Morgunblaðið - 27.07.2003, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 27.07.2003, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 21 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða þér nú síðustu sætin í sólina í ágúst og september á hreint ótrúlegu verði, en nú sumarstemmningin í hámarki á vinsælustu áfangastöðum Evrópu og aldrei betra að njóta vinsælustu staðanna á fegursta tíma ársins. Nú eru flestar brottfarir í júlí uppseldar. Tryggðu þér síðustu sætin meðan enn er laust. Munið Mastercard ferðaávísunina Síðustu sætin í sólina í ágúst og september frá kr. 19.950 með Heimsferðum Benidorm - 20. ágúst Verð frá kr. 39.962 M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, Albir Garden. Almennt verð kr. 41.960. Innifalið: flug gisting og skattar. Flutningur til og frá flugvelli erlendis kr. 1.800.- per mann Verð frá kr. 39.962 M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, vikuferð, stökktutilboð. Almennt verð kr. 41.960. Innifalið: flug gisting og skattar. Flutningur til og frá flugvelli erlendis kr. 1.800.- per mann Prag - Verslunarmannahelgin Verð frá kr. 39.950 Flugsæti með sköttum. 29. júlí - 4. ágúst Almennt verð kr. 41.950. Verona - 20. ágúst Verð frá kr. 19.950 Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1, 20. ágúst. Almennt verð kr. 20.950. Mallorka - 18./25. ágúst Verð frá kr. 39.962 M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, vikuferð, stökktutilboð. Almennt verð kr. 41.960. Innifalið: flug gisting og skattar. Flutningur til og frá flugvelli erlendis kr. 1.800.- per mann Costa del Sol - 27. ág./3. sept. Rimini - 19./26. ágúst Verð frá kr. 39.962 M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, vikuferð, stökktutilboð. Almennt verð kr. 41.960. Innifalið: flug gisting og skattar. Flutningur til og frá flugvelli erlendis kr. 2.800.- per mann minni og þá tókust nánari kynni með okkur Hermanni. Hann hafði frá upphafi mikinn hug á búskap og lifandi áhuga á hestamennsku, það var hans veganesti úr föðurhúsum. Hermann átti nokkrar kindur, faðir minn gaf okkur kú og tengdamóðir mín gaf okkur aðra kú og með þenn- an bústofn byrjuðum við okkar bú- skap. Við fengum jarðnæði á Flúðum. Þar var þá rekinn skóli. Skólastjór- anum hafði verið fengin þessi spilda úr jörðunum Hellisholti og Hrafn- kelsstöðum. Hann nýtti ekki landið og við fengum það leigt. Við bjugg- um þarna í hálft annað ár. Þá dó bóndinn í Langholtskoti og við keyptum jörðina í félagi við Pál Bjarnason frá Auðsholti, sem verið hafði vinnumaður í Hvítárholti á sama tíma og Hermann. Um þetta leyti var mikið í tísku að endurskíra jarðir, einkum þær sem kenndar voru við kot. Sumir nefndu þetta við okkur en mér þótti þetta fráleitt – það er fólkið sem ræður farsæld búa en ekki nafnið á jörðinni. Ég er fegin að við að breyttum ekki um nafn á jörðinni, ég hef gjarnan kallað mig „ömmu í Koti“ og haft gaman af. Langholtskot var talsvert ein- angrað þegar þetta var. Ég fór oft til bæja til að hitta fólk fyrstu árin. Húsnæðið var heldur lélegt á jörð- inni, lítið timburhús, byggt árið 1929. Við byggðum síðar við húsið herbergi og eldhús með risi. Í gamla eldhúsinu var lítið skápapláss og saggafullt það sem var. Ég gat ekki hugsað mér að láta þá fáu diska sem ég átti þar inn og fékk í staðinn syk- urkassa sem ég raðaði minni fátæk- legu búslóð í. Gamli tíminn var að mestu alls- ráðandi hér þegar við hófum bú- skap. Eina vélin var hestasláttuvél, en eigi að síður þurfti að hjakka með orfum í þúfunum allt sumarið. Hermann hófst handa við túnaslétt- un og var að stækka túnið hér allt fram á efri ár. Við höfðum kaupakonu og tengdamóðir mín bjó hjá okkur. Svo fóru börnin að fæðast, þau urðu fjögur, tveir drengir, Jón og Unn- steinn, og