Morgunblaðið - 05.07.2003, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Oft og tíðum er líf þitt
skemmtilegt og spennandi.
Það er vegna þess að þú hef-
ur fjörugt ímyndunarafl.
Persónutöfrar þínir munu
koma þér langt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ekki fara offari í samræðum
þínum við fjölskyldumeðlimi í
dag og leyfðu skoðunum ann-
arra að komast að.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Í dag er kjörið að versla ei-
lítið. Það væri einnig tilvalið
að vera í félagsskap góðra
vina og gera eitthvað
skemmtilegt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Allt sem er tengt fjármálum
og viðskiptum lítur vel út í
dag. Staða himintunglanna
gerir það að verkum að fjár-
hagurinn vænkast.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur yfirhöndina í hverju
því sem þú tekur þér fyrir
hendur í dag. Þú hefur það á
tilfinningunni að þér eigi eftir
að ganga vel.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nú er kjörið að rannsaka eitt-
hvað eða leita lausna á vanda-
málum fortíðar. Þú gætir
jafnvel uppgötvað leyndarmál
í dag. Farðu með gát.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ekki hika við það að biðja vin
um hjálp í dag. Þú átt inni
greiða hjá æðri máttar-
völdum. Með æðri máttarvöld
þér við hlið getur þú ekki far-
ið halloka.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Dagurinn í dag, þessi vika,
þessi mánuður og þetta ár.
Allt hefur þetta verið þér
hagstætt. Þú hefur lengi beð-
ið eftir þessu og átt þetta skil-
ið.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Hvaðeina sem viðkemur æðri
menntun, útgáfumálum og
fjölmiðlum gengur vel í dag.
Góðar fréttir frá fjarlægum
slóðum gætu létt á hjarta
þínu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það þarf að skipta einhverju
milli þín og annarra. Nú er
rétti tíminn til þess að gera
það. Mundu að fólk á það til
að vera ósanngjarnt.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þig langar ekki til þess að
vinna í dag. Ef engin verkefni
eru fyrirliggjandi skaltu ekki
hafa neinar áhyggjur. Taktu
því rólega og hafðu það gott.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Jafnvel þó að nú sé hentugur
tími til þess að halda í við sig í
mat heilla sætindin þig.
Fylgdu því gamla ráði að
borða ekki meira en þú getur
lyft.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Reyndu að finna leiðir til þess
að sýna hæfileika þína. Þeir
eru sannarlega til staðar og í
dag væri hentugt að láta
reyna á þá.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
BARNAGÆLA
Sofðu með sæmdum
sæll í dúni
sem vín á viði,
vindur á skýi,
svanur á merski,
már í hólmi,
þorskur í djúpi,
þerna á lofti,
kýr á bási,
kálfur í garði,
hjörtr í heiði,
en í hafi fiskar,
mús undir steini,
maðkur í jörðu,
ormur í urðu
alvanur lyngi,
hestur í haga,
húnn í fjöllum,
seiði á flúrum,
en á sandi murta,
björn á heiði,
vargur á viði,
vatn í keldu,
áll í veisu,
en maur í moldu,
síli í sjó
og sundfuglar,
fálkar í fjöllum,
fílar í skógum,
ljón í bæli,
lamb í mói,
lauf á limi,
ljós á haldi.
Sofðu eins sæll
og sigurgefinn.
Ókunnur höfundur.
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
50 ÁRA afmæli. 7. júlínk. verður fimm-
tugur Björn Ingi Bjarna-
son, fiskverkandi, Ránar-
grund, Eyrarbakka. Björn
Ingi og fjölskylda hans
bjóða vinum og vandamönn-
um að samgleðjast í tilefni
afmælisins í Hólmaröst á
Stokkseyri laugardaginn 5.
júlí kl. 21–24.
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 5. júlí,
er fimmtug Ína H. Jónas-
dóttir, tryggingafulltrúi og
varaformaður SFR. Hún og
eiginmaður hennar, Eggert
Sv. Jónsson skipstjóri, sem
varð fimmtugur 12. maí sl.,
taka á móti ættingjum og
vinum í Víkinni, félagsheim-
ili Víkings á milli kl. 17 og 20
í dag, laugardag.
