Morgunblaðið - 27.07.2003, Síða 6

Morgunblaðið - 27.07.2003, Síða 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ K aupmannahafnarbúar eru í sumarskapi. Ungt par stað- næmist við gangbrautina á rauðu ljósi. Það byrjar að kyssast. Og heldur áfram að kyssast þótt rauði kallinn verði grænn. Hann roðnar aftur. Í heiðríkju sumarsins rekur marga í rogastans er þeir mæta yfir hundrað jólasveinum á Ráðhústorginu. Syngjandi jólalög og dansandi í kringum jólatré. Jólasveinarnir eru af mörgum þjóðernum og koma sumir langt að, mun lengra en frá Himmel- bjerget, jafnvel Japan og Grænlandi. Undanfarna áratugi hafa þeir hist í júlí í Danmörku, ef til vill vegna þess að danski fáninn er í jólasveinalitunum. – Er enginn jólasveinn hérna frá Íslandi? spyr blaðamaður. – Nei, en ef þú veist um einhvern, þá endilega sendu hann til okk- ar, svarar japanskur jólasveinn. – Hann hefur kannski lent í vandræðum með hreindýrin, segir sænskur jólasveinn, sem greinilega hefur aldrei komið í Klaustursel á Jökuldal. Hollenski jólasveinninn er hátíðlegri en aðrir, klæddur eins og biskup og með hjálparsvein, sót- svartan í framan, sem heitir Svarti Pétur. – Ég fer með pakkana niður reykháfana, segir Svarti Pétur, brosir gegnum sótið og fræðir blaða- mann um það að í Hollandi sé gjöfunum dreift 5. desember, daginn fyrir afmælisdag jólasveinsins. – Á jólasveinninn afmæli 6. desember, spyr blaðamaður hissa, sem sjálfur á afmæli þann dag og hefur stundum verið talinn hálf- gerður jólasveinn. – Já, segir Svarti Pétur og kinkar kolli. – En þarf ekki að taka upp samræmdan staðal innan Evrópusam- bandsins um það hvenær jólasveinar gefa gjafir? – Það yrði þá að færa alla gjafadaga til 5. desember, því þar á gjafahefðin uppruna sinn, segir Svarti Pétur með þóttasvip. Og vandi Evrópusambandsins kristallast í orðum hins hollenska Svarta Péturs. Evrópusambandið breytir ekki Hollandi; Holland ætlar að breyta Evrópusambandinu. Eftir jólagleðina á torginu safnast jólasveinarnir í ráðhúsið. Bjöll- ur klingja um alla ganga eins og húsið sé fullt af þingforsetum. Í veislusalnum hangir skjöldur Íslands á vegg ásamt skjöldum ann- arra nýlendna Dana. Bente Frost er staðgengill borgarstjóra. Hún flytur ræðu um ábyrgðina sem því fylgir að færa gleði í jólahaldið. Í stjórnmálum er alltaf einhver dreginn til ábyrgðar. Svitinn drýpur af þykkklæddum jólasveinunum. – Það er bara einn jólasveinn frá Kanada, segir jólasveinninn frá Kanada. Ef þú sérð tvo jólasveina í Kanada, þá verðurðu að skjóta annan, bætir hann við með trega í röddinni. Ég held foreldrarnir séu vísir til þess, því þeir taka þetta mjög hátíðlega, segir hann áhyggjufullur. En börnunum er alveg sama þó jólasveinarnir séu fleiri. Fimmtíu jólasveinar eru betri en einn, segir hann, hlær og tekur gleði sína á ný. Götuvitarnir senda flóðbylgjur inn á Strikið. Fátt skemmtilegra en að sitja á kaffihúsi, rýna í mannhafið og hlusta á tóna götunnar. Parið á næsta borði horfist í augu og deilir pylsu. Maðurinn í X-Files-bolnum er geimvera. Roskin kona dregur sígarettupakka upp úr farteskinu og tendrar eina. Svo heldur hún áfram að betla. Í miðri þrönginni