarar voru styrktir í gær af Íþrótta- og ólympíusam- bandi Íslands, ÍSÍ. Átta þjálfarar fengu 50 þús. kr. styrk – Anna Día Erlingsdóttir, golf/íþróttir fatlaðra, Axel Stefánsson, handknattleikur, Benedikt Guðmundsson, körfu- knattleikur, Erlingur Birgir Richar- dsson, handknattleikur, Hilmar H. Gunnarsson, skvass, Ólafur Björns- son, skíði, Sonja Sif Jóhannsdóttir, frjálsar íþróttir, Vignir Þröstur Hlöðversson, blak. Þá fengu fjórir þjálfarar 25 þús. kr. hver: Andri H. Kristinsson, skylmingar, Ingunn Gunnlaugsdóttir, badminton, Ragn- ar Ingi Sigurðsson, skylmingar og Sigurður Blöndal, badminton.  SVEINN Margeirsson, langhlaup- ari úr Skagafirði, hefur æft og keppt með danska félagsliðinu Sportu síð- ustu mánuði jafnhliða háskólanámi í Kaupmannahöfn. Um næstu helgi keppir Sveinn með Spörtu í B-deild Evrópubikarkeppninnar sem fram fer í Belgrad. Hann verður á meðal þátttakenda í 3.000 m hindrunar- hlaup. Vonast Sveinn eftir að fá góða keppni þannig að hann geti saumað að 22 ára gömlu Íslandsmeti Jóns Diðrikssonar, UMSB, 8.49,58 mín.  DANIEL Smári Guðmundsson, úr FH, keppti í Kaupmannahafnar- maraþoninu um síðustu helgi. Hann hafnaði í 6. sæti í flokki 40–44 ára á 2 klukkustundum, 48 mínútum og 41 sekúndu.  STEFAN Hecker, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Þjóðverja í handknattleik, hefur áhuga á að framlengja samning sinn við Gumm- ersbach. Hecker er 44 ára gamall hefur leikið í þýsku 1. deildinni í handknattleik í 24 ár. Hann hefur leikið vel á yfirstandandi leiktíð og í raun gengið í endurnýjun lífdaga síð- an hann gekk til liðs við Gummers- bach eftir að hafa leikið með Essen í rúm 20 ár og leikið 561 leik fyrir fé- lagið. Það ræðst í næstu viku hvort forráðamenn Gummersbach gera eins árs samning við Hecker.  RÓBERT Gunnarsson og Tjörvi Ólafsson verða í eldlínunni í Evrópu- keppninni í handknattleik á næstu leiktíð því lið þeirra, Århus GF, hef- ur skráð sig til leiks í Áskorenda- keppni Evrópu.  ENGLENDINGURINN David Beckham, fyrirliði enska landsliðs- ins í knattspyrnu, spænski framherj- inn Raul Gonzalez og Frakkinn Zin- edine Zidane hafa allir tekið að sér það verkefni að vera sendiherrar sinna landa hvað varðar umsókn þeirra um Ólympíuleikana sem fram fara árið 2012. London, Madrid og París eru í hópi þeirra borga sem sækjast eftir hnossinu en næstu leik- ar fara fram í Aþenu árið 2004 og í Peking fjórum árum síðar. FÓLK Liðin eru 36 ár síðan Celtic vannEvrópukeppni, en þá stýrði Jock Stein Celtic til sigurs, 2:1, á Int- er Mílanó í úrslitum Evrópukeppni meistaraliða, forvera meistaradeild- arinnar, árið 1967 í Lissabon. Celtic braut þar með blað í breskri knatt- spyrnusögu og varð fyrst breskra liða til þess að hampa sigurlaunum í þessari keppni evrópskra félagsliða. Þremur árum seinna fékk Celtic færi á að endurtaka leikinn en tapaði fyr- ir Feyenoord í öðrum leik á öðrum stað, síðan hefur félagið ekki komist svo langt fyrr en nú. O’Neill segist að mörgu leyti ótt- ast hitann frekar en andstæðinginn, liðsmenn Porto, en leikið verður á leikvanginum sem kenndur er við Ól- ympíu í Sevilla-borg á Spáni þar sem sólin getur stungið fast og hitinn orð- ið óbærilegur, jafnvel síðdegis þegar flautað verður til leiks má reikna með a.m.k. þrjátíu stiga hita og heið- skíru veðri. „Þetta er bara eitthvað sem við verðum að búa okkur undir, við þessu verður ekkert gert,“ segir O’Neill, sem hefur verið með sveit sína í Sevilla síðan á sunnudaginn, til þess að venjast aðstæðum. O’Neill segir ennfremur að minn- ingar um glæstan sigur félagsins í Evrópukeppninni fyrir 36 árum séu frekar til þess fallnar að hvetja menn sína til dáða en letja. „Mínir frábæru leikmenn hafa komið liðinu í úrslitin. Hugarfar þeirra er rétt og ég er viss um að það er ekkert ósvipað og fyrir 36 árum,“ segir O’Neill sem hefur innan sinna raða einn leikmann úr sigurliðinu fyrir 36 árum, það er John Clark, sem nú er í hlutverki búningavarðar. „Þótt knattspyrnan hafi mikið breyst á þessum árum sem liðin eru síðan Clark var í eldlín- unni þá smitar hann menn af sigur- gleðinni og samstöðunni sem þá var innan Celtic.“ Meiðsli og leikbönn hrjá lið Porto sem einnig hefur verið í Sevilla und- anfarna daga við æfingar. Liðið hef- ur æft fyrir luktum dyrum. Vafi leik- ur á hvort Francisco Costinha, helsti miðvallarleikmaður liðsins, getur tekið þátt í leiknum. Þá er hinn sterki varnarmaður Nono Valente einnig meiddur og afar ósennilegt að hann verði í byrjunarliðinu. Helder Postiga, einn beittasti sóknarmaður Porto, verður örugglega fjarri góðu gamni eftir að hafa verið vikið af leikvelli gegn Lazio í undanúrslitun- um – hann verður að taka út leik- bann að þessu sinni. Stór hópur stuðningsmanna Porto hefur fylgt liðinu yfir landamærin til Sevilla og gera þeir ríkar kröfur til sigurs. Meðal annars hengdu þeir upp stór skilti á síðasta heimaleik Porto þar sem þess var krafist að leikmenn létu drauminn rætast, þ.e. að vinna Celtic. „Við eigum sama draum og stuðningsmennirnir,“ seg- ir Jose Mourinho, þjálfari Porto. Martin O’Neill, knattspyrnustjóri Celtic, óttast hitann meira en leikmenn Porto Hart barist í Sevilla „ÞAÐ er stórkostlegt að vera kominn í úrslitaleikinn og það er mikil eftirvænting vegna hans í brjóstum okkar allra þótt nokkur beygur sér einnig í okkur vegna hins gríðarlega hita sem verður þegar leik- urinn fer fram,“ segir Martin O’Neill, knattspyrnustjóri Celtic, sem stýrir sveit sinni gegn Porto í úrslitaleik UEFA-keppninnar í knatt- spyrnu í kvöld. Reuters Stuðningsmenn skoska liðsins Celtic eru fyrir löngu byrjaðir að undirbúa sig fyrir átökin í Sevilla og hafa fengið sér græna stráhatta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.