Morgunblaðið - 05.07.2003, Síða 39
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2003 39
Göngumessa á 30 ára
goslokahátíð
GÖNGUMESSA verður í
Vestmannaeyjum til að fagna því að
30 ár eru liðin frá goslokum á
Heimaey. Verður hún með svipuðu
sniði og undanfarin ár. Hugmyndin
er byggð á því sem kallað hefur ver-
ið pílagrímamessa, þ.e. guðsþjónust-
an er á ferð og þátttakendur vitja
minnisverðra og helgra staða.
Hefst hún með messuupphafi í
Landakirkju sunnudaginn 6. júlí kl.
11. Þaðan verður gengið austur í
kirkjugarðinn. Í garðinum verður
bæn fyrir minningu látinna. Við
krossinn í gíg Eldfellsins verður
guðspjallið lesið og lagt verður út af
texta dagsins. Þaðan verður gengið
niður að Hringskersgarði og messu-
lokin verða í Stafkirkjunni.
Á öllum stöðum verða sungnir
sálmar sem flestir ættu að þekkja.
Kór Landakirkju og organisti, Guð-
mundur H. Guðjónsson, leiða söng-
inn og leikur hann á orgelið í Landa-
kirkju, en einnig verður leikið á
flautur eða lúðra á viðkomustöðum.
Göngufólk er hvatt til að taka virkan
þátt í söng og svörum en til að auð-
velda það fá allir sálmablöð í hend-
urnar á staðnum. Fólk er hvatt til að
vera klætt eftir veðri.
Þess má geta að rútuferð verður
frá Landakirkju, upp í gíg og ofan
að Stafkirkju fyrir þá sem vilja taka
þátt en sleppa sjálfri göngunni. Eftir
göngumessuna mun sóknarnefnd
Ofanleitissóknar (Landakirkju)
bjóða kirkjufólki upp á súpu og
brauð á lóð Stafkirkjunnar.
Samkvæmt dagskrá hátíð-
arnefndarinnar má búast við
óvæntri uppákomu á Skansinum í
kjölfar guðsþjónustunnar.
Sr. Kristján Björnsson.
Árbæjarkirkja –
fjölskyldumessa
og grill
ÞAÐ verður sumarstemmning í Ár-
bæjarkirkju á sunnudaginn. Við
hefjum daginn á fjölskylduguðsþjón-
ustu í kirkjunni kl. 11. Umsjón hafa
þau Guðni Már og Margrét Ólöf
æskulýðsfulltrúar kirkjunnar ásamt
sr. Sigrúnu. Það verður mikill söng-
ur, brúður líta inn og sagðar verða
sögur. Eftir stundina í kirkjunni
verða grillaðar pylsur og við eigum
áfram ánægjulegt samfélag fyrir
framan safnaðarheimilið.
Við hlökkum til að hitta ömmur,
afa, mömmur og pabba og börn á öll-
um aldri í Árbæjarkirkju á sunnu-
daginn.
Kirkja og
samkynhneigð í
Hafnarfjarðarkirkju
Á MORGUN sunnudag fer fram
morgunsöngur í Hafnarfjarðar-
kirkju kl. 10.30. Morgunsöngurinn
er í anda sumarsins á léttari nótum
en hefðbundið helgihald að vetri og
byrjar hálftíma fyrr. Það er því góð-
ur kostur að hefja daginn með morg-
unstund í kirkjunni og halda svo út í
sumarið.
Morgunsöngvar fyrri hluta sum-
arsins og fram til 15. júlí fjalla allir
um ákveðin siðferðisleg málefni líð-
andi stundar. Að þessu sinni er hug-
leiðingarefnið „Kirkja og samkyn-
hneigð“. Um er að ræða málefni sem
á stundum hefur farið hátt en hefur
legið í láginni að undanförnu innan
kirkjunnar. Ætlunin er að varpa
ljósi að stöðu samkynhneigðra í ljósi
kristinnar trúar. Prestur er sr. Þór-
hallur Heimisson.
Ljósmynd/Gísli Sigurðsson
MAN einhver eftir blómabíln-
um? Þegar ég var stelpa í sveit
norður í Húnavatnssýslu komu
snemma í júní á hverju sumri tveir
sölumenn færandi hendi og áttu sín
viðskipti við húsmæður. Annar bíll-
inn var með nýtt hvalrengi en hinn
var blómabíllinn. Ég sá aldrei inn í
blómabílinn, en ég held að hann
hafi eingöngu verið með inniblóm,
enda mun færri garðar til sveita á
þeim tíma en nú eru. Hún fóstra
mín keypti oftast töluvert af blóma-
karlinum, a.m.k. hortensíur, bæði
bleikar og ljósbláar og svo gloxení-
ur. Gloxeníurnar fundust mér alveg
dýrðlega fallegar, ýmist dökkrauð-
ar eða djúpbláar á litinn, jaðrarnir
á blómunum oftast hvítir og blómin
svo stór og djúp, svona eins og
trekt eða lúður með kraga. En
hvernig læt ég, það þekkja flestir
gloxeníu, svo óþafi er að lýsa blóm-
unum. Ástæðan fyrir því að end-
urminningunni um blómabílinn
skaut upp í huga mér
er að blómin, sem nú
verður fjallað um, eru
stundum kölluð
garða-gloxeníur, því
að lögun blómanna
minnir töluvert á
gloxeníublóm, en þar
með er samanburðin-
um líka lokið og
skyldleikinn líklega
enginn, gloxenía er
líka suður-amerísk,
en glóðirnar há-As-
ísubúar, upprunnar í
Tíbet, Kína og öðrum
svæðum í Himalaya-
fjöllum.
