Morgunblaðið - 05.07.2003, Page 22
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
22 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTA- og tómstundaskóli Ár-
borgar er starfræktur á Selfossi á
sumrin í júní–ágúst. Það er líf og
fjör á hverjum degi í skólanum og
alltaf heilmikið við að vera. Það
er Ungmennafélag Selfoss sem
sér um starfrækslu skólans með
samningi við Sveitarfélagið Ár-
borg.
Börnin fá að kynnast ýmsum
íþróttagreinum ásamt því að fást
við ýmislegt annað svo sem nátt-
úruskoðun og leiki. Skólanum er
skipt í nokkur námskeiðstímabil
og hefur aðsókn að honum verið
góð.
Líf og fjör í íþrótta- og
tómstundaskóla Árborgar
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Einn hópur í íþrótta- og tómstundaskóla Árborgar stillti sér upp fyrir myndatöku áður en lagt var af stað í fjöruferð.
Selfoss
„ÞETTA er vaxandi sport hérna á
þessu svæði. Ég er búinn að vera í
þessu síðan ég var 8 ára. Þetta hefur
vaxið og nú á ég 16 vélar af mismun-
andi gerðum. Það er streitulosandi að
fara á flugvöllinn og manni líður vel
eftir góðan flugdag. Þetta er ákveðin
útrás og það er auðvitað líka spenn-
andi að vera með nokkuð dýra vél í
höndunum og láta allt takast vel,“
segir Þórir Tryggvason, formaður
flugmódelklúbbsins Smástundar á
Selfossi. Heiti klúbbsins varð til út frá
orðatiltæki klúbbmanna að ætla að
vera smástund í burtu, þegar þeir
fóru að reyna módelin eða að grípa í
smíðar.
Í klúbbnum eru 20 virkir félagar
sem eru að smíða og fljúga módelum.
„Þetta er margþætt hjá okkur, menn
eru að láta vélarnar fljúga og svo eru
það smíðarnar, einkum á veturna, en
þær taka mikinn tíma. Þetta er góður
félagsskapur, útivera er talsverð og
síðan er gott að eiga stundir við smíð-
arnar,“ segir Þórir. Hann sagði
marga klúbbfélaga vera áhugamenn
um flug en hafi ekki lagt í að taka
stóra skrefið og fara í hið venju-
bundna flugnám.
Smástund er með Eyrarbakkaflug-
völl sem sinn aðalvettvang en völlur-
inn er skammt austan Eyrarbakka
með gott autt svæði í kring og því
ekki hætta á að módelin komi ofan í
kollinn á fólki. „Menn fara svona 3–4
saman á völlinn til þess að fljúga og
skemmta sér. Síðan erum við með
skipulagða flugdaga og á einn slíkan
komu 40 flugmódel til þátttöku. Núna
um helgina erum við einmitt að fara á
einn slíkan í Reykjavík,“ sagði Þórir.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Þórir Tryggvason með eina af vél-
um sínum í bílskúrnum þar sem sjá
má fleiri vélar geymdar.
„Streitulosandi að fara á
völlinn og reyna vélarnar“
Selfoss
Flugmódelklúbburinn Smástund á Eyrarbakkaflugvelli
RÓSANNA Ingólfsdóttir leirlista-
maður heldur sína aðra sýningu á Ís-
landi í tilefni 30 ára goslokaafmæl-
isins um helgina. Rósanna helgar
þessa sýningu heimahögunum og
kallar sýninguna „Út í Ystakletti“.
Fyrir ári síðan kom Rósanna heim til
Eyja til að undirbúa þessa sýningu,
en þemað á sýningunni er Ystiklett-
ur og hans nágrenni, sem listamað-
urinn hafði fyrir augunum öll sín
uppeldisár í austurbæ Heimaeyjar
sem nú er undir hrauni. Rósanna
hefur til fjölda ára unnið að list sinni
í Svíþjóð þar sem hún býr. Hún vinn-
ur flest sín verk í leir, einskonar
steinleirsgrafíkmyndir. Aðferðin er
æfagömul, mjög tímafrek og fáir
listamenn hafa tileinkað sér hana. Þá
sýnir Rósanna raku-leirlist, sem er
gömul japönsk aðferð. Með þessari
tækni sýnir hún bæði myndir og
skúlptúra. Á sýningunni eru alls 30
verk, ljósmyndir, steinleirsgrafík-
myndir og raku-verk.
Rósanna hefur haldið einkasýn-
ingar í Noregi, Gautaborg og Stokk-
hólmi í Svíþjóð, Danmörku, Tallin í
Lettlandi og árið 1994 sýndi hún í
Gallerý-Ófeigi í Reykjavík. Það er
því tilvalið tækifæri fyrir Vest-
mannaeyinga að berja augum list
hennar á þessum tímamótum Eyja-
manna, því hér er á ferðinni einstök
sýning að mörgu leyti. Jafnframt
listsköpun sinni hefur Rósanna stað-
ið fyrir námskeiðum í leirlist og nú
síðast fór hún með hóp nemenda til
Ítalíu þar sem þau reistu viðarofn ut-
andyra og stunduðu leirbrennslu
samkvæmt þeim aðferðum og hefð-
um sem Rósanna hefur byggt á.