EKKERT er sjálfgefið í
brids. Til dæmis er óvíst að
alltaf sé best fyrir vörnina að
herja strax í sínum besta lit:
Norður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ G942
♥ 843
♦ D3
♣ÁKD7
Vestur Austur
♠ 106 ♠ D753
♥ KG96 ♥ ÁD10
♦ 10752 ♦ G4
♣G63 ♣10982
Suður
♠ ÁK8
♥ 762
♦ ÁK986
♣54
Spilið er frá úrslitaleik
Wellands og Nyström í
parasveitakeppninni í Ment-
on. Á báðum borðum spiluðu
NS þrjú grönd, en sagnhaf-
inn var ekki sá sami. Svíinn
Fredrik Nyström var sagn-
hafi í norður á öðru borðinu.
Hann lét út lauftíu og spilaði
beint af augum: prófaði þrjá
efstu í tígli og síðan ÁK í
spaða. Ekkert gekk, og Fre-
drik varð að sætta sig við
átta slagi.
Á hinu borðinu varð suður
sagnhafi eftir þessar sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
Magnús Michael Kat Debbie
-- Pass Pass 1 grand
Pass 2 lauf Pass 2 tíglar
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Michael og Debbie Ros-
enberg voru í NS gegn
Magnúsi E. Magnússyni og
Katarinu Midskog.
Magnús spilaði út hjarta
frá besta litnum og vörnin
tók þar strax fjóra slagi.
Sagnhafi henti spaða úr
borði í fjórða hjartað og tígli
heima. Magnús skipti yfir í
lauf, sem Debbie Rosenberg
tók með ás og lagði ÁK í
spaða inn á bók. Svo tók hún
þrjá efstu í tígli í þessari
stöðu:
Norður
♠ G
♥ --
♦ D3
♣KD7
Vestur Austur
♠ -- ♠ D
♥ -- ♥ --
♦ 10752 ♦ G4
♣G6 ♣1098
Suður
♠ 8
♥ --
♦ ÁK98
♣5
Spaðagosinn fór úr blind-
um í þriðja tígulinn og Kat í
austur varð að játa sig sigr-
aða.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
g6 4. 0-0 Bg7 5. c3 Rf6 6.
He1 0-0 7. d4 cxd4
8. cxd4 d5 9. e5 Re4
10. Rc3 Bf5 11. Be3
Rxc3 12. bxc3 Hc8
13. Rh4 Bd7 14.
Bd3 Ra5 15. Bd2
Rc4 16. Bxc4 Hxc4
17. Db3 Dc7 18. a4
b6 19. g3 Dc6 20. a5
b5 21. Rg2 Bh3 22.
Re3 f6 23. e6 f5 24.
f4 Hd8 25. He2 Ha4
26. Hxa4 bxa4 27.
Db1 Hd6 28. Db8+
Bf8 29. Dxa7 Db5
30. Kf2 Db1 31. He1
Dd3 32. He2 a3 33.
Be1 Hxe6 34. Dc5
Staðan kom upp á móti í
Dresden á síðasta ári. Zig-
urds Lanka (2.488) hafði
svart gegn Moritz Gentem-
ann (2.131). 34. … Hxe3!
35. Hxe3 Df1#.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
70 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 5. júlí,
er sjötugur Sverrir Sveins-
son, deildarstjóri hjá RAR-
IK á Siglufirði. Eiginkona
hans er Auður Björnsdóttir.
Þau eru að heiman í dag.
HLUTAVELTA
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 2.624 kr.
til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Álfdís Bera og
Eirný Halla.
Bikarkeppnin
á fullri ferð
Önnur umferð bikarkeppninnar
stendur sem hæst en síðasti spila-
dagur umferðarinnar er 20. júlí.
Vitað er um þrjá leiki sem er lokið
og hafa leikirnir endað með miklum
mun.