Garða-gloxeníur,
sem hafa á íslensku
hlotið heitið -glóð, eru af lítilli ætt-
kvísl, sem heitir Incarvillea. Þetta
nafn er dregið af heiti franska trú-
boðans Pierre d’Incarville, sem var
uppi á fyrri hluta 18. aldar. Hann
var fyrsti menntaði grasafræðing-
urinn frá Vesturlöndum, sem ferð-
aðist um Kína til að rannsaka hið
ótrúlega fjölbreytilega gróðurfar
landsins og sjálfsagt hefur hann
boðað kristna trú í leiðinni. Incarv-
illea-ættkvíslin er lítil, í henni eru
aðeins 14 tegundir, en tvær þeirra
eru dálítið ræktaðar hér á landi.
Fjaðraglóð, Incarvillea delavay,
heitir eftir öðrum grasafræðingi,
J.M. Delavay, sem var á ferð í Kína
öld síðar en hann Pétur trúboði og
blómakarl, en Delavay þessi flutti
glóðirnar til Evrópu, þar sem þær
vöktu mikla hrifningu. Fjaðraglóð-
in er með stór, fjaðurskipt laufblöð
– þar af íslenska nafnið – sem
standa í blaðhvirfingu. Upp úr
henni vex svo blómstöngullinn,
blaðlaus með stórum lúðurlaga
blómum með fimm
útbreiddum krónu-
flipum. Fjaðraglóðin
hefur fallega rósrauð
blóm með gulum lit í
blómgininu, en líka er
til hvítt afbrigði með
gulu gini. Það hefur
stöku sinnum verið á
laukalista Garðyrkju-
félagsins og er mjög
fallegt eins og aðal-
tegundin. Fjaðra-
glóðin er fremur stór-
vaxin,
blómstöngullinn
verður 50–60 cm á
hæð, og blómgast í
júní. Sá galli er þó á
að hún er frekar við-
kvæm og þrífst best í kerum á
skjólsælum stað eða í köldum
skála. Mér hefur ekki tekist að
halda í henni lífi yfir veturinn en
það er ekki að marka.
Kínaglóðin, I. Mairei, sem hefur
líka afbrigði með enn stærri blóm-
um, var. grandiflora, er hins vegar
mjög harðgerð og lifir góðu lífi í
garðinum og blómstrar ár eftir ár.
Hún er mun lægri en fjaðraglóðin,
svona um 30 cm. Blöðin eru fallega
dökkgræn, dálítið hrukkótt og
glansandi en styttri en á fjaðra-
glóðinni. Þau eru líka fjaðurskipt
en síðasta blaðið á stönglinum er
áberandi stærst. Kínaglóðin mín er
alltaf dálítið sein til á vorin, svo ég
held í hvert skipti að nú muni hún
ekki skila sér, en viti menn, seint í
maí gægist upp dökkgrænn blað-
vöndurinn sem stækkar undur-
fljótt. Hún blómstrar venjulega í
lok júní, blómin á hverjum blóm-
stöngli eru þrjú til fjögur. Mín kína-
glóð er með ljósbleik blóm, gult gin
og í því eru svartar rákir, en Hólm-
fríður Sigurðardóttir lýsir kína-
glóðinni í Garðblómabókinni sem
dökkrósrauðri með hvítum rákum í
blómgininu. Glóðirnar eru ekki
vandlátar á jarðveg, venjuleg góð
garðmold er þeim vel að skapi. Eins
þola þær dálítinn skugga, en
blómgast auðvitað betur í fullri sól.
Glóðum er auðvelt að fjölga með
sáningu, en þær eru nokkur ár að
vaxa í blómgunarstærð. Mun auð-
veldara er að kaupa rótarhnýði af
Incarvillea, en plantan safnar forð-
anum í rótina, sem verður með ár-
unum stór og kröftug stólparót.
Forðaræturnar fást einkum á vorin
og eru stundum á vorlaukalista
Garðyrkjufélagsins. Þótt kínaglóð
sé seld á vorin en ekki haustin eins
og flestar harðgerðar lauk- og
hnýðisplöntur, lifir hún árum sam-
an og verður fallegri með aldrinum.
Hún er ekki plássfrek og þannig
þarf ekki að óttast að hún æði yfir
hálft blómabeðið, en hún kann vel
að meta dálítið skjól á veturna, t.d.
grein af jólatrénu eða hrúgu af
visnuðu laufi.
