Morgunblaðið - 27.07.2003, Page 33

Morgunblaðið - 27.07.2003, Page 33
fljúga Anson-vél [Avro Anson, eins- hreyfilsvél] alveg síðan um morg- uninn innanlands og var að koma frá Hellissandi um ellefuleytið um kvöldið. Þá sé ég að Heklan [DC-4] stendur fyrir utan hjá Loftleiðum og fullt af farþegum þar. Svo þegar ég kem þarna að kemur Ameríkani, captain Moore, flugstjóri sem tékk- aði út alla strákana á vélina, til mín og segir að það vanti aðstoðarflug- mann á vélina til þess að fara til Kaupmannahafnar. „Ég! En ég hef ekkert tékk á vél- ina.“ Captain Moore hikar ekki: „Við björgum því, það er allt í lagi.““ Dagfinnur segir honum að hann sé búinn að fljúga allan dag- inn en captain Moore verður ekki hnikað, það er ekki um neinn annan að ræða. Þeir fara upp í vélina og aka út á brautarenda en farþeg- arnir bíða enn eftir að fara um borð. „Hvað er um að vera?“ spyr fólk- ið forviða. „Það á víst að fara að kenna aðstoðarflugmanninum að fljúga vélinni!“ svarar einhver. „Við fórum og tókum þrjár lendingar – þetta er allt í lagi, sagði karlinn – komum aftur upp að – um borð með farþegana – og síðan var flogið til Kaupmannahafnar. Þessi karl var einn af þekktustu flugmönnum í Bandaríkjunum, var háttsettur hjá American Airlines og hafði verið í flugskóla með sjálfum Lindbergh,“ segir Dagfinnur með glampa í aug- um. Það var margt braskað á þessum árum. Einu sinni var búið að hlaða vélina en einn hreyfillinn af fjórum vildi ekki í gang, startarinn var ónýtur og ekki til varahlutur. Nú voru góð ráð dýr. Farþegarnir voru settir í land, vélinni ekið niður á brautarenda á þremur hreyflum, þeim gefið fullt afl og þegar sá bil- aði fór að snúast við vaxandi hraða vélarinnar voru kveikjurnar settar á og hann hrökk í gang. Þá var hætt við flugtak í snarhasti, farið upp að flugstöðinni, farþegarnir settir um borð og allt gekk eins og í sögu eftir það. Var ekki slæm á þremur „Þetta voru burðarmiklar vélar [Fjarkarnir og Sexurnar], þær voru ekki slæmar á þremur [hreyflum]. Það var ekki algengt en það kom nokkrum sinnum fyrir að við misst- um mótor [merkir að drepist hafi á hreyfli, ekki að hann hafi fallið af flugvélinni]. Hún var ekki slæm á þremur, fann ekki mikið fyrir því,“ segir Dagfinnur, „það er að segja ef þér tókst að „feðra“ mótorinn [e. feather = nauðbeita, þ.e. að hag- ræða skrúfublöðum hreyfils þannig að þau taki sem minnstan vind á sig í flugi þegar hreyfillinn hefur verið stöðvaður vegna bilunar], það gat komið fyrir og þá „windmillaði“ hann sem kallað var [e. windmilling = sjálfsnúningur skrúfu]. Það var oft erfitt að ná honum út úr „over- speed windmilling“, þá varð allt ómögulegt, þá dró hann svo úr hraðanum.“ Dagfinnur horfir hugs- andi á svip á eina af mörgum mynd- um sínum af Fjörkum og fleiri flug- vélum. Dagfinnur rifjar upp sögu af Bandaríkjamanni sem var á „Skyara“ [DC-4 Skymaster] á leið- inni frá Bandaríkjunum yfir Kyrra- hafið til Hawaii. Hann missti einn hreyfilinn sem fór á yfirsnúning hjá honum við sjálfsnúning skrúfunnar. „Hann sá fram á það að hann mundi aldrei hafa það til Hawaii ef hann gæti ekki stöðvað skrúfuna, sem var eiginlega ógerningur. Nema hvað þá datt honum allt í einu í hug hvað hann gæti gert, það var að loka fyrir olíuna inn á mót- orinn sem hann og gerði. Við það hitnaði hann svo mikið að skrúfan brotnaði af hreyflinum! Það voru ýmisleg „trikk“ sem menn urðu að kunna til þess að bjarga sér.