verður barnavagnaárekstur. Allt fer á besta veg, – börnin vakna ekki. Ungir íslenskir skákmenn hefna myglaða mjöls- ins. Íslensk stúlka talar ensku á ítölskum veitingastað og pantar kók. Ef nánar er að gáð morar allt af Íslendingum. – Ég er búin að bíða og bíða og bíða, segir dóttir við móður sína, sem leggur frá sér innkaupapokana afsakandi. – Það eru engir fuglar hérna, segir vonsvikinn faðir með ungana sína tvo. – Má hjóla hérna, spyr undrandi stúlka vini sína þegar hún mætir hjólreiðamanni. – Við erum meiri skvísurnar, segir stúlka við vinkonu sína og þær þræða búðirnar af sömu vandvirkni og perlur á band. – Ég er orðin stór, segir smástelpa sem vill ráða hvert förinni er heitið. Hún teymir pabba áfram á litla puttanum og bætir við: Ég er sterk. Óhrjálegur gamall maður gengur með hafurtaskið í regnhlífinni. Innan um flíkurnar eru nokkur blóm. Falleg hvít blóm. Eitt hefur fallið á gangstéttina. Og gamli maðurinn er að safna styrk til að beygja sig eftir því. Afskorinn stilkur að teygja sig eftir blómi. Og parið við götuvitann enn að kyssast. Morgunblaðið/Pétur Blöndal Í slagtogi með Íslendingum og jólasveinum SKISSA Pétur Blöndal stakk sér í mannhafið á Ráðhústorgi FLESTIR gera ráð fyrir að sókn í gæs muni aukast í kjölfar banns við veiði á rjúpu og veiðiþunginn nái yfir lengra tímabil en verið hefur til þessa en fæstir treysta sér þó til þess að spá fyrir um hversu mikið hún muni aukast. Engu að síður er athyglisvert að velta fyrir sér tölum í þessu sam- bandi. Í tillögum Náttúrufræðistofnunar Íslands til verndar rjúpnastofninum kemur fram að af sjö þúsund veiði- kortahöfum sem skila inn einhverri veiði á hverju ári veiði 4.600 eða 67% veiðimanna rjúpu eingöngu en ekki gæs. Erfitt er að spá fyrir hversu margir af þessum veiðimönnum taki að skjóta gæs nú þegar búið er að banna veiði á rjúpu og eins er óvíst hversu fljótir þeir verða að ná tökum á því að skjóta hana. Meðalveiði á grágæs var um 35.800 fuglar á árunum 1995-2001, meðal- veiði á heiðargæs liðlega 13.300 fugl- ar, 3.300 á blesgæs og um tæplega 1.800 á helsingja. Meðalveiðinni ár- anna 1995-2001 á öllum tegundum var því um 54.300 fuglar. Skotveiðifélagið telur að um 3.400 manns fari til gæsa- veiða á hverju ári og það þýðir þá að hver veiðimaður hefur skotið hátt í 16 gæsir að meðaltali. Gefum okkur nú að það taki rjúpnaskytturnar nokk- urn tíma að ná tökum á gæsaveiðinni og þær skjóti tíu gæsir að meðaltali fyrsta haustið. Ef við gefum okkur einnig að fjórðungur þeirra sem að- eins skaut rjúpu fari nú á gæs fjölgar gæsaveiðimönnum um 1.150. Það myndi þýða að veiði á gæs myndi aukast um 11.500 fugla eða um rúm 20%. Þá vaknar auðvitað spurningin: Hvað með gæsastofnana, þola þeir aukinn veiðiþunga eða mun bann við veiðum á rjúpu verða til þess að tak- marka þurfi veiðar á gæs? Breytir öllu jafnvæginu Þar verður fyrir svörum Arnór Þ. Sigfússon, fuglafræðingur, en hann segist vera sannfærður um að bann við veiði á rjúpu muni leiða til aukn- ingar í veiði á gæs þótt ómögulegt sé að nefna tölur í því sambandi. „Þetta breytir öllu jafnvægi í veiðunum. Þeg- ar veiðitímabil á rjúpu hefst hafa veiðimenn gjarnan hætt í gæsinni þótt gæsin sé hér enn þannig að ég reikna með að veiðiþunginn í gæsina muni vara lengur. Bannið gæti því haft ófyrirséð áhrif á gæsastofnana en það á eftir að koma í ljós hversu mikil þau verða. Svo má ekki gleyma öndinni; það má búast við að það kunni að verða einhver aukning í veiði á öndum en um þá stofna vitum við í raun enn minna.