Morgunblaðið - 27.07.2003, Side 48

Morgunblaðið - 27.07.2003, Side 48
FÓLK Í FRÉTTUM 48 SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sumarkvöld við orgelið 27. júlí kl. 20: Lars Frederiksen. Verk m.a. eftir Buxtehude og Reger 19. SÝNING MIÐVIKUDAG 30/7 - KL. 20 UPPSELT 20. SÝNING FIMMTUDAGINN 31/7 - KL. 20 UPPSELT 21. SÝNING MIÐVIKUDAGUR 20/8 - KL. 20 LAUS SÆTI 22. SÝNING FIMMTUDAGINN 21/8 - KL. 20 LAUS SÆTI 23. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 16 LAUS SÆTI 24. SÝNING LAUGARDAGINN 23/8 - KL. 20 LAUS SÆTI 25. SÝNING FÖSTUDAGINN 29/8 - KL. 20 LAUS SÆTI 26. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 16 LAUS SÆTI 27. SÝNING LAUGARDAGINN 30/8 - KL. 20 LAUS SÆTI ATHUGIÐ ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA ! B RUCE Dickinson, söngvari Iron Maiden, er ekki frægasti flug- maður í heimi. Það er hér með skjalfest. Einn er sá flugmaður sem er miklu, miklu frægari. Svo frægur – svo lengi – að ömmur sumra kikn- uðu í hnjánum er hann sveiflaði stúlkunum satínklæddur um ljós- blikkandi dansgólfið, mömmur hinna bráðnuðu hins vegar yfir þessum leðurjakkatöffara með englaröddina og eiginkonurnar og unnusturnar dreymdi að það væru þær en ekki Uma Thurman sem hann tvistaði svo taktfast við. Já, hann John Travolta hefur svo mörg líf að það kæmi manni ekki á óvart þótt dætur manns ættu eftir að falla í stafi fyrir honum í fram- tíðinni. Hann kemur og fer, kemur og fer. Hrasar harkalega en lendir alltaf á fótunum, eins og kötturinn, enda kattliðugur! Og ef hann þá lendir því hann hefur vængi, er fljúgandi köttur. Og hann er með ólæknandi flugdellu, á eitt stykki Boeing 707-vél, þrjár Gulfstream og eina Learjet og hefur flogið nær öllum tegundum af þotum. Enda er hann þvílíkt þotulið að hann skírði elsta son sinn Jett. Fljúgandi fjölskyldumaður En þegar hann er ekki sveim- andi um loftin blá íklæddur klæðskerasniðnum einkennisbún- ingi nýtur hann sín í faðmi fjöl- skyldunnar. Þá gjarnan í messu hjá vísindakirkjunni. Biður hann þá fyrir frelsara sínum og læri- föður, L. Ron Hubbard heitnum, fyrrum leiðtoga kirkjunnar og höf- undi vísindaskáldsögunnar Battle- field Earth sem Travolta lét gera hörmungarkvikmynd úr. Og alltaf er verið að afskrifa hann, gjarnan eftir mynd eins og Battlefield Earth – kannski skiljanlega. En af fádæma eljusemi tekst honum allt- af að ramba á réttu rulluna á end- anum, rétt eins og hann gerði þeg- ar myndbandaleigunördinn Quentin Tarantino fékk hann til að leika í Pulp Fiction og bjargaði þar með uppúr gleymskunnar gili. Það var árið 1994 og hafði hann þá verið týndur og tröllum gefinn í áratug. En síðan þá hefur hvert stóra hlutverkið rekið annað og okkar maður haldið áfram að taka við öllu sem býðst og sumt reynst vel en annað verr. En hann er allt- af að og nú liggja fyrir heil 5 verk- efni sem hann er viðriðinn og eitt þeirra er klárt og þegar komið í sýningar hér á landi, stríðstryll- irinn Basic eða Grundvallaratriði. Og þegar blaðamanni bauðst stutt símaviðtal við þennan erkitöffara sat hann bara hljóður, góndi út í tómið og spurði sjálfan sig: Um hvað á ég eiginlega að tala við Travolta? Og kannski ennþá frek- ar: Vil ég eitthvað vera að tala við Travolta? Er maður þá ekki bara að skemma fyrir sér einhverja ímynd um Hollywoodstjörnuna fjarlægu sem enginn kemst í ná- lægð við nema fuglinn fljúgandi og paparazzi-ljósmyndararnir? Verður hann nokkuð framar töffari hvíta tjaldsins eftir að maður er búinn að eiga við hann símasamtal, á sömu línu og maður var að enda við að ræða við frúna hvað ætti að hafa í matinn og hver ætti að fara út með ruslið? Kemur bara í ljós. Ekki segir maður nei takk við Travolta-viðtali vegna einhverrar ímyndarkreppu. Við Travolta skyldi talað. Klukkutími í flugstjórnarklefanum „Halló, herra Gúdmú.