Morgunblaðið - 28.08.2003, Side 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2003 17
Síðumúla 13, sími 588 2122
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum eitt mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
HIN langþráða viðbygging við Amtsbókasafnið á
Akureyri er nú komin vel á veg og þegar er byrj-
að að flytja safnkost úr eldri hluta safnsins yfir í
þann nýja. En sagan er þó ekki öll sögð þótt ný-
byggingin sé að verða klár. Gamla húsið á nefni-
lega að taka algerlega í gegn og er sú vinna
reyndar þegar hafin. Fram undan er tímabil þar
sem þjónusta safnsins verður mjög skert vegna
þessara framkvæmda en stefnt er að því að nýtt
og glæsilegt Amtsbókasafn verði opnað fljótlega
eftir áramótin.
Að sögn Hólmkels Hreinssonar amts-
bókavarðar verður safnið lokað frá 1. sept. nk.
og hafist handa við flutning útlánadeildar.
Stefnt er að því að opna aftur um miðjan mán-
uðinn en þennan tíma sem lokað er verður ekki
hægt að veita neina þjónustu. „Vonandi tekst
okkur að opna mánudaginn 15. september nokk-
urs konar bráðabirgðaútlánastöð í anddyri nýja
hlutans. Allt til loka framkvæmda verður útlána-
deildin í mýflugumynd, því aðeins brot af safn-
kostinum verður aðgengilegt,“ sagði Hólmkell.
Þrátt fyrir það munu starfsmenn safnsins reyna
sitt ýtrasta til að koma til móts við óskir safn-
gesta og einu sinni í viku verða bækur, sem eru
óaðgengilegar en lánþegar óska eftir að fá, sótt-
ar í geymslur safnsins.
Það eru ekki bara viðskiptavinir útlánadeildar
sem finna fyrir áhrifum breytinganna því að
lestrarsalur safnsins hefur verið lokaður frá 1.
júlí. Ekki hefur verið afgreitt úr geymslum
safnsins og handbókakostur þess hefur ekki ver-
ið aðgengilegur. Svo verður áfram þar til nýtt og
endurbætt safn verður opnað eftir áramót.
Gamla húsið fær mikla andlitslyftingu og
verður allt tekið í gegn. Skipt verður um raf-
magn, lýsingu og gólfefni, auk þess sem húsa-
skipun verður nokkuð breytt frá því sem nú er.
Til að mynda verður lestrarsalur safnsins þar
sem nú er barnadeild og afgreiðsla.
Þeir sem hafa áhuga á að fræðast um fram-
kvæmdirnar geta litið inn í nýbygginguna milli
kl. 16 og 18 á laugardaginn. Þar verður Hólm-
kell amtsbókavörður til skrafs og svarar spurn-
ingum gesta og gangandi.
Amtsbóka-
safnið lokað
í tvær vikur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Þessir ungu piltar létu óvenjulega óreiðu á safninu ekkert á sig fá í gær og sátu einbeittir við tölv-
urnar. Styttur af skáldunum Davíð Stefánssyni og Matthíasi Jochumssyni bíða flutnings undir borði
og Matthías er einnig á málverkinu sem stendur á gólfinu tímabundið, ásamt Jóni Sveinssyni, Nonna.
Í KVÖLD verða síðustu djasstón-
leikarnir á þessu sumri í tónleikaröð-
inni Heitur fimmtudagur. Þessi
djasskvöld hafa undanfarin ár verið
hluti af Listasumri og notið mikilla
vinsælda. Þetta eru níundu tónleikar
sumarsins og sem fyrr er það ein-
valalið tónlistarmanna sem sér um
sveifluna. Um er að ræða kvartett
sem í eru Kristjana Stefánsdóttir
söngkona, Agnar Már Magnússon
píanóleikari, Erik Qvick trommari
og Gunnar Hrafnsson kontrabassa-
leikari.
Flutt verða lög úr söngbókum
Ellu Fitzgerald, Söruh Vaughan og
Nancy Wilson. Þessa dagskrá hefur
kvartettinn áður flutt og hlotið mikið
lof fyrir.
Sem fyrr verða djasstónleikarnir í
Deiglunni í Listagilinu og hefjast kl.
