Morgunblaðið - 27.07.2003, Síða 30

Morgunblaðið - 27.07.2003, Síða 30
30 SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ M YNDIN sem kom af stað ævi- löngum þönkum um illsku mann- skepnunnar er fastgrópuð í hugann. Hún er af hópi vannærðra, tötralegra barna sem stara í linsu myndavélarinnar. Það átakanlegasta er vonleysið sem skín úr myrkum augum sem sitja djúpt í dökkum tóftunum. Þetta eru lifandi lík sem búið er að ræna allri von og lífslöngun þar sem sovéskir hermenn hafa nýheimt þau úr klóm nasistaböðlanna í útrýmingarbúðum í Póllandi. Ég fæ ekki skilið þessa hræðilegu mynd þar sem hún gapir við mér af síðum gamals Fálka. Enda saklaus óviti á svipuðum aldri og þessi börn sem mér skilst að hafi unnið það eitt til saka að vera gyð- ingar. Jafnvel orðið gyðingur er mér ráðgáta. Í mínum augum eru þau einsog önnur börn, aðeins horaðri, skítugri og líflausari, enda búin að sjá og reyna meira en flestir þola. Frá þessu augnabliki hef ég fundið hjá mér þörf að líta eigin augum þá ægilegu staði þar sem illvirkið var framið. Hún þróast á þann veg að mér fannst óhjákvæmilegt að fara í e.k. pílagrímsferð á vettvang glæp- anna í þeirri veiku trú að þar gæti ég virt fyrir mér botninn á rysjóttum ferli mannkynsins. Árin liðu og alltaf blundaði með mér ferðin á heimsenda. Fyrir þrem áratugum kynntist ég vini mínum, Eyjólfi Karlssyni, sem einnig sat uppi með svipaðar áætlanir. Satt að segja höfum við verið á leiðinni síðan. Að lokum kom að því að við töldum rétta tímann upp runninn og lögðum upp á vordögum.Skipulögðum ferða- lagið sem var fyrir margt löngu full- mótað í huga okkar beggja. Nutum tik þess góðra ábendinga frá Friðriki Gunnarssyni, ræðismanni Póllands á Íslandi, og gagnabankar Alnetsins komu í góðar þarfir. Frá upphafi var stefnan tekin á Auschwitz-Birkenau búðirnar, sem eru þær illræmdustu og þekktustu. Um fjöldamorðin sem þar voru framin hefur mikið verið mikið rætt, ritað og tekið til umfjöll- unar í kvikmyndum á borð við Schindleŕs List og Playing For Time; sjónvarpsþáttunum Helförin, heim- ildarmyndaþáttunum Shoah, svo eitthvað sé nefnt. Treblinka er annað nafn sem jafnan kemur upp í hugann, líkt og Majdanek utan við Lublin í Norðvestur-Póllandi. Að lokum var ætlunin að eyða nokkrum dögum í Varsjá og skoða leifar gettósins fræga. Lagt í langferð Við lendum í Varsjá og tökum næstu lest til Kraká í Suður-Póllandi. Grænasta land Evrópu þýtur framhjá gluggum hraðlestarinnar, baðað glampandi sólskini. Akrar og engi blasa við svo langt sem augað eygir, af og til rennum við í gegnum vinaleg sveitaþorp. Skjöldóttar kýr á beit, stæðilegir áburðarjálkar spenntir fyrir vagni. Satt að segja er stríðið og hryllingurinn í slíkri óra- fjarlægð, að hann er óraunverulegur líkt og gömul martröð. Ekki er síður notalegt að vakna í Kraká morguninn eftir, undurfag- urri Mið-Evrópuborg, þar sem upp- byggingin blasir hvarvetna við í bland við vel við haldnar, sögufrægar hallir og torg. Framhjá því verður hinsvegar ekki litið að Auschwitz, fyrsti ákvörð- unarstaðurinn, færist nær og nær og ekki til baka snúið. Við höldum rak- leitt á ferðaskrifstofu þar sem boðið er uppá margháttaðar ferðir til út- rýmingarbúðanna, sem hafa bersýni- lega mikið aðdráttarafl. Við ákveðum að nýta tímann sem best og ráðum einkabílstjóra og leiðsögumann, það er dýrari máti en borgar sig margfalt þegar upp er staðið. Aftur er haldið út í guðsgræna náttúruna og veðrið leikur við hvern sinn fingur. Búðirnar eru í u.