Morgunblaðið - 05.07.2003, Side 36

Morgunblaðið - 05.07.2003, Side 36
MINNINGAR 36 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. Lundi V/Nýbýlaveg 564 4566 • www.solsteinar.is ✝ Einar Lárussonfæddist á Heiði á Langanesi 24. júlí 1924. Hann lést á dvalar- og hjúkrun- arheimilinu Nausti á Þórshöfn 26. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Lárus Helgason bóndi á Heiði og Arnþrúður Sæ- mundsdóttir hús- freyja á Heiði. Einar var þriðji yngstur 14 barna þeirra. Þau voru: Guðlaug, látin, Margrét Valgerður, látin, Sæ- mundur, látinn, Lára, látin, Þór- dís, látin, Bergþóra, látin, Anna, látin, Aðalbjörg, látin, Jón Trausti, látinn, Ari, látinn, Ingimar, látinn, Þorgerður, látin, og Bára, búsett í Keflavík. Uppeldisbróðir þeirra var Snorri Bergsson. Einar ólst upp á Heiði á Langanesi og fluttist til Þórshafnar um 20 ára aldur og bjó hann þar alla sína ævi. ánsson, börn þeirra: Stefán Magn- ús, f. 19.6. 1974, sambýliskona Jenný Henriksen og eiga þau tvö börn; Kapitola Rán, f. 26.6. 1977, sambýlismaður Róbert Gunnar Goldengey og eiga þau tvo syni og Kapitola á eina dóttur; Ránar, f. 12.8. 1984; Einar, f. 2.9. 1985. 4) Ásta Jóhanna, f. 29.7. 1955, maki Guðmundur Bjarnason, börn þeirra: Valborg Stefanía, f. 23.2. 1977, maki Sturla Gunnarsson og eiga þau þrjú börn; Svanfríður, f. 26.7. 1980; Ásta Hulda, f. 25.2. 1984; Tinna Rut, f. 24.9. 1985. 5) Ólafur Guðmundur, f. 24.3. 1959, d. 7.12. 1985. 6) Egill, f. 29.10. 1960, börn hans: Þorsteinn Ægir, f. 8.6. 1984; Katrín Björns, f. 3.12. 1987, Eyrún Tara, f. 6.9. 2001. 7) Sigurbjörg, f. 17.12. 1965, sam- býliskona Anleyg Petersen. 8) Ein- ar Valur, f. 26.4. 1971. 9) Elísa, f. 24.7. 1974, sambýlismaður Ölver Guðnason, barn hennar Birgir Þór Sigurðsson, f. 1.9. 1994. Einar starfaði lengst af hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar. Síð- ustu fimm ár dvaldi hann á Dval- ar- og hjúkrunarheimilinu Nausti á Þórshöfn. Útför Einars verður gerð frá Þórshafnarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Árið 1950 kvæntist Einar Valborgu Stef- aníu Guðmundsdótt- ur, f. 25.12. 1932, d. 7.10. 1994, frá Hró- aldsstöðum á Vopna- firði, og eignuðust þau níu börn. Þau eru: 1) Sæmundur Helgi, f. 2.7. 1951, maki Ragn- heiður Valtýsdóttir, börn þeirra: Valgerð- ur, f. 24.8. 1981, sam- býlismaður Guðmund- ur Ari Arason; Ólöf, f. 18.11. 1985, barn Sæ- mundar: Hafdís f. 23.10.1973, sambýlismaður Ingólf- ur Valur Ívarsson og eiga þau einn son. 2) Lára Arnþrúður, f. 5.7. 1952, maki Einar Nikulásson, börn þeirra: Páll, f. 20.8. 1972, maki Sóley Þórarinsdóttir og eiga þau tvær dætur; Þórður Georg, f. 28.4. 1974, sambýliskona Elínrós Hjart- ardóttir og eiga þau eina dóttur; Fanney, f. 7.11. 1979. 3) Anna Jenný, f. 3.6. 1954, maki Jón Stef- Elsku pabbi minn, nú er komið að kveðjustundinni. Ég vil þakka þér fyrir allar stundirnar sem við höfum átt saman í þessu lífi. Nú hefur þú fengið hvíldina og ég veit að þér líður vel núna. Takk fyrir allt og allt. „Því dýpra sem sorgin grefur sig í hjarta manns, þeim mun meira gleði getur það rúmað.“ (Kahlil Gibran.) Sofðu rótt, elsku pabbi minn. Þín dóttir, Sigurbjörg. Elsku pabbi og tengdapabbi, þökkum fyrir allar þær stundir sem við höfum átt með þér og við vitum að núna líður þér vel. Guð geymi þig. „Þegar þú ert sorgmæddur skoð- aðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran.) Við viljum þakka starfsfólki á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Nausti fyrir góða aðhlynningu Ein- ars síðastliðin ár. Einnig viljum við þakka Jóhanni A. Jónssyni fyrir hlý- hug í garð Einars. Þín Sæmundur og Ragnheiður. Elsku pabbi, mig langar að skrifa nokkur fátækleg orð til þín. Það