Morgunblaðið - 31.08.2003, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 2003 13
OD
DI
H
F
K
01
48
Verið velkomin í verslun okkar á Þýskum dögum. Fjöldi tilboða
og sérstök afsláttarkjör í ljósadeild.
Þýskir dagar!
69.900 kr. stgr.
Kæli- og frystiskápur
KG 31V421
Glæsilegur skápur.
190 l kælir, 90 l frystir.
H x b x d = 175 x 60 x 64 sm.
Takmarkað magn = 40 stk.
Aktionspreis
(tilboðsverð)
79.900 kr. stgr.
Þvottavél
WXL 1241
Tekur 6 kg, 1200 sn./mín.
Stórt lúguop, fjöldi góðra
þvottakerfa. Þær gerast vart betri.
Takmarkað magn = 70 stk.
Aktionspreis
(tilboðsverð)
8.900 kr. stgr.
Farsími - A50
Frábær kaup. Lítill og
léttur farsími með
Li-Ion-rafhlöðu, WAP
og ýmsu öðru.
Takmarkað magn = 50 stk.
Aktionspreis
(tilboðsverð)
9.900 kr. stgr.
Ryksuga
VS 51B22
Kraftmikil 1400 W
ryksuga, létt og lipur,
stiglaus sogkraftsstilling.
Takmarkað magn = 100 stk.
Aktionspreis
(tilboðsverð)
13.900 kr. stgr.
Farsími - S45
Glæsilegur farsími
frá Siemens. Lítill og léttur.
Li-Ion-rafhlaða,
WAP/GPRS, raddastýring.
Takmarkað magn = 40 stk.
Aktionspreis
(tilboðsverð) Líka:
Þráðlausir GIGASET-símar
frá Siemens.
15% afsláttur af öllum þráðlausum
símum frá Siemens á Þýskum dögum
69.900 kr. stgr.
Þurrkari
WTXL 2201
Fyrir gufuþéttingu, enginn barki.
Rafeindastýrður rakaskynjari.
11 kerfi, tekur 6 kg. Frábær kaup.
Takmarkað magn = 40 stk.
Aktionspreis
(tilboðsverð)
59.900 kr. stgr.
Uppþvottavél
SE 34A235
Ný uppþvottavél,
einstaklega hljóðlát
og sparneytin. Fjögur
þvottakerfi, þrjú hitastig.
Takmarkað magn = 90 stk.
Aktionspreis
(tilboðsverð)
Þe
ss
i t
ilb
oð
g
ild
a
ei
nu
ng
is
d
ag
an
a
1.
–
6
. s
ep
te
m
be
r o
g
að
ei
ns
á
m
eð
an
b
irg
ði
r e
nd
as
t (
m
ag
n
ge
fið
u
pp
).
Umboðsmenn um allt land.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Costa del Sol 17. og 24. sept. Nú getur þú
notið skemmtilegasta tíma ársins á þessum vinsælasta áfangastað Íslendinga í
sólinni og búið við frábæran aðbúnað. Þú bókar núna, og tryggir þér síðustu
sætin, og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og
tilkynnum þér hvar þú býrð. Að sjálfsögðu nýtur þú
traustrar þjónustu
fararstjóra
Heimsferða allan
tímann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Costa del Sol
í september
frá kr. 39.962
Verð kr. 39.962
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 4. sept., 7 nætur
Almennt verð, kr. 41.960.
Verð kr. 49.950
M.v. 2 í herbergi/stúdíó, 24. sept.,
7 nætur. Almennt verð, kr. 52.447.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Val um 1 eða 2 vikur.
Hvenær er laust
3. sept. – 6 sæti
10. sept. – uppselt
17. sept. – 19 sæti
24. sept. – 23 sæti
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, hefur staðið í ströngu
við að koma á umbótum í þýska
velferðarkerfinu en ljóst þykir, að
einhvers staðar verður að skera
niður, meðal annars vegna breyttr-
ar aldursskiptingar þýsku þjóð-
arinnar. Tilraunir í þá átt hafa þó
ekki fallið í frjóan jarðveg en þeg-
ar málið um hann „Flórída-Rolf“
kom upp greip Schröder það tveim
höndum og notar nú sem samnefn-
ara fyrir það, sem hann segir að
úrskeiðis hafi farið í kerfinu.
