Morgunblaðið - 17.06.2003, Side 44
HESTAR
44 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Reiðfatnaður
Náttúrulegur lífsstíll
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
SIGURÐUR V. Matthíasson var
fyrstur til að tryggja sér sæti í liðinu
á stóðhestinum Fálka frá Sauðár-
króki en þeir eru sem kunnugt er Ís-
landsmeistarar í greininni. Þeir
stóðu efstir í báðum umferðum með
7,03 í þeirri fyrri og 7,37 í seinni um-
ferð. Það virðist nokkuð ljóst að Fálki
sé afgerandi sterkasti fimmgangs-
hestur sem völ er á hér á landi um
þessar mundir. Eftir að Sigurði tókst
að bæta töltið í hestinum hefur eng-
inn átt möguleika gegn þeim og verð-
ur að telja hann mjög góðan kost í
fimmgangnum og vænlegan sigur-
kandídat.
Berglind Ragnarsdóttir og Bassi
frá Möðruvöllum tryggðu sér sæti í
fjórgangi en þau voru í öðru sæti eftir
fyrri umferð með 7,03 á eftir Hauki
Tryggvasyni og Dáð frá Halldórs-
stöðum sem hlutu 7,07. Ekki gekk
eins vel hjá þeim í seinni umferð er
þau hlutu 6,90. Í seinni umferð var
Berglind og Bassi með 7,10. Það
gekk hins vegar betur hjá Hauki og
Dáð í töltinu þar sem þau voru efst í
báðum umferðum með 7,60 og 7,90.
Það má því ljóst vera að nú þegar eru
komnir tveir sterkir keppendur í
fjórganginn í liðið því ætla má að
bæði Haukur og Berglind teljist sig-
urstrangleg í fjórgangi þegar á hólm-
inn verður komið í Danmörku.
Systkini í landsliðið
Bróðir Berglindar, Sveinn Ragn-
arsson, tryggði sér nú sæti í 250
metra skeiði á Skjóna frá Hofi en
þeir náðu besta tímanum í fjórum
sprettum á úrtökunni 22,50 sek.
Þetta mun í fyrsta skipti sem systkini
skipa tvö sæti í íslenska landsliðinu í
hestaíþróttum. Skjóni og Sveinn
náðu að vísu betri tíma, 22,42 sek. En
sá tími var dæmdur ógildur þar sem
Sveinn notaðist við einum aðstoðar-
manni of mikið til að koma klárnum
inn í rásbásinn. En það kom ekki að
sök og þeir félagar hlutu brautar-
gengi í liðið.
Tvö ungmenni voru valin í liðið en
þriðja ungmennasætið mun
landsliðseinvaldurinn velja síðar í.
Daníel Ingi Smárason keppti á Tyson
frá Búlandi og koma þeir inn í liðið
fyrir góða frammistöðu í fjórgangi.
Eyjólfur Þorsteinsson keppti á
hryssunni Súlu frá Hóli í fimmgangi.
Í reglum um val á landsliði kemur
fram að landsliðseinvaldi sé heimilt
að gera allar þær breytingar sem
hann telur þurfa til að tryggja að sem
sterkasta lið mæti til leiks á heims-
meistaramótið. Það þýðir að þessir
sex keppendur sem nú hafa valið
gætu átt á hættu að falla út þótt
svona fyrirfram séu litlar líkur á
slíku. Þrjú sæti eru enn laus í aðallið-
inu og því langt í frá að spennan sé
liðin frá. Um síðustu helgi fór Sig-
urður landsliðseinvaldur á mót í
Saarvellingen í Þýskalandi og verður
hann í Danmörku næstu helgi að
skoða tvo „heita“ keppendur þar í
landi. Eru það Jóhann R. Skúlason
sem hefur meðal annars verið að
keppa á Snarpi frá Kjartansstöðum
og þykir vænlegur kostur í töltið. Þá
gæti Guðmundur Björgvinsson einn-
ig boðið upp á eitthvað athyglisvert.
Reynir Aðalsteinsson er með hinn
mikla vekring Sprengi-Hvell frá
Efstadal í Svíþjóð og einnig er Guð-
mundur Einarsson að gera góða hluti
með Hersi frá Hvítárholti í Svíþjóð.
Upplýsti Sigurður að hann hefði átt
samtal við Reyni eftir að tímarnir úr
úrtökunni hefðu legið fyrir og þá
hefði Reynir spurt Sigurð hvað hefði
tafið vekringana á sprettinum. Þann-
ig að ætla má að Reynir og Sprengi-
Hvellur geti boðið upp á betri tíma og
væri það vel. Þá sagði Sigurður að
Guðmundur og Hersir hefðu farið á
tíma undir 22 sek. nýlega og því væru
þeir einnig sterklega inni í myndinni.