“ Sjálfstýrt með tánum Eftir að hafa skoðað nokkrar myndir úr safni Dagfinns og flett gömlum log-bókum [leiðarflugbæk- ur] heldur hann áfram frásögninni: „Það var kalt í þessum vélum, sér- staklega út við gluggann, það vildi stundum leka svolítið inn á „Skyur- unum“. Það myndaðist raki í loftinu inni í vélunum sem fraus síðan uppi í lofti þeirra og þegar við komum niður þiðnaði það og fór þá að leka á mann. Maður þurfti að vefja sig í teppi og annað þarna, já, já,“ segir hann og dregur seiminn. „„Auto-pilotinn“ [sjálfstýringin] hreyfði ekki stýrin, hann gerði ekki ráð fyrir „drifti“ [reki] eða neinu og hélt ekki hæð þannig að það þurfti alltaf að vera að stilla hann. Og hann var ekki við höndina eins og er í dag heldur þurfti maður að beygja sig yfir stýrið og teygja sig í hann. Ég var kominn upp á lag með það að klæða mig úr sokkunum og stilla hann með tánum á löngum leiðum …“ Dagfinnur hlær innilega, horfir hugsi út á sjóinn og heldur áfram: „ …Maður þurfti bara að fara fínt í það.“ Hann heldur áfram: „Ég man að Norðmennirnir, þegar þeir komu hingað, höfðu útbúið sér stangir með sogskálum á og settu á takk- ana. Það voru alls konar kúnstir í kringum þetta, menn reyndu að bjarga sér sem best þeir gátu.“ Og það gat teygst úr fluginu í milli- landafluginu. „Ég man að Alfreð [Elíasson] var einu sinni tíu tíma frá Kaupmannahöfn í miklum mót- vindi.“ Dagfinnur flaug Þristum og Fjörkum jöfnum höndum ásamt Anson-vélunum á sjötta áratugnum en í desember 1959 fékk hann þjálf- un í Miami á Sexurnar, DC-6B, endurbætta útgáfu Fjarkanna. „Maður kunni mikið betur við sig á Sexunum, losnaði við mikið af ís- ingu og var ekki alltaf í súpunni [veðrahamnum], þær voru „press- urized“ [jafnþrýstibúið farþega- rými]. Mig minnir að við höfum sjaldan farið yfir 10.000 fet á Fjörk- unum en flugum mun hærra á Sex- unum, svona frá 18.000 fetum. Monsarnir [Canadair CL-44 með skrúfuþotuhreyfla af Rolls Royce- gerð] tóku við af Sexunum árið 1964. „Monsarnir voru heilmiklar vélar og burðamiklar. Maður getur sagt að áður hafði maður ekki nægilegt afl en þarna hafði maður alltaf nóg, þær voru kraftmiklar. Það var stundum sagt um þær vél- ar að þær væru byggðar eins og orrustuskip og flygju eins og orr- ustuskip. Þær voru dálítið klunna- legar.“ En flugtíminn hafði styst talsvert. Á Sexunum var flugtíminn milli New York og Reykjavíkur 9– 10 tímar en á Monsunum um 7–8 tímar. Átturnar, DC-8, komu í stað monsanna um 1970. Þá styttist flugtíminn enn þá meira og það urðu heilmiklar breytingar – þot- urnar voru komnar í þjónustu Loft- leiða. Flugmennirnir voru tékkaðir út á Átturnar í Miami og flugu til Bahama-eyja í æfingaflug. Ein æf- ingin fólst t.d. í því að skyndilega var hætt við lendingu rétt fyrir snertingu og mátti ekki fara hærra upp aftur en 500 fet og ekki lengra frá brautinni en eina sjómílu og koma síðan inn aftur til lendingar. „Maður þurfti að vera vel vakandi,“ segir Dagfinnur sallarólegur eins og þetta hafi ekki verið neitt mál á því stærðarinnar flykki sem ein Átta er. „Það urðu miklar breytingar við komu Áttanna, þetta var allt öðru vísi flug. Á þotunum verður þú allt- af að hafa mótorana í góðum gangi því að ef þú þarft að fara upp aftur tekur það mótorana níu sekúndur að ná afli aftur. Þannig drápu þeir sig svo margir nýkomnir á þoturnar af Sexunum að þegar þeir komu inn til lendingar og voru of hátt drógu þeir af en fóru þá kannski of lágt og ætluðu að gefa fullt afl aftur til þess að komast inn [á braut] en fóru þá í jörðina, þeir undirskutu, því það þurfti þessar níu sekúndur til að ná aflinu aftur.