þ.b. 60 km fjarlægð frá Kraká, enn erum við umvafðir búsældarlegum sveitum og friðsæld. Inn í sortann Snögglega skellur maran á líkt og gjörningaveður. Við ökum uppá hæð, og við blasa í fjarska skorsteinar I.G. Farbenidustrie í Buna-Monowitz, eða Auschwitz III., kunnuglegir flestum Vesturlandabúum úr tugum kvikmynda og af ljósmyndum. Í huga margra eru þeir tákn geðsýki nas- ismans og lægsta stigs vestrænnar siðmenningar þar sem þeir teygja sig eins og fjandaforkur hátt til himins uppúr skógi girtu, iðjagrænu akur- lendi. Engu líkara en þeir séu að storka Drottni allsherjar. Reykháfarnir, sem í dag þjóna hlutverki sínu í tengslum við áburð- arverksmiðju, voru upphaflega hluti risavaxinnar gervigúmmíverksmiðju (Buna), og eldsneytisframleiðslu á vegum I.G. Farben. Það var eitt af stórfyrirtækjum Þjóðverja og síðar Þriðja ríkisins. Iðnaðarrisi í eigu Bayer, Hoechst, BASF, ofl. risafyr- irtækja sem enn lifa góðu lífi og allir þekkja. Auschwitz III. var opnað 1942, byggt af gyðingum, stríðsföng- um og pólitískum föngum. Tugþús- undir þeirra urðu síðan þrælar hjá I.G. Farben og fjölda annarra, fjöl- breyttra iðnfyrirtækja á þessu þriðja svæði Auschwitz, sem taldi um 40 þrælabúðir til viðbótar. Hið illræmda I.G. Farben var leyst upp 1955 og dæmt til að greiða fórn- arlömbum nasista 27 milljónir vest- urþýskra marka. Bílstjórinn bendir okkur á rústir tígulsteinaverksmiðju við vegkant- inn. Hingað sóttu fangar vinnu frá Auschwitz I., voru á þriðja tíma að arka hvora leið, í öllum veðrum, illa búnir, undir gapandi byssukjöftum. Ef höfðatalan stemmdi ekki að kvöldi í einhverjum vinnuhópi, urðu allir að bíða uns sá týndi var fundinn. Auschwitz-Birkenau Það var í maí 1940 að Heinrich Himmler, æðsti maður SS og ríkis- lögreglunnar, ákvað byggingu stærstu þrælabúða Þriðja ríkisins. Þörfin var brýn fyrir margvíslega framleiðslu, ekki síst hergögn. Gnótt af ódýru vinnuafli, menn gátu leyft sér að hugsa stórt. Staðurinn sem varð fyrir valinu var í útjaðri pólska bæjarins Oswiecim í nágrenni Kraká. Landshlutinn hafði verið innlimaður í Þriðja ríkið eftir uppgjöf Pólverja í september 1939. Síðla árs 1940 fóru fangar að flykkjast í ný- reistar búðirnar, flestir pólitískir og Pólverjar. Í mars 1941 var tala þeirra tæp 11 þúsund, búðirnar, sem Þjóð- verjar kölluðu Auschwitz I., orðnar illræmdar sakir harðneskju og pynt- inga sem þar áttu sér stað. Í einni byggingunni, Blokk 11, var útbúinn kjallari með fullkomnustu pyntingar- tólum, fínpússaðar af færustu vís- indamönnum fremstu menningar- þjóðar veraldar. Utanhúss reis „Svarti veggurinn“ frægi, aftöku- staður þar sem ógæfusamir fangar