Morgunblaðið - 05.07.2003, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
NÚ er háannatími í ferðaþjónustu á
Íslandi. Mjög oft er vikið að því sem
betur má fara í ferðamálum á Ís-
landi en ekki er alltaf minnst á og
þaðan af síður lofað það sem vel er
gert.
Frá því í haust sem leið hefur ver-
ið unnið að mikilsverðum endurbót-
um á aðgengi eins fegursta staðar í
Borgarfirði sem alltaf hefur notið
mikillar hylli ferðamanna. Fyrir
nokkrum árum voru byggðir ágætir
útsýnispallar við Hraunfossa en þar
við látið sitja.
Lengi hefur verið mikið torleiði
fyrir ferðafólk komið á miðjan aldur
að komast frá göngubrúnni og upp á
hraunbrúnina. Nú í vor lauk lagn-
ingu göngustíga við Barnafossa
skammt ofan við Hraunfossana.
Sérstaklega er lofsvert að byggðar
voru tröppur upp á hraunið til frá-
bærs útsýnisstaðar suður yfir
Barnafossa. Eru núna óhöpp vænt-
anlega úr sögunni en ég minnist
þess að fyrir nokkrum árum hrös-
uðu þrjár gamlar konur þarna þegar
þær voru á leið til baka niður af
hrauninu. Var það oft daglegt brauð
og ferðaþjónustu okkar Íslendinga
til vansa hve ýmsar hættur leynast á
allt of mörgum stöðum.
Við bílastæðið hefur verið komið
fyrir dálitlu veitingahúsi með minja-
gripasölu og hreinlætisaðstöðu. Þó
að veitingahúsið sé ekki með því
stærsta á landinu er þar ágæt að-
staða fyrir litla hópa. Gott úrval
póstkorta og einstakir, handgerðir
minjagripir eru á boðstólum og er
það hinn annálaði ferðamaður og
veiðikempa, Snorri á Augastöðum í
Reykholtsdal, sem þarna ræður
ríkjum. Við bílastæðið er póstkassi
og auðvitað eru seld frímerki í versl-
uninni.
Nýverið átti ég leið um ofanverð-
an Borgarfjörðinn og vildi gjarnan
skoða aðstæður. Mig langar til að
lýsa yfir ánægju minni yfir því hve
vel hefur tekist. Mætti framtak
Borgfirðinga við Hraun- og Barna-
fossa verða öðrum landsmönnum
hvatning til frekari dáða á þessu
sviði; að gera góða og fagra staði
betri og aðgengilegri ferðafólki.
GUÐJÓN JENSSON,
bókasafnsfræðingur og
leiðsögumaður.
Við Hraunfossa
í Borgarfirði
Frá Guðjóni Jenssyni:
KÓR Menntaskólans í Reykjavík er
nýkominn úr söngferðalagi frá
London. 45 menntskælingar og
kórstjórinn Marteinn H. Friðriks-
son tóku lagið víða í London, alls
staðar þar sem tækifæri gafst,
sungu m.a. á útimarkaðinum í Cov-
ent Garden og í þremur kirkjum,
síðast hjá íslenska söfnuðinum í
London. Þar messaði sr. Sigurður
Arnarsson, en meðal kirkjugesta
voru einnig fyrrverandi prestur ís-
lenska safnaðarins, sr. Jón Aðal-
steinn Baldvinsson, og sendiherra
Íslands og frú. Ferðin tókst með
miklum ágætum. Í frítímum gafst
kórfélögum tækifæri til að skoða
söfn, merkar byggingar og sögu-
staði, fara í Lundúnaaugað og í
leikhús. Orð Tómasar Guðmunds-
sonar fylgdu þessum fríða hópi:
„Lát raddir þínar, æska lands vors,
óma í ungri gleði, nýjum söng.“
MARTEINN H. FRIÐRIKSSON,
kórstjóri.
MR-kórinn í London
Frá Marteini H. Friðrikssyni: