Morgunblaðið - 05.07.2003, Blaðsíða 56
ÞORSTEINN Pétursson, lög-
reglumaður á Akureyri, vill
að komið verði á fót skipa-
minjasafni á Akureyri og seg-
ir það mikil mistök að Snæ-
fellinu gamla skuli hafa verið
sökkt og allir nýsköpunartog-
arar Útgerðarfélags Akureyr-
inga seldir í brotajárn.
„Frá komu nýsköpunartog-
arans Kaldbaks, sem smíðað-
ur var í Bretlandi og kom til
Akureyrar 1947, hefur Út-
gerðarfélag Akureyringa ver-
ið með blómlega togaraút-
gerð, veitt íbúum bæjarins
ómældar tekjur og gerir von-
andi um ókomin ár,“ segir
Þorsteinn og bætir við að tog-
arinn hafi verið seldur í
brotajárn eins og aðrir ný-
sköpunartogarar fyrirtækis-
ins. „Ef til vill hafa einhverjir
haft hugmyndir um varð-
veislu eins af þessum togur-
um en það varð ekki og tæki-
færið er glatað.“
Vill skipa-
minjasafn
á Akureyri
Glötum ekki/20
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
helgum. Við viljum gera allt sem í okkar
valdi stendur til þess að tryggja eins örugga
umferð og mögulegt er,“ segir Karl Steinar.
Hann segir jafnframt mikilvægt að fólk geri
sér grein fyrir að á álagstímum má búast við
töfum í umferðinni og þá sérstaklega þegar
nálgast þéttbýlið.
Umdæmi lögreglunnar í Reykjavík nær til
Litlu Kaffistofunnar í austurátt en þar tekur
lögreglan á Selfossi við. Núna um helgina
LÖGREGLAN í Reykjavík mun verða í sam-
starfi við önnur lögregluumdæmi um
helgina en undanfarin ár hefur fyrsta helgin
í júlí verið mikil umferðarhelgi.
Að sögn Karls Steinars Valssonar aðstoð-
aryfirlögregluþjóns hefur verið nokkuð
mikil umferð í vor, enda veðurfarið gott.
„Undanfarin ár höfum við verið með sam-
starf milli lögregluumdæma, allt frá Kefla-
víkurflugvelli og upp í Borgarnes á svona
munu lögreglumenn frá báðum umdæmum
vera á ferð um heiðina við umferðareftirlit.
Karl Arnarson og Ágúst Birgisson, lög-
reglumenn úr Reykjavík, voru á miðri
Hellisheiðinni í gær. Að þeirra sögn munu
þeir fylgjast mest með hraða ökumanna en
einnig að önnur atriði séu í lagi, s.s. bílbelta-
notkun og að þeir bílar sem eru með ein-
hvers konar tengivagna fylgi settum reglum
um baksýnisspegla og umferðarhraða.
Morgunblaðið/Júlíus
Karl Birgisson og Ágúst Arnarson, lögreglunni í Reykjavík, að störfum á Hellisheiði á svæði sem vanalega heyrir undir Selfosslögreglu.
Má búast við umferðartöfum
Lögregluumdæmi á Suðvesturlandi starfa saman við eftirlit
SIGURGEIR Þorgeirsson,
framkvæmdastjóri Bænda-
samtakanna, segir að áform
um fækkun sláturhúsa í haust
séu í hættu vegna þess að rík-
isstjórnin hafi ekki enn tekið
afstöðu til tillagna um að setja
fjármagn til úreldingar slátur-
húsa, en nefnd sem landbún-
aðarráðherra skipaði lagði til-
lögurnar fram. Hann segir að
málið sé að komast á eindaga.
Stjórnendur sláturhúsanna,
sem séu farnir að huga að
skipulagi slátrunar, verði að
vita hvar þeir standa.
Jón Helgi Björnsson, for-
maður Landssamtaka slátur-
leyfishafa, segir mikilvægt að
sláturhúsum verði fækkað í
haust svo ekki þurfi að fram-
vísa allri þeirri lækkun sem
orðið hefur á kjötverði til
bænda.
Tillaga um 225 milljónir í
úreldingu á 2 árum
Síðastliðið haust var sauðfé
slátrað í 17 sláturhúsum, en
aðeins 6 af þeim uppfylla kröf-
ur Evrópusambandsins um út-
flutning. Í niðurstöðum
skýrslu sláturhúsanefndarinn-
ar segir að ef aðeins þau slát-
urhús sem í dag hafa útflutn-
ingsleyfi yrðu starfandi kæmi
flutningskostnaður til með að
aukast um u.þ.b. 15 milljónir.
Á móti gæti sauðfjárræktin
sparað 225 milljónir með
lækkun á föstum og breyti-
legum kostnaði við rekstur
sláturhúsa. Árlegur heildar-
sparnaður á hvert kg kinda-
kjöts gæti því numið um 26 kr.
Nefndin lagði til við land-
búnaðarráðherra að lagt yrði
fjármagn til úreldingar slátur-
húsa sem svarar 65 kr. á hvert
kg kjöts sem slátrað var, að
meðaltali, á þriggja ára tíma-
bili þ.e. á árunum 2000–2002,
samtals að fjárhæð 220 millj-
ónir króna. Miðað var við að
þessi úrelding færi fram á ár-
unum 2003–2004.
Landbúnaðarráðherra hefur
rætt þetta mál í ríkisstjórn-
inni, en engin ákvörðun hefur
verið tekin um hvort einhverj-
ir fjármunir verði lagðir í
úreldingu.