Heimsmeistararnir
standast gæðakröfur
Nú stefnir í að sent verði út fjöl-
mennasta lið sem sent hefur verið frá
Íslandi á heimsmeistaramót því nú
bætast við þrjú ungmenni eins og áð-
ur sagði en þar fyrir utan er hið hefð-
bundna sjö manna lið. Þá hafa
ríkjandi heimsmeistarar rétt til að
mæta og eftir því sem næst verður
komist hyggjast hinir þrír meistarar
Íslands frá síðasta móti í hyggju að
mæta. Eru það Hafliði Halldórsson
með Ásdísi frá Lækjarbotnum, Vign-
ir Jónasson með sænskfæddan fimm-
gangshest sem sagður er firnasterk-
ur að sögn Sigurðar einvalds. Þá er
Styrmir Árnason í mjög góðum mál-
um með fjórgangshestinn Hamar frá
Þúfu sem er albróðir þeirra Nagla og
Sveins Hervars frá Þúfu. Sú breyting
hefur orðið á að nú eru meistararnir
ekki lengur bundnir af því að mæta
með sömu hesta og þeir unnu titlana
á og sömuleiðis geta þeir valið sér
keppnisgreinar. Ekki er þó svo að
skilja að þeir geti komið með hvaða
hest sem þeim þóknast því allt verð-
ur að fara í gegnum hið smásmugu-
lega gæðamat einvaldar. Sagði Sig-
urður að á þessari stundu sýndist
honum að þeir félagar stæðust þetta
gæðamat og því ekki annað að sjá en
þeir væru á leiðinni á HM.
En það eru opnar gáttir enn á
landsliðinu og má gera ráð fyrir því
að þá sem dreymir um að vinna
frækileg afrek í Herning í Danmörku
fyrir hönd Íslands muni á næstu vik-
um gera hosur sínar grænar fyrir
landsliðseinvaldi með þátttöku á
þeim mótum sem fram undan eru.
Þar eru tvö mót sem um ræðir, Ís-
landsmótin tvö. Um næstu helgi
verður Íslandsmót yngri flokka á
Varmárbökkum í Mosfellsbæ og þar
beinast augu manna í þessum efnum
að ungmennaflokknum og svo viku
seinna verður Íslandsmót eldri
flokka á Selfossi. Helgina eftir Ís-
landsmótið fer Sigurður á þýska
meistaramótið og að því loknu mun
hann draga sig undir þykkan feld um
stundarsakir og að því loknu gefa sitt
lokasvar.
Kynslóðaskipti í landsliðinu
Ætla má að allnokkrir þeirra sem
tóku þátt í úrtökunni séu nokkuð
volgir. Í töltinu væri það helst Guð-
mar Þór Pétursson á Hreim frá Hof-
stöðum en einnig Þorvaldur Á. Þor-
valdsson á Spaða frá Hafra-
fellstungu. Af ungmennum má ætla
að Anna Kristín Kristinsdóttir sé
býsna volg sem töltari en hún varð
efst í úrtökunni á þeim vettvangi. Að-
vitað mætti nefna fleiri nöfn til sög-
unnar en áður en skilið er við þessa
umræðu má geta þess að staða Sig-
urbjörns Bárðarsonar er ekki mjög
sterk þessa stundina. Sigurbjörn hef-
ur sem kunnugt er verið einn alsterk-
asti keppandi Íslands á heimsmeist-
aramótum gegnum tíðina. Fyrir tvö
síðustu mótin hefur honum þó ekki
tekist að vinna sér sæti í liðinu á nýj-
um hesti en þess í stað nýtt rétt sinn
sem heimsmeistari og mætt með
Gordon frá Stóru-Ásgeirsá til leiks-
ins. Verður spennandi að sjá hvort
Sigurbjörn lumi nú á einhverjum
trompum uppi í erminni og tryggi sér
sæti á elleftu stundu. Nú hefur hann
ekki upp á heimsmeistararéttinn að
hlaupa eins og síðustu tvö mótin. Það
verður sjónarsviptir ef hann ekki
nær sæti en vissulega má glöggt
greina kynslóðaskipti á þessum vett-
vangi og sem stendur er Sveinn
Ragnarsson aldursforseti þeirra sem
komnir eru með annan fótinn í liðið
og er hann ekki aldraður maður, að-
eins 34 ára.
Landsliðseinvaldur á faraldsfæti í leit að góðum liðsmönnum
Drög lögð að
sigursælu
landsliði
Morgunblaðið/Vakri
Vísir að íslenska landsliðinu 2003, frá vinstri Sigurður og Fálki, Berglind og Bassi, Haukur og Dáð, Sveinn og
Skjóni, Daníel og Tyson og Eyjólfur og Súla.
Aldursforseti íslenska liðsins enn sem komið er, Sveinn Ragnarsson á hin-
um jarpa Skjóna, að tryggja sér sæti í liðinu.
Fyrsta skrefið var stigið í gær í vali á landsliði Ís-
lands að lokinni tvöfaldri úrtökukeppni sem háð
var í Glaðheimum í Kópavogi. Valdimar Krist-
insson fylgdist með þegar landsliðseinvaldurinn
Sigurður Sæmundsson tilkynnti nöfn þeirra fjög-
urra sem fyrst tryggðu sér sæti í liðinu ásamt
tveimur ungmennum sem nú fá í fyrsta sinn tæki-
færi til að spreyta sig á heimsmeistaramóti.