“ Arnór segir grágæsarstofninn, sem langmest er veitt úr, hafa minnkað jafnt og þétt undanfarinn áratug eða lengur, stofninn hafi talið 89 þúsund fugla haustið 2001 en hafi minnstur verið áætlaður um 76 þúsund fuglar þannig að svo virðist sem niðursveifl- an hafi stöðvast og stofninn jafnvel aðeins farinn að rétta úr kútnum. Arnór tekur þó fram að villur virðist hafa verið í gögnum sem notuð voru við mat á stærð stofnsins. „Þegar við skoðuðum niðurstöður talninga á Bretlandseyjum í samhengi við nið- urstöður merkinga okkar og niður- stöður úr veiðiskýrslum gengu hlut- irnir ekki upp. Annaðhvort var stofninn vanmetinn stórlega eða veið- in stórlega ofmetin. Eins gat verið að við hefðum vanmetið ungahlutföllin í stofninum. Eftir að hafa gert skoð- anakönnun á meðal veiðimanna telj- um við veiðina hafa verið nokkuð rétt skráða og þá eru líkur á því að stofn- inn sé vantalinn. Grágæsarstofninn er því líklega stærri en menn töldu.“ Aðspurður segist Arnór þó ekki vilja sjá sóknina í grágæsina aukast mjög mikið. „Náttúrufræðistofnun gaf út á sínum tíma að það væri ekki ástæða til þess að takmarka veiðar á grágæsum en tekið var fram að hún mætti hins vegar heldur ekki aukast mikið. Ef við fengjum nokkur ár þar sem varp myndi að stórum hluta mis- farast myndi grágæsarstofninn örugglega minnka snöggt.“ Arnór segir stofn heiðargæsar og helsingja vera í sögulegu hámarki og það sé kannski ekki ástæða til þess að hafa áhyggjur af þeim stofnum nema veiðin aukist mjög mikið. „Menn hafa mestar áhyggjur af blesgæsinni eins og er. Stofninn hefur farið minnkandi og var kominn niður í 27 þúsund fugla haustið 2001.“ Ekki æskilegt að veiða meira af gæsinni Morgunblaðið/Ómar Langmest er veitt af grágæs en ekki er talið ráðlegt að auka veiðina. MORGUNBLAÐINU hefur borist athugasemd frá Þóri Oddssyni vara- ríkislögreglustjóra vegna frétta- flutnings um fund vararíkislögreglu- stjóra með Samkeppnisstofnun 16. júní síðastliðinn. „Vegna fréttaflutnings undan- farna daga um samskipti Samkeppn- isstofnunar og embættis ríkislög- reglustjóra vegna rannsóknar sem Samkeppnisstofnun vinnur að verð- ur ekki hjá því komist að gera at- hugasemdir við nokkur atriði. Stuðst er við minnisblað sem undirritaður gerði strax að fundi loknum. Mánudaginn 16. júní 2003 kl. rúm- lega 11.00 komu á fund undirritaðs Georg Ólafsson, forstjóri, og Ásgeir Einarsson, lögfræðingur, í tengslum við rannsókn Samkeppnisstofnunar á ætluðu ólögmætu samráði olíufé- laganna Olíuverzlunar Íslands hf., Olíufélagsins hf. og Skeljungs hf., sem hófst hinn 18. desember 2001. Tilefni fundarins var staða rann- sóknar þess máls, en hún væri afar umfangsmikil og ennfremur að leita eftir viðhorfum RLS um framhald hennar. GÓ og ÁE greindu frá því að rann- sókn á þeim þætti sem lengst væri kominn (1. hluti) beindist einkum að þremur þáttum: 1. Samráði um gerð tilboða. 