var hinn 5. júní síðastliðinn að ég ákvað að skreppa til Þórshafnar til að heimsækja þig. Af hverju þessi tími? Því ég kom alltaf á hverju ári og þá alltaf rétt fyrir afmælið þitt sem er 24. júlí en í þetta skipti breytti ég út af venju minni og er ég fegin að hafa gert það. Já, og alltaf beiðstu eftir þessum tíma þegar ég kom því þá vissirðu að þú færir niður í húsið þitt, sem þú vildir helst vera í en því mið- ur gastu ekki verið þar. Já, við fórum niður í húsið þitt á hverjum degi á meðan ég stoppaði. Ég náði í þig upp úr hádegi og varst þú í húsinu þínu fram yfir kvöldmat að við röltum upp á Naust. Við spjölluðum yfirleitt saman því þú vissir svo mikið og gast sagt mér ýmislegt og var ég stolt af þér hvað þú varst alltaf hress miðað við að þú varst bundinn við hjólastól og orðinn blindur en auðvitað áttir þú þínar erfiðu stundir. Jæja, elsku pabbi, enn og aftur er ég mjög ánægð með að hafa breytt komu minni þetta sumarið. Nú kveð ég þig en á annan hátt því kveðju- stundir okkar þegar ég fór aftur suð- ur voru okkur mjög erfiðar. Hvíl þú í friði, elsku pabbi, ég mun sakna þín. Starfsfólki Nausts þakka ég umönnun sem það veitti föður mín- um og einnig vil ég þakka Jóa hans frábæru vináttu við föður minn. Þín dóttir Lára. Elsku afi, það voru ekki góðar fréttir sem við fengum morguninn 26. júní þegar okkur var sagt að þú værir dáinn. Lára var nýbúin að vera hjá þér og fara með þér á hverjum degi niður á Fjarðaveg og ekki var langt síðan ég talaði við þig. Ólöf var hjá þér kvöldið áður og þá varstu svo hress og ekki bar á neinu. Þótt þú hafir verið orðinn frekar veikur þá fannst okkur þetta ekki eiga að ger- ast strax. Þó að þú hafir stundum verið frekar svartsýnn var alltaf stutt í grínið og góða skapið þegar við voru búin að röfla við þig í smá- stund. Það sem er efst í huga okkar núna eru allar góðu og skemmtilegu minningarnar um okkur saman, t.d. þegar þú varst með fiskbúðina og varst alltaf að búa til færi handa okk- ur svo við gætum veitt í gegnum göt- in á bryggjunni. Það voru fastir liðir á hverjum degi eftir skóla að fara í búðina fyrir þig og kaupa svið eða saltkjöt. Það voru líka frábærar sög- ur sem þú sagðir okkur frá því þegar þú varst ungur, allar ferðirnar sem þú fórst, vinnan og allt það sem þú gerðir. Þú varst alltaf svo duglegur og hafðir svo gaman af því að segja okkur frá þessu öllu saman og okkur fannst svo gaman að hlusta á þig og vita allt þetta um gamla tímann. Eft- ir að við fórum í skóla á Akureyri þá varð sambandið ekki eins mikið en við hringdum alltaf í þig og þú hafðir svo gaman af því að rugla eitthvað í okkur og við í þér. Þegar við komum heim um jól og páska þá var það fyrsta sem við gerðum að fara á Naust í heimsókn til þín og þá stóð ekki á fréttunum frá þér, þú vissir um alla báta sem höfðu komið og allt sem gerðist í bænum þrátt fyrir sjón- og heyrnarleysi þitt. Það sem gladdi þig mjög mikið var þegar Jói forstjóri hafði komið í heimsókn til þín eða þú hafðir heyrt í honum. Eft- ir að hann flutti til Kanada var aðal- umræðuefnið hjá þér hvenær Jói ætlaði að gefa þér síma til að þú gæt- ir heyrt betur í honum. Þegar kom að útskriftinni minni (Valgerður) var ég svo heppin að vera fyrsta barna- barn þitt sem útskrifaðist. Ég bað þig um að gefa mér stúdentshúfuna og þú vildir það endilega og talaðir ekki um annað en myndina af mér með hvítu húfuna og alltaf bættir þú við: „Sem ég gaf þér.