Morgunblaðið - 29.06.2003, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 2003 51
OLGA Færseth er í flokki fremstu
knattspyrnumanna landsins og átti
stóran hlut í 4:0 sigri landsliðs
kvenna í knattspyrnu á liði Ungverja
fyrr í mánuðinum.
Þessa dagana dvelst Olga mestan
part í Vestmannaeyjum en hún
gekk til liðs við ÍBV um áramótin eft-
ir 8 ára farsælan feril hjá KR.
Liðin mættust fyrir helgi þar sem lið
Olgu fór halloka fyrir gömlu félögun-
um en liðin mættust aftur á föstu-
dag og sagði Olga í samtali fyrir
leikinn að lið hennar stefndi í sigur
að þessu sinni.
Olga, sem verður 28 ára í október,
kveðst una sér vel í Vestmannaeyj-
um, finnst bærinn rólegri og yfirveg-
aðri en Reykjavík, en hún var í óða-
önn að slá garða í veðurblíðunni
þegar blaðamaður hafði samband.
Hvað ertu með í vösunum?
Tyggjópakka.
Er mjólkurglasið hálftómt eða
hálffullt?
Bíddu við, er það ekki það sama?
Ef þú værir ekki fótboltamaður,
hvað myndirðu þá helst vilja
vera?
Þetta er erfið spurning. Væri
líklegast sjómaður eins og
flestir úr minni ætt.
Hefurðu tárast í bíói?
Það er nú ekki minn veikleiki
að tárast yfir myndum en ég
man þó eftir einu atviki þar
sem komu nokkur tár og var
það á myndinni Boys on the
Side með Whoopi Goldberg.
Hverjir voru fyrstu tónleik-
arnir sem þú fórst á?
Ég held að það hafi bara verið
Enginn sérstakur. Ég passa mig þá
allavega á því að sjá ekki myndir
með honum.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Þrjóska. Það getur oft verið veik-
leiki að vera of þrjóskur og að gefa
sjaldan eftir.
Finndu fimm orð sem lýsa per-
sónuleika þínum vel.
Ákveðin, jákvæð, þrjósk, traust og
glaðlynd.
Bítlarnir eða Stones?
Bítlana, því Stones er aðeins of
rokkað fyrir minn smekk.
Hver var síðasta bók sem þú last
tvisvar?
Ég les aldrei bækur tvisvar. Finnst
eitt skipti nóg.
Hvaða lag kveikir blossann?
„Like a prayer“ með Madonnu
kveikir í mér stuttu fyrir fótboltaleik.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
Pottþétt 31, vantaði ný lög og þetta
er ágætis samansafn úr öllum átt-
um.
Hvert er þitt mesta prakk-
arastrik?
Þegar ég sprautaði tómat-
sósu, 9 eða 10 ára gömul,
inn um glugga hjá fólki úti í
bæ. Þetta gerðist bara í
eitt skipti og það er eitt-
hvað sem ég er ekki stolt
af.
Hver er furðulegasti
matur sem þú hefur
borðað?
Það var í keppnisferð með
landsliðinu í Rússlandi:
súpa með hráu eggi fljótandi
ofan á í morgunmat.
„Like a prayer“ kveikir
blossann fyrir leiki
SOS
SPURT & SVARAÐ
Olga Færseth
Morgunblaðið/RAX
David Bowie-tónleikar hér á Íslandi.
Þeir voru svo sem ágætir en hann
var víst að kynna nýjustu plötuna
sína og þekkti ég því ekki meirihlut-
ann af lögunum.
Hvaða leikari fer mest í taugarnar
á þér?
POWE
R
SÝNIN
G
KL. 10
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Kvikmyndir.com
X-ið 977HJ MBLHK DV
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i.16
Martröðin er
raunveruleg!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Fyndnasta myndin
sem þú sérð á árinu!
Losaðu þig við reiðina
og hlæðu þig máttlausan!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og Powersýning kl. 10.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 16
sv MBL
T H E Y
Ef þú skellir á
ertu dauður!
Spennutryllir
af bestu gerð.
Fór beint á
toppinn
í USA.
Frábær mynd
sem heldur
áhorfendum
í heljar greipum!
Frumsýning
.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Sýnd kl. 8.
Ef þú hélst að þú værir heimskur,
þá hefurðu ekki hitt Harry og Lloyd.
Þeir eru komnir aftur, heimskari en
nokkru sinni fyrr í geggjaðri grínmynd!
Frábær spennumynd með stórleikurunum
Al Pacino og Kim Basinger.
Hann taldi sig hafa séð allt,
þar til hann sá of mikið!
KIM
BASINGER
A L P A C I N O
TÉA LEONI
FRUMSÝNING
Moggabúðin
Reiknivél, aðeins 950 kr.
Moggabúðin
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.