S.Hj.
Ath. Hann Pétur hringdi í mig í
síðustu viku að segja mér frá úlfa-
runnanum sínum. Sá stendur undir
norðurhlið hússins en blómstrar
von úr viti á hverju ári. Það er ekki
að spyrja að morgunsólinni, hún er
drýgri fyrir plönturnar en við hugs-
um stundum út í. Og ekki má
gleyma því að úlfarunnann hans
Péturs hefur heldur ekki kalið.
FJAÐRAGLÓÐ – KÍNAGLÓÐ
Fjaðraglóð
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
494. þáttur
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Atvinna
Óskum eftir að ráða vana bílstjóra og
vélamenn í vegagerð á landsbyggðinni.
Upplýsingar í símum 898 0690, 894 1154
og 434 1570.
Hvernig líst þér
á að læra þjóninn
á framsæknasta veitingastað landsins?
Veitingahúsið Einar Ben er glæsilegt veitinga-
hús sem óskar eftir að ráða nema í framreiðslu.
Námið tekur 3 ár, þar af bóklegt nám í 12 mán.
í Matvælaskóla Íslands. Nám, sem er gefandi
og veitir mikla möguleika í náinni framtíð.
Uppl. veitir Hákon í síma 821 4949.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Iðnaðarhúsnæði til leigu
240 fm iðnaðarhúsnæði í Ártúnshöfðanum
á 2 hæðum til leigu. Með góðum innkeyrslu-
dyrum og lofthæð.
Upplýsingar í síma 699 5390 og 557 5390.
TIL SÖLU
Trésmíðavélar
HK innréttinga til sölu
Vegna gjaldþrots eiganda og í samráði við kröfu-
hafa hefur verið ákveðið að leita tilboða í eignir
H.K. innréttinga, Suðurhrauni 2, Garðabæ.
Um er að ræða allar venjulegar vélar til reksturs
innréttingaverkstæðis: Þykktarpússvél, kantlím-
ingarvél, borðfræsara, spónapressu, spónsugu,
dílaborvél, borðsög, kantslípivél, spónasauma-
vél, veggsög, spónsög, borvél á standi, loft-
pressu, límvals, lamaborvél og lakkdælu.
Vélarnar verða til sýnis í húsakynnum fyrirtæk-
isins í Suðurhrauni 2 mánudaginn 7. júlí nk.
milli kl. 15.00 og 18.00.
Nánari upplýsingar gefa Sveinn Halldórsson
í símum 565 7931 og 897 1961 og undirritaður.
Tilboð þurfa að berast undirrituðum fyrir
kl. 17.00 fimmtudaginn 10. júlí. nk.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
Jón G. Briem hrl., skiptastjóri,
Suðurlandsbraut 4, Reykjavík,
símar 520 0906 og 895 0209.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
6. júlí Hekla, 1491 m. Farið
norðaustan á fjallið, frá Skjólkví-
um og Rauðuskál og gengið
með Heklugjá á topp fjallsins.
6—7 tíma ganga. Fararstjóri
Tómas Þröstur Rögnvaldsson.
Brottför frá BSÍ kl. 8:00.
Verð 2900/3300 kr.
9.—12. júlí Lónsöræfi. Upp-
selt er í ferðina. Fararstjóri
Gunnlaugur Ólafsson. Brottför
frá Stafafelli í Lóni kl. 10:00.
9.—13. júlí Laugavegurinn.
Uppselt er í ferðina. Gengið frá
Landmannalaugum í Bása. Farar-
stjóri Ragnheiður Óskarsdóttir.
Brottför frá BSÍ kl. 8:30.
9. júlí Útivistarræktin. Hengill
að norðan, 805 m. Brottför frá
gömlu Toppstöðinni (stóra brúna
húsinu) í Elliðaárdalnum kl. 18:30.
Allir eru velkomnir í Útivistarrækt-
ina — ekkert þátttökugjald.
Ferðir í Bása á Goðalandi og yfir
Fimmvörðuháls um hverja helgi í
sumar. Ferðir um Strútsstíg og
Sveinstind - Skælinga í hverri viku
í sumar. Nánari upplýsingar á
www.utivist.is
www.fi.is
Sunnudagur 6. júlí kl. 9.00
Laxárdalur - Laxá - Kaldbakur.
Farastjóri Sigurður Kristjánsson.
Lagt verður af stað kl. 9.00 frá BSÍ
með viðkomu í Mörkinni 6.
Verð kr. 4.000/4.300.
Söguferð í Engey er aflýst.
Miðvikudagskvöld 9. júlí kl.
19.30 Helgafell austan Kald-
ársels. Fararstjóri Höskuldur
Frímannsson. Lagt verður af
stað frá BSí kl. 19.30 með við-
komu í Mörkinni 6.
Verð kr. 1.600/1.900.
ATVINNUAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
ATVINNA
mbl.is