A-flokkur
1. Kvistur frá Hvolsvelli, kn.:
Þórður Þorgeirsson, eig.: Þormar
Andrésson, 8,65.
2. Flengur frá Böðmóðsstöðum,
kn.: Sigurður Sigurðarson, eig.:
Jón Þ. Pálsson og Sigurður Sig-
urðarson, 8,46.
3. Gjóska frá Miðengi, kn.:
Vignir Siggeirsson, eig.: Vignir
Siggeirsson og Helga Gúst-
afsdóttir, 8,58.
4. Aron frá Barkarstöðum, kn.:
Þórður Þorgeirsson/Kristjón
Kristjánsson, eig.: Kvistir ehf.,
8,47.
5. Júlía frá Hvolsvelli, kn.: Elv-
ar Þormarsson, eig.: Þormar
Andrésson, 8,53.
B-flokkur
1. Nagli frá Þúfu, kn.: Þórður
Þorgeirsson, eig.:Kvistir ehf., 8,72.
2. Ljúfur frá Lækjarbotnum,
kn.: Hallgrímur Birkisson,
eig.: Guðlaugur Kristmundsson,
8,67.
3. Gellir frá Árbakka, kn.: Sig-
urður Sigurðarson, eig.: Jakop
Hansen, 8,54.
4. Vinur frá Minni-Velli, kn.:
Sigurður Sigurðarson/Sigurður Ó.
Kristinsson, eig.: Sigurður Sigurð-
arson, 8,51.
5. Sindri frá Laugardælum, kn.
og eig.: Haraldur Arngrímsson,
8,53.
A-flokkur áhugamanna
1. Ýmir frá Holtsmúla, kn.: Lís-
beth Sæmundsson, eig.: Holts-
múlabúið, 8,47.
2. Hekla frá Skammbeins-
stöðum, kn.: Elín H. Sigurðar-
dóttir, eig.: Holtsmúlabúið, 7,97.
3. Fengur frá Bólstað, kn.: Hall-
dóra A. Ómarsdóttir, eig.: Svavar
Ólafsson, 7,89.
4. Mylla frá Bólstað, kn.: Björk
Svavarsdóttir, eig.: Svavar Ólafs-
son, 7,84.
5. Reykur frá Hólmum, kn.:
Haukur G. Kristjánsson, eig.:
Haukur G. Kristjánsson, 7,93.
B-flokkur áhugamanna
1. Linda frá Hvolsvelli, kn.:
Heiðar Þormarsson, eig.: Þormar
Andrésson, 8,38.
2. Kliðja frá Litlu-Tungu, kn.:
Helga B. Helgadóttir, eig.:Vil-
hjálmur Þórarinsson, 8,26.
3. Bragur frá Eyrarbakka, kn.:
Nadine Semmler, eig.: Laufey G.
Kristinsdóttir og Ólafur Pálsson,
8,14.
4. Eydís frá Djúpadal, kn.:
Helga B. Helgadóttir/Hekla K.
Kristinsdóttir, eig.: Benedikt Val-
berg, 8,22.
5. Gustur frá Hólmum, kn. og
eig.: Haukur G. Kristjánsson, 8,09.
Unglingar
1. Sæli frá Holtsmúla, kn.: Elín
H. Sigurðardóttir, eig.: Holts-
múlabúið, 8,71.
2. Sókrates frá Bólstað, kn.:
Halldóra A. Ómarsdóttir, eig.:
Svavar Ólafsson, 8,49.
3. Vopni frá V-Fíflholti, kn.:
Hildur Ágústsdóttir, eig.: Hildur
Ágústsdóttir, 8,34.
4. Faxi frá Súluholti 3, kn.:
Bergrún Ingólfsdóttir, eig.:Ingunn
B. Ingólfsdóttir, 8,26.
5. Rák frá Búðardal, kn. og eig.:
Lóa D. Smáradóttir, 8,32.
Börn
1. Vígar frá Skarði, kn.: Rakel
N. Kristinsdóttir, eig.: Kristinn
Guðnason, 9,02.
2. Assa frá Ölfusholti, kn.:
Hekla K. Kristinsdóttir, eig.:
Marjolýn Tiepen, 8,65.
3. Tomma frá Feti, kn.: Ragn-
heiður Hallgrímsdóttir, eig.: Hall-
grímur Birkisson, 8,58.
4. Gletta frá Bakkakoti, kn.:
Ragnheiður H. Ársælsdóttir, eig.:
Ársæll Jónsson, 8,27.
5. Biskup frá Viðborðsseli, kn.:
Ásdís H. Árnadóttir, eig.: Vignir
Siggeirsson og Helga L. Bergs-
dóttir, 8,28.
100 m flugskeið
1. Feykivindur, kn.: Daníel I.
Smárason, 7,8 sek.
2. Fölvi frá Hafsteinsstöðum,
kn.: Sigurður Sigurðarson, 8 sek.
3. Stör frá Saltvík, kn.: Logi
Laxdal, 8 sek.
Gæðingamót Geysis