2. Markaðsskiptingu og verðsam- ráði í sölu á eldsneyti á Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvelli. 3. Verðsamráði og markaðsskipt- ingu í sölu á eldsneyti til erlendra skipa í íslenskum höfnum. Að sögn þeirra hafði Olíufélagið hf. verið fúst til samstarfs og hin fé- lögin að einhverju marki en þó síður. Þeir höfðu meðferðis skýrslu um frumathugun á ofangreindum þátt- um og óskuðu eftir að fá að skilja hana eftir en beðist var undan því að sinni. Þeim var greint frá því að Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahags- brotadeildar RLS, hefði ekki haft tök á því að sitja þennan fund og Haraldur Johannessen, ríkislög- reglustjóri, væri í sumarleyfi erlend- is og því væri eðlilegt að saksóknari efnahagsbrotadeildar kæmi að mál- inu. GÓ og ÁE sögðust vilja vekja at- hygli RLS á máli þessu þar sem ekki væri beinlínis í samkeppnislögum kveðið á um það með hvaða hætti gera ætti rannsóknar- og ákæruvaldi grein fyrir stöðu máls þegar svo stæði á að til álita væri að vísa máli til opinberrar meðferðar, þótt sektir væru lagðar á félögin. Fram kom í máli þeirra GÓ og ÁE að rannsókn málsins væri alls ekki lokið og reiknuðu þeir með því að e.t.v. lyki henni fyrir árslok. Þeir væru að leita viðhorfa RLS til þess hvort hagfelldara væri að RLS fylgdist með rannsókninni og gæti þá myndað sér skoðun á því hvort líklegt væri að málið kæmi til kasta lögreglu eða hvort RLS vildi bíða þar til rannsókn Samkeppnisstofn- unar lyki. Undirritaður sagðist ekki ætla að kveða upp úr með það en lagði til að ÁE og JHS hefðu samband og hitt- ust þá eftir atvikum til frekara sam- ráðs ef Samkeppnisstofnun teldi ástæðu til þess, en GÓ var á förum til útlanda og ÁE áformaði sumarleyfi síðar í júnímánuði. GÓ og ÁE skildu eftir ljósrit af bréfi er Samkeppnisstofnun sendi Gísla Baldri Garðarssyni hrl. v/Olíu- verslunar Íslands hf. dagsett 8. jan- úar 2003, en þar eru talin upp þau at- riði sem hin ætluðu brot eru talin lúta að. Þessi óformlegi fundur stóð í u.þ.b. 25 mínútur. Á fundi þessum var af hálfu Sam- keppnisstofnunar ekki bent á nein atriði sem sérstaklega varða þátt einstakra starfsmanna olíufélaganna og er það því rangt að lögregla hafi fengið þá vitneskju um málsatvik sem leiða ættu til þess að rannsókn hæfist af hennar hálfu. Þegar litið er til þess að fundurinn var skammur en skýrslan sem GÓ hafði meðferðis talsverð að vöxtum varð ekki tekin ákvörðun um framhald málsins án þess að nánari grein væri gerð fyrir sakarefnum sem studd væru sönn- unargögnum. Efnisyfirlit sem svo hefur verið nefnt og skilið var eftir hjá vararíkislögreglustjóra er bréf það sem áður er nefnt til Gísla Bald- urs Garðarssonar hrl. Bréf sendi Samkeppnisstofnun öllum olíufélög- unum í þeim tilgangi að auðvelda að- ilum málsins að nýta sér andmæla- rétt sinn samkvæmt stjórnsýslu- lögum og er það áréttað að bréfið er dagsett 8. janúar 2003 – tæpu hálfu ári áður en fundur þessi átti sér stað.“ Athugasemd frá vara- ríkislögreglustjóra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.