21:30 í kvöld. Miðar eru seldir við
innganginn og er miðaverð 800 kr.
Lokadjass á
Listasumri
EIGENDUR og rekstraraðilar
heilsársgististaða á Akureyri hafa
miklar áhyggjur af versnandi af-
komu og nýtingu gististaða sinna.
Nýtingin það sem af er sumars er
verri en á sama tíma undanfarin ár
og er það mjög alvarleg staða í
kjölfar bágrar nýtingar á gistirými
sl. vetur.
Hótelhaldarar vilja meina að
helstu ástæður verri nýtingar
megi rekja til hinnar gríðarlegu
aukningar á framboði hótelgisting-
ar í bænum en nýtt sumarhótel
var opnað 17. júní í heimavist MA
og VMA. Með hinu nýja sumarhót-
eli bætast við 78 hótelherbergi
með baði og um er að ræða liðlega
50% aukningu á þess konar gist-
ingu í bænum. Næsta sumar verða
tekin í notkun 40 herbergi til við-
bótar.
Mismunandi fyrir-
greiðsla á lánsfé
Rekstraraðilar heilsárshótel-
anna telja samkeppnisstöðuna
vera verulega ójafna, því bygging
heimavistarinnar sé fjármögnuð að
90% hluta með lánsfé frá Íbúða-
lánasjóði. „Það sem við erum fyrst
og fremst að gagnrýna er hvernig
byggingin sem slík er fjármögn-
uð,“ segir Hlynur Jónsson, fjár-
málastjóri Hótelveitinga ehf., sem
rekur þrjú hótel á Akureyri. Hann
bætir við að af svona byggingum
þurfi einungis að greiða fasteigna-
gjöld atvinnuhúsnæðis á sumrin en
á öðrum árstíma eru greidd fast-
eignagjöld íbúðarhúsnæðis, sem
eru umtalsvert lægri. „Þetta er
umhverfi sem við búum ekki við.
Gjarnan vildum við aðeins þurfa að
borga fasteignagjöld yfir sumarið
en þeir sem loka hótelum sínum
yfir veturinn þurfa auðvitað að
greiða sín fasteignagjöld árið um
kring. Við höfum engan aðgang að
Íbúðalánasjóði og kjörin sem þar
eru í boði eru allt önnur en þau
sem okkur stendur til boða.
Ósanngirnin er augljós í þessu
máli, “ segir Hlynur. Aðspurður
hvernig hægt sé að rétta þeirra
hlut segist Hlynur telja að þetta
snúist allt um pólitík. „Ég tel að
samgönguráðuneytinu hljóti að
bera að standa vörð um hagsmuni
okkar ferðaþjónustuaðilanna og að
halli ekki á okkur í samkeppn-
isumhverfinu. Svo er Samkeppn-
isstofnun að skoða þetta mál líka,“
sagði Hlynur og lýsir jafnframt
eftir svörum frá Íbúðalánasjóði um
ástæður þess að lánað sé til bygg-
inga sem notaðar séu í atvinnu-
rekstri.
Hótel- og gistihúsaeigendur uggandi vegna ójafnrar samkeppnisstöðu
„Ósanngirnin er augljós“
LÖGREGLAN á Akureyri hefur
fylgst vel með umferðinni í bænum
nú í upphafi skólahalds og segir hún
að allt hafi gengið stóráfallalaust.
Umferð hafi verið róleg og ökumenn
tillitssamir.
Þó varð eitt umferðaróhapp í dag
þegar bifreið var ekið úr Bugðusíðu
út á Borgarbraut í veg fyrir aðra.
Ökumaður annarrar bifreiðarinnar
var fluttur á slysadeild en meiðsl
hans voru talin minniháttar. Annar
bíllinn skemmdist mikið og þurfti að
fjarlægja hann með kranabíl af vett-
vangi. Á myndinni ofan hreinsa lög-
regluþjónarnir Helga Einarsdóttir
og Þorsteinn Pétursson upp gler-
brot eftir áreksturinn.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Róleg um-
ferð en einn
árekstur
Svona skilti standa í grennd við alla
grunnskóla á Akureyri.