Morgunblaðið - 27.07.2003, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 27.07.2003, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 27. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 4 og 6.Sýnd kl. 8 og 10.10. Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. B.i. 14 ára. Stríðið er hafið! Tortímandinn er kominn aftur. Fyrsta flokks spennumynd.  Kvikmyndir.com SV. MBL HK. DV YFIR 15000 GESTIR! HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Miðasala opnar kl. 13.30 Sýnd kl. 2. Ísl. tal. 500 kr. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14  X-IÐ 97.7  SV MBL  ÓHT RÁS 2  HK DV Sýnd kl. 4 og 6. Sýnd kl. 2, 3, 4.30, 5.40, 8 og 10.20. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára. kl. 3.30, 6, 8.30 og 11. Stríðið er hafið! SV. MBL HK. DV Tortímandinn er kominn aftur. Fyrsta flokks spennumynd.  Kvikmyndir.com YFIR 15000 GESTIR! H LJÓMSVEITIN Land og synir sendir frá sér sína fjórðu plötu, Óðal feðranna, á mánudag- inn. Lagið „Von mín er sú“ er strax komið í spilun en það er að finna á þessari nýju plötu og segir Hreimur Örn Heimisson, söngvari sveitarinnar, að það gefi góða mynd af plötunni. „Við ákváðum að fara ekki þessa týpísku sveitaballaleið, sem er að koma með hratt lag til að draga fólk á böllin. Við einbeittum okkur að því að gera góða tónlist og góða plötu. Við vorum lítið að hugsa um hvað dregur fólkið út á dansgólfið,“ segir hann. Platan var að mestu leyti tekin upp í húsi Rafiðnaðarsambandsins við Apavatn í vor. „Við fórum uppeftir, í sumarbústað við Apavatn, og töldum bara í og þetta er útkoman,“ segir Hreimur. „Við hentum draslinu upp í sendi- ferðabílinn, keyrðum upp að Apavatni og vissum í raun ekki hvað við værum að fara útí. Við vorum búnir að vonast til þess að gefa út plötu í sumar en vissum ekki hvort við gætum það. Ég var búinn að láta strákana fá fullt af lögum til að hlusta á og við vorum búnir að velja tólf lög af þrjátíu, sem við ætluðum að reyna að taka upp og þetta gekk svona vel,“ segir hann. Erfitt að missa Njalla „Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá héldum við að við gætum þetta ekki. Við höfðum aldrei djammað saman ný lög,“ segir Hreimur en seg- ir að ein ástæða þess að þetta hafi gengið svona vel upp sé vinskapur þeirra. „Við höfum varið óhemjumikl- um tíma saman og það er alveg ótrú- legt að mórallinn sé svona góður hjá okkur eins og raun ber vitni. Það var mjög erfitt að missa Njalla. Það var stórt skarð sem hann skildi eftir sig og við ákváðum að taka ekki annan mann inn í staðinn,“ segir Hreimur um brotthvarf hljómborðsleikara sveitarinnar á dögunum. Annars skipa hljómsveitina auk Hreims, Birgir Nielsen, Gunnar Þór Eggertsson og Jón Guðfinnsson og ekki má gleyma Adda 800, sem er „fimmti meðlimur hljómsveitarinn- ar“, eins og Hreimur orðar það. Addi stjórnar einmitt upptökum á plötunni í samvinnu við hljómsveitina. Upptökur fóru að mestu leyti fram við Apavatn en söngurinn á plötunni var tekinn upp í Stúdíó Sýrlandi og eftir- vinnslan fór einnig fram þar. Útkom- an er mun hrárri en síðasta plata Lands og sona. Hreimur segir að sveitin hafi verið einhuga um að gera flotta plötu, sem væri ekki ofhlaðin, eins og honum finnst alltof mikið um í tónlist á Íslandi sem og erlendis um þessar mundir. Eins og flest annað tónlistarfólk á Íslandi er Hreimur í annarri vinnu en hann er sem stendur að vinna í fjöl- skyldufyrirtæki „að hjálpa til í fata- hreinsuninni Úðafossi hjá Pálma frænda“. Tónlistin tekur líka tíma og það er mikil vinna í kringum hana. „Ég er búinn að vera í þessum bransa í fimm ár, sem er frekar stutt, og mér finnst ég vera búinn að upplifa hann alltof oft. En það sem heldur manni gang- andi er að það er ógeðslega gaman að vera á sviðinu og spila,“ játar Hreim- ur. Gaman með krökkunum „Það er hægt að lifa af tónlist á Ís- landi, kaupið er ekki gott og það kemur í bylgjum. Allt í einu getur maður verið kominn með fullt af peningum en svo koma mánuðir sem er ekkert að gera,“ segir hann. „Sveitaballamarkaðurinn er í raun færibandavinna, þú ert að gera sama hlutinn aftur og aftur, en þetta er skemmtileg færi- bandavinna. Það hefur gefið mér og strákunum öllum nýja sýn á markaðinn að spila á dagskemmtunum með Bylgjunni í sumar. Við ákváðum að hafa litla söngkeppni