Morgunblaðið - 27.07.2003, Síða 26

Morgunblaðið - 27.07.2003, Síða 26
LISTIR 26 SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÁSÝNINGUNNI verða 14myndir sem Halldórvann árið 1976 ítengslum við fyrirhug- aða útgáfu á Grettissögu en fallið var frá. Níu þessara mynda hafa aldrei áður komið fram opin- berlega en fimm þeirra birtust í bókinni Halldór Pétursson myndir sem út kom 1980. Þekktastur íslenskra teiknara Halldór Pétursson fæddist í Reykjavík, 26. september 1916, og lést árið 1977. Hann nam auglýs- ingateikningu við Kunsthaandvær- kerskolen í Kaupmannahöfn og því næst við Art Students League í New York. Myndir hans hafa prýtt fjölda bóka og blaða í gegn- um tíðina, en þekktastur er hann fyrir einstaka næmi sína í gerð teikninga og málverka af íslenska hestinum. Þá þekkja margir myndir hans úr íslenskum þjóð- sögum. Árið 1972 gerði hann skák- einvígi Fishers og Spasskys góð skil en myndirnar sem hann teikn- aði af einvíginu á sínum tíma kom- ust í dreifingu víða um heim í formi póstkorta og á síðum stærstu dagblaða heims. „Það er mjög gaman að mynd- irnar skuli vera sýndar núna, því þær hafa aldrei verið sýndar í heild sinni áður,“ segir Pétur, son- ur Halldórs. „Teikningarnar mynda eina heild, því mynda- serían var fullkláruð af hendi Halldórs áður en hann féll frá snemma árs 1977. Einhverra hluta vegna datt útgáfan hins vegar uppfyrir. Grettissaga var hug- leikin Halldóri enda teiknaði hann oft myndir eftir sögnum af tröll- sterkum hetjum.“ Myndirnar eru sérstakar fyrir feril Halldórs því stíll þeirra er formfastari en hann var þekkt- astur fyrir. „Hann vinnur mynd- irnar inn í frumformin, ferninga, Frumsýning Grettismynda Halldórs Péturssonar Sýn Halldórs Péturssonar á átök Grettis við drauginn Glám. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Halldór Pétursson hélt sína síðustu sýningu árið 1976, sama ár og hann teiknaði myndirnar við Grettissögu. hringa og þríhyrninga og teiknaði þær með fjaðurpenna og tússi. Þetta er handverk sem varla sést lengur. Ég þarf ekki annað en loka augunum til að heyra hljóðið fyrir mér þegar hann var að teikna, krafsið í pennaoddinum á pappírnum,“ segir Pétur er hann rifjar upp stundirnar er hann fylgdist með föður sínum við teikniborðið en sjálfur hefur Pétur fetað í fótspor föðurins og starfar sem listmálari og teiknari. Aðspurður segir Pétur að það væri auðvitað gaman ef Grett- issaga yrði gefin út á veglegan hátt með myndskreytingum Hall- dórs. „Það er í raun mjög þarft verk og ef það yrði niðurstaðan af þessari sýningu núna þá væri það afar ánægjulegt,“ segir Pétur. Grettishátíð í Miðfirði Sýningin á myndum Halldórs er hluti Grettishátíðar sem haldin verður í Húnaþingi helgina 16.–17. ágúst nk. Að sögn Þrastar Árna- sonar, verkefnisstjóra Grett- ishátíðar, er þetta viðamesta Grettishátíðin til þessa, en hún hefur verið haldin undanfarin sex ár. „Teikningar Halldórs úr Grett- issögu eru frábærar. Markmiðið með hátíðinni hér er að halda merkjum sögunnar á lofti og okk- ur fannst frumsýning myndanna ágæt leið til þess,“ segir Þröstur þegar hann er spurður um tilkomu sýningarinnar. Grettishátíðin hefst með menningar- og skemmti- dagskrá í félagsheimilinu Hvammstanga 16. ágúst kl. 20, þar sem fram koma m.a. Einar Kára- son, Þórarinn Eldjárn og Ólafur Kjartan Sigurðarson. Á sunnudegi verður haldin fjölskylduskemmtun á Bjargi í Miðfirði þar sem hin ár- lega aflraunakeppni skipar önd- vegi. Sýningunni lýkur 17. ágúst 2003. Grettir veitir Gísla Þorsteinssyni ærlega ráðningu fyrir kokhreysti hans. Sýning á myndum hins ástsæla teiknara Halldórs Péturssonar, sem listamaðurinn vann árið 1976 fyrir áætlaða útgáfu Grettis- sögu, verður opnuð á Hótel Eddu á Laug- arbakka í Miðfirði næstkomandi þriðjudag, 29. júlí. Flestar myndanna hafa aldrei kom- ið fyrir sjónir almennings þar sem ekkert varð af útgáfunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.