“ Eftir öll veikindi þín og eftir að sjónin og heyrnin hafði dofnað varst þú alltaf ákveðinn í því að þú vildir búa á Fjarðaveginum og vildir enga hjálp en þegar leið á gast þú ekki séð um þig sjálfur og þá fluttir þú á Naust. En þótt þú værir með hjúkr- unarkonur allt í kringum þig vildir þú sem minnsta hjálp og vildir gera allt sjálfur, sama hversu erfitt það var fyrir þig. Þetta eitt lýsir baráttu og dugnaði þínum í lífinu. Þú gerðir alla hluti sjálfur og eftir á varstu stoltur yfir því. Þú varst líka mjög ánægður með það þegar Ólöf byrjaði að vinna á Nausti hjá þér og þér fannst svo gaman þegar hún var að annast þig. Það er skrítið að hugsa til þess að hafa þig ekki hjá okkur um jólin og að fara ekki í jólainnkaupin fyrir þig. Einnig verður dapurt fyrir Ólöfu að annast þig ekki lengur og hafa allt það öryggi sem þú gafst henni í vinnunni á Nausti. Núna ertu kom- inn til Óla sonar þíns og við vitum að þér líður vel og að þú verður hjá okk- ur og passar okkur. Við munum allt- af sakna þín en huggum okkur við góðu minningarnar um þig og varð- veitum þær vel. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Guð geymi þig, elsku afi. Valgerður og Ólöf. Elsku afi minn. Það fyrsta sem mér kemur til hugar er hvað ég er fegin að hafa getað kvatt þig áður en þú fórst. Ég ákvað í skyndi að skreppa til þín í heimsókn á Þórs- höfn. Ég gat einungis stoppað í einn dag vegna vinnu en það var frábær dagur. Það var svo gaman að geta hlegið með þér, elsku afi minn, því þú varst svo lúmskur húmoristi, gast alltaf fengið mig til að hlæja. Ég man t.d. þennan dag þegar ég spurði þig hvort þú hefðir „séð“ nýjustu með- limi fjölskyldunnar. Þá svaraðir þú mér fullum hálsi. Þú sagðir: „Séð, ég sé nú bara alls ekki neitt.“ Svo hlóg- um við. En þú sagðir mér líka í al- vöru hvað þú værir orðinn þreyttur á að hafa ekki fullkomið frelsi til þess að hreyfa þig, já, þú varst orðinn ansi þreyttur á því en nú vona ég að þú sért sæll og getir farið allra þinna ferða frjáls. Ég verð að segja að hann afi minn er einn sá mesti karakter sem ég hef nokkurn tímann kynnst, það voru svo mörg sérkenni sem einkenndu hann í lifanda lífi, hver man t.d. ekki eftir hurðarskellunum? Allt þetta þakka ég fyrir því að það eru svo margar skemmtilegar sögur sem við höfum að segja hvert öðru sem hann skildi eftir hér hjá okkur hinum. Ég veit bara að ég á eftir að sakna þín heilmikið og ég elska þig, afi minn. Ég bið að heilsa öllum þarna sem þú ert núna. Þín Fanney. Elsku afi. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Hinsta kveðja. Hafdís, Ingólfur Valur og synir. EINAR LÁRUSSON Síðastliðinn laugardag var Þorlák- ur Stefánsson borinn til hinstu hvílu frá Hofskirkju. Í hugann koma og varðveitast góð- ar minningar um mætan frænda sem tók á móti okkur kaupstaðarbörnun- um, ásamt heimilisfólkinu á Hnappa- völlum, á hverju vori til sumardvalar. Lalli hafði góða nærveru, var barn- góður og náði vel til unglinga, þess nutum við í leik og starfi. Hann lét ekki fara mikið fyrir sér, var hógvær, lítillátur og sló á létta strengi. Spor- ÞORLÁKUR STEFÁNSSON ✝ Þorlákur Stef-ánsson fæddist á Hnappavöllum 26. mars 1922. Hann lést á Hjúkrunarheimili Skjólgarðs í Horna- firði 20. júní síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Stefán Þorláks- son, f. á Hnappavöll- um í Öræfum 1878, d. 1969, og kona hans Ljótunn Pálsdóttir, f. á Svínafelli í Öræfum 1882, d. 1955. Þorlák- ur var næstyngstur ellefu systkina, tvö dóu í frumbernsku. Auk hans eru nú látin Páll Arnljótur, Guðrún, Þóra Ingibjörg og Helgi en eftir lifa Kristín, Sigríður, Páll Sigurð- ur og Þórður. Útför Þorláks fór fram frá Hofs- kirkju í Öræfum 28. júní. léttur var hann og þol- inn og taldi sporin ekki eftir sér. Hann ólst upp í stórum systkinahópi í Vestri-Miðbæ, Hnappa- völlum. Byrjaði ungur að taka þátt í bústörfum sem urðu hans lífsstarf. Hann bjó félagsbúi á Hnappavöllum með bræðrum sínum og systrum, þeim Páli, Þórði, Guðrúnu