tvær telpur, Sigrún og Elínbjört. Við áttum barnaláni að fagna og vorum líka jafnan heppin með þau börn sem voru hjá okkur til snúninga. Lengi vel bjuggum við í gamla húsinu. Þar varð fljótt æði þröngt. Við hjónin sváfum í risherbergi í rúmi sem var aðeins ein og hálf breidd. Við gátum ekki tekið börnin upp í til okkar, það varð að bíða þar til barnabörnin komu til sögunnar en þá höfðum við reist okkur nýtt íbúðarhús. Þegar það var fullbyggt tók ég til við garðrækt. Kom mér upp skrautgarði við nýja húsið, þótt ég hefði lítinn tíma til að sinna hon- um og erfitt væri að ná í plöntur, nema þá hjá kunningjum og síðar fyrir tilstilli kvenfélagsins, sem kom á plöntuskiptum. Farsæl búskaparár Búskapurinn hjá okkur gekk vel. Jörðin er reyndar afar lítil, en hún er vel nýtt enda var Hermann með afbrigðum duglegur og vel verki farinn bóndi, sérlega atorkusamur og hafði mikið vinnuþrek Hann sagði stundum að ef hann ætti eftir að lifa öðru lífi þá vildi hann búa ein- hversstaðar í Skaftafellssýslu þar sem væri langar leiðir að smala,“ segir Katrín. Blaðafréttir frá ýmsum tímum staðfesta ummæli hennar um bú- skaparhæfileika eiginmannsins. Ekki aðeins fengu hestarnir hans Hermanns ýmis verðlaun heldur átti hann og fallega verðlaunahrúta, verðlaunakýr og þannig mætti telja. „Hann var hæfileikaríkur maður, sérlega laginn við skepnur eins og ég sagði og féll varla verk úr hendi. Það var honum, og okkur báðum, því þungt áfall þegar hann greindist með Parkinsonsveiki. Hægt var að halda henni niðri nokkurn tíma en, svo fór hún versnandi. Hermann var og mjög næmur maður. Frá barnæsku sá hann ýmislegt fleira en almennt gerðist en fór jafnan dult með. Eitt og annað sagði hann mér þó í þessa veru. Mér er í minni þegar hann fór eitt sinn að kvöldlagi að sækja möl á vagn. Hann ætlaði að sækja nokkra vagna en kom nær strax aftur og kvaðst ekki gera meira þetta kvöldið. Hann kvaðst hafa séð dökkklædda konu ganga framhjá sér og henni fylgdi svo mik- ill kuldi að hann ákvað að fara heim. Hann sagði mér að þessum sýnum fylgdi á stundum mikill kuldi, ekki síst átti þetta við þegar hann var ungur að árum. Hermann var jafn- an sérlega draumspakur, fátt sem gerðist kom honum á óvart öll okkar búskaparár. Sjálf hef ég ekki margt að segja um þetta efni. Mig dreymdi þó sér- kennilega fyrstu nóttina sem við sváfum í nýja húsinu okkar. Mér þótti húsið fullt af fólki og að til mín kæmu tvær konur úr hópnum og bæðu mig að fá að vera. Ég sagði að þeim væri það velkomið og ég hef alltaf verið þakklát fyrir að ég skyldi gera það – þótti það boða gott. Önnur konan tók í höndina á mér í draumnum og mér fannst ég finna vel að það væru engin bein í hendinni, heldur mikil mýkt. Við Hermann áttum enda langt og gott líf hér í þessu hús þar til hann lést úr lungnabólgu 1993, rösklega sjötugur að aldri. Síðan hef ég búið hér ein, en sonur minn og tendadóttir búa hér í næsta húsi. Þau voru fyrir alllöngu tekin við bú- skapnum áður en ég varð ekkja.“ Þótt Katrín búi nú ein í húsi sínu þá líður tíminn fljótt. „Raunar finnst mér tíminn líða æ hraðar. Mér leiðist aldrei, ég er allt- af með góða bók á náttborðinu og ég á stóra fjölskyldu og hef mikinn áhuga á velferð hennar. Ég hef nóg að gera við að prjóna og sauma handa smáfólkinu mínu,“ segir Katrín og sýnir mér heklaðar barnahúfur og smábarnateppi sem hún er að prjóna, málaðar myndir og saumaðar og margt fleira. Handavinnan hennar staðfestir þá skoðun sem ég myndaði mér um hana í upphafi – að hún væri með af- brigðum snyrtileg og nostursöm – að hvaða verki sem hún gengi. Hermann Sigurðsson á verðlaunagæðingi sínum, Blæ. gudrung@mbl.is Systkinin og fermingarsystkinin Katrín og Bergur Jónsbörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.