Morgunblaðið - 27.07.2003, Blaðsíða 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 23
A›alvinningar:
5 stk. bakpokar
Gá›u hva›a númer er á bolnum flínum*,
flví hér eru ni›urstö›urnar úr ö›rum
útdrætti sumarsins í happdrættinu.
*Allir leikmenn í 4. flokki kvenna og 5. flokki karla í knattspyrnu eru
sjálfkrafa flátttakendur í Eimskipsmótinu og hafa fengi› bol a› gjöf me›
happdrættisnúmeri áritu›u ne›st.
Nánari uppl‡singar er a› finna á heimasí›u Eimskips, www.eimskip.is.
Ertu flátttakandi í Eimskipsmótinu?
40 stk. flíshúfur
Aukavinningar:
Vinningshafar hafi samband vi› Benedikt í síma 525 7226 e›a í netfanginu
ben@eimskip.is. Vinningshafar utan höfu›borgarsvæ›isins geta haft
samband vi› næstu svæ›isskrifstofu Eimskips.
Næsti útdráttur ver›ur 20. ágúst.
Númer hva›
er bolurinn flinn?
1207 23761199389 2442
43
153
155
222
263
298
324
361
419
444
465
602
841
851
932
934
1010
1255
1282
1383
1445
1453
1486
1491
1521
1552
1719
1844
2058
2094
2098
2243
2377
2421
2492
2571
2625
2642
2737
2830
v/Laugalæk • sími 553 3755
50%
afslátt
ur
50%
afslátt
ur
50%
afslátt
ur
5
50%
af
50%
afslátt
50%
afslátt
ur
NÚ ER ALLT
Á HÁLFVIRÐI
Í KRÓKI á Garðaholti verður
opið hús í dag, sunnudaginn 29.
júlí, milli kl. 13 og 17.
Krókur er lítill bárujárns-
klæddur burstabær sem var
endurbyggður úr torfbæ árið
1923. Bærinn er gott dæmi um
húsakost og lifnaðarhætti al-
þýðufólks á þessum landshluta
á fyrri hluta 20. aldar. Í Króki
var búið allt til ársins 1985.
Krókur er staðsettur á ská á
móti samkomuhúsinu á Garða-
holti.
Allir velkomnir, ókeypis að-
gangur.
Opið hús
í Króki
ÞAÐ er tónlistarfólkið Svava Kristín
Ingólfsdóttir mezzosópran, Ingi-
björg Guðlaugsdóttir básúnuleikari
og Magnús Ragnarsson píanóleikari
sem skipa Kötlu, en þau búa öll og
starfa í Gautaborg. „Upphaf sam-
starfs okkar má rekja til menning-
arhátíðar í Stokkhólmi vorið 2002
þar sem kynnt var íslensk tónlist.
Síðastliðinn vetur héldum við tón-
leika bæði í Svíþjóð og Kaupmanna-
höfn þar sem við spiluðum einvörð-
ungu íslenska tónlist, allt frá elstu
þjóðlögum til nútímaverka. Það
mæltist afar vel fyrir, enda hafa t.d.
Svíar mjög mikinn áhuga á íslenskri
tónlist,“ segir Svava í samtali við
Morgunblaðið.
Óvenjuleg samsetning
Aðspurð segir Svava aðalmarkmið
hópsins vera að kynna íslenska tón-
list á Norðurlöndum og eins að
kynna skandinavíska tónlist hér á
landi. Á tónleikunum á þriðjudags-
kvöldið verður áherslan annars veg-
ar á sænsk og hins vegar íslensk
verk. „Þar sem við erum með frekar
óvenjulega samsetningu, þ.e. píanó,
básúnu og söng, þá höfum við verið
að taka verk sem eru ekki upp-
haflega samin fyrir þessa samsetn-
ingu og leikið okkur að því að aðlaga
verkin að okkur. Þannig hefur bás-
únan t.d. tekið selló- eða flautulínu í
lögum. Auk þess höfum við fengið til
samstarfs við okkur ung íslensk tón-
skáld, t.d. Hreiðar Inga Þor-
steinsson og Þóru Marteinsdóttur,
sem hafa samið verk fyrir okkur eða
umskrifað eldri verk sín með okkur í
huga. Við erum bara að prufa okkur
áfram með þessa skemmtilegu sam-
setningu.“
Af sænskum verkum á efnis-
skránni má nefna Tre sånger ur
musiken til „Kvinnan i Hyllos hus“
eftir Hilding Rosenberg. Að sögn
Svövu er þetta afar lagrænt lag sem
einkennist af ljúfri sveitastemningu.
„Við Magnús munum flytja tvö
sönglög, annað eftir Ture Ragström
og hitt eftir Gunnar de Frumerie, en
lög þeirra eru afar ólík og voru valin
til þess að undirstrika breiddina í
sænskri tónlist. Að endingu flytjum
við Sång til Lotta sem er síðróm-
antískt og angurvært stykki fyrir
básúnu og píanó og Nachtgesang
eftir John Fernström.“
Sönglög eftir fjögur
íslensk tónskáld
Eftir íslensk tónskáld mun Katla
flytja Í draumi hans og Einskonar
ósk eftir Þóru Marteinsdóttur.
„Magnús mun flytja píanóverkið
Valse lento eftir Jóns Leifs þar sem
þjóðlegi andinn ríkir og síðan mun-
um við öll þrjú flytja Vöxt úr Smala-
söngvum eftir Mist Þorkelsdóttur
sem hún samdi 1988 við texta Þor-
steins Valdimarssonar. Síðan mun-
um við flytja þrjú sönglög eftir
Hreiðar Inga Þorsteinsson, þar af
frumflytja eitt. Hreiðar er einmitt
gamall söngnemandi minn og mér
hefur þótt afar gott að geta leitað til
hans. Fyrstu tvö lögin sem við flytj-
um eftir hann eru algjörar andstæð-
ur þar sem Hrafnar er fremur
groddalegt en Mánaskin afar fallegt
og ljúft. Verkið sem við frumflytjum
heitir Fátækt og er samið við ljóð
Jakobínu Sigurðardóttur, en svo
skemmtileg vill til að hún er amma
Ingibjargar básúnuleikara,“ segir
Svava og tekur fram að Hreiðar sé
að semja fleiri verk fyrir hópinn.
Tónlistarhópurinn Katla verður
með tónleika í Reykjahlíðarkirkju í
Mývatnssveit laugardaginn 9. ágúst
nk. og að sögn Svövu mun hópurinn
bara flytja íslensk verk á þeim tón-
leikum.
Píanó, básúna og söngrödd
Morgunblaðið/Jim Smart
Magnús Ragnarsson píanóleikari, Svava Kristín Ingólfsdóttir mezzosópran og Ingibjörg Guðlaugsdóttir
básúnuleikari skipa tónlistarhópinn Kötlu.
Á sumartónleikum í Sigurjónssafni næstkom-
andi þriðjudagskvöld mun tónlistarhópurinn
Katla flytja íslensk og sænsk 20. aldar tónverk.