Sveit ÍAV sigraði sveit Önnu G.
Nielsen 128-39 og Hársnyrting Vil-
dísar vann sveit Samskipta 130-54.
Þá höfum við áður sagt frá sigri Suð-
urnesjasveitarinnar á sveit Baldurs
Bjartmarssonar.
Önnur sveit af Suðurnesjum spil-
aði á Húsavík sl. föstudagskvöld
gegn Shellskálanum en þau úrslit
liggja ekki fyrir.
Frá félagi eldri borgara
í Hafnarfirði
Föstudaginn 27 júní var spilaður
tvímenningur hjá eldri borgurum í
Hafnarfirði. Úrslit urðu þessi:
Jón Gunnarsson – Jón Pálmason 143
Sverrir Gunnarss. – Sigurður Hallgr. 121
Árni Bjarnas. – Þorvarður S. Guðm. 120
Jón Sævaldsson – Sófus Berthelsen 114
Spilaður var tvímenningur þriðju-
daginn 30. júní á sex borðum.
Úrslit urðu þessi:
Bjarnar Ingimarss. – Ólafur Gíslason 205
Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 188
Oddur Jónsson – Katarínus Jónsson 184
Sverrir Gunnarss. – Sigurður Hallgr. 172
Spilað verður í næstu viku, 8. og
12. júlí, en síðan gert hlé til 12. ágúst.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
FRÉTTIR
Á FUNDI Nýs afls um varnarmál
var samþykkt ályktun þar sem segir
að Íslendingar eigi að taka við þeim
verkefnum sem nauðsynleg eru til að
viðhalda varnar- og öryggisviðbún-
aði og annast annan viðbúnað sjálf í
samstarfi við Atlantshafsbandalagið.
Í ályktuninni eru íslensk stjórnvöld
gagnrýnd harðlega fyrir hvernig þau
hafa haldið á málum síðustu mánuð-
ina.
„Nýtt afl telur ámælisvert að for-
sætis- og utanríkisráðherra skyldu
sammælast um að halda leyndu fyrir
þjóðinni svo mánuðum skipti að
Bandaríkjastjórn ætlaði að gjör-
breyta fyrirkomulagi varnarstöðvar-
innar í Keflavík. Fyrirhugaðar
breytingar á varnarstöðinni munu
leiða til fjöldauppsagna starfsfólks
og aukins kostnaðar þjóðarinnar við
að halda uppi nauðsynlegri þjónustu
sem varnarliðið hefur annast eða
kostað.
Forystumenn ríkisstjórnarinnar
blekktu þjóðina fram yfir kosningar
og létu í veðri vaka að svigrúm væri
fyrir skattalækkanir og dýrar fram-
kvæmdir vegna aukinnar atvinnu og
hagsældar þegar þeir vissu að þetta
væri rangt þegar heildarmyndin var
skoðuð,“ segir í ályktun Nýs afls.
Ályktun Nýs afls um varnarmál
Íslensk stjórnvöld
blekktu þjóðina
KRAKKAKLÚBBUR fyrirtækisins
Evró ehf. gaf Félagi krabbameins-
sjúkra barna (SKB) kr. 200.000.
Þessi upphæð er að hluta andvirði
leigu á tjaldstæðum í Evró-
ferðahelgum og einnig allt andvirði
sölu á Coca Cola í verslun Evró í
Skeifunni. Einnig lagði Evró ehf. til
hluta gjafarinnar. Krakkaklúbbur
Evró samanstendur af börnum
þeirra sem eiga Coleman-fellihýsi
eða EasyCamp-tjaldvagna og var
það þeirra ósk að þessi fjárhæð
rynni til þessa góða málefnis.
Morgunblaðið/Jim Smart
Starfsmaður Evró, Helgi Berg, afhenti styrkinn, fyrir hönd Krakkaklúbbs
Evró, til Rósu Guðbjartsdóttur frá Félagi krabbameinssjúkra barna.
Gjöf til krabbameinssjúkra barna