Morgunblaðið - 17.06.2003, Blaðsíða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2003 47
Miriam söng líka
Þau mistök urðu í umsögn um tón-
leika Gospelkórs Reykjavíkur, sem
birtist í blaðinu síðastliðinn laugar-
dag, að nafn Miriam Óskarsdóttur féll
niður í upptalningu á einsöngvurum á
tónleikunum. Miriam söng einsöng í
laginu He Brought Me This Far og
var frammistaða hennar með slíkum
ágætum að frægustu soul-drottning-
ar vestan hafs væru fullsæmdar af.
Þátttakendur úr ýmsum áttum
Í frétt af leiðbeinendanámskeiði á
vegum ÓB-ráðgjafar í blaðinu á
sunnudag var ranghermt að leiðbein-
endur kæmu úr ýmsum starfsstéttum
sem þar voru taldar upp. Hið rétta er
að þátttakendur eru úr ýmsum stétt-
um, svo sem hjúkrunarfræðinga, sál-
fræðinga, félagsráðgjafa, skólastjórn-
enda og fleiri. Beðist er velvirðingar á
rangherminu.
LEIÐRÉTT
HELGIN var frekar ró-
leg hjá lögreglu, fáir á
ferli í miðbænum á föstu-
dagskvöld en töluvert
fleiri á laugardagskvöld. Hafði lög-
reglan afskipti af fólki vegna ölvunar-
ástands, slagsmála og líkamsárása.
Tilkynnt var um 34 umferðaróhöpp
um helgina. Í a.m.k. fjórum tilvikum
varð fólk fyrir meiðslum en ekki al-
varlegum að því er talið var.
26 ökumenn teknir fyrir of hraðan
akstur og 13 fyrir meintan ölvunar-
akstur, en lögregla fékk fjölda til-
kynninga frá almenningi um stúta við
stýrið.
Tilkynnt var um 11 innbrot og 22
þjófnaði um helgina. Þá var tilkynnt
um 23 skemmdarverk.
Stuttu síðar var tilkynnt um vinnu-
slys í malarnámu skammt utan Hval-
fjarðarvegar. Þar varð maður fyrir
sliskju sem verið var að færa niður á
festivagni. Hinn slasaði marðist og
hlaut skurði á höfði og fótlegg og var
hann fluttur á slysadeild.
Síðdegis á föstudag var farið í hús-
leit í tvö hús í Grafarholti og Graf-
arvogi þar sem grunur var um fíkni-
efnaframleiðslu. Kannabisplöntur í
ræktun fundust á báðum stöðum og
kannabis á ýmsum vinnslustigum.
Einn maður var handtekinn í kjölfar-
ið.
Þrjár íkveikjur voru tilkynntar í
Mosfellsbæ á föstudagskvöld og urðu
þar tvenn biðskýli og auglýsingaskilti
fyrir barðinu á brennuvörgum.
Frekar fáir voru á ferli í miðborg-
inni aðfaranótt laugardags en tölu-
vert var um slagsmál og pústra, sér-
staklega þegar leið á nóttina.
Sagði tíu menn hafa ráðist
á sig og bróður sinn
Lögregla var kölluð til vegna
tveggja stúlkna sem höfðu verið að
slást með þeim afleiðingum að önnur
þeirra hlaut skurð á höfði og hin slas-
aðist eitthvað minna. Þær fóru báðar
á slysadeild. Um sexleytið ók lög-
regla fram á blóðugan mann sem
sagði tíu menn hafa veist að sér og
bróður sínum. Maðurinn er að öllum
líkindum handarbrotinn og tennur
brotnuðu í bróður hans, auk annarra
áverka sem þeir hlutu. Lögreglan ók
hinum slasaða á slysadeild en bróðir
hans var þegar farinn þangað. Að
sögn mannsins var árásin tilefnislaus
og árásarmennirnir ókunnir.
Um miðjan dag á laugardag kom
íbúi í Breiðholti að tveimur mönnum
við innbrot og þjófnað á heimili hans.