Sýningin Út í Ystakletti stendur
yfir goslokahelgina.
Raku- og steinleirs-
myndir Rósönnu
Vestmannaeyjar
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Rósanna Ingólfsdóttir leirlista-
maður við eitt verkanna.
30 ára goslokaafmæli
ALLS hafa fullvinnsluskip sem nú
stunda veiðar á síld úr norsk-ís-
lenska síldarstofninum landað í
Neskaupstað um 270 þúsund köss-
um eða um 6.400 tonnum af frosn-
um síldarflökum það sem af er
þessari vertíð. Flökin hafa farið í
geymslu í hinni stóru frysti-
geymslu Síldarvinnslunnar sem
rúmað getur um 9.000 tonn af
frystum afurðum. Undanfarna
daga hefur verið mikið um flutn-
ingaskip í höfninni í Neskaupstað
að lesta frosnar afurðir, að mestu
síldarflök, og má segja að það hafi
verð eitt til tvö skip á dag. Þessi
síldarafli skapar mikla vinnu og
umsvif við höfnina.
Morgunblaðið/Ágúst
Verið er að lesta eitt flutningaskip í höfninni og annað bíður.
Búið að landa
um 270 þúsund
kössum af síld
Neskaupstaður
ÞÝSKIR dagar í Húnaþingi vestra
verða um helgina 4.–6. júlí. Það er í
annað sinn sem þessi hátíð er hald-
in í Húnaþingi vestra. Boðið verður
upp á þýskan mat á veitingastöðum
í sýslunni alla helgina auk sérstakr-
ar dagskrár.
Í dag, laugardag, verður sölutjald
frá kl. 11–18 á Hvammstanga, leik-
ir, söngur og bjórtjaldsstemning
um kvöldið. Á sunnudag verða
ferðakynningar kl. 11 á Gunnukaffi,
opnun myndlistarsýningar og
„brunch“ á eftir. Þá verður á
Höfðabraut 6, efstu hæð, vegg-
spjaldasýning og bókmenntakynn-
ing um eftirstríðsárin í Þýskalandi,
í flutningi nemenda Grunnskóla
Húnaþings vestra.
Þýsk-íslenskt vináttufélag, sem
var stofnað sl. haust í Húnaþingi
vestra stendur fyrir þessari hátíð.
Þýskir dagar í
Húnaþingi vestra
Hvammstangi
HEILSUSTOFNUN NLFÍ í
Hveragerði heldur upp á 50 ára
starfsafmæli árið 2005 en hún hefur
verið starfrækt frá árinu 1955.
Einkunnarorð Heilsustofnunar
eru „Berum ábyrgð á eigin heilsu“ og
kappkostað er við að hjálpa dvalar-
gestum til að verða sjálfbjarga í at-
höfnum daglegs lífs.
Starfsemin fer í stórum dráttum
fram eftir svonefndum „línum“ þar
sem dvalargestir hljóta meðferð við
sitt hæfi. Á Heilsustofnun eru um
þessar mundir starfræktar fjórar
línur. Þær eru verkjalína, megrunar-
lína, hjartalína og krabbameinslína.
Að sögn Önnu Pálsdóttur, upplýs-
ingafulltrúa Heilsustofnunar, eru
nýjungar á döfinni. Í haust verður
sett á laggirnar ný lína, svonefnd
gigtarlína, sem á að þjóna þeim dval-
argestum sem haldnir eru liðagigt,
slitgigt, psoriasisgigt, vefjagigt og
hrygggigt.
Fjölmargir hafa sótt endurhæf-
ingu, hvíld og hressingu á Heilsu-
stofnun Náttúrulækningafélagsins í
áranna rás. Starfsemin er fólgin í því
að allir sem þar dveljast fái bestu
hugsanlegu þjónustu til að öðlast
fyrri kraft eftir sjúkdóma, slys eða
önnur áföll sem fólk hefur orðið fyrir.
Fólk á öllum aldri, sem er sjálf-
bjarga, getur unnið í hóp og er með
minnið í lagi, á erindi í meðferð á
þessari línu. Í meðferðinni verður
lögð áhersla á fræðslu, hreyfingu og
slökun. Stundaskrá verður einstak-
lingsmiðuð en fræðsla, umræður og
ýmsar hópæfingar eru sameiginleg-
ar. Gert er ráð fyrir að taka upp nýj-
ungar í meðferð hjá Heilsustofnun,
sem eru vax-paraffín-meðferð fyrir
hendur og Tai chi-leikfimi. Tai chi-
leikfimi hefur verið iðkuð hér á landi
um hríð og nýtur vaxandi vinsælda.
Ný gigtar-
lína tekin
í notkun í
haust
Hveragerði
Gestir á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði geta notið sólarinnar á nýjum
sólpalli sem staðsettur er á milli bygginganna og er því í góðu skjóli.
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
LANDIÐ