Morgunblaðið - 31.08.2003, Side 6

Morgunblaðið - 31.08.2003, Side 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Öðlingurinn Ödipus rexar í mömmu og pabba SJÁ BLS. 17 Í ÁRSBÆKLINGI SINFÓNÍUNNAR SEM FYLGIR MORGUNBLAÐINU Í DAG T ÁPMIKILL strákur í flíspeysu bograr yfir bensínbrúsa við tankinn á bensínstöðinni í Öskjuhlíð. Hann varð bensínlaus um miðja nótt á Suðurgötu. – Bensínljósið er bilað, segir hann armæðulega. – Og labbaðirðu hingað? – Já, það er svo gott veður, svarar hann og andar djúpt að sér bensín- fnyknum. – Oh, ég gleymdi pin-númerinu, stynur kona sem mætir engum skiln- ingi í tómum augum sjálfsalans. Hún lítur ráðvillt í kringum sig og upp- götvar að bensínstöðin er opin. Lítið samfélag hefur myndast á bensínstöðinni. Fólk raðar meðlæti á pylsurnar við hringlaga borð og skapast oft líflegar umræður. Lang- flestir sem gera sér erindi á bensínstöðina að næturlagi kaupa sér nefni- lega pylsu og kók. – Allir eru svangir á fylliríum, segir einn starfsmanna. En fólk leggur líka á sig að stoppa bílinn og fara inn á bensínstöðina til að kaupa smávægilegustu hluti, eins og einn tyggjópakka. Varla fer það fram úr rúminu til þess. Ef til vill er það að leyna bjórnum af djamminu eða fríska munninn fyrir heimsókn til elskunnar sinnar. Tvær stúlkur kaupa kleinupoka. Þær sakna ömmu sinn- ar. Tveir strákar kaupa tímaritið Bleikt og blátt. Þeir eru að lesa sér til. Piltur í snjáðum gallafötum er kenndur að tala í farsím- ann: – Í Select í Öskjuhlíðinni. – Í Select í Öskjuhlíðinni. – Í Select í Öskjuhlíðinni. – Sko, ég er í Select... Bjartur piltur yfirlitum með svartar hendur af smurningu fær að fara bakvið og þvo sér. Svo leiðir hann kærustuna út í djammgallanum. Hann er svolítið karlmannlegur; munar ekkert um að taka vélina í sundur á rúntinum. – Má hún ekki borga í blíðu? Hún á engan pening, spyr stúlka nýkom- in úr vinnu á veitingastað. – Er ekki í lagi með þig!? hrópar vinkona hennar hneyksluð. Í tímaritarekkanum eru flutt tíðindi af því að Svala Björgvins sé loks- ins frjáls, Bryndís og Ellert sameinuð í Samfylkingunni, Helga Hjörvari blæði í maraþoni. Þetta vilja Íslendingar lesa í umferðinni. „Utan við ferhyrndan granítinngang skrifstofubyggingarinnar stóðu hvítur Fiat Sedan og blá Toyota,“ eru upphafsorð sögunnar Í fylgd kú- rekans úr Rauðu seríunni. Ef til vill voru bílarnir bensínlausir. Það stendur líka bíll á planinu fyrir utan bensínstöðina. Í framsætunum sveifla síðhærðir strákar höfðinu fram og aftur í takt við tónlistina og að- eins tímaspursmál hvenær þeir rota sig á mælaborðinu. – Ef þú mættir velja um að taka stærðfræðipróf eða teikna nakið fólk, hvort myndir þú gera? spyr stúlka með slegið hár. – Ég myndi teikna nakið fólk, bara ekki karla, svarar strákur með six- pensara og áhuginn lifnar. Nú er bara að finna strigann. Enn líður á nóttina. Samt er afgreiðslumaðurinn í bol með áletruninni: „Vertu sólarmegin“. Ástæða þykir til að áminna gesti um að tala vinsam- legast ekki í gsm-síma meðan á afgreiðslu stendur. Þetta er eins og að vera í flugvél. Oft er það sama fólkið sem mætir að næturlagi, ekki síst í miðri viku, t.d. leigubílstjórar. En svo koma líka tarnir líkt og eftir tónleikana með Foo Fighters sl. þriðjudagskvöld. Þá var troðfullt út úr dyrum í tvo tíma. – Ég þurfti að vinda bolinn minn, segir vinaleg afgreiðslukona á miðjum aldri, sem líka er sólarmegin. Fróðlegt er að skoða vöruúrvalið. Það eru seld barnaleikföng, en mest bílar og ýtur. Annað væri ankannalegt fyrir bensínstöð. Það má kaupa heillaóskakort og gjafapappír ef fólk er seint fyrir. Og blóm handa kon- unni. Það getur eflaust komið sér vel í morgunsárið. Konan getur líka