Mennirnir flúðu þegar þeir urðu hús-
ráðenda varir. Þeir höfðu gert sig
heimakomna, sótt ferðatöskur í
geymslu og voru truflaðir í miðjum
klíðum við að pakka símum, mynda-
vélum og fleira dóti í töskurnar.
Rétt eftir miðnætti á laugardags-
kvöld var farþegi í bifreið tekinn fyrir
að skjóta með loftbyssu á Laugavegi.
Maðurinn skaut þremur skotum á
rúðu í verslun án þess að skemmdir
hlytust af. Maðurinn hafði ekki leyfi
fyrir byssunni og var hún tekin af
honum.
Rúmlega tvö var lögregla kölluð í
Grafarvoginn vegna pilts sem kastaði
upp blóði eftir neyslu á landa. Pilt-
urinn var fluttur á slysadeild. Lög-
regla vill ítreka hættur landadrykkju
þar sem oft er ýmsum efnum blandað
í landa sem skaðleg geta verið heilsu
manna og neytendur hafa ekki hug-
mynd um að leynist í drykknum.
Úr dagbók lögreglunnar 13.–16. júní
Afskipti af fólki vegna
ölvunar og líkamsárása
Ódýrt fyrir alla! LYNGHÁLSI 4 - SKÚTUVOGI 2
LÁGT OG
STÖÐUGT
VÖRUVERÐ!
Ný sending komin í verslanir okkar
OPIÐ Í DAG 17. JÚNÍ KL:11-20
14900-
REIÐHJÓL
2 LITIR: SILFUR & SVART,
26“ hjól - 2 demparar, fullkominn
fjöðrunarbúnaður aftan og framan.
Bretti aftan og framan.
Shimano - gírar 21. V - bremsukerfi.
Ódýrt fyrir alla!Ódýrt fyrir alla!
GLEÐILEGAN ÞJÓÐHÁTÍÐARDAG
Ganga og staðarskoðun í Viðey
verður í dag. Ferðin hefst kl. 19.30 á
siglingu yfir Sundið sem kostar 500
kr. fyrir fullorðna og lýkur ferðinni
með kaffisölu í Viðeyjarstofu.
Fjallað verður m.a. um Skúla Magn-
ússon landfógeta og tíma Stephen-
senættarinnar í Viðey.
Jóhann Hjartarson teflir við börn í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í
dag, 17. júní kl. 11, á vegum Hróks-
ins. Þátttaka í fjölteflinu við Jóhann
Hjartarson er ókeypis, og aðeins til
þess ætlast að mótherjar stórmeist-
arans kunni full skil á manngang-
inum. Skráning er á staðnum í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum og
hefst klukkan 10.45. Fjöltefli Jó-
hanns markar upphafið að skák-
viðburðum sem Hrókurinn skipu-
leggur í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum í sumar. Í júlí
mun skákdrottningin Regina Pok-
orna koma í heimsókn og frá og með
laugardeginum 5. júlí verða þar
skákæfingar á laugardögum.
Í DAG
Hamhleypur – konur í atvinnulíf-
inu Námstefnan Hamhleypur – kon-
ur í atvinnulífinu verður haldin
kvennadaginn 19. júní kl. 9–18, í
húsakynnum Endurmenntunar og í
Háskólabíói. Það eru IMG Deloitte
og Endurmenntun Háskóla Íslands
sem standa að námstefnunni. Aðal-
fyrirlesari í ár er Judith Strother frá
Florida Institute of Technology í
Bandaríkjunum. Síðdegis verða fjór-
ar málstofur þar sem fjallað verður
um athafnasvæði kvenna, frum-
kvöðla, völd og það hvort vinnan sé
lífið. Fundarstjóri er María Elling-
sen. Eivör Pálsdóttir tekur lagið og
Helga Braga kennir viðstöddum ým-
islegt gagnlegt. Valgerður Sverris-
dóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, ávarpar gesti.
