Morgunblaðið - 28.08.2003, Síða 47

Morgunblaðið - 28.08.2003, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 2003 47 Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 www.regnboginn.is Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára. Tvær löggur. Tvöföld spenna. Tvöföld skemmtun. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 6, 8 og 10.15. Ef þú gætir verið Guð í eina viku, hvað myndir þú gera? Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. MEÐ ÍSLENSKU TALI ATH! Munið eftir Sinbað litasamkeppninni á ok.is SV. MBL Ofurskutlan Angelina Jolie er mætt aftur öflugri en nokkru sinni fyrr í svakalegustu hasarmynd sumarsins! Sýnd kl. 3.45, 6, 8 og 10.15. J I M C A R R E Y B R U C E Sýnd kl. 4 og 6. Með íslensku tali. Mörkinni 3, 108 Reykjavík sími 588 0640 Það er komið að því Útsalan hefst í dag Opið mánud.–föstud. 11–18 • Laugardag 11–15 15-60% afsláttur Tindersticks – Waiting For The Moon Sem gamall Tindersticks- unnandi hef ég ekki alveg verið að skála í botn yfir því sem þessi annars dásamlega dramatíska sveit hefur verið að sulla í á síðustu plötum. Sál- ardaðrið finnst mér ekki alveg gera sig nægilega hjá þeim og lagasmíð- arnar orðnar veikari. Waiting For The Moon er þó framför frá síð- ustu plötu og þökk sé nokkrum firnasterkum lögum, á borð við upphafslagið „Until The Morning Comes“, er platan vel eiguleg.  Annie Lennox – Bare Mikið hræðilega virðist henni far- ið að förlast blessaðri – í það minnsta ef mark er takandi á þessari nýjustu sólóskífu hennar. Það er á köflum erfitt að hlusta á hana og útsetningar og upp- tökustjórn Stepens Lipsons, sem á sínum tíma þótti með þeim færari í faginu, eru með þeim hallærislegri sem heyrst hafa langa lengi. Hún er samt ekki alslæm platan og því einstaka lag, eins og „Wonderful“ og „Saddest Thing I’ve Got“. Hún sefar mann tilhugsunin um að Annie geti gert miklu betur. Dave Stewart, komdu nú á hvíta hest- inum og bjargaðu vinkonu þinni! Cerys Matthews – Cockahoop Þessi kemur virkilega á óvart. Eftir að Catat- onia hætti og fréttir bárust af áfengisvanda hennar var mað- ur eiginlega bú- inn að afskrifa söngkonuna Cerys Matthews. En á þessari fyrstu sólóskífu sinni sýnir hún allar sínar bestu og skemmtilegustu hliðar. Tók plötuna upp í Nashville sem gefur henni auðvitað nettan sveitablæ, en tónlistin er samt ennþá rammvelsk og áheyri- leg. 28 Days Later – The Soundtrack Magnaðri kvik- myndatónlist hef ég ekki heyrt í háa herrans tíð. Danny Boyle, leikstjóri mynd- arinnar 28 dög- um síðar, hefur sagt að hann hafi viljað byggja tónlistina á stefum Godspeed You Black Emperor! og það hefur tónskáldinu John Murphy líka tekist afbragðsvel. Þannig er heimsendadrunginn al- gjör. Ekki spillir síðan að andi gamla Brians Eno frá 8. áratugn- um svífur yfir vötnum og að platan inniheldur einnig hið magnaða lag Blue States, „Season Song“. Daniel Bedingfield – Gotta Get Thru This Hann á óumdeil- anlega einn af smellum sumars- ins í laginu „If You’re Not The One“ og það í tveimur útgáfum. Á þessari fyrstu plötu hans er „Gotta Get Thru This“ nett Craig David-legt og „Never Gonna Leave Your Side“ er nett George Michael-legt. Hann er samt engan að stæla, gerir ágætis hluti á þessari skífu sem er hreint ágæt þótt svolítið bragðdauf sé á köflum. Erlend tónlist Skarphéðinn Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.