bjargað sér úr vandræðum, t.d. með því að gefa karlinum ýtu. Svo eru í hillunum ólíkir hlutir eins og sundgleraugu, málband og fiskibollur í dós. Inn úr nóttinni kemur náungi með blóð í skyrtunni og biður um plást- ur. Það er greinilegt á öllu að hann er svoddan töffari. – Hvað kom fyrir, spyr blaðamaður forvitinn. – Gaddavír, svarar hann. – Hvernig stóð á því, spyr blaðamaður forvitnari en áður. En töffarinn er fámáll. Hann bölvar í hljóði og vefur plástri um fingur sér. – Maður verður alltaf að prakkarast eitthvað, segir kærastan og bros- ir hrifin. Ölvaður maður stendur með pylsu við hringborðið. Hann pírir augun og miðar sinnepinu vandlega. Svo lítur hann á stúlkurnar við borðið og segir: – Hvert eruð þið að fara? Viljið þið koma í partý? Partý í Kópavogi. Partý í Hamraborginni. Þær vilja heldur vera áfram á bensínstöðinni. – Ég er að halda upp á að það er vika þangað til djammið byrjar fyrir alvöru, segir stúlka sem er að fara í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hún er í nætursvörtu pilsi með rauðum röndum og skóm í stíl. Í kápunni er barmmerki með mótmælum við sprengjuárásir á Írak. – Ég verð að hlaupa, segir hún skyndilega eins og orrustuflugvél. Mamma bíður úti í bíl. Morgunblaðið/Arnaldur Pylsa, kók og samræður SKISSA Pétur Blöndal varði nótt á bensínstöð land en nokkurt annað land.“ Engida segist þó hafa ákveðnar áhyggjur af því hvað Íslendingar séu stressaðir. „Ég vona að þið náið sambandi við hið andlega aftur. Það er svo mikilvægt.“ Íslenskir kristniboðar starfa enn í Kenýa og Eþíópíu en hlutverk þeirra fer alltaf minnkandi í samfélaginu. Leifur Sigurðsson starfaði í fjögur ár sem kristniboði í Kenýa og að hans sögn snýst starf kristniboðans ekki eingöngu um að boða trú. „Við boðum ekki bara trúna og kennum um kirkj- una. Þetta er líka þróunarhjálp eins og að byggja heilsugæslu og skóla og svo almenn fræðsla um hreinlæti, al- næmi og fleira. Við kennum fólki að byggja kamar og þróa nýjar aðferðir í landbúnaði. Við erum í samstarfi við innlendu kirkjurnar og það er oft þannig að við erum staðsett í samráði við þær.“ Leifur segist hafa séð mikinn ár- angur af því tuttugu ára kristniboðs- starfi sem hefur verið unnið í Kenýa. „Nú eru kristniboðarnir að draga sig út úr starfinu en verða samt þarna áfram sem ráðgjafar og til stuðnings innlendu leiðtogunum.“ Hafa unnið gott starf Kristniboð hefur oft verið umdeilt og komið upp sú gagnrýni að kristni- boðar séu að þröngva sinni menningu upp á Afríkubúa. Engida vill ekki meina að það sé svo en að hans sögn er starf kristniboðanna ómetanlegt. „Ég var þarna og þekki þetta. Kristniboðarnir hafa unnið mjög gott starf. Þeir byggja skóla, spítala og tala við fólkið. Við veljum sjálf það sem okkur hentar. Fólkið veit hvað er gott og hvað er vont fyrir það sjálft. Það er ekki eingöngu fyrir tilstilli kristniboðanna.“ Leifur tekur í sama streng en bendir á að sums staðar hafi kristni- boð ekki verið til fyrirmyndar og þá sérstaklega ekki þegar það var ná- tengt nýlendustefnunni. Leifur nefnir sem dæmi kirkju í Tansaníu þar sem sungnir voru þýskir sálmar. Í hans starfi sem kristniboði hefur þótt mik- ilvægt að hafa alltaf samráð við íbúana og nýta tungumál og menn- ingu þeirra. „Í Pokot í Kenýa var um- skurður kvenna algengur. Kristni- boðarnir reyndu að kenna um hreinlæti og fæðingar og benda á að það væri ekki gott að umskera konur. Það breyttist ekkert við það sem kristniboðarnir voru að segja. Það var ekki fyrr en önnur og þriðja kynslóð kristins fólks í Pokot uxu upp. Þær dæmdu sína menningu út frá eigin forsendum. Þá hafnar fólk ákveðnum hlutum sem það telur slæma, m.a. umskurði á konum.