Morgunblaðið - 05.07.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SPRENGIEFNI STOLIÐ
Um 250 kg af sprengiefni var stol-
ið úr geymslum innflytjanda í ná-
grenni Reykjavíkur í fyrrinótt. Lög-
reglan í Reykjavík biður almenning
að hafa augun hjá sér og láta strax
vita ef einhverjar upplýsingar liggja
fyrir.
Fækkun sláturhúsa frestað
Ríkisstjórnin hefur ekki tekið af-
stöðu til tillagna um fjármagn til
úreldingar sláturhúsa og segir Sig-
urgeir Þorgeirsson, framkvæmda-
stjóri Bændasamtakanna, að áform
um fækkun þeirra í haust sé í hættu.
Sagði hann Bændasamtökin vera
orðin mjög óþolinmóð að vita afstöðu
ríkisstjórnarinnar.
Ávarp Saddams Husseins?
Arabísk sjónvarpsstöð sendi í gær
út hljóðritað ávarp manns, sem
kvaðst vera Saddam Hussein og
stjórna árásunum sem gerðar hafa
verið á bandaríska hermenn í Írak
síðustu vikur. Hann hvatti alla Íraka
til að berjast gegn hernámsliðinu.
Bandaríska leyniþjónustan er að
rannsaka hvort upptakan er ófölsuð.
Baðst ekki afsökunar
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, neitaði því í gær að hafa
beðið Gerhard Schröder Þýska-
landskanslara afsökunar á umdeild-
um ummælum sínum á Evrópuþing-
inu. Þýska stjórnin kvaðst hins
vegar líta svo á að hann hefði beðist
afsökunar.
L a u g a r d a g u r
5.
j ú l í ˜ 2 0 0 3
Yf ir l i t
Í dag
Viðskipti 12 Minningar 32/37
Erlent 14/16 Kirkjustarf 38/39
Höfuðborgin 18 Myndasögur 40
Akureyri 20 Bréf 40
Suðurnes 21 Staksteinar 42
Árborg 22 Dagbók 42/43
Landið 22 Brids 43
Heilsa 24 Íþróttir 44/47
Listir 24/25 Leikhús 48
Umræðan 26/27 Fólk 48/53
Forystugrein 28 Bíó 50/53
Þjónustan 31 Ljósvakamiðlar 54
Viðhorf Veður 55
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablaðið „Miðborgin“
frá Þróunarfélagi miðborgar. Blaðinu
er dreift um allt land.
UMHVERFISSTOFNUN hefur sent frá sér álit
um áhrif fyrirhugaðra framkvæmda Landsvirkj-
unar við Norðlingaölduveitu hjá Þjórsárverum.
Niðurstaða stofnunarinnar er sú, að framkvæmd-
irnar hafi ekki langtímaáhrif inn í friðlandið í
Þjórsárverum og skapi því ekki hættu á að frið-
landinu verði spillt.
Forsendur Umhverfisstofnunar eru þær, að
langvarandi uppsöfnun aurs muni ekki eiga sér
stað á sléttlendinu fyrir neðan friðlandið, enda
valdi mannvirki ekki hækkun á vatnsborði við frið-
landsmörkin. Einnig er byggt á þeirri forsendu að
ítarleg áætlun liggi fyrir um veitutilhögunina,
rekstur og eftirlit, og sömuleiðis viðbrögð ef áhrif
inn í friðlandið verða önnur og meiri en útreikn-
ingar gera ráð fyrir.
Varðandi setlón austan friðlandsins setur Um-
hverfisstofnun þau skilyrði, að hleypt verði lág-
marksrennsli um Þjórsárverakvíslar og rækilega
fylgst með grunnvatnsstöðu á svæðinu, svo hægt
sé að grípa til ráðstafana gegn áfoki.
Óvissa vegna mögulegrar stækkunar
Umhverfisstofnun tekur einnig fram, að hærri
lónsstaða en 566 m y.s. hafi áhrif í Eyvafeni, sem
er utan friðlandsins. Hafa beri í huga að Skeiða-
og Gnúpverjahreppur hafi sett fram hugmyndir
um stækkun friðlandsins sem myndu þýða að
Eyvafen yrði innan þess. Segir Umhverfisstofnun
þær hugmyndir koma fram í drögum að náttúru-
verndaráætlun, en endanleg ákvörðun um stækk-
un friðlands sé í höndum umhverfisráðherra.
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent frá
sér bréf til Umhverfisstofnunar vegna umsagnar-
innar og telja að hún sé í hróplegu ósamræmi við
tillögur sem komi fram í drögum að náttúruvernd-
aráætlun. Segir þar ennfremur: „Því fara Nátt-
úruverndarsamtök Íslands fram á að Umhverfis-
stofnun geri nú þegar grein fyrir hver sé afstaða
stofnunarinnar til stækkunar friðlandsins í Þjórs-
árverum og kveði upp úr með hvaða áhrif áform
Landsvirkjunar hafa á þá tillögu stofnunarinnar.“
Umsögn Umhverfisstofnunar um áform Landsvirkjunar við Norðlingaöldu
Framkvæmdir hafi ekki
langtímaáhrif á Þjórsárver
SUMARIÐ er tími ferðalaga. Það er misjafnt hvernig
fólk kýs að fara yfir þegar fast land er undir fótum.