Aðalfundur Landssamtaka
sauðfjárbænda lýsti nýlega
stuðningi við tillögur nefndar-
innar.
Óvissa með afurðalán
Jón Helgi sagði að í ljósi
þess að landbúnaðarráðuneyt-
ið hefði nýlega sett reglugerð
sem gerði kröfu um að öll slát-
urhús væru með hangandi
fláningslínu væri eðlilegt að
settir yrðu fjármunir til úreld-
ingar sláturhúsa.
Verð á kjöti hefur lækkað
að undanförnu vegna harðrar
samkeppni á kjötmarkaði. Þar
með hefur veðhæfni kjötsins
lækkað. Jón Helgi sagðist
hafa nokkrar áhyggjur af því
að sumir sláturleyfishafar
kæmu til með að eiga í erfið-
leikum með að fá afurðalán í
haust.
„Það hefur átt sér stað
lækkun á kjötverði og því held
ég að það sé enn mikilvægara
að ná fram þessari hagræð-
ingu og fækkun á sláturhúsum
til þess að menn þurfi ekki að
framvísa allri þeirri lækkun til
bænda,“ sagði Jón Helgi.
Byggðastofnun hefur und-
anfarin ár ábyrgst afurðalán
sem bankarnir hafa veitt slát-
urleyfishöfum. Ekki liggur
fyrir hvort einhver breyting
verður gerð á fyrirkomulagi
afurðalána í haust.
Sigurgeir sagði að Bænda-
samtökin væru orðin mjög
óþolinmóð að bíða eftir af-
stöðu ríkisstjórnarinnar. Þetta
mál þyldi ekki lengri bið.
Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra segir að ekkert
sé af málinu að frétta. Um-
fjöllun um það hafi tafist af
ýmsum ástæðum.
Enn liggur ekki fyrir hvort ríkisstjórnin setur
fjármagn í úreldingu sláturhúsa á landsbyggðinni
Áform um fækkun
sláturhúsa í hættu
SÁ óvenjulegi atburður átti sér stað í gærmorgun
að allur farangur sem átti að fylgja farþegum
Flugleiða frá Keflavík til London fór með vélinni
til Parísar en allur farangur sem átti að fara með
farþegum þangað fór með vélinni til London.
Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flug-
leiða, segir að svo virðist sem mistök hafi orðið
hjá fyrirtækinu IGS, sem annast hleðslu vélanna
á Keflavíkurflugvelli, en eftir eigi að skoða hvern-
ig þetta hafi getað gerst. Mistökin hafi ekki kom-
ið í ljós fyrr en vélarnar hafi lent á áfangastað og
þá hafi strax hafist vinna við að koma farangr-
inum á réttan stað í þeirri von að farþegar fengju
farangur sinn ekki síðar en í dag, en sumir hafi
fengið hann þegar í gær.
Farþegar treysta því að fá farangur sinn að
loknu flugi og þegar það bregst verða þeir fyrir
óþægindum, en auk óþæginda verður félagið líka
fyrir kostnaði vegna þessara mistaka. Guðjón
segir að farþegi eigi ekki rétt á því að farangur
komi um leið og hann á áfangastað, en Flugleiðir
leggi kapp á að farangur fylgi farþega hverju
sinni. Varðandi bætur segir hann að almenna
reglan sé sú að hafi farþegi ekki fengið farangur
sinn innan 24 tíma fái hann 100 dollara bóta-
greiðslu og allt að 400 dollara komi farangurinn
ekki í leitirnar. Auk þess séu ýmsir aðrir skil-
málar í gangi.
Brúðkaupsfötin fóru annað
Á meðal farþega til London var par sem
hyggst ganga í hjónaband í dag og voru brúð-
kaupsfötin í farangrinum sem fór til Parísar.
„Svona mistök geta komið sér illa og við hörmum
þau óþægindi sem þau hafa valdið,“ segir Guðjón
og bætir við að reynt hafi verið að aðstoða verð-
andi brúðhjón eftir megni og þau eigi að fá far-
angur sinn í tíma fyrir brúðkaupið.
Allur farang-
ur til London
og Parísar
víxlaðist
♦ ♦ ♦
ÞÆR Snædís Sigurjónsdóttir og Ingibjörg
Signý Aadnegard fundu bein og gamalt vasaúr
þegar þær voru að þrífa beð vestan við kirkju-
garðinn á Blönduósi. Þær stöllur, sem eru í
vinnuskólanum á Blönduósi, voru ákveðnar í
því að hér væri um merkilegan fund að ræða.
Ekki voru samt allir á því að hér væri um
sögulegan atburð að ræða en engu að síður jók
þessi fundur stúlknanna áhuga þeirra á beða-
hreinsun og skógarþröstur sem á sér hreiður í
nágrenninu var vinnuframlagi stúlknanna ákaf-
lega þakklátur því framboð á ánamöðkum jókst
stórlega.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Fornleifar
á Blönduósi
Blönduósi. Morgunblaðið.
BIFREIÐ valt rétt fyrir klukkan tíu
í gærkvöldi á Fróðárheiði á Snæ-
fellsnesi. Tvær ungar konur voru á
ferð í bílnum og komust þær af
sjálfsdáðum úr honum. Sendir voru
tveir sjúkrabílar frá Ólafsvík á stað-
inn, en meiðsli stúlknanna virtust
ekki alvarleg.
Bílvelta á
Fróðárheiði