Morgunblaðið - 27.07.2003, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.07.2003, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 29 Air France og hófu sprengjuherferð í Frakk- landi árið 1995. „Utan Frakklands hafa menn gjarnan litið svo á að baráttan við alsírsk hryðjuverkasamtök sé tvíhliða vandamál Frakklands og Alsír. Þetta sé afleiðing af nýlendufortíðinni en ekki tákn um þróun er hefur víðari skírskotun. Það sem gerir íslömsku hættuna hins vegar einstaka er hvern- ig hún hefur getað stökkbreyst og fært sig yfir landamæri líkt og veira. Þannig fórum við að taka eftir því á þessum grundvelli árið 1996 að alsírskir hópar væru farnir að tengjast hinni al- þjóðlegu jihad-hreyfingu,“ segir Bruguière. Baráttan við þá hryðjuverkaöldu er átti upp- tök sín í Alsír varð þar með til þess að Frakkar öðluðust djúpstæðan skilning á þeirri ógn er stafaði af íslömskum hryðjuverkasamtökum og þeim stöðugu stökkbreytingum sem áttu sér stað innan þessara hópa. Sá skilningur hefði gert að verkum að tekist hefði að koma í veg fyrir hrikaleg hermdarverk í tengslum við heims- meistarakeppnina í knattspyrnu í Frakklandi ár- ið 1998, gegn dómkirkjunni í Strassborg árið 2000 og í París árið 2002. Jafnframt hafi Frakk- ar, með því að fylgjast með tengslum alsírskra hryðjuverkamanna við Afganistan, orðið vitni að myndum al Qaida-samtakanna. Bruguière færir rök fyrir því að fall Saddams hafi ekki veikt al Qaida, hreinlega vegna þess að engin tengsl hafi verið þar á milli. Staðreyndin sé sú að eftir fall Talibana-stjórnarinnar í Kabúl hafi engin ríkisstjórn í heiminum stutt samtökin þó svo að liðsmenn þeirra hafi geta leitað skjóls í ríkjum á borð við Pakistan, Jemen og Sádí-Ar- abíu. „Það að ekkert ríki styður hryðjuverka- samtökin er meginmunurinn á hryðjuverkum nútímans og þeirra er viðgengust á tímum kalda stríðsins. Það að átta sig á þeirri staðreynd er forsenda þess að berjast gegn hryðjuverkum í dag,“ segir Bruguière. Hann segir alþjóðleg íslömsk hryðjuverka- samtök lifa góðu lífi. Þau séu langt komin með að laga sig að stríðinu gegn hryðjuverkum og falli Talibanastjórnarinnar. Ekki síst al Qaida hafi enn burði til að efna til árása þó svo að dregið hafi úr mætti samtakanna. Meðal annars hafi al Qaida myndað bandalag með róttækum sam- tökum í Pakistan er berjast fyrir sjálfstæði Kasmír. Hann telur upp fjölmargar árásir hryðjuverkamanna síðastliðið ár sem hann segir hægt að rekja til þessarar samvinnu ólíkra hryðjuverkahópa. Ekki síst telur hann mikil- vægt að telja með gíslatöku téténskra skæruliða í leikhúsi í Moskvu í október á síðastliðnu ári. Hann segir að eftir að ekki hafi lengur verið hægt að nota Afganistan sem bækistöð hafi ekki síst Tétsnía gegnt sífellt mikilvægara hlutverki. Gíslatakan í Moskvu hafi verið tákn um „talib- aniseringu“ Tétsníu sem sé að breyta því landi og raunar svæðinu öllu, þar með talin Georgía, Suður-Ossetía, Dagestan og Azerbaidsjan, í „nýtt Afganistan“. Bruguière segir félaga úr íslömskum samtök- um í Evrópu hafa flykkst til Kákasus-svæðisins. Þar hafi þeir verið þjálfaðir af téténskum skæru- liðum annaðhvort í Tétsníu eða þá í Pankisi- héraðinu í Georgíu. Úr þessum þjálfunarbúðum komi menn staðráðnir í að grípa til aðgerða og með djúpstæða þekkingu á rafeindabúnaði og efnavopnahernaði. „Málefni Tétsníu eru því ekki lengur einungis rússneskt innanríkismál,“ segir Bruguière. Sú mynd sem hann dregur upp af þróuninni er dökk. Upp á síðkastið hafi nýliðun í samtökum hryðjuverkamanna færst í aukana og til að mynda hafi róttækum hópum í auknum mæli tekist að fá Evrópubúa til liðs við sig. Starfsemi þessi sé fjármögnuð með margvíslegum