Morgunblaðið - 17.06.2003, Blaðsíða 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
20 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Bílaþjónusta
Til sölu eitt elsta og virtasta bílaþjónustufyrirtæki landsins. Er með
eigin innflutning. Hefur þjónustað bílaeigendur í yfir 50 ár. Fyrirtæki
sem allir þekkja og kannast við. Gott fyrirtæki á góðum stað og
góðu verði.
Bílabón
Til sölu gott fyrirtæki sem bónar og þrífur bíla. Er staðsett á frábær-
um stað og í samvinnu við þekkta bílasölu. Góð aðstaða. Hverfið er
fullt af vinnustöðum og bílum.
Nánari upplýsingar aðeins á skrifstofunni
fyrirtaeki.is
Öll fyrirtækjaskráin okkar er nú á netinu í mjög aðgengilegu formi.
Skoðið síðurnar okkar og hafið samband.
Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur
á hverjum tíma.
Einar Örn Reynisson, lögg. fasteignasali.
Sólheimar - 3 íb. - allt endurnýjað
Vorum að fá í sölu alla húseignina nr. 1 við Sólheima í Reykjavík. Um
er að ræða hús sem allt hefur verið standsett frá grunni, raflögn,
gluggar og gler, þak, innréttingar, gólfefni, böð og eldhús, skápar og
hurðir. Í húsinu eru þrjár samþykktar íbúðir sem eru til afhendingar
strax. Parket er á gólfum og vandaðar innréttingar, hurðir, skápar o.fl.
Jarðhæð u.þ.b. 84 fm 2-3 herbergja íbúð með sérinngangi. V. 12,9
millj. Miðhæð u.þ.b. 115 fm auk 28 fm bílskúrs. Arinn í holi og góðar
svalir auk sólpalls. V. 19,5 millj. Þakhæð u.þ.b. 85 fm 4ra herbergja
með svölum og útsýni. 3412
ⓦ
Upplýsingar hjá
umboðsmanni í
símum 421 3463
og 820 3463.
Blaðberi óskast
strax í Vallar-
hverfi II í Keflavíkⓦ Blaðberi óskast í
afleysingar í
miðbæ Reykjavíkur
HÓTEL Plaza við Aðal-
stræti í miðborg Reykja-
víkur var opnað um
helgina og þar eru alls
81 herbergi, eins eða
tveggja manna. Aðaleig-
endur eru fjórir og er
Stefán Örn Þórisson hót-
elstjóri einn þeirra en
Hótel Plaza er rekið und-
ir hatti Íslandshótela sem
m.a. eiga og reka nokkur
hótel í Reykjavík og Hót-
el Örk.
Fyrirtækið Lindarvatn
reisti hótelið og hefur
Hótel Plaza húsnæðið á
leigu til 15 ára. Bygg-
ingin er í raun þrjú hús, sex
hæða nýtt hús við framhlið göt-
unnar þar sem er móttaka, veit-
ingasalur fyrir morgunverð og
nokkur herbergi og tvö þriggja
hæða hús upp með Fischersundi
sem hafa verið endurbyggð að
verulegu leyti þar sem flest her-
bergin eru. Í kjallara er ráðgert
að taka í notkun með haustinu
um 100 manna ráðstefnusal.
Stefán Örn Þórisson hótelstjóri
segir að styrkur hótelsins sé stað-
setningin í hjarta borgarinnar.
Það sé aðdráttaraflið sem ferða-
menn meti mikils, m.a. vegna ná-
lægðar við veitingastaði og lífið í
borginni. Hann segir hótelið vel
bókað fram eftir árinu og að
markaðsstarf hafi byrjað fyrir
síðustu áramót. Hann segir for-
ráðamenn fyrirtækisins hafa sótt
ferðakaupstefnur og tekið upp
samband við innlendar og erlend-
ar ferðaskrifstofur.
Nokkuð er einnig um bókanir
um Netið, segir Stefán Örn. Hann
segir Íslandshótel geta boðið fjöl-
breytta gistimöguleika, svefn-
pokapláss, gistingu með eldunar-
aðstöðu og síðan Hótel Plaza sem
hann kallar flaggskip fyrirtæk-
isins en Stefán er einnig fram-
kvæmdastjóri Íslandshótela.
Morgunblaðið/SverrirGestamóttaka hótelsins er á jarðhæðinni og þar er einnig morgunverðarsalur og lítill bar fyrir hótelgesti.
Nýtt hótel hefur risið við Aðalstræti með 81 herbergi
Segir staðsetn-
inguna aðal-
aðdráttaraflið
Götumyndin við Ingólfstorg og Aðalstræti hefur breyst nokkuð með til-
komu nýrra bygginga sem reistar hafa verið við götuna síðustu árin.
Herbergin eru eins eða tveggja manna. Hér
er eitt af þeim stærri tveggja manna.
Miðborgin
FJÖLBREYTT dagskrá verð-
ur í hátíðahöldunum í dag, 17.
júní. Dagskráin sem hefst kl.
10 verður með hefðbundnum
hætti fram að hádegi í kirkju-
garðinum við Suðurgötu og á
Austurvelli þar sem lagður er
blómsveigur að gröf og styttu
Jóns Sigurðssonar. Ávörp
flytja Davíð Oddsson og Anna
Kristinsdóttir og fjallkonan
flytur hátíðarljóð. Skrúðgöng-
ur leggja af stað frá Hlemmi
kl. 13.40 og frá Hagatorgi kl.
13.45. Lúðrasveitir og skátar
fara fyrir göngunum.
Fjölskyldudagskrá hefst á
Arnarhóli kl. 14. Flutt verða
atriði úr barnaleikritum og
dans- og sönghópar koma
fram.
Dans og tónlist
Á Ingólfstorgi hefst blönduð
fjölskyldudagskrá kl. 14 og á
Austurvelli verður sýndur
dans. Í Ráðhúsi Reykjavíkur
og í Iðnó eru tónleikar. Í Hall-
argarði og Hljómskálagarði
verður Skátaland með leik-
tæki, þrautabrautir og fleira.
Sýnd verður glíma, fimleikar,
fallhlífastökk og skylmingar,
Tóti trúður treður upp og spá-
konur spá í garðhýsinu.
Listhópar ungs fólks frá
Hinu húsinu verða í Lækjar-
götu, Austurstræti, Fríkirkju-
vegi, við Iðnó og víðar um
miðbæinn. Götuleikhúsið tekur
þátt í skrúðgöngunni og sýnir
við MR og Brúðubíllinn verður
á útitaflinu á Torfunni kl. 14.
Fornbílaklúbburinn ekur um
miðborgina og sýnir fornbíla á
miðbakka Reykjavíkurhafnar
og þar verður einnig trukka-
dráttur í keppninni Sterkasti
maður Íslands. Barnadagskrá
verður í Landfógetagarðinum
bak við Austurstræti 20 á
vegum Miðborgarstarfs
KFUM&K og í Hafnarhúsinu
verða sungin barnalög.
Um kvöldið kl. 19 hefjast
tónleikar á Arnarhóli. Á Ing-
ólfstorgi hefst dansleikur kl. 21
og gospeltónleikar verða í
Landfógetagarðinum.
Dagskrá þjóðhátíðar í
Reykjavík er birt á vefnum, á
slóðinni www.17juni.is.
Margt
í boði
á þjóð-
hátíð
Reykjavík
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050