“ Engida mun hafa í nógu að snúast hér á Íslandi en hann mun m.a. tala við fermingarbörn og unglinga í Æskulýðsstarfi Þjóðkirkjunnar. „Ég vil þakka Íslendingum og íslensku kirkjunni, fyrir hönd Konsóbúa. Guð blessi landið ykkar,“ segir Engida og vill líka þakka Biblíufélaginu sem stóð að söfnun fyrir útgáfu Nýja testa- mentisins á tungumáli Konsóbúa. ÍSLENDINGAR hafa um þessar mundir stundað kristniboð í Eþíópíu í 50 ár en auk þess hafa íslenskir trú- boðar farið til Kenýa, Kína og fleiri landa. Engida Kussia er prestssonur frá Konsó í Eþíópíu en hann og faðir hans hafa báðir gengið í skóla ís- lensku kristniboðanna í Konsó. Ís- lenskir kristniboðar reistu jafnframt íbúðarhús, heilsugæslustöð og kirkju í Konsó en það var allt fjármagnað með íslensku gjafafé. Engida hefur þekkt íslenska kristniboða frá blautu barnsbeini en hann lék sér við börn þeirra í þorpinu sínu. Að sögn hans hafa Íslendingar unnið mikið uppbyggingarstarf í Konsó. „Áður kunni fólkið ekki að lesa eða skrifa. Skóli íslensku kristniboð- anna var fyrsti skóli í Konsó.“ Íslendingar alltaf á hlaupum Að sögn Engida er íslenskt sam- félag mjög ólíkt því samfélagi sem hann þekkir. „Hér er fólkið upptekið. Hlaupandi um. Í Eþíópíu býr fólk saman. Í einu þorpi búa kannski 2.500 fjölskyldur og við þekkjum öll hvert annað með nafni. Við leikum saman, búum saman og vinnum saman. Hér virðist fólk vera meira í sínu horni. Núna eru líka vandamál í Eþíópíu. Þar er mikið af ómenntuðu fólki og alls kyns heilsufarsvandamál,“ segir Engida og bætir við að Konsóbúar hafi sterkar tilfinningar til Íslands. „Við lítum á Ísland sem okkar annað heimili. Ef þú spyrð Konsóbúa um Evrópu veit hann miklu meira um Ís- Morgunblaðið/Þorkell Engida Kussia frá Eþíópíu og Leifur Sigurðsson kristniboði. Konsóbúar með sterkar tilfinningar til Íslands Fimmtíu ár eru frá því að íslenskir kristniboðar héldu til starfa í Eþíópíu. Af því tilefni var Konsó- búanum Engida Kussia boðið til Íslands. Halla Gunnarsdóttir hitti hann og fylgdarmann hans, Leif Sigurðsson, að máli. 50 ár frá því að fyrsti íslenski kristniboðinn fór til Konsó MÁL gegn þremur mönnum um tví- tugt, sem voru kærðir fyrir að nauðga stúlku um tvítugt í samkvæmi í Bol- ungarvík fyrir rúmum mánuði, hefur verið látið niður falla af hálfu ríkissak- sóknara. Samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara var málið fellt niður þar sem ekki var talið líklegt að það leiddi til sakfellingar fyrir dómi. Var komist að þessari niðurstöðu m.a. á grundvelli framburða vitna sem báru um samskipti stúlkunnar og hinna kærðu í samkvæminu. Mennirnir neituðu sök og báru að kynferðisleg samskipti þeirra við stúlkuna hefðu farið fram með samþykki hennar. Nauðgunarmál fellt niður VERKTAKARNIR sem gerðu Hvalfjarðargönginn eru nú lausir undan fimm ára ábyrgð sem þeir báru á göngunum eftir gerð þeirra, en göngin voru tekin í notkun í júlí 1998. Verk- takarnir, Fossvirki, voru svo með þriggja mánaða reynslu- tíma á rekstri ganganna og því næst tóku við fjögur ár og níu mánuðir þar sem þeir báru ábyrgð á mannvirkinu, og er þeim tíma nú lokið. „Það komu nokkrum sinnum upp einhver smámál, en ekkert alvarlegt hefur komið upp á þessum fimm árum,“ segir Baldur Jóhannesson, staðar- verkfræðingur Spalar á fram- kvæmdatíma. „Öll göng í heim- inum leka, það er alltaf einhver leki einhversstaðar. Leki Hvalfjarðarganganna er mjög lítill, mun minni en verktakarn- ir hafa heimild til.“ Daglegt viðhald með göng- unum annast Járnblendifélagið fyrir Spöl en ef upp kæmu stór mál yrði gerður sérsamningur um það, að sögn Baldurs. Hvalfjarð- argöng úr ábyrgð verktaka

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.