aðferð- um, ekki síst smáglæpum á borð við greiðslu- kortasvik, sem sé mjög erfitt að festa hendur á og uppræta. Þessi samtök teygi anga sína um Evrópu alla jafnt sem Kanada og eigi þaðan greiða leið inn í Bandaríkin. Hann segir það mjög ógnvekjandi að franskar og evrópskar rannsóknir hafi leitt í ljós að raunveruleg og bráð hætta sé á lífefna- eða efnavopnaárásum róttækra íslamskra hópa jafnt í Bandaríkjunum sem Evrópu. Bruguière segir samvinnu Bandaríkjanna og Frakklands í þessum efnum vera til fyrirmyndar og deilur ríkjanna í tengslum við stríðið í Írak hafi engin áhrif þar á. Hann segir hryðjuverkaógnina ekki þekkja nein landamæri og ná til heimsbyggðarinnar allrar. Það að al Qaida njóti ekki stuðning neins ríkis dragi að mörgu leyti úr möguleikum sam- takanna en geri stöðuna jafnframt flóknari, skil verði óljósari, samtökin sveigjanlegri og erfiðara að spá því hvernig þau muni þróast. Því verði að bregðast við þessari ógn með samstilltu alþjóðlegu átaki. „Tilhneiging Banda- ríkjanna til að líta á hryðjuverkaógnina sem tengda við ákveðin ríki hefur leitt þau til að leggja megináherslu á hernaðarleg viðbrögð, líkt og sást í Íraksstríðinu. Undir vissum kringum- stæðum, líkt og í Afganistan, getur verið rétt að beita hermætti. Þannig verður hins vegar aldrei hægt að vinna bug á hryðjuverkavandamálinu. Það verður að fara aðrar leiðir til að ná árangri, diplómatískar, lagalegar og beita njósnum. Ekkert eitt ríki mun geta náð þeim árangri heldur verður fjölþjóðlegt átak að koma til. Frakkland mun taka þátt af staðfestu,“ sagði Bruguière. Raunveruleg hætta Á undanförnum vik- um hafa átt sér stað harðar pólitískar deil- ur um það hvort bresk og bandarísk stjórnvöld hafi ýkt eða misnotað upplýsingar um þá hættu er stafaði af gereyð- ingarvopnum Íraka og einnig um meint tengsl stjórnarinnar í Bagdad við hryðjuverkasamtök á borð við al Qaida. Sú umræða mun halda áfram og mikilvægt er að hið rétta í málinu komi í ljós. Sé raunin sú að vísvitandi hafi verið gert meira úr hættuni en efni stóðu til verða þeir sem á því báru ábyrgð að axla pólitískar afleiðingar þess. Þessi umræða og deilur um stríðið í Írak og eftirleik þess mega hins vegar ekki verða til að menn missi sjónar á þeirri miklu og raunveru- legu hættu sem er til staðar. Það er ekki að ósekju að margir af helstu ör- yggismálasérfræðingum heims óttast fátt meira en að hryðjuverkamenn komist yfir gereyðing- arvopn og beiti þeim. Afleiðingar slíkrar árásar yrðu hrikalegar, ekki einungis vegna þeirrar tortímingar sem hún ylli. Kjarnorkuárás á borg í Evrópu eða Bandaríkjunum myndi breyta allri þeirri heims- mynd sem við búum við í dag. Hún myndi grafa undan efnahagskerfi heimsins og valda þar upp- lausn. Hætta er á að það frelsi og þau lýðréttindi sem í dag eru talin sjálfsögð væru í hættu ef at- burður af þessu tagi ætti sér stað. Þau hörðu við- brögð sem urðu í kjölfar ellefta september yrðu smávægileg í samanburði við það sem gæti gerst. Tilgangur þeirra er stæðu fyrir slíkri árás væri einmitt að valda það miklum usla að hin opnu samfélög Vesturlanda riðuðu til falls. Slíkir spádómar kunna að hljóma fáránlega í eyrum fólks er hefur vanist þeim stöðugleika, því frelsi og því öryggi er einkennt hefur líf Vesturlandabúa undanfarna áratugi. Það má hins vegar ekki verða til að menn sofni á verð- inum. Morgunblaðið/KristinnNauthólsvík Gíslatakan í Moskvu hafi verið tákn um „talibaniseringu“ Tétsníu sem sé að breyta því landi og raunar svæðinu öllu, þar með talin Georgía, Suður- Ossetía, Dagestan og Azerbaidsjan, í „nýtt Afganistan“. Laugardagur 26. júlí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.