Blokkar 11 voru að endingu skotnir til bana – ef ekki var búið að kvelja úr þeim líftóruna innandyra. Þeir sem töldust vinnufærir voru hýstir í Auschwitz I., uns þeir urðu gagnslausir af veikindum og/eða ómennskri meðferð. Í mars 1941 fyrirskipaði Himmler byggingu mun stærra hverfis á búða- svæðinu, Auschwitz II., og Birkenau reis í þriggja kílómetra fjarlægð frá búðum I. Til að byrja með var hverfið fyllt af kvenföngum. Það saman- stendur mestmegnis af timburhjöll- um; hesthúsum sem ætluð voru gæð- ingum riddaraliða keisarans ára- tugum áður. Í næsta nágrenni, sveitaþorpinu Monowitz, risu skömmu síðar þriðju búðirnar, Auschwitz III., verksmiðj- ur og þrælabúðir sem greint var frá hér á undan. Auschwitz II., eða Birkenau, urðu fljótlega mannflestu búðirnar og hvergi voru aðstæðurnar djöfullegri; skálarnir nánast án upphitunar, enda upphaflega ætlaðir hrossum. Í Birk- enau var fljótlega sett á laggirnar af- kastamesta útrýmingarverksmiðja Þriðja ríkisins. Verkfræðingar For- ingjans gættu þess að allar dauða- búðirnar væru vel í sveit settar hvað samgöngur snerti og Auschwitz- Birkenau var einstakt verkfræðiaf- rek hvað fangaflutningum viðvék. Fyrr en varði var aðgerðin „Loka- lausnin“ komin í fullan gang. Fyrst og fremst gyðingar auk slangurs af sígaunum og öðrum „lægri kynþátt- um“; fjölfötluðum, hommum, vanvit- um og pólitískum föngum, streymdu nú um þaulhugsað járnbrautarnet sem breiddi úr sér til flestra landa Evrópu, sem nú var nánast öll á valdi Möndulríkjanna. Dauðadæmt fólkið kom í tugþús- undatali dag hvern til Póllands. Hver vagnfyllin af annarri af gyðingum var losuð í Auschwitz-Birkenau, Treblinka, Sobibor og öðrum dauða- búðum, árið út og inn. Verkfræðingablómi og hátækni- fræðingar Þjóðverja höfðu lengi brotið heilann um fljótlegustu og hentugustu aðferðirnar í fram- kvæmd þjóðarmorðsins. Byssuskot voru hávær, hleyptu óróa og hræðslu í fangana, og aðferðin lýjandi fyrir böðlana. Með tilkomu eiturgassins Zyklon B, léttist brúnin á morðvargnum; það var fljótvirkt, ódýrt og hávaðalítið í framkvæmd. Á meðaldegi voru hátt í 20 þúsund fangar drepnir, brenndir og grafnir á heljarslóð nasista í Pól- landi. Hæst komst talan í u.þ.b. 25 þúsund, eða líkt og á tíu 11. sept- emberdögum. Í víti Þegar fangalestirnar, drekkhlaðn- ar gyðingum, renndu inn í Birkenau (slíkur atburður er nákvæmlega end- urskapaður í Schindler’s List og tek- inn á vettvangi), var fólkið umsvifa- laust rekið út á brautarpallana og aðskilið í raðir karla og kvenna. Hóp- arnir urðu síðan að hraða sér fyrir auglit SS-foringja, sem skipuðu þeim í tvær fylkingar. Önnur var jafnan stærri, þar lentu börn, gamalmenni, sjúkt eða veiklulegt fólk og þess biðu fljótlega endalokin í gasklefunum. Þeir hraustustu voru valdir í flokk sem fékk að halda lífi á meðan hægt var að slíta þeim út. Örlög þeirra voru í flestum tilfellum nokkrar vik- ur lífdaga til viðbótar, í þrælkunar- vinnu í Auschwitz III., eða öðrum slíkum þrælabúðum. Hraustmennin og þeir útsmogn- ustu skrimtu; af skrásettum frásögn- um þeirra er vitneskja