Rolf J. er 64 ára gamall, fyrrver-
andi bankamaður, og hann komst á
forsíður allra þýsku blaðanna fyrr í
þessum mánuði. Þá kvað dómstóll
upp þann úrskurð, að ríkisstjórn-
inni bæri að greiða fyrir hann leig-
una fyrir hús á Atlantshafsströnd
Flórída. Var honum þó sagt, að
innan hálfs árs yrði hann að vera
búinn að finna sér ódýrari húsa-
kynni.
Þýskur almenningur, sem hefur
fengið að kenna á efnahags-
samdrætti og atvinnuleysi árum
saman, var hins vegar ekki í neinu
skapi til að samgleðjast með Rolf
og um landið allt fór reiðialda og
margir kröfðust opinberrar rann-
sóknar.
Schröder tók þetta mál upp í
sjónvarpsviðtali síðastliðið fimmtu-
dagskvöld og sagði þá, að Flórída-
Rolf væri „skelfilegt dæmi“ um það
hvernig skattfé almennings væri
misnotað.
„Þeir, sem misnota kerfið, grafa
undan samstöðunni í samfélaginu,“
sagði Schröder og var reiður.
„Þetta er slæmt fólk.“
Rolf aftur á móti segist alveg
hafa verið grunlaus um, að þetta
mál gæti valdið svona miklu fjaðra-
foki.
„Í 10 ár hafa félagsmálayfirvöld
í Neðra-Saxlandi greitt útgjöld
mín, leigu og skatta,“ sagði Rolf í
viðtali við dagblaðið Bild um leið
og hann sýndi blaðamanninum hús-
ið á Flórída með útsýni yfir hafið.
Þessi útgjöld hans voru 124.000 ísl.
kr. á mánuði.
Rolf var á opinberu framfæri, að
hluta a.m.k., þegar hann settist að
á Flórída fyrir nokkrum árum og
fyrir rétti hélt hann því fram, að
lögum samkvæmt og við vissar að-
stæður gætu þýskir ríkisborgarar
fengið styrkinn áfram þótt þeir
settust að erlendis, til dæmis ef
læknir teldi það nauðsynlegt. Hafði
hann það líka uppáskrifað af sál-
fræðingi, að eftir skilnað við konu
sína yrði hann að búa á Flórída til
að verða ekki þunglyndinu að bráð.
Varað við of
miklu bakslagi
Lögin, sem Rolf vitnaði til, voru
sett eftir stríð og þá ætlað að
hjálpa Þjóðverjum, sem flúið höfðu
land á nasistatímanum. Yfirvöld
segja, að það séu raunar aðeins um
1.000 manns, sem njóti þeirra nú,
en Ulla Schmidt heilbrigðis-
ráðherra hefur heitið því, að þau
verði endurskoðuð.
Berthold Löffler, prófessor við
háskólann í Ravensburg-Wein-
garten, segir að megingalli þýska
velferðarkerfisins sé sá, að það eigi
að vera eitt allsherjaröryggisnet
fyrir þegnana frá vöggu til grafar.
Hann varar aftur við því, að það
verði skorið of mikið niður gagn-
vart þeim, sem þurfa mest á því að
halda.
Löffler áætlar, að um 10% styrk-
þega svíki út bætur með ýmsum
hætti, en á móti komi, að um 10%
þeirra, sem eiga rétt á bótum, nýti
sér það ekki. Langstærstur hluti
styrkþega fái hins vegar ekki
meira en fyrir brýnustu nauðþurft-
um.
„Flórída-Rolf“
og þýska
velferðarkerfið
Berlín. AFP.
GENGI
GJALDMIÐLA mbl.is