“ Fuglager í flugtaki Dagfinnur er hrifinn af Áttunni: „Annars var Áttan með alveg rosa- lega sterka hreyfla. Ég man eftir því að við vorum að fara fyrsta píla- grímaflugið frá Oran í Alsír eld- snemma um morgun, rétt í birtingu …Við taxeruðum [ókum] út á braut og af stað í loftið, allt á fullu, maður – þá kom bara fyrir framan okkur eins og „cumulus“-ský [bólstraský, oft kölluð „kúmmar“ af flugmönn- um] – fuglager sem flaug upp af brautinni. Við vorum komnir á allt- of mikla ferð til þess að geta stopp- að og lentum inni í gerinu. Þetta voru mávar á stærð við hettumáva eða rytur og það kom þessi svaka- hvellur, allir mótorarnir sprengdu. Erna Hjaltalín flugfreyja stóð á hlaðinu og sagðist hafa haldið að vélin hefði sprungið í loft upp, þeir voru svo miklir eldblossarnir sem komu aftur úr henni. Við sáum ekki glóru út, það var svo mikið blóð og fiður á rúðunum, en þetta tókst og við komumst upp í loftið. Ef þetta hefði verið Tía [DC-10] eða 747 [Boeing 747] með sína stóru hreyfla hefðum við steindrepist. Við héld- um sem leið lá til Jedda [í Sádi- Arabíu] og lentum þar. Það var allt svona nokkurn veginn „normalt“ en þú hefði átt að sjá andlitið á mann- inum sem benti okkur inn á flug- hlaðið – vélin var öll í blóði og fiðri.“ Tían var lúxusvél að fljúga Dagfinnur hallar sér aftur á bak í stólnum. Við skoðun kom í ljós að það þurfti að sverfa af og laga skemmdir á einum mótor. Síðan þurfti reyndar að taka hann af eftir einn eða tvo daga. Flugvélarnar áttu eftir að verða enn stærri. Í febrúar 1979 fór Dag- finnur í „tékk“ á DC-10, fyrstu breiðþotu Íslendinga. „Það var lúx- us að koma á þær,“ segir Dagfinnur og hnykkir á orðunum, „meira að segja af Áttunni. Þarna var „auto- land“, „auto-approach“ (sjálfvirkur lendingarbúnaður og aðflugsbúnað- ur) o.fl.“ En það ævintýri stóð stutt, einni Tíu hlekktist á í Bandaríkjunum og öllum Tíum skráðum þar var mein- að að fara í loftið. Vél Flugleiða, sem varð til við samruna Loftleiða og Flugfélags Íslands 1973, var skráð þar. Þá sneru menn sér alfar- ið aftur að Áttunum og Boeing 727 sem komu með Flugfélaginu í Flug- leiðir. Þær vélar skiluðu sínu hlut- verki með glans þar til endurnýjun flota Flugleiða hófst snemma á tí- unda áratug tuttugustu aldar – en það er önnur mikil saga. Dagfinnur flaug sitt síðasta flug sem atvinnuflugmaður hjá Flug- leiðum 19. nóvember 1988 og hafði þá starfað sem flugmaður í fjörutíu og tvö ár og átti að baki þrjátíu þúsund flugtíma. En hann var ekki alveg hættur því að hann flaug Átt- um til margra landa á árunum 1990–1993 fyrir alþjóðleg góðgerð- arsamtök, Orbis, sem reka flugvél- ar hlaðnar fullkomnum augnskurð- stofum. Nú flýgur Dagfinnur sinni eigin einshreyfilsvél, Dornier Do 27, þeg- ar honum dettur í hug og hefur mikla ánægju af. nn ætlaði að verða Myndasafn Flugleiða/Halldór Sigurjónsson Frá Miklavatni í Fljótum. Skúrinn sem Dagfinnur minnist á sést hér og í fjöru- borðinu eru síldarleitarvélarnar, Grumman Goose (fjær) og Stinson. Morgunblaðið/RAX Myndasafn Flugleiða/Halldór Sigurjónsson Grumman Goose í flugtaki á Miklavatni. Loftleiðamaður fylgist með úr fjörunni. arnih@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 33

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.