okkar um þessa hroðalegu atburðarás til komin Eigur fanganna voru gerðar upp- tækar og allt hirt sem talið var ein- hvers virði. Áður en fangarnir end- uðu þrautagöngu sína í gasklefunum eða fjöldagröfunum var þeim vísað í „sóttkví“, þar sem hausar voru snoð- klipptir en hárið síðan notað til vefn- aðar. Fyrir kom að fangar hímdu í einhverja daga, jafnvel vikur, í hinum óhugnanlegu „sóttkvíum“, það fór einkum eftir afköstum flutningakerf- isins. Þá er ógetið krufningarinnar, lokameðhöndlunar Þriðja ríkisins á fórnarlömbum sínum: Áður en lík fór í ofninn var það grandskoðað hátt og lágt, innvortis sem útvortis, í leit að verðmætum. Hirt voru gleraugu, skór, fatnaður, hvað eina sem nýt- anlegt talst. Hluti þeirra milljóna gyðinga sem enduðu líf sitt í Helför- inni, var efnafólk sem reyndi eftir mætti að koma eigum sínum í eitt- hvað fémætt þegar ljóst var hvert stefndi. Eins hafa gyðingar löngum fjárfest í eðalsteinum og skartgrip- um sem þeir földu nú á sér eða gleyptu. Þeir bjartsýnustu í von um að geta hafið nýtt líf í nýju landi, hin- ir raunsærri til að kaupa sér líf eða frelsi. Slíkir fjársjóðir fóru ekki framhjá vökulum augum krufningarmanna, frekar en gullfyllingar í tönnum. Nöfn læknanna Josefs Mengele og Carls Clauberg tengjast Auschwitz um aldur og ævi. Þeir voru for- sprakkar í vísindalegum „tilraunum“ sem fram fóru á föngunum. Þær eru ólýsanleg viðurstyggð og enn einn þáttur í glæpasögu búðanna og Þriðja ríkisins. Læknarnir völdu gríska gyðinga öðrum fremur. Tví- burar (einkum á barnsaldri) og dvergar, voru einnig eftirsótt „rann- sóknarefni“. Mengele og hans nótar voru jafnan á brautarpallinum og völdu fórnar- lömb þegar ferskir fangafarmar stigu út úr vögnunum. Í júlímánuði 1942 voru að meðal- tali rösklega 92 þúsund gyðingar í haldi í Auschwitz; hálfum öðrum mánuði síðar losaði fjöldinn 105 þús- und. Til viðbótar var 50 þúsund föng- um haldið í hinum rösklega 40, smáu og sérhæfðu þrælabúðum á svæðinu. Tölurnar áttu eftir að hækka úr þess- um 155 þúsundum, þrátt fyrir mikil afföll sökum hungurs, erfiðisvinnu, lífshættulegra smitsjúkdóma og ör- mögnunar. Gasklefarnir og líkbrennslurnar Fyrsti tilraunagasklefinn og lík- brennsluofnarnir í Auschwitz I., Forsagan og forgarðurinn Á síðasta ári lét Sæbjörn Valdimarsson áratuga gamlan ásetning verða að veruleika. Hélt ásamt félaga sínum á vettvang voðaverka Þriðja ríkisins, útrýmingarbúðanna Auschwitz-Birkenau og Majdanek. Gettóanna í Varsjá, Kraká og Lublin og fleiri staða í Póllandi sem tengjast Helför nasista gegn gyðingum. Skoðun hans er sú að þrátt fyrir að umræðan um þjóðarmorðið skjóti af og til upp kollinum viti samtíðin undarlega lítið um þennan svarta kapítula í mannkynssögunni. Hliðið að Auschwitz. Ljósmynd/Eyjólfur Karlsson Brot af ferðatöskusafninu í Auschwitz. Allar merktar æruverðugum endastöð- um. Enn einn mikilvægur þáttur blekkingarinnar miklu. AP Svarti veggurinn, einn af mörgum smánarblettum mannsandans í Auschwitz. Áslóð Helfararinnar 1

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.