“ Hik. „Uhh, já?“ „Hæ, þetta er John Travolta.“ Röddinn er mjúk, eins og þegar hann gerir hosur sínar grænar fyr- ir mótleikkonu, væntanlegri ást- konu, Oliviu eða Umu. Hann er samt ekki að gera hosur sínar grænar fyrir mér. Virðist bara ró- legur, kurteis. Um leið greini ég þó að þetta er ekki fyrsta spjallið hans og svolítið langt frá því. Röddin hljómar þreytulega, hann er stuttur í spuna. Mjúkur þó og vinalegur. Fagmaður. Eftir að blaðamaður kynnir sig kurteis- islega, eins svalur og hann mögu- lega getur verið undir svona kring- umstæðum spyr hann sjálfan hr. Svalan hvernig hann hafi það. „Ég hef það bara gott, þakka þér fyr- ir.“ – Er þetta í fyrsta sinn sem þú talar við íslenskan blaðamann? „Nei, nei. Ég hef margsinnis komið til Íslands, aðallega í þeim erindum að taka eldsneyti er ég hef átt leið hjá.“ Jæja, hugsar blaðamaður en rekur þó ekki minni til að hann hafi staldrað svo lengi við að hafa gefið sér tíma í að spjalla við blaðamenn. En getur svo sem vel verið að einhver hafi náð uppúr honum nokkrum línum. „Svo kom ég náttúrlega í fyrra. Þegar ég var að fljúga fyrir Quantas.“ Það var einmitt fyrir ári, nánar tiltekið 9. ágúst 2002. Fregnir höfðu borist af því að töffarinn hefði í hyggju að eiga hér viðdvöl á flugferð sinni hringinn í kringum hnöttinn sem farin var til að bæta ímynd flugsins. Mættu örygg- isverðir á svæðið nokkrum dögum áður til að kanna aðstæður, skoða gistiaðstöðu og hugsanlega áfanga- staði en þegar á hólminn var kom- ið, eða réttara sagt Keflavík- urflugvöll, stoppaði hann ekki lengur en í klukkutíma. Var víst voða þreyttur og yfirgaf ekki flug- stjórnarklefann á meðan á viðdvöl- inni stóð. Keypti ekki einu sinni harðfisk í fríhöfninni! „Ég hef þó tvisvar sinnum átt viðdvöl á Íslandi,“ segir Travolta þegar blaðamaður minnir hann á stutta stoppið í fyrra. „Þá gaf ég mér meiri tíma til að skoða mig um. Landið er afar fallegt.“ – Þér hefur þá aldeilis tekist að láta fara lítið fyrir þér. „Ja, ég veit ekki. Jú, kannski,“ segir Travolta og hlær. – Hvað hafðirðu fyrir stafni þeg- ar þú komst til Íslands? „Umm, við vorum á hótelinu, fórum á sýningu. Vel á minnst, það vildi svo til að það var Grease.“ Blaðamann rak í rogastans: „Í alvöru!“ „Já, og svo fórum við í skoð- anaferð um nágrenni Reykjavíkur. Dvölin stóð aðeins í tvo daga, sjáðu til. Í hitt skiptið var ég í einn dag.“ Á meðan Travolta greindi frá þessum Íslandsferðum sínum var blaðamaður enn með hugann við þá uppljóstrun viðmælandans að hann hafi farið á Grease. Hvenær gat það hafa verið? Ekki gat Travolta munað það nákvæmlega en það hlýtur annaðhvort að hafa verið 1994 þegar sýningin var sett upp af Söngsmiðjunni á Broadway Stórskrítið að sjá á íslensku Diskódansinn kenndi hann okkur sem Tony Manero, að greiða sér með brilljantíni sem Danny Zuko og að myrða mann og annan sem Vincent Vega. Jú, og reyndar líka að tala við smábörn sem James Ubriacco. Skarphéðinn Guðmundsson átti stutt sam- tal við leikarann, söngvarann, dansarann, flugmanninn og fjölskyldumanninn John Travolta – hinn eina sanna. Reuters

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.