Rannsóknarmálstofa í félagsráð-
gjöf verður haldin fimmtudaginn 19.
júní kl. 12.05–13, í Odda, stofu 201.
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, félags-
ráðgjafi, stjórnsýslufræðingur og
doktorsnemi við London School of
Economics and Political Science,
kynnir rannsóknaraðferðir, hönnun
rannsóknarinnar og meðferð og birt-
ingu gagna sem hún notaði í ritgerð
sinni. Rannsóknin byggist á tveimur
tilviksathugunum er fjalla um
ákvarðanatökuferli í ríkisstjórnum
Bretlands og Íslands við ákvörðun
um sameiningu háskólasjúkrahúsa í
London og í Reykjavík á síðasta ára-
tug.
Á NÆSTUNNI
Fjallað um matreiðslu á græn-
meti í Grasagarðinum Marentza
Poulsen og Sæmundur Kristjánsson
veitingamenn verða í Café Flórunni í
garðskála Grasagarðsins á morgun,
miðvikudaginn 18. júní kl. 20.
Fjallað verður um það hvernig fólk
getur matreitt hinar ýmsu græn-
metisjurtir og um leið varðveitt gæði
þeirra; næringu, bragð, lit og form.
Auður Jónsdóttir garðyrkjufræð-
ingur segir frá tegundum grænmetis
sem ræktaðar eru í nytjajurtagarði
Grasagarðsins en á síðustu árum
hafa verið þar um 30 mismunandi
tegundir, afbrigði og yrki.
Aðalfundur Ungmennafélagsins
Aftureldingar verður haldinn á
morgun, miðvikudaginn 18. júní, kl.
20, í Íþróttamiðstöðinni að Varmá.
Á MORGUN
SKÓGRÆKTARRITIÐ, félags- og
fræðslurit Skógræktarfélags Ís-
lands, fyrra hefti ársins 2003, er
komið út. Ritið
er prýtt fjölda
litmynda og á
kápu er mynd
af olíumálverki
frá árinu 1997
eftir Sigtrygg
Bjarna Bald-
vinsson sem
nefnist „Cara-
veggflís“.
Verkið er í eigu Listasafns Ís-
lands.
Fjölbreytt efni er í ritinu. Meðal
annars er þeirri spurningu velt
upp hvort hægt sé að verða ást-
fangin(n) af trjám. Nefna má grein
Jóns Freys Þórarinssonar, fyrr-
verandi skólastjóra Laugarness-
skóla, um skógrækt í Katlagili.
Þar hafa kennarar og nemendur
Laugarnesskóla unnið að skóg-
rækt í hálfa öld með athyglis-
verðum árangri. Jón Geir Péturs-
son, Aðalsteinn Sigurgeirsson og
Sæmundur Kr. Þorvaldsson skrifa
grein um Alaskaferð skógræktar-
manna haustið 2001. Þetta er inn-
gangsgrein í greinaflokki um ferð-
ina. Einar Gunnarsson og Skarp-
héðinn Smári Þórhallsson skrifa
um kortlagningu útivistarpara-
dísarinnar Heiðmerkur. Sigurður
Blöndal, fyrrverandi skógræktar-
stjóri, ritar grein í flokknum
„Fyrr og nú“ og Steinar Harðar-
son skrifar um skógrækt við Víf-
ilsstaðavatn. Fjöldi annarra fróð-
legra greina og fróðleiksmola er í
ritinu.
Skógræktarritið er selt í áskrift
en einnig í lausasölu á skrifstofu
SÍ á Ránargötu 18 og nokkrum
völdum sölustöðum öðrum. Net-
fang ritsins er skog@skog.is.
Skógræktarritið komið út
Fyrirtæki • stofnanir • heimili
Hreinsum rimla-, viðar-, strimla-
og plíseruð gluggatjöld
Einnig sólarfilmur
Eru rimlagardínurnar óhreinar?
sími 897 3634
dgunnarsson@simnet.is
♦ ♦ ♦