og Kristínu, ásamt Sig- rúnu Bergsdóttur, eig- inkonu Þórðar, og síðar Guðmundi, syni Þórðar og Sigrúnar. Hann lifði tíma þar sem mikil um- skipti urðu frá fornum og frumstæð- um búskaparháttum í tæknivæddan nútímabúskap. Vinna bóndans er ná- tengd náttúru landsins og er bæði gefandi og síbreytileg eftir árstíðum. Hvort sem staðið var við engjaslátt á Hnappavallaengjum eða síðar í véla- heyskap á nýræktarsléttum var vinnudagurinn oft langur og handtök- in mörg. Dugnaður hans og ósérhlífni var það sem var einkennandi við störfin. Hann vann mikið að uppbygg- ingu alls húsakosts á jörðinni enda lagtækur og útsjónarsamur við smíð- ar og eftirsóttur í slík verk. Eins og tíðkaðist árum saman í Skaftafellssýslu þá fór Lalli á vertíð til Vestmannaeyja og vann við fisk- verkun. Á útleið og heimleið úr verinu var dvalið nokkra daga hjá okkur frændfólkinu í Kópavogi. Dagarnir fóru í útréttingar og afrakstur vertíð- arinnar var notaður til að tæknivæða búskapinn, kaupa nýjustu tæki og tól til að létta störfin og auka afköstin. Fljótlega eftir gos lögðust vertíðar- ferðir til Vestmannaeyja af. Í staðinn fór hann árlega til Hafnar í Horna- firði í fiskvinnu meðan aldur leyfði. Frá síðastliðnu hausti dvaldi Lalli á hjúkrunarheimilinu á Höfn og naut þar góðrar hjúkrunar, illa haldinn af illvígum sjúkdómi sem hann hefur nú verið leystur frá. Við þökkum Lalla elskulega sam- fylgd og biðjum guð að varðveita hann á sínum vegum. Sæmundur Alfreðsson. Síðastliðinn laugardag kvöddum við í hinsta sinn kæran frænda okkar, Þorlák Stefánsson frá Hnappavöllum í Öræfum. Við systkinin áttum því láni að fagna að alast upp á heimili hans, þar sem hann bjó félagsbúi ásamt foreldrum okkar og þremur öðrum systkinum hans og föður okk- ar. Enda þurftum við aldrei að hafa áhyggjur af því að fá ekki næga at- hygli, alltaf einhver til staðar fyrir okkur. Og ekki stóð nú á honum Lalla, eins og við kölluðum hann alltaf, að glettast eitthvað við okkur. Hann var alltaf léttur í lund og var óþreytandi, oft eftir langan vinnudag, að spila við og lesa fyrir litla frændfólkið. Og oft kíktum við inn í herbergið til hans til að sníkja mola eða bara til að heyra eina litla sögu. Lalli var eins og systkini hans voru og þeirra kynslóð, sístarfandi heima við búskapinn á vorin og fram á haust og svo dreif hann sig í smíðavinnu eða á vertíð á veturna á meðan aldur hans leyfði. Hann var eftirsóttur starfs- kraftur hvar sem hann var og mikill göngumaður, enda oft fenginn til að smala víða í sveitinni. Lalli var alla tíð mjög athugull maður og fylgdist vel með því sem gerðist í þjóðmálum hverju sinni. Fullan starfsdag vann hann við bú- skapinn allt fram á síðasta haust er illvígur sjúkdómur er hann hafði greinst með fyrir tveimur árum tók sig upp aftur. Hann dvaldist á Hjúkr- unarheimilinu Skjólgarði á Horna- firði síðustu átta mánuðina og naut umönnunar og hlýju heilbrigðis- starfsfólks þar. Nú hefur hann verið leystur frá líkamlegum kvölum sínum og andi hans sveimar vafalaust yfir Hnappavöllum og Öræfasveitinni sem var honum svo kær. Við sem eftir lifum þökkum fyrir það lán að hafa fengið að kynnast honum og njóta samvista við hann þó þetta lengi. Veit nokkur, næsta árið, hver nár mun hníga í gröf? Án boða feigðarfárið oft firrir lífsins gjöf. Þó vanti ei veðrið mjúka, oft vorlauf bleik sjást fjúka, en hver af oss, sem eftir þreyr, með elsku tregar þann sem deyr. Sá andast einn með gleði, sem iðkar sanna dyggð; hans gröf er gerð að beði, af guðs vernd yfirskyggð. Þá hérvist endað hefur, uns ungur vaknar aftur hann við ársól dýrðar guðs í rann. Guðmundur og Stefanía Þórðarbörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.