fyrir krakkana og sá sem stendur sig best fær verð- laun. Þetta hefur gefið okkur rosalega mikið,“ segir Hreimur um fundi við unga aðdáendur. Hreimur er ekki með neina stjörnu- stæla. „Þú getur ekki tekið þig hátíð- lega á Íslandi, þetta er of lítið land til þess. Allir þekkja alla og einhvern veg- inn tengjumst við öll eins og kom ber- lega í ljós með Íslendingabók. Krakk- arnir hérna eru líka svo almennilegir og ekki með nein leiðindi,“ segir hann. Land og synir hafa áður gefið út plöturnar Alveg eins og þú, Herbergi 313 og Happy Endings, sem var tekin upp á ensku. „Okkar stærsta móment sem hljómsveit er þegar við gerðum plötusamning við Warner Bros. Þetta var mjög mikill áfangi, sérstaklega fyr- ir íslenska sveitaballahljómsveit þar sem menn hugsa aldrei lengra en næsti bær og næsta ball,“ segir Hreimur. Hann segir að þessi vinna erlendis hafi þó á endanum skemmt fyrir hljómsveitinni hér og játar að síðasta platan hafi ekki gengið eins vel og þeir vildu og vonuðu. „Af því að platan var til þá ákváðum við að gefa hana út hérna heima. Við náðum ekki fram að gefa hana út í út- löndum, því miður,“ segir hann. Breytt um stefnu Draumurinn um útrás er ekki úti ennþá hjá Landi og sonum en sveitin hefur breytt um stefnu. „Við ákváðum í eitt skipti fyrir öll, áður en við fórum upp á Apavatn, að við myndum algjör- lega halda þessu aðskildu. Við ætluð- um í þetta sinn bara að einbeita okkur að Íslandi og íslenskri tónlist og gera íslenska plötu. Svo höldum við bara áfram að vinna að okkar verkefnum úti síðar.“ Til greina kom að Land og synir hétu Óðal feðranna þegar hljómsveitin var stofnuð. Á þeim tíma fannst þeim nafnið heldur þungt og völdu Land og syni í staðinn. „Það héldu samt allir í fyrstu að við værum harmonikkukv- artett því þetta er svo þjóðlegt nafn,“ segir hann en þeir ákváðu að kalla nýju plötunna Óðal feðranna í staðinn. Textagerðin á nýju plötunni var ekki í höndum hljómsveitarinnar sjálfrar. „Ég hef alltaf sagt að við séum ekki bestu textahöfundarnir sjálfir,“ segir Hreimur brosandi en allir textarnir á nýju plötunni eru samdir af utanaðkomandi fólki. Þeir sem koma við sögu eru Andrea Gylfadóttir, Stefán Hilmarsson, Kristján Hreinsson og Birgir Örn Steinarsson, sem gerði textann við „Von mín er sú“. „Hann gerði þennan texta um okkur, okkar drauma og okkar ævintýri,“ segir Hreimur um Bigga í Maus. „Von mín er sú, að ég þreytist ekki þó að reyni á,“ syngur Hreimur í laginu. Húmorinn frá Stuðmönnum Annað nýtt lag er komið í spilun, „Á fjórum fótum,“ en Stuðmenn eiga heiðurinn af þeim texta. „Mestar áhyggjur höfðum við af því að það vantaði smá húmor og platan væri of alvarleg. Nema hvað, þá kom textinn frá Stuðmönnum. Hann er náttúrlega bara húmor eins og þeim einum er lagið,“ segir Hreimur en Jakob Frí- mann er gestasöngvari í laginu. Hreimur er ánægður með lögin á plötunni og segir þau með því betra sem hann hefur samið. Hann er jafn- framt ánægður með framlag allra textahöfunda. „Að fá svona góða texta gefur þeim alveg nýtt líf,“ segir hann en textarnir fjórir sem Kristján ber ábyrgð á vann hann í góðri samvinnu við Hreim og eru þeir því persónu- legri en hinir. „Það eru allir í fjölskyldunni minni hagyrðingar nema ég. Ég er sá einu sem getur samið lög en það geta allir samið texta. Ég er reyndar að prófa mig áfram í limrunum núna,“ segir hann og ætla að halda áfram að prófa sig áfram í textagerð. Hreimur minnist þess að afi sinn hafi verið gjaldkeri hjá Rafiðnaðar- sambandinu og er þakklátur fyrir lán- ið á húsinu við Apavatn. „Það var fal- legt af þeim að leyfa okkur að hafa húsið. Ég veit að þetta er kannski ekki vel séð því þessi bransi hefur ekki gott orð á sér. En það voru allir almennilegir við okkur,“ segir Hreim- ur, sem er ákveðinn í því að senda ein- tak af nýju plötunni upp í Rafiðnaðar- samband um leið og það kemur. ingarun@mbl.is Platan Óðal feðranna með Landi og sonum er væntanleg í versl- anir á mánudaginn. Ef verðlaunin Viðkunnanlegasta poppstjarna Íslands væru veitt yrði Hreimur Örn Heimisson, söngvari Lands og sona, áreiðanlega tilnefndur. Inga Rún Sig- urðardóttir ræddi við hann um nýja plötu sveitarinnar. Land og synir senda frá sér plötuna Óðal feðranna Þreytist ekki þó að reyni á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.