Sumir keyra, aðrir hjóla eða ganga og aðrir fara
jafnvel með áætlunarbíl. Þessir hjólreiðagarpar virtust
hæstánægðir með ferðamáta sinn enda fóru þeir hratt
yfir og voru í ágætis hvíld frá erfiðum brekkum.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Kátir hjólreiðagarpar á hraðferð
KONAN sem lést í bílslysi við
Bolöldu á Suðurlandsvegi sl.
miðvikudag hét Katrín Emma
Maríudóttir Hale. Hún var
fædd 1982 og var til heimilis í
Hólmgarði 40. Katrín lætur eft-
ir sig unnusta.
Lést
í bílslysi
UM 77% fyrirtækja hyggjast halda
óbreyttum fjölda starfsfólks næstu
þrjá til fjóra mánuði, samkvæmt
niðurstöðum könnunar Samtaka
atvinnulífsins í júní.
Samkvæmt niðurstöðunum verð-
ur fjölgun starfsfólks hjá 13% fyr-
irtækja en fækkun hjá 10%. Í
ráðningaráformakönnun SA í des-
ember sl. gerðu talsmenn 21% fyr-
irtækja ráð fyrir að fækka starfs-
fólki en 8% ætluðu að fjölga því.
Hjá fyrirtækjum í fiskvinnslu er
gert ráð fyrir 2,8% fækkun, 2,4%
fækkun í útgerð og 1,7% fækkun
starfsfólks hjá fjármálafyrirtækj-
um. Fyrirtæki í iðnaði og ferða-
þjónustu hyggjast fjölga starfs-
fólki um 0,9%, í verslun og
þjónustu um 0,4% og rafverktakar
ætla að fjölga starfsfólki um 0,3%.
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
hyggjast fjölga starfsfólki um 0,8%
að meðaltali en fyrirtæki á lands-
byggðinni hyggjast fækka því um
0,1%.
Á fréttavef SA kemur fram að
prósentutölur um þróun í ein-
stökum greinum og á einstökum
svæðum séu grófar viðmiðanir um
þróunina framundan, en ljóst sé að
mikil breyting hafi orðið síðan í
desember og jafnvægi ríki nú á
vinnumarkaði eftir stutt tímabil
slaka í kjölfar þenslu 1997 til 2001.
Spurningar voru sendar til 1.039
fyrirtækja innan SA og bárust svör
frá 585 eða 56,3%.
Segja jafn-
vægi ríkja
á vinnu-
markaði
GERA ber skýra grein fyrir kostnaði
samfara samningi um lífeyrissparn-
að. Þá skal geta um hámark þókn-
unar vegna flutnings sparnaðar milli
vörsluaðila sé áskilinn kostnaður
vegna þess, samkvæmt umræðu-
skjali sem Fjármálaeftirlitið lagði
fram í gær.
Í skjalinu segir að í samningi um
lífeyrissparnað skuli gera skilmerki-
lega grein fyrir kostnaði sem rétthafi
beri af lífeyrissparnaði sínum og til-
heyri ekki reglulegum kostnaði af
umsýslu vegna lífeyrissparnaðarins.
Fram kemur að hér sé til dæmis átt
við það fyrirkomulag að iðgjald til líf-
eyrissparnaðar myndi ekki innstæðu
fyrr en greidd hafi verið iðgjöld sem
nemi kostnaði við að koma á samn-
ingi.
Ber ekki skylda til að hafa
eftirlit með innheimtu iðgjalda
„Er hér vísað til þóknana sölu-
manna, reglna um endurkaupsvirði
og annan kostnað, beinan eða óbein-
an, sem veldur því að iðgjald rétthafa
skapar honum ekki innstæðu sem
tæk sé til útborgunar,“ segir orðrétt.
Þá kemur fram að þeim sem sér
um vörslu séreignalífeyrissparnaðar
beri ekki skylda til þess að hafa eft-
irlit með innheimtu vangoldinna ið-
gjalda hjá launagreiðanda. Segir
Fjármálaeftirlitið að eigandi sparn-
aðarins verði fyrst og fremst sjálfur
að gæta þess að frádregin iðgjöld
berist vörsluaðila.
Þá er í umræðuskjalinu einnig lagt
til að sá sem sér um vörslu lífeyris-
sparnaðar skuli sjá til þess að sá sem
selji eða veiti ráðgjöf um lífeyris-
sparnað búi yfir nægilegri þekkingu
og starfsreynslu til að veita ráðgjöf
um efni samnings um lífeyrissparnað
og þau lög og reglur sem gilda um
samninginn og lífeyrissparnað al-
mennt.
Fram kemur að Fjármálaeftirlit-
inu hafi borist ýmis erindi sem bendi
til þess að starfshættir ofangreindra
aðila hafi verið með mismunandi
móti.
Þá er sú skylda einnig lögð á
herðar vörsluaðila að sjá til þess að
neytandi fái skýra mynd af efni þess
samnings sem verið sé að selja hon-
um.
Umræðuskjal Fjármálaeftirlitsins vegna lífeyrissparnaðar
Gera ber skýra
grein fyrir kostnaði
MAÐUR á sjötugsaldri lést í
Reykjanesbæ skömmu eftir há-
degi í gær. Maðurinn, sem var
einn í bíl sínum, hafði ekið hon-
um harkalega á húsvegg við Að-
algötu í Reykjanesbæ. Hann var
úrskurðaður látinn skömmu eft-
ir komu á sjúkrahús. Allt bendir
til þess að maðurinn hafi fengið
aðsvif undir stýri en rannsókn
lögreglu á málinu stendur enn
yfir.
Ekki er hægt að birta nafn
hins látna að svo stöddu.
Karlmaður lést í
Reykjanesbæ í gær